Morgunblaðið - 03.09.1988, Síða 37

Morgunblaðið - 03.09.1988, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988 37 SÍÐASTA AFREKIÐ Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Síðasta afrekið („Le soleil des voyous“). Sýnd í Regnboganum. Frönsk. Leikstjóri: Jean Del- annoy. Handrit: Alphonse Boud- ard, byggt á sögu eftir J.M. Flynn. Framleiðandi: Maurice Sacquin. Helstu hlutverk: Jean Gabin og Robert Stack. Sumar myndir verða forvitni- legir safngripir með árunum á meðan aðrar eru best grafnar og gleymdar. Hér er t.d. Robert Stack, bandaríski leikarinn sem dritaði niður glæponana í hlutverki hins dáða Eliots Ness í Hinum vamm- lausu í kanasjónvarpinu, talandi næstum fullkomna frönsku í frönskum krimma og beijandi svo léttilega á misindismönnunum að hann gæti verið að lesa Vesaling- ana á meðan. Og hér er Jean Gabin, sá önd- vegisleikari franskra kvikmynda, dáður og elskaður af löndum sínum og eitt frægasta andlit frönsku kvikmyndanna um heim allan, í gerfi efnaðs og virðulegs eldri borgara sem hefur uppi glæfraleg áform um að ræna banka. Hveijum gæti dottið þetta í hug; Jean Gabin og Robert Stack saman í bíómynd? Síðasta afrekið („Le soleil des voyous"), sem endursýnd var í Regnboganum í nokkra daga, en var frumsýnd í Hafnarbíói á sínum tíma, er frá 1966 og er algjör þriðjaflokks krimmi á nútíma mælikvarða og höfðar sennilega ekki til annarra en kvikmyndaá- hugamanna, það er varla farandi á hana í dag nema fýrir forvitni sakir. Hún segir frá bíræfnu bankar- áni en framkvæmd þess er hinn ljómandi hápunktur myndarinnar. Stack, sem engin leið er að sjá að nálgast fimmtugsaldurinn í myndinni, er hinn knái og kvens- ami afreksmaður (myndin heitir raunar „Action Man“ í enskri þýðingu). Klæddur svörtum leður- frakka með uppbrettan kragann, að sjálfsögðu, stífur og snaggara- legur virðist hann ósigrandi. Gab- in, ímynd rólyndis og virðuleika, fær hann í lið með sér í síðasta afrekið, bankarán sem á að vera lokaskemmtun gamals bófa sem saknar gömlu dýrðardaganna í velmegun ellinnar. Það munar litlu að glæpir borgi sig í þessu tilfelli. Stack og Gabin eru engir alvöru glæpamenn held- ur siðprúðir vinir að skemmta sér og þegar allt fer úr böndunum mæta þeir örlögum sínum með stóískri ró. Leikstjórinn, Jean Delannoy, sem var uppá sitt besta á fímmta áratugnum, en þótti hafa lítið að segja eftir það og einbeitti sér m.a. að fagmannlega gerðum krimmum á sjöunda ára- tugnum, heldur vel utan um ágæt- an söguþráðinn. Filmueintakið var orðið gamalt og það var huggulegur rauðleitur hjúpur yfir myndinni allri. Ástin á herragarðinum Sherlyn og Tyson í myndinni Stefnumót á Two Moon Junction. Stefnumót á Two Moon Junc- tion („Two Moon Junction“). Sýnd i Laugarásbíói. Bandarísk. Leikstjórn og hand- rit: Zalman King. Framleið- andi: Donald P. Borchers. Tón- list: Jonathan Elias. Helstu hlutverk: Sherlyn Fenn, Ric- hard Tyson, Louise Fletcher og Burl Ives. Annar af handritshöfundum og framleiðandi kynbombunnar 9V2 vika, Zalman King, heldur mikið til uppteknum hætti í myndinni Stefnumót á Two Moon Junc- tion(„Two Moon Junction"), sem sýnd er í Laugarásbíói, og núna er hann einráður, bæði handrits- höfundur og leikstjóri. Enn er viðfangsefnið heitar ástríður tveggja ólíkra einstakl- inga, núna niðrí sjóðandi Suð- urríkjunum. Það er líklega engin tilviljun að aðalkvenpersónan, hin kynþokkafulla suðurríkjamilla- mær, April (Sherlyn Fenn), er eins og plastmódel af Madonnu og það sést næstum því oftar í gljáandi bringuna á svitastorknum Richard Tyson, sem leikur vinnumanninn og þarfanautið Perry, en andlitið á honum. Madonnueftirlíkingin og Bringugljáinn laðast hvort að öðru, að sjálfsögðu fyrir girndar sakir, sem er altso voðalega slæmt af því hún á að giftast vænum milla og brúðkaupið er í nánd. Þau eiga nokkra funheita ástar- fundi sem eru ekkert„ótrúlega djarfir" miðað við Landlæknis- auglýsinguna. Það er sárafátt annað en frygð og losti sem teng- ir þau saman og hin stóra suð- urríkjafjölskylda stelpunnar, sem Louise Fletcher er fulltrúi fyrir í hlutverki valdamikillar ömmu, er ekkert ofboðslega hrifin af fengi- tímalátunum í verðandi eiginkon- unni og lætur suðurríkjalögguna, sem ansi góður Burl Ives er full- trúi fyrir, hrekkja Bringugljáann. En þeir vita sem séð hafa vinnu- mannamyndirnar frá Suðurríkj- unum að sá bringuberi er ekki í neinni hættu. Hér er sumsé komið enn eitt afbrigðið af suðurríkjaást herra- garðsstelpunnar og bringubera vinnumannsins. Það er dapurlega kunnuglegt efni og Zalman King er með svo ófrumlega sögu í hönd- unum að myndin hæðist óvart að sjálfri sér. En hann hefur auga fyrir fallegum leikurum og kann að stilla þeim fallega upp í fallegu umhverfi. Sherlyn Fenn og Ric- hard Tyson eru ósköp sætt par, töff og smart, en samræður eru ekki þeirra sterka hlið. Undir stjórn Zalman Kings er sterka hliðin þeirra alltaf lárétt. Talaðu við ofebur um eldhústæbi SUNDABORG 1 S. 68 85 88 - 68 85 89 Talaðu við okkur á heimilis- sýningunni í Laugar- dalshöll 1.-11. sept. Míele « ' " I SUNDABORG 1 S. 6885 88 -688589 Talaðu við okkur um uppþvottavélar «T#• • wt , m • . fm •. >T • • , Moiminblaðið/Julíus Nybyggmg Vesturbæjarskolans við Hrmg-braut. Vesturbæjarskóli: Nýbyggingin til- búin í næstu viku NÝBYGGING Vesturbæjarskól- ans í Reykjavík, kemst I gagnið í lok næstu viku, þegar kennsla í grunnskólum landsins hefst. Hafist var handa við bygginguna vorið 1987 og hljóðar kostnað- aráætlun á núvirði í heild upp á 150 milljónir króna. Þá er verið að ljúka við kennslurými í 2. áfanga Foldaskóla í Grafarvogi. „Það verður mikil bragarbót að fá þetta hús," sagði Kristín Andrés- dóttir, skólastjóri Vesturbæjarskól- ans, í samtali við Morgunblaðið. „Nú verður öll kennsla undir sama þaki, en við höfum verið á tveim stöðum, á Öldugötunni og í Mið- bæjarbamaskólanum. Að vísu verð- um við áfram með kennslu í íþrótt- um og heimilisfræðum í Miðbæjar- bamaskólanum. Húsnæði fyrir það er í 2. áfanga, sem kemst í gagnið næsta skólaár.“ Nemendur verða 310 talsins frá forskóla upp í 6. bekk, sem er nokk- ur fjölgun, sérstaklega í yngri bekkjardeildum, að sögn Kristínar. Nemendur í Foldaskóla verða um 760 talsins í vetur, að sögn Am- finns Jónssonar, skólastjóra. „Þetta ætlar að ganga upp á síðasta degi því kennslurýmið á að verða tilbúið á mánudaginn, daginn áður en kennsla hefst." Farymann Smádíselvélar 5.4 hö við 3000 SN. . 8.5 hö við 3000 SN. Dísel-rafstöðvar 3.5 KVA ■Lc-^U Söyifflmagiiuiir tJ)(6xni®©®ira ©cs) Vesturgötu 16, sími 14680. LEITIN ENDAR HJÁ OKKUR! Úrval Lflokks notaðra bila í okkareigu.Allir skoðaðirog yfirfarnir. SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ; MAZDA3231.3 Árgeró ’87. Rauöur. Ekinn 21 þ/km. MAZDA323 STATION Árgerð’87. Rauóur. Ekinn 25 þ/km. SUBARU TURBO STATION Sjálfskiptur. Árgeró ’87. Beige. Ekinn 29 þ/km. HONDA PRELUDE Árgeró’87. Sjálfskiptur. Grár. Ekinn 15 þ/km. MAZDA 3231.5 Árgcró’87. Hvítur. Ekinn 22 þ/km. MAZDA3231.5 Árgerö’87. Gnír. Ekinn 29 þ/km. MAZDA6262.0 Árgerð ’87. Blár. MAZDA6262.0 Árgcrfl ’85. Grár. Ekinni 80 þ/km. ___Ny hagstæð ___greiðslukjör:_ Helmingur lánaóur11 ár með 8% ársvöxtum - ÁN VERÐ- TRYGGINGAR!! MAZDA929 HT2.0 Árgcrð '83. Sjálfskiptur. Grænn. Ekinn 90 þ/km. NISSAN SUNNY STATION Árgerð ’84. Rauður. Ekinn 70 þ/km. DAIHATSU CHARADE Áigerð ’88. Blár. NÝR-ÓEKINN. TOYOTA CARINA Árgerð ’84. Grann. Ekinn 60þ/km. BMW520Í Sjálfskiptur. Árgeró ’84. Blágrár. Ekinn 70 þ/km. FORDESCORT Árgeró ’87. Beige. Ekinn 22 þ/km. MAZDA323 GTi 1.6 Árgerð ’86. Svartur. Ekinn 26 þ/km. SUBARU STATION Árgeró’82. Hvítur. Ekinn 90 þ/km. VOLVO340 Árgeró ’86. Grár. Ekinn 26 þ/km. MAZDA 626 2.0 Árgeró’83. Grár. Ekinn 70 þ/km. Fjöldi annarra bíla á staönum. Opið laugardaga frá kl. 1-5 mazoa BÍLABORG H.F. FOSSHÁLS11. SfMI 68 12 99

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.