Morgunblaðið - 15.09.1988, Qupperneq 23
Veiðimenn enn er tækifæriS
Nú er hver að verða síðastur að gera góð kaup
Utsölunni lýkur um helgina
20%-70% afsl.
Verslunin,
Langholtsvegi 111
•ÍÍÍ'ÍÍ’-ív
Aöur
2690
1790
2997
5940
3950
Dæmi um verö:
Peysur
Bolir
Skyrtur
Veiöi jakkar
Veiöi vesti
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1988
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1988
Samband íslenskra námsmanna erlendis:
Ekkert bendir til fjár-
málamisferlis stjórnar
Á SUMARRÁÐSTEFNU Sam-
bands íslenskra námsmanna er-
lendis, sem haldin var á Hótel
Borg 6. ágiist síðastliðinn, var
ákveðið að fela lög-giltum endur-
skoðanda að fara yfir bókhald
sambandsins. Hann var sérstak-
lega beðinn um að kanna hvað
hæft væri í ásöktmum á hendur
fyrrverandi formanni og fram^
kvæmdastjóra sambandsins. 1
skýrslu endurskoðandans segir
að ekkert bendi til bókhalds- eða
fjármálamisferlis í tið síðustu
stjórnar SÍNE.
Núverandi stjóm SÍNE harmar
það ástand sem ríkt hefur innan-
búðar í SÍNE á síðustu misserum
en bendir á að meðal nýrra stjómar-
manna ríki einhuga samstarfsvilji,
segir í fréttatilkynningu frá SÍNE.
Á sumarráðstefnunni var gengið
frá stjómarskiptum sambandsins
og kosinn fulltrúi þess í stjóm Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna. Sjö
fulltrúar íslenskra námsmanna er-
lendis skipa nýju stjómina.
Skrifstofa SINE er opin klukkan
13 til 17 alla virka daga og þangað
geta þeir snúið sér sem þurfa að ná
í fulltrúa SÍNE, eða leita upplýsinga
um nám erlendis, segir í fréttatil-
kynningunni.
Sigurður Einarsson spjótkastari.
í fijálsíþróttamótum víðs vegar um
Bandaríkin og var því á stöðugum
ferðalögum, sem gat verið afskap-
lega þreytandi. Annars byijaði ball-
ið fyrst þegar keppnistímabilinu
lauk í Bandaríkjunum í byrjun júní.
Þá hefjast mót hér heima og sömu-
leiðis víða í Evrópu og því hef ég
ferðast mest á sumrin. Það má eig-
inlega segja að ég sé búinn að vera
Morgunblaiið/KGA
með annan fótinn í ferðatösku sl.
fímm ár. Og ekki er útlit fyrir að
ég hætti ferðatöskulifnaðinum al-
veg á næstunni."
— Ertu sestur að í Bandaríldun-
um?
„Nei, ekki held ég nú það. Ég
er reyndar kvæntur bandarískri
konu, Debora Ann heitir hún og
starfar sem innanhússhönnuður.
Það er tilgangslaust
að jarða sig fyrirfram
HVAÐ GERIR DANS-NÝJUNG FYRIR BARNIÐ ÞITT?
• Létt upphitun, leikræn tjáning til að byggja upp
sjálfstraust og öryggi.
• Léttir, hnitmiðaðir og skemmtilegir dansar, sem
barnið ræður auðveldlega við.
• Að dansa er yndisleg tilfinning sem barnið þitt
ætti að finna fyrir.
4-6 ára 7-9 ára 10-12 ára Unglingar
1x í viku 1x í viku 2x í viku 2x í viku
UNGLINGAR
ÞIÐ FÁIB ÞAÐ SEM ÞIÐ VIUIB HJÁ 0KKUR í DANS-NÝJUNG
• Góðar æfingar til að halda sér í góðu formi.
• Frábæra dansa, langar og stuttar danslotur.
. • Jazz-dansa, funk-hreyfingar og allt það nýjasta í
1 dansinum í dag.
w Þjálfaðir kennarar með langa starfsreynslu tryggja
árangur.
Afhending skírteina laugardaginn 17. sept. og sunnudaginn 18. sept. kl. 14-18
báða dagana á Hverfisgötu 46.
Kennslustaðlr: Hverfisgata 46, KR-húslð vlð Frostaskjðl, Foldaskóli, Mosfellsbœ, Félagsmiðstööinni á Selfossi.
Veríð velkomin.
Eydía EyjóHsdóttir
20 éra danskennari með 4
éra raynaki eð baki i
kannski og némi i Eng*
landl. Starfandl atvinnu-
danaari. 2x lalandameist-
ari I hópdansi. Unnið við
aöngMk, myndbðnd og
ajónvarp.
KoMxún Aflaliflnailrtttlr
32 éra danskannari og
danshöfundur mað 16 éra
reynslu að baki i kennski
og némi I Þýskalandi,
Bandarikjunum og Eng-
landi. 6x (alandameistari (
höpdönsum. Unnið fyrir
sjónvarp, Mkara, við upp-
setningu tfskuaýningarat-
riða, söngMkja og dansat-
riða hériendis og artendis.
Tommle M.Y. Luke
28 éra danskennari og
danshðfundur með 6 éra
reynski að bakl og ném i
Ertgiandi og Þýskalandi.
Hsnn hefur unniö með
þekktum denshöfundum
t.d. Bruno Tonioli - Alain
Dehay - Ken Warwick. i
sjónvarpi, Mkhúsi. mynd-
bðndum, stjómandi tísku-
sýnings, unnió fyrir
Wham, Elton John og Mic-
heei Jackson.
A toppnum ( Engtandi í
Innritun er hafin í síma 621088
frá kl. 10-12 og 13-17 alla daga
HVERFISGATA 46 SIMI621088
Vésteinn Hafsteinsson:
Vésteinn Hafsteinsson kringlu-
kastari hefur verið búsettur í
Helsingborg í Sviþjóð sl. þijú ár
og hefur mestur tíminn farið í
undirbúning fyrir Ólympíuleik-
ana. Hann millilenti hér áður en
hann hélt með íslenska hópnum
til Seoul. Þar sem ekki var útlit
fyrir að Vésteini gæfist tími til
að spjalla við blaðamann úti á
flugvelli var ákveðið að notast
við símann og ná tali af honum
í Svíþjóð áður en hann legði í
hann.
„Jú, hann Vésteinn er við, hinkr-
aðu aðeins," svarar ung kona á
sænsku þegar ég hringi til Helsing-
borg.
„Þetta var sambýliskona mín,
Anna Östenberg," útskýrir Vé-
steinn þegar hann kemur í símann
og þó að hann hljómi dálítið þreytu-
legur segir hann ekkert því til fyrir-
stöðu að spjalla við mig. „Síðastlið-
in tvö ár hafa farið í undirbúning
fyrir Ólympíuleikana og nú má
segja að lokaspretturinn sé hafínn,“
segir hann. „A þessum tíma hef ég
farið nokkrum sinnum til Banda-
rílq'anna til æfínga. Ég var þar við
nám og æfíngar í nokkur ár áður
en ég fluttist til Svíþjóðar og veit
því af eigin raun að þar er öll að-
staða til æfinga mjög góð."
Hann segist ekki einn um
íþróttaáhuga á heimilinu. Sambýlis-
kona hans keppti í kringlukasti í
mörg ár en hætti keppni í fyrra.
Stuttu áður hafði hún sett sænskt
met í kringlukasti um leið og Vé-
steinn setti sitt íslandsmet.
„Ég er samt ekki þannig að ég
hafí ekki áhuga á neinu öðru en
íþróttum," segir Vésteinnn. „Hef til
dæmis áhuga á stjómmálum bæði
íslenskum og erlendum. Eftir að ég
fluttist til Svíþjóðar hefur áhugi
minn á náttúrunni aukist til muna.
Ég fer núorðið oft út að ganga og
nýt þess að geta horft út á haf eins
og heima á Islandi. Það er góð af-
slöppun að fara út og njóta náttúr-
unnar og því geri ég það eins oft
og ég get. Eins og er get ég ekki
hugsað mér annað en vera í íþrótt-
um. Þó er ýmislegt sem ég get vel
ímyndað mér að sé spennandi. Til
dæmis hef ég mikinn áhuga á sál-
fræði og hef verið að velta því fyr-
ir mér að fara í nám. Ef af þvf
yrði myndi ég læra annað hvort í
Svíþjóð eða í Bandaríkjunum."
— Hvað hyggstu taka þér fyrir
hendur að Ólympíuleikunum lokn-
um?
„Mín bíður nokkur óvissa, sér-
staklega í peningamálum, en allir
styrkir sem ég hef verið á eru að-
eins veittir fram að leikunum. Ég
stefni því að því að fá mér ein-
hveija vinnu í haust þegar ég kem
frá Seoul. Ég hef mestan áhuga á
þjálfun enda eðlilegt að ég starfí
við hana þar sem ég hef réttindin.
Reyndar er erfiðara að fá vinnu hér
í Svíþjóð en heima og þjálfarastörf
eru illa launuð. Ég ætla nú samt
ekki að leggja upp laupana þó ég
komist hvergi að sem þjálfari. Ég
er tískusýningarskóli þar sem börn og unglingar læra:
Framkomu Flokkaskipting:
Hreinlæti 4-6 ára
Fataval 7-9 ára
Göngu 10-12 ára
Tjáningu 13-14 ára
og fleira og fleira. 15-20 ára
Metsölublað á hverjum degi!
Stig 1. Byrjendur, sett upp sýning, tekið próf.
Stig 2. Þyngra stig, snyrtisérfræðingur og hárgreiðslu-
meistari.
Stig 3. Lokastig, tískuljósmyndari vinnur með módelunum.
Allir fara í videoupptöku fyrir auglýsingar.
Afhending skírteina laugardaginn 17. sept. og sunnudaginn
18. sept kl. 14-18 báða dagana á Hverfisgötu 46.
Skólinn byrjar mánudaginn 19. september.
ES n
Morgunblaðið/Einar Falur.
Vésteinn Hafsteinsson á frjálsíþróttamóti í Lúxemborg fyrir skömmu
þar sem hann vann glæsilegan sigur.
hlýt að fínna mér eitthvað annað
að gera. Og að sjálfsögðu held ég
áfram að æfa. Það er alltaf í mynd-
inni að koma heim því ég veit að
þar byðist mér þjálfarastarf. En ég
stefni að því að keppa nokkur ár í
viðbót og eins og sakir standa vil
ég fyrst og fremst einbeita mér að
sjálfíim mér og mínum íþróttaferli
hér úti.“
Hann kveðst hafa mikinn áhuga
á að búa á íslandi í framtíðinni og
segist ekki eiga von á öðru en að
hann snúi aftur heim þó að hann
hafí það gott í Svíþjóð.
„Ég tel mig geta látið gott af
mér leiða innan fíjálsíþróttahreyf-
ingarinnar, bæði hvað varðar þjálf-
un og stjómunarstörf. Mér fínnst
allt of mikið um það að fólk sem
náð hefur góðum árangri í íþróttum
dragi sig algjörlega í hlé þegar það
Stund milli stríða.
hættir keppni, í stað þess að miðla
þekkingu sinni og reynslu til þeirra
sem á eftir koma. Það mun ekki
verða raunin með mig. Ég er ákveð-
inn í að þjálfa í framtíðinni og sér-
staklega hef ég áhuga á að þjálfa
krakka. Ég held að það gefí manni
mjög mikið að byggja upp ungt
íþróttafólk."
Talið berst að ólympíuleikunum
og Vésteinn er hress í bragði. „Ég
hef enga minnimáttarkennd gagn-
vart hinum keppendunum á leikun-
um. Ég veit mín takmörk og reyni
að gera mitt besta. Og ég ætla að
bera höfuðið hátt. Það er tilgangs-
laust að vera að jarða sig fyrirfram.
Að mínu áliti eru Ólympíuleikamir
miklir friðarleikar og ég er mjög
þakklátur fyrir að eiga þess kost
að taka þátt í þeim.“
BF
KRINGLUKAST
Kceru vinir.
Hugheilar þakkir til ykkar allra, sem glöddu
mig og jjölskyldu mína á afmœli mínu hinn
30. ágúst sl.
Bestu kveðjur og ámaðaróskir.
Ágúst Sæmundsson.
Hún hefur góða vinnu og er ánægð
úti. Þó held ég að hún myndi ekk-
ert hafa á móti því að búa hér,
hefur komið fjórum sinnum í heim-
sókn og líst vel á land og þjóð.
Annars er allt óráðið í þessum efn-
um. Ég er eins og áður sagði búinn
með skólann og eftir Ólympíuleik-
ana fer ég aftur út. Ég á von á því
að fá atvinnuleyfí í hendur bráðlega
og hef í hyggju að útvega mér ein-
hveija vinnu fram að áramótum.
Enda kominn tími til að fara að
vinna eitthvað, konan mín er búin
að halda mér uppi nógu lengi.
Reyndar hef ég verið á styrlgum
frá Glímufélaginu Armanni og hin-
um og þessum aðilum og því haft
það alveg ágætt. Samhliða skólan-
um hef ég starfað nokkuð við þjálf-
un og hlýt að fínna mér eitthvað
að gera í haust. Eftir áramót er ég
svo að hugsa um að fara aftur (
skóla. Ég er ekki alveg ákveðinn
hvaða nám verður fyrir valinu en
er með nokkrar hugmyndir í kollin-
um.“
Hann segist ekki ætla að hætta
í íþróttum á næstunni.
„Ég er búinn að æfa spjótkast í
12 ár og má segja að spjótið sé
mitt iíf og yndi. Og ég er búinn að
gera það upp við'mig að svo framar-
lega sem áhugi er fyrir hendi og
ég hef trú á að ég geti bætt mig
enn meir, þá sé ég ekkert því til
fyrirstöðu að halda áffarn keppni.
Aðeins einu sinni hefur það hvairflað
að mér’að hætta þessu. Það var
árið 1981 að ég varð fyrir slæmum
meiðslum í olnboga og var frá æf-
ingum í tvö ár. Þetta var erfiður
tími, ég búinn að fóma öllu fyrir
íþróttimar og allt í einu var ég úr
leik. Þá vöknuðu hjá mér ýmsar
efasemdir um að þetta væri þess
virði. Það sem varð til þess að ég
byijaði aftur var að mér bauðst
skólastyrkur frá háskólanum í
Bandaríkjunum. Og ég hef aldrei
séð eftir þvi að hafa haldið áfram."
Hann neitar því ekki að allt snú-
ist um íþróttir hjá honum.
„Ég hef verið óskaplega upptek-
inn við æfíngar síðustu ár. Þó geri
ég auðvitað annað þegar tlmi gefst
til, fæ reyndar oft dellu fyrir hinu
og þessu. Núna er ég t.d. með dellu
fyrir myndbandsupptökuvélinni
sem ég keypti mér og hef verið
iðinn við að taka myndir. Svo hef
ég mikinn áhuga á garðrækt og í
garðinum mínum í Bandaríkjunum
rækta ég ógrynnin öll af græn-
meti, enda loftslagið mjög ákjósan-
legt. Einnig hef ég brennandi áhuga
á manninum og öllu sem hann
snertir og les mikið af bókum sem
fjalla um hann.“
Það er ekki að sjá á Sigurði að
hann sé taugaspenntur fyrir
ólympluleikana.
„Leikamir leggjast mjög vel í
mig. Ég hef aldrei verið f betra
ásigkomulagi, hvorki andlega né
líkamlega og held því bjartsýnn til
Seoul."
- BF
SPJOTKAST
Sigurður Einarsson:
Með annan fót-
inn íferðatösku
Sigurður Einarsson spjótkast-
ari hefur verið búsettur í Banda-
ríkjunum í tæp sex ár. Hann hef-
ur mikið verið á ferð og flugi í
gegnum árin og tekið þátt i
frjálsíþróttamótum viða um
heim. Sigurður gerði hér stuttan
stans á dögunum til að undirbúa
sig fyrir Ólympíuleikana. Það
virtist ekki koma honum á óvart
þegar síminn hringdi á heimili
hans daginn sem hann kom að
utan, reyndar f sömu andrá og
hann gekk inn úr dyrunum, og
hann var beðinn um að koma í
viðtal. Enda líkast til orðinn van-
ur því að vera ónáðaður af blaða-
mönnum.
„Fyrirgefðu hvað ég er seinn,"
segir hann þegar hann mætir í við-
talið. „Ég stoppa aðeins stutt hér
áður en ég fer á leikana og hef því
í mörgu að snúast." Við vindum
okkur beint að efninu og Sigurður
segir frá högum sínum.
„Ég hef verið búsettur í Tusca-
loosa í Alabama í Bandaríkjunum
í tæp sex ár,“ segir hann. „Lagði
þar stund á íþróttafræði við Ala-
bama-háskólann og lauk náminu
sl. vor. Ég var lengst af á skóla-
styrk og keppti fyrir skólann í spjót-
kasti. Námið tók ég á nokkuð lengri
tíma en venjulegt er því auk þess
að vera á fullu í íþróttunum, tók
ég mun fleiri námseiningar en til
var ætlast."
Sigurður lætur vel af vistinni
ytra, segir að sér hafí gengið vel
bæði í skólanum og í íþróttunum.
„Oft hef ég þó haft gífurlega
mikið að gera og gerði þau mistök
í fyrstu að taka of mikið í skólanum
í einu. Síðar hafði ég yfírleitt þann
háttinn á að ég tók sem mest á
haustönn en minnkaði við mig á
vorönn þvi þá er aðalkeppnistíma-
bilið í Bandaríkjunum og því meira
að gera í íþróttunum. Eg tók þátt
Innilegar þakkir til allra sem glöddu mig á
80 ára afmœli minu þann 30. ágúst sl.
GuÖ blessi ykkur öll.
Guðlaugur Stefánsson.
BARNADANSAR
A
LEIÐ
TIL
SEOUL
MODEL MYND
8542