Morgunblaðið - 03.09.1988, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988
11
Norræna húsið:
Eini kven-heim-
skautafarinn
Happdrætti knatt-
spyrnudeildar UMFG
MONICA Kristensen, eina konan
sem hefur stjórnað og skipulagt
heimskautaleiðangur, heldur fyr-
irlestur í Norræna húsinu á mánu-
daginn. Þar segir hún frá leið-
angri sínum til Suðurskautsins í
slóð Roalds Amundsens.
Monica var 31 árs gömul þegar
hún hóf að undirbúa leiðangurinn.
Pimm árum síðar var undirbúningi
lokið, en vegna tafa og óhagpa varð
að fresta ferðinni um eitt ár. í desem-
ber 1986 hófst leiðangurinn og var
farinn í slóð Roalds Amundsens. í
frétt frá Bókaklúbbnum Veröld, sem
býður Monicu til þessa fyrirlesturs,
segir að þegar hún átti eftir 444
kílómetra leið að markinu, hafi hún
staðið frammi fyrir erfiðri ákvörðun.
Þá varð hún að gera upp við sig,
hvort halda ætti áfram og taka þá
áhættu að verða of sein til baka og
skip leiðangursins yrði þá frosið inni.
Hinn valkosturinn var að snúa við
og mistakast að ljúka ætlunarverk-
inu.
Frá þessum leiðangri segir Monica
og sýnir litskyggnur með myndum
úr ferðinni. Fyrirlesturinn verður
haldinn í Norræna húsinu mánudag-
Eini kven-heimskautafarinn,
Monica Kristensen, í leiðangri
sinum til Suðurskautsins.
inn 5. september næstkomandi og
hefst klukkan 20.30. Monica flytur
mál sitt á ensku.
DREGIÐ hefur verið í happ-
drætti knattspyrnudeildar
UMFG og komu vinningar á
eftirtalin númer.
1. Citroén AX bifreið nr. 598,
2. utanlandsferð með S/L nr. 844,
3. utanlandsferð með S/L nr. 489,
4. utanlandsferð með Flugleiðum
nr. 935, 5. vöruúttekt hjá Hljómbæ
nr. 1026, 6. hrærivél nr. 871, 7.
vöruúttekt hjá Heklu hf. nr. 858,
8. sólhúsgögn nr. 283, 9. örbylgju-
ofn nr. 209, 10. næturgisting á
Holiday Inn nr. 816.
Upplýsingar um vinninga veita
Jónas Þórhallsson í síma 68495,
Gunnar Vilbergsson í síma 68304
og Ragnar Ragnarsson í síma
68484.
Vinningsnúmer eru birt án
ábyrgðar. (Fréttatilkynning:)
Leiðréttíng
í grein eftir Ólaf Oddsson um
kennara og störf þeirra í Morgun-
blaðinu á fimmtudag misritaðist í
3ja lið, þar sem fjallað er um störf
kennara, þar sem segir að „ís-
lenskukennarar þurfa jafnvel að
fara yfir um 1.600 ritgerðir . . .“
en ekki 160 eins og stóð í blaðinu.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
V/CDhmjM QQ
hjá Rögga og Kóbba
Opiö virka daga frá kl. 16-23. Um helgar frá kl. 13-23. Aðgöngumiðasölu hætt alla daga kl. 22.
V/CDhmjM QQ
INNAN VEGGJA OG UTAN
Ragnhildur Gísladóttir og Jakob
Magnússon eru smekkfólk á
fleira en tónlist, það er greinilegt.
Á sýningunni VERÖLDIN 88
hafa þau innréttað 230 fermetra
íbúð eftir eigin höfði.
Valið húsmuni, liti og alla
umgjörð; jafnvel vegghallannl!
íbúð sína kalla þau dvalarheimili sitt.
Árangurinn kemur svo sannar-
lega á óvart; smekklegur og
frumlegur í senn.
Á sýningunni VERÖLDIN 88 er
fjöldi nýjunga.
Allskonar kynning á vöru og
þjónustu.
Auk allskonar skemmtiatriða.
Athugið að Ragnhildur og Jakob
verða sjálf í dvalarheimili sínu á
virkum dögum kl. 18 og 20, en
um helgar kl. 15,17,20 og 21.
*