Morgunblaðið - 15.09.1988, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1988
9
KAUPÞING HF
Hási verslunarinnar, sími 686988
Ný Spariskírteini
ríkissjóðs
hjá Kaupþingi
Hín njju Spariskírteini ríkissjóds fást
ad sjálfsögðu hjá okkur og eru nú fáanleg
3 ára bréf með 8% vöxtum
5 ára bréf með 7,5% vöxtum
8 ára bréf með 7% vöxtum
Við töku/u inu/eysan/egSþariskírteini ríkissjóðs sem
greiðslu fyrir ný Spariskírteini og önnur verðbréf.
Kaupþing hefur á að skipa sérfrœðiþekkingu á sviði
fjárfestinga og fjármála, hvaða nafni
sem nefnast og viðskiptavinir njóta menntunar
ráðgjafa okkar og þeirrar þekkingar
sem áralöng reyns/a hefur skapað.
Auk hinna nýju Spariskírteina ríkissjóðs
býður Kaupþing
Einingabréf 1, 2, 3
Lífeyrisbréf
Bankabréf
Veðsku/dabréf
Skuldabréf stœrstu fyrirtœkja
Hlutabréf í fyrirtœkjum
Skammtímabréf
SÖLUGENGI VERÐBREFA ÞANN 15. SEPT. 1988
EININGABRÉF 1 3.273,-
EININGABRÉF 2 1.874,-
EININGABRÉF 3 2.115,-
LÍFEYRISBRÉF 1.646,-
SKAMMTlMABRÉF 1.152,-
Ráðgjöf og fagþekking Kaupþingsy stendur ætíð
einstaklingum sem fyrirtœkjum til boða.
Sjálfselskur
og hégóma-
fullur
Míkhafl Gorbatsjov var
ekkert að fela það, að
hann vœri ekki yfir sig
hrifinn af kommúnista-
stjóminni i Rúmeniu,
þegar hann heimsótti
Búkarest á siðasta ári.
Hluta af ástæðunni fyrir
þvi má liklega finna í bók
Ion Mithai Pacepa, Red
horíxoas: Memoirs of a
communist spy chief (
Rauður sjóndeildar-
hringur: Endurminning-
ar yfirmanns komm-
úniskrar leyniþjónustu). í
bókinni lýsir Pacepa, sem
leitaði pólitísks hælis i
Bandarikjunum árið
1978, harðstjórninni i
Rúmeniu, lfldega þeirri
spilltustu sem er að finna
i Evrópu í dag.
Pacepa ætti að þekkja
vel til þvi hann var á
sinum tima yfirmaður
leyniþjónustu Rúmeniu,
Departamentul de In-
fommtii, og var um ára-
bil í nánast daglegu sam-
bandi við Ceausescu.
Nánast hver einasta
blaðsiða bókarinnar er
yfirfull af lýsingum á
giæpum og grimmdar-
verkum hans, að þvi er
segir i ritdómi um bókina
í Times Uterary Supple-
ment Ceausescu virðist
vera margt til lista lagt
þvi meðal þess sem Pac-
epa nefnir i bók sinni eru
morð, fjárkúgun, falsan-
ir, eiturlyfjasmygl,
mannrán og misþyrming-
ar á stjómmálaandstæð-
ingiim. En Iwnn lýsir
einnig forsetanum sem
gungu, sjálfselskum og
sjálfshælnum manni sem
svindlar, t.d. i skák, og
hefur furðulegar venjur
á borð við þær að láta
sniða á sig ný jakkaföt
daglega. Telur hann að
Ceausescus verði helst
minnst fyrir að láta jafna
hina fomu miðborg Búk-
arest við jörðu til að reisa
þar í staðinn nýtískulega
forsetahöll og aðrar
stjómsýslubyggingar.
Dómur Pacepa yfir Ce-
Hinn mikli Ceausescu
Þó margt misjafnt megi segja um stjórnar-
hætti fyrir austan járntjald slá vinnubrögð
Nikolae Ceausescus, Rúmeníuforseta,
líklega flest annað út, nú á dögum. Ceauses-
cu hefur verið í fréttum undanfarið vegna
áætlanna sinna um að jafna helming allra
þorpa í Rúmeníu, 8.000 talsins, við jörðu
fyrir aldamót og flytja íbúana í blokkir á
þéttbýlissvæðum. Má þetta heita dæmigert
um stjórnarhætti hans. Jafnvel leiðtogar
annarra austantjaldsríkja, sem ekki eru
barnanna bestir, líta Ceausescu hornauga.
Nýlega kom út bók þar sem lon Pacepa,
fyrrum yfirmaður rúmensku leyniþjón-
ustunnar, lýsir ástandinu í Rúmeníu. Kemur
þar margt athyglisvert fram um Ceausescu.
Kemst Pacepa m.a. að þeirri niðurstöðu að
fjölskylda forsetans sé að fá á sig flest ein-
kenni konungsfjölskyldu.
ausescu er að hann sé
lfldega verri harðstjóri
en Idi Amín var á sínum
tíma.
Konungsfjöl-
skyldan
Ekki verða lýsingam-
ar fegurri þegar kemur
að fjölskyldu forsetans
en hún kemur nú mildð
við sögu við stjóm Rúm-
eniu. Á þeim tíma, sem
er liðinn síðan Pacepa
flúði vestur, er búið að
skipa Elenu, eiginkonu
forsetans, aðstoðarfor-
sætísráðherra, og sonur
þeirra, Nikú, er orðinn
formaður hreyfingar
ungra kommúnista. Tel-
ur Pacepa líkur á að
þama sé að myndast
fyrsta „konungsfjöl-
skyldan" i sögu kommún-
ismans. Rfldsstjómin i
Rúmeníu hefur litíl völd
miðað við flokkinn, og
fiokkurinn er, eins og'
Pacepa segir Elenu hafa
orðað það, „Félaginn og
ég“.
„Konungsfjölskyld-
unni“ hefur tekist að
halda sér við völd með
harðstjóm, sem byggist
á leynilögreglu og leyni-
þjónustu sem telur einn
mann á hveija fimmtán
íbúa! Hlutverk þeirra er
ekki að vemda stjómina
heldur Ceausescu gegn
innlendum jafnt sem er-
lendum óvinum.
Ein af ástæðunum fyr-
ir því að Ceausescu hefur
ekki enn verið velt úr
sessi kann að vera að
hann nýtur þó einhverra
raunverulegra vinsælda
vegna þess að árangur
hefur náðst á ýmsum
sviðum, þó leiðimar að
þeim árangri hafi verið
óhefðbundnar.
Til dæmis hefur tekist
að stemma stígu við við-
skiptalialla með þvf að
„se(ja“ fólk sem vill flytj-
ast úr landi. Gyðinga til
ísrael og fólk af þýsku
bergi brotnu til Vestur-
Þýskalands. í staðinn
fyrir að gefa fólkinu
leyfi til að flytjast úr
landi fær Rúmenia fjár-
hagsaðstoð. Til Vestur-
Þýskalands hafa verið
„seldir" um 12.000 Rúm-
enar árlega og nú berast
fréttir af þvi að Ceauses-
cu vilji hækka verðið. Til
viðbótar þessu hefur
Rúmenfa á siðustu árum
hafið stórfelldan útflutn-
ing á vörum sem hannað-
ar hafa verið á grund-
velli iðnqjósna þeirra i
vestrænum rfkjum.
Ceausescu hefur einn-
ig reynt að bæta mann-
orð sitt á Vesturlöudum.
Þá þróun hóf hann árið
1968 með þvi að neita að
styðja innrás Sovétríkj-
anna i Tékkóslóvakfu, þó
að hann hafi gefið Brez-
hnev mikilvægar leyni-
legar upplýsingar sem
komu að góðum notum.
Má geta þess að Alþýðu-
bandalagið taldi eðlilegt
að halda bróðurlegu sam-
bandi við fiokkinn i Rúm-
eníu eftir 1968, þótt því
væri slitíð við fiokka ann-
ars staðar f Varsjár-
bandalaginu.
Árið 1972 hóf Ceaus-
escu áætlun sem áttí að
hafa áhrif á hvemig er-
lend rfld litu á Rúmeníu.
í upphafi voru fyrstu
sambönd hans utan járn-
tjaldsins við menn og
samtök á borð við Ára-
fat, Bokassa, Gadaffi,
„Carlos“, Rauðu her-
deildimar og Baader-
Meinhof. Smám saman
urðu „vinimir“ aðeins
„virðulegri" og hann fór
að umgangast Peron,
Tftó, Marcos, Bhutto og
Papadopoulos.
Upp á sfðkastíð hafa
samskiptin verið að
kólna á milli Rúmeniu og
margra erlendra ríkja.
Enn sem komið er, er
Vestur-Þýskaland eina
landið sem opinberlega
hefur fordæmt áætlanir
hans um að jafna helm-
ing rúmenskra þorpa við
jörðu en fastlega má bú-
ast við því að fleiri fylgji
f kjölfarið. Samskiptín
við Sovétrfldn hafa verið
mjög stírð og ekki er enn
(jóst hvort og hvenær
Gorbatsjov og Ceausescu
munu taka hver «nn«n f
sátt. En ef Gorbatsjov
þarf einhvem tímann að
fást við Elenu Ceausescu
f embættí Rúmeníufor-
seta veit hann við hveiju
hann má búast — ef hann
hefur lesið bók Pacepa.
„Þegar þú ert að tala við
mig,“ sagði hún eitt sinn
við einn sendiherrann,
„skaltu ekki dirfast að
opna munninn.“
AAxtarbréf
MJTVEGSBANKANS
Vaxtarsjóðurinn er VERÐBRÉFASJÓÐUR sem stjórnað er af
sérfræðingum Verðbréfamarkaðar Útvegsbankans.
Vaxtarbréfin hafa gefið um 12% ÁVÖXTUN UMFRAM
VERÐBÓLGU að undanförnu.
EKKERT INNLAUSNARGJALD annan og þriðja afgreiðsludag
VERÐBRÉFAA/IARKAÐUR
ÚTVEGSBANKANS
SÍÐUMÚLA 23, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 68 80 30