Morgunblaðið - 15.09.1988, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1988
Málefni fatlaðra:
Ný úrræði í atvinnu-
málum fatlaðra
Víða á Norðurlöndum eru verndaðir vinnustaðir deildaskiptir eftir
frainleiðslugetu starfsmanna, sem er mjög misjöfn. Á myndinni eru
leiðbeinandi og starfsmaður á slíkum stað í Nakskov i Danmörku.
Betri
heilsa
meö góóum vítamínum
í Tóró 25 eru 15 vítamín og 10
steinefni í réttum hlutföllum.
Eitt hylki gefur fullan dag-
skammt allra helstu vítamína
og steinefna. Tóró 25 er e.t.v.
besta fáanlega fjölvítamíniö,
hvaö varðar verö og gæöi.
jh€tóró
Þessir fjórir afoxarar, selen, E og
Cvítamín og /3-karótín (for-
veri A vítamíns) eyða óæskileg-
um sindurefnum í fæðu og
sígarettureyk og eru álitin góð
krabbameinsvörn. Margir nær-
ingarfræðingar telja þetta
heppilegustu bætiefnasam-
setningu á markaðinum í dag.
Hollar fjölómettaðar fitusýrur
fyrir hjarta og æðakerfi. Ekkert
annað lýsisþykkni á islandi er
jafn ríkt af omega-3 fitusýrum,
þÆ. 50% innihald af EPA og
DHA. Hylkin innihalda ekki A
og D vítamín.
Gerið verðsamanburð.
eftirÁstuM.
Eggertsdóttur
Að eiga sitt eigið heimili, stunda
vinnu eða sækja skóla, fara í sum-
arfrí, stunda áhugamál og hvað-
eina sem eðlilegt þykir í samfélagi
manna gegnir veigamiklu hlut-
verki í allri féiagsmótun og mótun
sjáifsmyndar manneskjunnar.
Þetta eru sjálfsagðir hlutir fyrir
venjulegt fólk en til skamms tíma
þótti það ekki fyrir þá sem voru
upp á aðra komnir vegna andlegr-
ar eða líkamlegrar fötlunar.
Sú breyting sem orðið hefur á
viðhorfí almennings í okkar vest-
ræna menningarsamfélagi til mik-
ilvægis eðlilegra lífsskilyrða fyrir
fatlaða hefur leitt til lagasetninga
af hálfu Alþingis íslendinga þar
sem hugsjónin um jafnrétti til
sömu lífsgæða handa fötluðum á
við aðra þjóðfélagsþegna er lög-
bundin.
Fjölbreyttar lausnir þarf í
atvinnumálum fatlaðra
Atvinnumál eru stór og mikil-
vægur þáttur í lífí fatlaðs fólks þar
sem vinnan er homsteinn sjálfstæð-
is og sjálfsbjargar. Áriðandi er að
vel takist til við þær úrbætur sem
stjómvöld hlutast til um að koma
á fót en þau hafa nýlega lýst því
yfír að vemdaðir vinnustaðir (svo
og sambýli) hafí forgang fram yfír
önnur úrræði í þeirri uppbyggingu
á stofnunum fyrir fatlaða sem hafín
er.
Víða á Norðurlöndum hafa
vemdaðir vinnustaðir gegnt þýðing-
armiklu hlutverki í samfelldri þjón-
ustukeðju við fatlaða og er almennt
talið að starfsemi af slíku tagi sé
nauðsynlegur hlekkur í þjón-
ustunni. Þeir em yfírleitt deilda-
skiptir eftir framleiðslugetu starfs-
mannanna, sem er mjög misjöfn,
allt frá því að geta afkastað eðlilegu
dagsverki til þess að geta lítið unn-
ið.
Margir hafa gagnrýnt lög um
málefni fatlaðra og bent á ýmis
vandkvæði við að framfylgja þeim.
Eitt atriði er að lögin em „stofnana-
lög“, þ.e. þau gera ráð fyrir að
vandamál fatlaðra verði aðallega
leyst með því að koma á fót sérstök-
um stofnunum en ekki í venjulegu
umhverfí.
Starfsemi vemdaðra vinnustaða
hér á landi hlýtur að miðast við
íslenskt atvinnulíf og aðstæður á
vinnumarkaðinum á hveijum tíma.
Fatlað fólk er stór hópur ólíkra
einstaklinga á öllum aldri með mis-
munandi vandamál allt eftir að-
stæðum og eðli fotlunar hvers og
eins. Lausnir verða því að vera ijöl-
breyttar í samræmi við mismunandi
þörf fyrir aðstoð og þjónustu. Sum
vandamál fatlaðra verða ekki leyst
á annan hátt en á sérstofnunum,
en það em tiltölulega fá undantekn-
ingartilfelli miðað við fjölda fatl-
aðra.
Almennt atvinnuástand hér á
landi þar sem atvinnuleysi er svo
til óþekkt gefur fötluðu fólki sem
er nokkuð sjálfbjarga meiri mögu-
leik á að fá vinnu á almennum
vinnumarkaði en víða annars staðar
í nágrannalöndunum. Þess vegna
eru allt aðrar forsendur fyrir því
hér að koma á fót vemduðum vinnu-
stöðum en annars staðar þar sem
lítil von er til þess að fólk með
skerta vinnugetu komist út á hinn
almenna vinnumarkað.
Fyrir hveija þarf
verndaða vinnustaði?
Þeir sem mest þurfa á sérstakri
þjónustu vemdaðra vinnustaða að
halda em þeir sem fatlaðastir em.
í þeim hópi em þeir sem þurfa oft
frekar á e.k. dagvistun eða afþrey-
ingu að halda en vinnu í venjulegum
skilningi þess orðs.
Ríkisreknir vemdaðir vinnustaðir
em níu á fjárlögum yfírstandandi
árs, þar af þrír í Reykjavík. Aðrir
vemdaðir vinnustaðir era reknir á
vegum hagsmunasamtaka fatlaðra
og hafa ekki fengið fastar §árveit-
ingar af fjárlögum til að greiða
rekstrarkostnað.
Þessir vinnustaðir em ólíkir inn-
byrðis og eiga fátt sameiginlegt
nema nafnið og að þeir eiga að
standa undir rekstri að ákveðnu
marki. Þeim er eins og öðram ríkis-
stofnunum úthlutað rekstrarfé sem
oftast jafíigildir launa- og stjómun-
arkostnaði. Að öðm leyti eiga þeir
að standa undir rekstrinum sjálfír
með tekjum af framleiðslunni.
Í drögum að nýrri reglugerð um
hlutverk vemdaðra vinnustaða er
áhersla á þjónustu þeirra ekki í
samræmi við þjónustuþörf fötluð-
ustu einstaklinganna heldur þeirra
sem skilað geta afköstum í meira
eða minna mæli.
Stjómendum vemdaðra vinnu-
staða verður því meira kappsmál
að fá þá í vinnu sem skila ein-
hverri framleiðni til þess að geta
Ásta M. Eggertsdóttir
„Spurningn um hvar
fötluðustu einstakling--
arnir fái dagþjónustu
er þess vegna ósvarað
þó plássum á vernduð-
um vinnustöðum fjölgi
ef þessar reglur verða
settar.
Reglur án samhengis
við aðstæður og eðli
vandamálanna sem
þeim er ætlað að leysa
snúa úrræðunum í and-
hverfu sína — úrræðin
verða vandamál.“
haldið rekstrinum innan fjárlaga.
Afleiðingin er sú að vinnu fá
þeir sem henta rekstrarfé stofnun-
arinnar en hinir sitja á hakanum.
Spumingu um hvar fötluðustu
einstaklingamir fái dagþjónustu er
þess vegna ósvarað þó plássum á
vemduðum vinnustöðum fjölgi ef
þessar reglur verða settar.
Reglur án samhengis við aðstæð-
ur og eðli vandamálanna sem þeim
er ætlað að leysa snúa úrræðunum
í andhverfu sína — úrræðin verða
vandamál.
Stjómvöld þurfa að skýra betur
markmið með starfsemi vemdaðra
vinnustaða og viðurkenna fjárþörf
vegna þeirra ef niðurstaðan á að
verða sú að þeir eigi að þjóna þeim
sem ekki komast úr á almennan
vinnumarkað.
Jafnhliða þarf að huga að skipu-
lögðum aðgerðum til að fjölga at-
vinnutækifæmm fatlaðs fólks á al-
mennum vinnumarkaði. Um það
verður fjallað í næstu grein.
Höfundur starfaði í sjö ár sem
framkvæmdastjóri Svæðisstjómar
um málefni fatiaðra ÍReykja vík.
**Artline gefurlmuna
Merkipennar, tússpennar, glærupennar, töflutússpennar, plakatpennar, áherslupennar o.m.fl. Artline pennar
fyrir alla notkun. Artline býður eitt mest selda úrval merki-og skrifpenna.
I I I l I I I I