Morgunblaðið - 03.09.1988, Blaðsíða 56
EIGNA
MHMUNIN
27711
Svwtw Krátnsson, söfcjstjöri - Porieifur Guðmundssoo, sotum.
Wrófojr Hsltíófsstm. looli.- Urtnitann Beckhrt.. sM
LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
~ V
I..,- ' v.v^
3?8* Si; % ■*& .. _
'Li‘........... ' Í!«í. I |(|
*
■ ® * tC" jj 3;
.,TW.W-....•
Tl**n i
:**% .
*
Akveðið gengið til verks
Morgunblaðið/RAX
MENNTASKÓLINN í Reykjavík var settur í vik- skólaár luku um 1.600 nemendur stúdentsprófi.
unni eins og fjölmargir aðrir framhaldsskólar. Gert er ráð fyrir að nemendur í framhaldsskól-
Unga fólkið á myndinni virðist ganga ákveðið um landsins verði um 16 þúsund í vetur og
til verks í upphafi skólaárs. Framhaldsskólar á munu um 11 hundruð kennarar sjá um að upp-
landinu eru 50 talsins og þar af hefur 21 skóli fræða þá.
rétt til þess að útskrifa stúdenta. Síðastliðið
Verðstöðvunin:
Egg lækka í verði-
deilt um námsbækur
Reglum um út-
flutning á fersk-
f iski breytt
Á FUNDI Halldórs Ásgrímsson-
VERÐLAGSRÁÐ hefur ákveðið
hámarksverð á eggjum og kjúkl-
ingum, þar sem framleiðendur
urðu ekki við tilmælum Verð-
lagsstofnunar um að lækka verð
á þessum vörum fýrir lok þess-
arar viku. Með ákvörðun ráðsins
lækka þessar vörutegundir því
í verði. Verðlagsstofnun telur
Fasteignagjöld:
Mál 4.000 gjald-
endatil fógeta
G J ALDHEIMT AN í Reylqavík
hefur nú sent borgarfógeta
beiðnir um uppboð á fasteignum,
sem gjöld hafa enn ekki verið
greidd af. Ekki liggja fyrir ná-
kvæmar tölulegar upplýsingar
um fjölda mála en þau eru rúm-
lega 4.000, að sögn Jónasar Gúst-
afssonar borgarfógeta.
Samkvæmt upplýsingum Hilm-
ars Garðarssonar skrifstofustjóra
Gjaldheimtunnar hafa í ár inn-
heimst 83,24% af álögðum fast-
eignagjöldum, án liðveislu fógeta,
en samsvarandi tala fyrra árs var
84,5%
Miðað við óbreyttan fjölda gjald-
enda má ætla af framansögðu að
uppboðsbeiðnir séu í ár um 400
fleiri en í fyrra.
hækkun á námsbókum frá fyrra
ári óleyfilega vegna verðstöðv-
unarinnar, en talsmenn forlag-
anna segja ákvörðun um verð-
hækkun, sem er 30% að meðal-
tali, hafa verið tekna áður en
verðstöðvunin tók gildi.
Gjöld fyrir skóla og námskeið
mega ekki hækka frá fyrra ári
nema að verðhækkun hafi verið
tilkynnt fyrir 15. ágúst, eins og
hjá Verslunarskólanum. Flestir
aðilar hafa hlýtt beiðni Verðlags-
stofnunar um að draga hækkanir
til baka. Þannig munu olíufélögin
hafa samþykkt að draga til baka
hækkanir á ýmsum vörum, svo sem
smurolíu, og Reykjavíkurborg mun
ekki hækka gjald bama á gæslu-
völlum.
Átta nýir starfsmenn hafa hafið
störf hjá Verðlagsstofnun, en þeir
eru ráðnir til næstu mánaðamóta,
þegar verðstöðvunin á að taka
enda. Starfsmenn fara á milli versl-
ana og heildsala og svara fyrir-
spumum og ábendingum fólks í
sérstökum verðgæslusíma, sem
settur hefur verið upp. Hægt er
að senda inn skriflega beiðni um
undanþágu frá verðstöðvuninni, en
þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við Verðlagsstofnun í gærdag
hafði engin slík borist.
Sjá nánari fréttir á bls. 22.
ar, sjávarútvegsráðherra, með
hagsmunaaðilum i sjávarútvegi í
gær, var ákveðið að breyta regl-
um um útflutning á óunnum
þorski og ýsu i gámum til Bret-
lands. Við veitingu útflutnings-
leyfanna verður ekki lengur tek-
ið tillit til þess hversu mikið hver
og einn flutti út af þorski og ýsu
í gámum tíl Bretlands í fyrra.
Einnig voru samráðsnefnd um
útflutning á óunnum þorski og
ýsu gefnar fijálsar hendur um
að ákveða hversu mikill útflutn-
Forsetinn
heimsækir
Kanada
FORSETI íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, er á förum til
Kanada í október næstkomandi.
Ekki er um opinbera heimsókn
að ræða heldur verður Vigdís
heiðursforseti á ráðstefnu í Van-
couver, þar sem fjallað verður
um ferðamál í þágu friðar.
Að sögn Komelíusar Sigmunds-
sonar forsetaritara mun forsetinn
leggja upp í Kanadaferðina hinn
19. október og verða við setningu
ráðstefnunnar hinn 24. október.
Auk þess að sitja ráðstefnuna að
hluta er fyrirhugað að Vigdís muni
einnig nota ferðina til að heilsa upp
á Vestur-íslendinga, sem búsettir
eru á þessum slóðum.
Færtfyrir
Múlann
UM 50 sjálfboðaliðar höfðu i gær
skráð sig í garðahreinsun á
Ólafsfirði yfir helgina. Um helm-
ingur þeirra eru utanbæjarmenn,
að sögn Þorsteins Bjömssonar
bæjartæknifræðings, sem hefur
yfirumsjón með starfi sjálfboða-
liða.
Þá var Ólafsfjarðarmúli orðinn fær
öllum stærri bflum í gær. í dag er
búist við að hann verði fær öllum
bflum nema flutningabílum, þar
sem aðeins hefur verið ruddur mjór
akvegur.
ingurinn má vera i hverri viku
fyrir sig.
„Það voru allir sáttir við þessar
niðurstöður," sagði Kristján Ragn-
arsson, framkvæmdastjóri Lands-
sambands íslenskra útvegsmanna,
í samtali við Morgunblaðið. „Við
lögðum hins vegar til að menn
fengju að flytja út eins mikið og
þeir vildu hveiju sinni en yrðu hins
vegar að sækja áfram um leyfi til
útflutningsins," sagði Kristján.
„Ég er mjög ánægður með þenn-
an fund og vonast til að hægt verði
að tryggja víðtæka samstöðu um
þessi mál,“ sagði Halldór Ásgríms-
son sjávarútvegsráðherra.
Á fundi samráðsnéfndar í gær
var ákveðið að leyfa sölu á 697
tonnum af óunnum þorski og ýsu
í gámum til Bretlands vikuna 11.
til 17. september nk. en sótt hafði
verið um leyfí til að flytja út 1.024
tonn í gámum, að sögn Stefáns
Gunnlaugssonar deildarstjóra í ut-
anríkisráðuneytinu. Sjö eftirtalin
skip fengu Ieyfí til að selja 250 til
300 tonn af þorski og ýsu í Bret-
iandi ofangreinda viku: Náttfari RE
Sigurborg KE, Sigþór ÞH, Garðey
SF, Akurey SF, Sandafell HF og
Oddgeir ÞH.
Arbæingar
íl.deild
FYLKIR og FH gerðu 1:1 jafn-
tefli í 2. deild karla í knattspyrnu
í gærkvöldi. Þar með tryggði
Fylkir sér sæti í 1. deild í fyrsta
sinn, en liðið sigraði í 3. deild í
fyrra. FH hefur þegar sigrað i
2. deild.
Sjá íþróttir bls. 65.
Morgunblaðið/RAX
Fluttu smygl á litlum
báti í skjóli myrkurs
SKIPVERJAR á flutningaskip-
inu ms. Val, sem er í eigu út-
gerðarfélagsins Ness hf., urðu
á fimmtudag uppvisir að smygli
á 210 kössum af bjór og á þriðja
hundrað kílóum af skinku auk
hljómflutningstælga og nokkr-
um flöskum af sterku víni.
Smyglvamingurinn var fluttur
um borð í Skagen í Danmörku
og frá borði á Eyrarbakka í
smábáti í skjóli myrkurs. Þaðan
var því ekið í geymslu á höfuð-
borgarsvæðinu.
Allir skipverjamir, 7 talsins,
tóku þátt í smyglinu og hafa við-
urkennt aðild sína að málinu.
Rannsóknarlögreglan lagði hald á
góssið að ósk tollyfírvalda. Búist
er við að yfirheyrslum ljúki næstu
daga, en enginn skipveija er í
haldi.
Að sögn Rannsóknarlögregl-
unnar er upplýsinganet tollyfír-
valda mjög öflugt og líklegt að
það hafi orðið til að upplýsa málið.