Morgunblaðið - 03.09.1988, Síða 55
' <T'T 1 \ r r■? T V' ,«• .9.T\.rv .-;^r _ ^.fcM\. .2 f<Xt <TT ‘. r.<Ui > •<
MOHGUNBLAÐEE) IÞROTTIR LAXJGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988
55
2. DEILD
FYLKIR - FH.......................1:1
F). leikja U j T Mörk Stig
FH 15 12 2 1 42: 14 38
FYLKIR 15 9 6 0 35: 21 33
VÍÐIR 14 6 2 6 29: 24 20
ÍR 14 6 2 6 24:29 20
SELFOSS 14 5 4 5 20: 20 19
TINDASTÓLL 14 5 2 7 21: 26 17
ÍBV 14 5 1 8 26: 30 16
KS 14 3 4 7 30: 40 13
UBK 14 3 4 7 19: 29 13
ÞRÓTTUR 14 1 5 8 19: 32 8
1. DEILD KVENNA
VALUR - FRAM________________10:0
KA- (A........................2:1
Fj.Mkja u J T Mörk Stig
VALUR 14 12 o CM 49:4 38
KR 13 8 3 2 31: 16 24
ÍA 13 6 4 3 28: 10 22
STJARNAN 13 7 3 3 32: 15 21
KA 13 6 1 6 28: 22 19
ÍBK 13 4 2 7 15:27 14
IBÍ 13 1 1 10 6:49 4
FRAM 14 1 0 12 7:63 3
—
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Danir samþykkja að
leika í Reykjavík
Danski landsliðsþjálfarinn Sepp Piontek tilbúinn að aðstoða KSÍ við að
fá Ásgeir og Arnór lausa í leikinn í Kaupmannahöfn 28. september
DANSKA knattspyrnusam-
bandið tilkynnti Knattspymu-
sambandi Islands í gœr, að
það só tilbúið að koma með
landstið sltt til Reykjavíkur og
leika hór landsleik ó nœsta
árieða 1990.
Danir geta ekki leikið hér f
byijun ágúst 1989, eins og
KSÍ óskaði eftir. „Það verður
gengið frá leikdegi í Kaupmanna-
höfii, þegar landsleikur Dana og
íslendinga fer fram 28. septem-
ber. Þá verður ákveðið hvort að
ieikurínn hér heima gegn Dönum
fari fram næsta sumar eða 1990,“
sagði Páll Júlíusson, skrifstofu-
stjóri KSÍ, í samtali við Moigun-
blaðið i gær.
PáU sagði að nú væri verið að
safna liði f leikinn gegn Dönum f
Kaupmannahöfn 28. september
n.k. „Það er ijóst að allir atvinnu-
menn okkar eru lausir þennan
dag, nema Sigurður Grétarsson,
sem er að leika með Luzem í
Sviss," sagði Páll.
Það en enn öljóst hvort að Ás-
geir Sigurvinsson og Amór
Guðjohnsen fái frí frá félögum
sfnum tíl að leika, en Stuttgart
og Anderiecht hafa fram tíl þessa
ekki verið viljug til að gefa þá
lausa í vináttulandsleiki.
Siegfried Held, landsliðsþjálfari
íslands, mun ræða við þjáifara
og forráðamenn Stuttgart og
Anderiecht, tíl að fá þá Asgeir
og Amór í landsleikinn. Einnig
verða forráðamenn KSl í sam-
bandi við féiögin.
Danir eru tilbúnir til að aðstoða
KSÍ f þessu sambandi, þar sem
B:ir vilja að allir bestu leikmenn
lands leiki f Kaupmannahöfn.
Sepp Piontek, þjálfari danska liðs-
ins, er tílbúinn til að ræða við
þjálfara Stuttgart og Anderiecht,
ef það hjálpar til þess að fá þá
Ásgeir og Amór lausa.
KNATTSPYRNA / 2.DEILD
Fylkir-FH
1:1 (1:1)
Uark Fylkis: J6n Bjami Guðmundsson
(88.).
Mark FH: Pálmi Jónsson (2.).
liaður leiksins: Björn Jónsson, FH.
Morgunblaöiö/RAX
Jón BJaml Quðmundsson hefur verið iðinn við að skora fyrir Pylki í sumar. Hér jafnar hann 1:1 f gærkvöldi og liggur á vellinum eftir að hafa kastað sér fram
og knötturinn á leið f netið.
Fylkir náði takmarkinu
Tryggði sér 1. deíldarsæti með því að gera jafntefli við FH.
Hafði aðeins árs viðdvöl á leiðinni upp úr 3. deild
MIKIL gleði ríkti í Árbænum í
gærkvöldi eftir að Fylkir hafði
gert jafntefli við FH, 1:1, því
að þar með var langþráður
draumur Fylkismanna um 1.
deildarsæti orðinn að veru-
leika. Fylkismenn sigruðu f 3.
deild síðastliðið sumar og nú
hafa þeir tryggt sór sæti í 1.
deild eftir aðeíns árs viðdvöl í
2. deild. Fylkir er þriöja liöið
sem nær þeim árangri. Fyrir
tólf árum vann Þór á Akureyri
sams konar afrek og f fyrra lók
Leiftur ó Ólafsfirði sama leik.
Fylkisliðið hefúr komið mjög á
óvart í sumar og verið ásamt
PH í sérflokki í 2. deildinni. Þótt
liðið eigi þijá leiki eftir, er Í. deild-
arsætið f höfn. Liðið
hefur náð frábærum
árangri undir stjóm
Marteins Geirssonar
og hefur ekki tapað
leik í íslandsmóti í tvö ár. Pylkis-
menn fara upp f 1. deild ásamt FH
sem fyrir nokkru endurheimti sæti
sitt í 1. deild.
Guömundur
Jóhannson
skrifar
Fyrri hálfleikurinn í leik liðanna
í gær var opinn og strax í upphafi
skoraði Pálmi Jónsson fyrir PH af
stuttu færi eftir að vöm og mark-
vörður Fylkis sofnuðu á verðinum.
FH-ingar áttu meira í leiknum
fyrsta stundarfjórðunginn en eftir
það dundu sóknir Fylkismanna á
FH-markinu. Jóni B. Guðmundssyni
tókst að jafna leikinn með glæsilegu
skallamarki eftir að Fylkismenn
höfðu fengið fjölda opinna færa.
Þeir héldu áfram að sækja það sem
eftir var hálfleiksins en án árang-
urs.
í seinni hálfleik breyttist leikur
liðanna. Meira var um stöðubaráttu
og fá tækifæri sköpuðust. FH-ingar
Marteinn Geirsson þjálfari:
„Samstilltur hópur“
ér lfzt vel á að fara upp í
1. deild. Auðvitað verður
þetta erfitt en ég minni á að flest-
ir spáðu Víðismönnum falli á
sínum tíma eftir að þeir unnu sig
upp undir minni stjóm en þeim
tókst að halda sér uppi. Fylkislið-
ið er samstilltur hópur og æfínga-
sókn hefur verið góð en þessi
árangur hefur kostað mikla vinnu.
Ég bjóst satt að segja við að 2.
deildin yrði erfiðari en þetta sýnir
að Fyikir á framtíð fyrir sér sem
félag“, sagði Marteinn Geirsson,
þjálfari Fylkis, eftir leikinn.
„Hæfur þjáhari“
„Eg er auðvitað ákaflega
ánægður með árangurinn. Hann
þakka ég góðum mannskap og
mjög hæfum þjálfara. Félagið er
i vaxandi íbúahverfi og á örugg-
lega eftir að láta mikið að sér
kveða á næstunni", sagði Valur
Ragnarsson, fyrirliði Fylkis.
gættu sín betur á því að missa
Fylkismennina ekki inn fyrir vöm-
ina og var leikurinn jafnari. Liðin
fengu sitt dauðafærið hvort þegar
skammt var til leiksloka en fleiri
urðu mörkin ekki og lauk leiknum
með jafntefli, 1:1.
LIAIn
Öm Valdimarsson og Jón B.
Guðmundsson áttu góða spretti í
framlínu Fylkis. Anton Jakobsson
var einnig traustur að venju. Bjöm
Jónsson átti góðan leik í vöm FH
og var sterkur í skallaboltunum í
síðari hálfleik. ólafur Jóhannesson
var kjölfestan á miðjunni og Pálmi
Jónsson átti spretti í framlínunni
en datt datt niður þess á milli.
Bæði FH og Fyikir verða að
gæta sín á því að mikill munur er
á 1. deild og 2. deild og á næsta
ári verða liðin tekin mun fastari
tökum og fá ekki eins mikið svigr-
úm til að byggja upp það skemmt-
ilga spil sem þau hafa oft náð í
sumar. Hvemig þeim vegnar á
næsta ári verður að koma í ljós en
eitt er víst, að bæði liðin eiga 1.
deildarsæti fyllilega skilið.
1. DEILD KV.
Valur
meistari
Battendahnútinn
með 10:0 sigri á Fram!
ÞAÐ voru mikil fagnaöarlæti ó
Hlíöarenda þegar Valsstúlkur 1
lóku sinn síöasta leik f íslands-
mótinu f sumar. Valur tryggöi
sér titilinn fyrir nokkru síðan,
en verölaunin voru afhent f
gærkvöldi eftir leik Vals og
Fram.
Þrátt fyrir að sigur á íslands-
mótínu væri í höfii fyrir leik-
inn, var ekkert kæruleysi að sjá í
spili Valsstúlkna. Þær bundu endi
á glæsilegt tímabil með því að sigra
Fram með tíu mörkum gegn engu
í síðustu umferð íslandsmótsins.
Eins og tölumar gefa tíl kynna var
leikurinn eign Vals frá upphafi til
enda, enda 10:0 ekki algeng úrslit
í knattspymu.
Amey Magnúsdóttir og Guðrún
Sæmundsdóttir skomðu báðar
þrennu fyrir Val. Bryndís Vals-
dóttir gerði tvö mörk og Kristín
Briem og Magnea Magnúsdóttír
skoruðu sitt markið hvor.
Valsliðið hefur borið höfúð og
herðar yfir önnur lið á landinu f
sumar og er þetta fimmti títílUnn
sem liðið vinnur til frá áramótum.
ka-Ia
Leikur KA og ÍA sem var frestað
á dögunum fór fram á Akureyri i
gærkvöldi. KA-stúlkumar sigruðu
í leiknum 2:1 eftir að ÍA hafði ver-
ið einu marki yfir í leikhléi.
Um helgina
Knattspyma
Laugardagur
1. deild karla
Þór-Völsungur...Akureyrarv. kl. 14
ÍA-ÍBK..........Akranessv. kl. 14.30
Fram-KA........Laugard&lsv. kl. 14
Leiftur-KR....ólafsQarðarv. kl. 17
Valur-Víkingur..... Valsv. ki. 17
2. deild karla
Tindastóll-Selfoss.Sauðárkróksv. kl. 14
ÍBV-UBK.........Vestmannaeyjav. kl. 14
Víöir-KS............Garðsv. kl. 14
Auk þess leikir í 3. og 4. deild.
Sunnudagur
1. deild kvenna
ÍBÍ-Stjaman....ísafjarðarv. kl. 16
ÍA-KR............Akranessv. kl. 16
ÍBK-KA.........Keflavíkurv. kl. 16
Valur-Fram.............Valsv.kL 16
2. deild karla
Þróttur-ÍR.....Laugardalsv. kl. 17