Morgunblaðið - 03.09.1988, Síða 43

Morgunblaðið - 03.09.1988, Síða 43
' mORGUNTBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. SÉPTEMBRR 1988 Sigrún Sigurðar- dóttir — Minning Fædd 25. júlí 1894 Dáin 26. ágiist 1988 Það var fyrir rúmum 94 árum, nánar tiltekið þann 25. júlí 1894, að stúlkubam fæddist á Kálfhóli á Skeiðum. Litla stúlkan virtist heldur líflítil og var brugðið á það ráð að skíra hana aðeins tveggjanátta. Sóknarpresturinn, séra Brynjólfur á Ólafsvöllum, var sóttur og brá hann skjótt við. Hann kom hempu- klæddur að Kálfhóli og spurði móð- urina hvað bamið ætti að heita. „Jakobía Júlíana,“ svaraði móðirin, „því hún er fædd á Jakobusarmessu í júlímánuði." „Þetta er ógurlegt nafn,“ svaraði prestur. „Ég skíri ekki bamið þessu nafni. Eigið þér ekki einhver skyldmenni látin?“ „Jú,“ svaraði móðirin, „tvær systur mínar hvíla í Stóra-Núpskirkjugarði og hét önnur Guðrún og hin Sigríð- ur.“ „Þá skíri ég bamið Sigrúnu," svaraði séra Brynjólfur. „Hitt er tröllanafn." Og litla stúlkan var vatni ausin og nefnd Sigrún. Brá svo við að telpan bráðhresstist og lifði hress og glöð í 94 ár. En litla stúlkan, sem hér er sagt frá, var einmitt hún Sigrún Sigurðardóttir sem við nú kveðjum. Ekki átti Sigrún litla þess kost að dvelja lengi í skjóli móður sinnar, Þorbjargar Guðmundsdóttur. Þor- björg var ógift vinnukona á Kálf- hóli en átti sveitfestu í Gnúpveija- hreppi því hún var fædd og uppalin í Þjórsárholti í sömu sveit. Faðir Sigrúnar hét Sigurður Guðmunds- son. Hann var frá Eyrarbakka en hafði engin afskipti af baminu. Þegar Sigrún litla var fjórtán daga gömul var farið með hana upp í Gnúpveijahrepp. Fyrst að Háholti og síðan að Glóru. Þá bjuggu í Glóm Guðlaug Loftsdóttir frá Austur-HIíð og Bjami Jónsson frá Háhoiti. Þau höfðu misst stúlku sem hét Sigrún og var Sigrúnar nafnið þeim kært. Þau tóku nú Sigrúnu litlu þegar hún var fjórtán vikna gömul. Var ekki langt að fara með stelpukrílið því Glóra var eitt af fjórum býlum sem áður voru í Háholtstorfunni svonefndu. Glóra varð þannig bemskuheimili Sigrúnar eða Siggu eins og hún var alltaf kölluð. Hjón- in í Glóm urðu henni bestu foreldr- ar. Auðvitað kallaði hún þau pabba og mömmu og nú vom Glóm-systk- inin orðin 5. En sorgin var ekki langt undan. Sigga er aðeins 6 ára þegar hún missir „blessaða fóstm" sína. Tvö næstu árin er hún með fóstra sínum og systkinum í Glóm en þá flyst fjölskyldan að Háholti. Þegar svo Jóhanna fóstursystir hennar giftir sig er hún fyrst hjá henni og henn- ar manni, Matthíasi Jónssyni, í Háholti og flyst síðan með þeim 1909 að Skarði í sömu sveit, en þar var ættaróðal Matthíasar. Má í raun og vem segja, að Jóhanna hafi ver- ið bæði systir og móðir Siggu. í Skarði er Sigga til 17 ára ald- urs. Þá ræður Þorbjörg móðir henn- ar hana að Skaftholti í Gnúpveija- hreppi. Sigga fer þangað sámauðug því hún vildi vera áfram hjá sínu fólki í Skarði. Hún er ung og hraust og dugleg svo af ber. Vilja margir fá hana sem vinnukonu og kaupa- konu. Frá Skaftholti fer hún að Stóra-Núpi og var þar í kaupa- mennsku mörg sumur. Henni fannst alltaf, að bestu ár ævi sinnar hefði hún lifað á Stóra-Núpi. Dáði hún Stóra-Núpsfeðga mjög, þá séra Valdimar Briem og séra Ólaf Briem. Dagfar þeirra allt hefði verið svo glatt og skemmtilegt. Oft minntist hún skemmtiferða sem famar vom frá Stóra-Núpi á sumrin, stundum lengst inn á afrétt eða í önnur hér- öð svo sem til Þingvalla eða austur í Fljótshlíð. Minntist hún oft á hve hrifin hún varð, þegar hún kom í skrúðgarðinn hennar Guðbjargar í Múlakoti. Stundum var farið ríðandi inn í Þjórsárdal og á hveiju sumri reið heimilisfólkið á Álfaskeið í Hmnamannahreppi. Og þá var gaman að vera vel ríðandi, en á þessum ámm átti Sigga hest góðan sem hún nefndi Litfara. Það var eins og hún yrði ung í annað sinn þegar hún fór að lýsa honum Lit- fara sínum. Litföróttir hestar em og vom sjaldséðir. Sigga er síðan einn vetur á Ásólfsstöðum í Þjórsárdal og þar kynntist hún ungum manni frá Hafnarfirði, Kristjáni Guðmunds- syni. Hún flyst til Hafnarfjarðar 1935 og þau Kristján giftast á jól- unum það sama ár. Fyrstu þijú árin búa þau hjá foreldmm Krist- jáns, Guðmundi Gestssyni og Jónu Benediktsdóttur, við Langeyrarveg í Hafnarfirði en kaupa síðan ofurlít- inn bæ á Norðurbraut 7b. Þar var aðeins eldhús og ein herbergis- kytra. Þama bjuggu þau í fimm ár. Þá var bærinn rifinn og nýtt hús byggt. Það var ekki stórt, að- eins þijú lítil herbergi og dálítið eldhús. En þar sem hjartahlýjan er, þar er húsrýmið nóg, og svo var á Norðurbraut 7b. Sigga og Kristján eignuðust þijú böm. Fyrsta bamið dó í fæðingu en hin em: Sigurður Pálmi, tækni- fræðingur, sem er giftur Ingibjörgu Jónsdóttur og eiga þau þijú böm. Dóttirin heitir Olafía, skrifstofu- stúlka, og hefur hún ásamt Krist- jáni föður sínum annast Siggu, eft- ir að heilsunni tók að hraka. Tel ég það aðdáunarvert hve vel þau hugsuðu um hana. Þá dáðist ég oft að umhyggju Sigurðar Pálma og hans fjölskyldu. Eg held engin helgi hafi liðið svo að þau kæmu ekki í Fjörðinn til að eiga góða stund með fjölskyldunni á Norðurbraut 7b, við spil eða annan gleðskap meðan þess var nokkur kostur. Og að sumrinu að. skreppa austur fyrir fjall, svo Sigga gæti notið þess að dvelja í sínum kæm átthögum; Hreppun- um. Oftast fóm þau austur að Fossi í Hmnamannahreppi en þar bjuggu frá 1936 þau Jóhanna fóstursystir Siggu og Matthías frá Skarði. Var þar til vina að hverfa en leiðin auð- rötuð Sigurði Pálma, því þar dvaldi hann löngum sem bam. Sigga var mikill gleðigjafí hvar sem hún fór. Þeir vom margir sem hún gladdi með gjöfum, þar sem þröngt var í búi, þó kannski væri ekki af miklu að taka. Og hún taldi ekki eftir sér sporin ef hún gat orðið einhveijum að liði með „smá- snúningi" eins og hún orðaði það. Og helst vildi hún að enginn vissi um þetta. En nágrannamir þekktu góðmennsku hennar og blessuðu hana. Sigga hafði afburðagott minni. Skal ég nú nefna dæmi um það. Hún átti að fermast vorið 1909 en um áramótin 1908 til 1909 gerði fárviðri og kirkjumar á Stóra-Núpi og Hrepphólum fuku, svo ekki var hægt að ferma í þeim um vorið. Bömin vom því ekki fermd fyrr en um haustið og um leið var kirkjan í Hrepphólum vígð. Sungin vom kirkjuvígsluljóð sem séra Valdimar Briem hafði ort. Þetta var mikil hátíðamessa og stóðu þeir feðgar séra Valdimar og séra Olafur sonur hans fyrir altarinu. Sigga sagði, að oft sæi hún í huga sér þá feðga í fullum skrúða, standa fyrir altarinu. Og kirkjuvígslusálmana lærði hún svo vel að þegar minnst var 70 ára vígsluafmælis Stóra-Núpskirkju og sálmamir fyrirfundust ekki var leit- að til Siggu og kom þá í ljós að hún kunni alla sálmana. Slíkt af- burðaminni hafði hún. Sigga hafði mikið yndi af fögram söng og var mjög kirkjurækin. Dáði hún séra Garðar Þorsteinsson og hans fögm rödd. Móðir mín, Kristín Bjamadóttir frá Glóm, var fóstur- systir Siggu. Var það fastur siður þeirra, að vera við messu hjá séra Garðari föstudaginn langa. Sú messa var óvenjuleg því hún var að mestu leyti sungin. Móðir mín átti heima í Reykjavík og fór alltaf suður í Hafnarfjörð skírdagskvöld, gisti hjá Siggu, og saman gengu þær svo til kirkju föstudaginn _____________________________43 ~ langa. Þetta var mikil hátíð hjá þeim fóstursystmm. Eins og fram hefur komið var Sigga alltaf boðin og búin að rétta hjálparhönd ef einhver átti í erfíð- leikum. Þegar Yngvi, elsti sonur minn, var á fjórða ári varð móðir mín að fara á spítala. Þetta setti mig í mikinn vanda. Við áttum þá heima í Reykjavík en ég kenndi í Hafnarfirði og hún gætti Yngva á daginn. Þá bauð Sigga mér að koma með Yngva til þeirra Kristjáns og búa hjá þeim. Þetta var mér ómet- anleg hjálp. Þama vomm við Yngvi tvo vetur, og sjálfsagt var að við svæfum í stofunni þeirra, því húsa- kynnin vom ekki stór. -Kristján studdi konu sína ávallt. þegar hana langaði að rétta einhveijum hjálpar- hönd. Oft var mikið fjör á Norðurbraut 7b, þegar Sigga hossaði Yngva á hnjánum og söng: Krummi húkti á hellu krummi húkti á hellu krummi húkti á hellu húja - húja - húja. Krunkar hann einu sinni krunkar hann tvisvar sinnum krunkar hann þrisvar sinnum húja - húja - húja. Og alltaf þeyttist drengurinn hærra og hærra og síðast fannst honum skammt til loftsins. Þessu gleymir hann aldrei og sendir nú kærar kveðjur og þakkir úr fjar- lægu landi. Og enn þann dag í dag finna synir mínir þrír ylinn af öllum vettlingunum og hosunum sem hún pijónaði handa þeim. Það em áreið- anlega margir sem geta tekið undir það. Hún Sigga var alltaf að gefa. Að lokum vil ég þakka löng og góð kynni og órofatryggð. Hún Sigga var gæfumanneskja. Hún átti góða og glaða lund og mikið þrek. Og gleðin og gjafmildin fylgdi henni til æviloka. Að síðustu langar mig að kveðja hana með upphafserindinu úr sálmi eftir séra Valdimar Briem, en það erindi fór hún oft með: Þú guð sem stýrir stjarnaher og stjómar veröldinni, í straumi lífsins stýr þú mér með sterkri hendi þinni. Hulda Runólfsdóttir frá Hlíð Vegna mistaka við vinnslu þessarar greinar í blaðinu f gær birtist hún hér aftur og eru hlut- aðeigandi beðnir afsökunar. Minning: Wera Siemsen Fædd 8. febrúar 1906 Dáin 25. ágúst 1988 Eitt sinn var sú tíð, að útlending- ar háðu ormstur hér á landi og á hafínu umhverfís landið. Ófriði þeim var ekki beint gegn íslending- um, heldur stóð baráttan um að- stöðu til þess að versla við íslend- inga. Þetta var einkum á 15. og 16. öld, og það vom Þjóðveijar og Englendingar sem börðust. Mesta ormstan var háð um aðstöðuna í Hafnarfirði. Þar féllu margir menn. Þjóðveijar komu einkum frá Lýbiku og Hamborg, helstu borgunum í hinu volduga Hansa-verslunarsam- bandi. Lýbika er hið foma íslenska heiti á Ltibeck. Sú borg stendur við ána Trave, skammt þar frá sem áin fellur í vestanvert Eystrasalt. Um skeið áttu íslendingar mikil skipti við Lýbikumenn. Þetta var fyrir tíma hinnar dönsku einokunarverslunar, er hófst 1602. Á hennar tímabili ein- angraðist ísland frá öðmm löndum. StM svo þar til verslun var gefín fíjáls 1787. íslendingar tóku að gerast kaupmenn og erlendir kaup- menn að setjast hér að. Meðal hinna erlendu kaupmanna var Eduard Siemsen. Hann var þýskur, fæddur 1815 og kom hing- að frá Slésvík. Hér í Reykjavík hitti hann fyrir laglega og vel gefna stúlku, Sigríði Þorsteinsdóttur í Hlíðarhúsum. Og ekki var að sökum að spytja. Hann fékk stúlkunnar og settist hér að. Þau eignuðust margar fagrar dætur og einn son, Franz Eduard Siemsen, sem varð sýslumaður Gullbringu- og Kjósar- sýslu og bæjarfógeti í Hafnarfirði. Franz Siemsen kvæntist Þómnni dóttur Áma Thorsteinssonar land- fógeta og konu hans, Sophiu John- sens. Böm þeirra Franz Siemsens og Þómnnar vom Ámi Siemsen, Sigríður kona Páls Einarssonar, Soffía kona Magnúsar Kjarans og Theódór Siemsen. Þegar þeir bræður Ámi og Theó- dór uxu úr grasi, hneigðist hugur þeirra að kaupmennsku. Ámi fór utan til að læra til þeirra verka. Hann fór nýjar slóðir, til Ltibeck í Þýskalandi. Þar hitti hann sína stúlku, reyndar dóttur kaupmanns- ins, vinnuveitanda hans. Og enn var ekki að sökum að spyija. Hann fékk stúlkunnar og settist að í Ltibeck. Þar átti hann heimili meðan lif ent- ist og kom á fót traustu verslunar- sambandi við ísland. Theódór fór í spor Áma bróður síns til verslunamáms í Ltibeck. Enn fór á sömu leið, að þar kynnt- ist hann myndarstúlku, Wera Schetelig. Þau gengu í hjónaband 9. mars 1928. Foreldrar hennar vom Gustav Schetelig og kona hans, Elisa F. Brinkmann. Auk Wem áttu þau hjón yngri dóttur, Ruth, sem enn býr í Ltibeck. Gustav Schetelig var verkfræð- ingur að mennt og forstjóri og eig- andi vélaverksmiðju í Ltibeck. Hann var einn af máttarstólpum atvinnu- lífs í heimaborg sinni. Ég minnist þess enn, er ég, ungur stúdent, var boðinn á heimili þeirra hjóna árið 1930 ásamt ömmu minni, Þómnni Siemsen, sem þá dvaldist í Ltibeck. Þar ríkti mikið af hinum menning- arlega blæ, sem sjá mátti í sjón- varpsmyndinni um Buddenbrooks- Qölskylduna í vetur sem leið, þótt öllu væri í hóf stillt á ytra borði. Ég veit heldur ekki betur, en að Theódór Siemsen hafi þurft að ganga hátíðlega fyrir föður stúlk- unnar til að biðja um hönd hennar og gera grein fyrir möguleikum sínum til að sjá fyrir henni. Þau Theódór og Wera fluttust til íslands árið 1929. Theódór tókst á hendur stjórn verslunarinnar Liv- erpool af mági sínum, Magnúsi Kjaran, sem þá var önnum kafinn við undirbúning Alþingishátíðarinn- ar. Hann stýrði þeirri verslun til ársins 1940, en þá stofnaði hann eigin matvælaverslun, sem hann rak til dauðadags 1966. Sú verslun var við Tryggvagötu, þar sem áður hafði verið skipaafgreiðsla Jes Zimsens. Það vom án efa snögg viðbrigði fyrir Wem að flytjast frá Ltibeck, gamalgróinni menningarborg, til Reykjavíkur, sem þá var á miklu gelgjuskeiði í flestum efnum. En hún sýndi þá strax, hvem mann hún hafði að geyma. Hún dreif sig f að læra íslensku fljótt og vel og kynnast hinu nýja landi sínu. Wera hvarf ekki frá uppmna sínum eða uppeldi, enda engin ástæað til slíks, en henni tókst með ágætum að samlagast hinu fslenska umhverfí og verða fullgildur þegn í þjóðfélagi okkar. Þau Theódór komu sér upp fögm heimili í Suðurgötu 26 (Skólabæ) og síðar á Laugateig 3 í Reykjavík. Wera gegndi húsmóðurstörfum framan af og kom upp bömum sínum. En þegar Theódór stofnaði eigin verslun, kom hún honum til aðstoðar við reksturinn af miklum dugnaði og útsjónarsemi. Böm þeirra Wem og Theódórs em tvö, Gústav Magnús Siemsen, f. 1930, og Hilda-Lís Siemsen, f. 1933. Gústav Magnús er skipstjóri og kvæntur Dagbjörtu Ámadóttur. Þau eiga þijú böm: Kristínu, Vem og Guðfinnu. Hilda-Lís er gift Sigurbergi Ámasyni iðnfræðingi. Þau eiga þijú böm: Theódór, Steinunni ogAma. Wera mjssti mann sinn 14. febrú- ar 1966. Árið 1961 varð hún fyrir því áfalli, að lömun gerði vart við sig í annarri hendi hennar vegna tmflunar á blóðstreymi til heilans. Lömunin breiddist smám saman út, og síðustu árin var hún nær far- lama. Mótlæti sínu tók Wera með einstökum kjarki og reisn, svo að aðdáun vakti. Eftir lát manns síns, tókst henni þrátt fyrir vaxandi hömlun að búa ein í íbúð sinni og naut þá frábærrar umhyggju bama sinna og tengdabama. Andlegum styrk sínum hélt hún til loka. Wera Siemsen var eftirminnileg kona með heilsteypta skaphöfn, kjarkmikil, hreinskilin og trygg- lynd. Hún bar uppmna sínum í Hansaborginni Ltibeck gott vitni.- Ég sendi fjölskyldu hennar einlægar samúðarkveðjur. Einar B. Pálsson Mistök urðu við lokafrágang þessarar greinar í blaðinu í gær og er hún því birt aftur. Eru hlutaðeigandi beðnir afsökunar á mistökunum. Kransar, krossar og kistuskreyíingar. Sendum um allt land. GLÆSIBLÓMIÐ GLÆSIBÆ, Álíheimum 74. sími 84200

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.