Morgunblaðið - 15.09.1988, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 15.09.1988, Blaðsíða 43
88ci íiaaMaTqas .31 auoAauTMMra ,aiöAjanuoHOM MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1988 43 Morgunblaðið/Árni Sæberg Lára V. Júlíusdóttir, Guðrún Hansdóttir, Guðrún Ágústsdóttir og Ásthildur Erlingsdóttir, sem sæti eiga í Framkvæmdanefnd um launamál kvenna. Tekjur karla 64% hærri en kvenna MUNUR á launum karla og kvenna hefur ekki minnkað und- anfarin ár. Meðalatvinnutelyur karla í fullu starfi árið 1985 voru rúmlega 64% hærri en full- vinnandi kvenna samkvæmt skattframtölum. Þetta kemur fram í nýjum bæklingi Fram- kvæmdanefndar um launamál kvenna. Nefndin var stofnuð árið 1983 og í henni eiga sæti fulltrúar laun- þegasamtaka, kvennafélaga stjómmálaflokka og aðila sem tengjast jafnréttismálum. Tilgang- ur nefndarinnar er að vekja at- hygli á launakjörum kvenna og fínna leiðir til úrbóta. Bæklingur, sem nefndin hefur nú gefíð út og nefnist Staðreyndir um launamál kvenna, er gefínn út í þessu skyni. Guðrún Ágústsdóttir, sem sæti á í nefndinni, sagði að á undanföm- um árum hefði almenningur sann- Sjálfstæðismenn í Nes- og Melahverfi: Haustferð aldraðra FÉLAG sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi fer sína árlegu haustferð næstkomandi laugar- dag. Eldri borgurum hverfisins er að vanda boðið f ferðalag og að þessu sinni verður farið aust- ur fyrir fjall. Ekið verður Þrengslaveg og um Óseyrarbrú sem Þorsteinn Pálsson, fyrsti þingmaður Suðurlandskjör- dæmis vígði nýlega og gaf nafn. Farið verður síðan um Eyrarbakka og Stokkseyri og meðal annars komið í sjóbúð Þuríðar formanns. Á Selfossi er boðið til síðdegishress- ingar á Hótel Selfossi og þar mun Amdís Jónsdóttir, varaþingmaður, ávarpa gesti. Á heimleiðinni verður komið í Hveragerði og Garðyrkju- skóli ríkisins heimsóttur. Fararstjóri verður Björg Einarsdóttir. Þátttaka tilkynnist á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll fyrir klukkan 16 á föstudag. (Fréttatiikynning) FiskverA á uppboðsmörkuðum u. september. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meöal- Magn Heildar- verð verð verö (lestir) verð (kr.) Þorskur 50,00 42,00 47,97 24,044 1.153.468 Ýsa 83,00 55,00 73,27 2,152 157.679 Koli 47,00 47,00 47,00 1,350 63.450 Karfi 26,00 20,00 20,67 5,800 119.909 Steinbítur 27,00 27,00 27,00 0,500 13.500 Keila 15,00 15,00 15,00 2,000 30.000 Langa 25,00 25,00 25,00 0,300 7.500 Lúða 170,00 90,00 132,60 1,659 219.994 Háfur 15,00 15,00 15,00 0,003 45 Samtals 46,70 37,808 1.765.542 Selt var aðallega úr Júlíusi Geirmundssyn ÍS og Stakkavík ÁR. 1 dag veröa m.a. seld 21 tonn af karfa, 6 tonn af þorski, 1,5 tonn af löngu og 0,5 tonn af ýsu úr Keili RE og 15 tonn af þorski úr Sturlaugi H. Böövarssyni AK. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 45,00 30,00 39,50 4,014 158.570 Undirmál 15,00 15,00 15,00 0,024 360 Ýsa 69,00 47,00 63,45 5,263 333.937 Karfi 24,50 20,00 22,69 69,288 1.572.268 Ufsi 15,00 15,00 15,00 0,066 990 Steinbítur 13,00 13,00 13,00 0,060 780 Langa 15,00 15,00 15,00 0,111 1.665 Lúöa 135,00 125,00 131,10 0,196 25.695 Skarkoli 43,00 43,00 43,00 0,027 1.161 Samtals 26,51 79,049 2.095.426 Selt var aðallega úr Jóni Baldvinssyni RE. f dag veröa m.a. seld 60 tonn af karfa úr Ottó N. Þorlákssyni RE. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 50,50 33,50 44,88 13,290 596.475 Ýsa 50,00 42,00 44,30 9,656 427.780 Ufsi 29,00 11,00 17,61 13,861 244.166 Karfi 25,00 15,00 21,04 39,971 841.134 Steinbítur 26,00 15,00 16,91 0,121 2.046 Hlýri+steinb. 23,00 20,00 21,50 0,900 19.350 Langa 30,50 30,00 30,19 1,515 45.743 Blálanga 30,00 30,00 30,00 0,252 7.560 Sólkoli 45,00 45,00 45,00 0,062 2.790 Skarkoii 35,00 35,00 35,00 0,844 29.540 Lúöa 70,00 40,00 46,00 0,100 4.600 Langlúra 15,00 15,00 15,00 0,017 255 Keila 14,50 14,50 14,50 0,053 769 Brynstirtla 1,00 1,00 1,00 0,057 57 Öfugkjafta 10,00 10,00 10,00 0,175 1.750 Skata 80,00 80,00 80,00 0,044 3.520 Skötuselsh. 358,00 358,00 358,00 0,036 12.880 Samtals 27,67 80,954 2.240.373 Selt var aöallega úr Þuríöi Halldórsdóttur GK, Fönix KE, Höfr- ungi II GK, Geir RE og Ólafi GK. Náttúruminjaskrá í nýjum búningi Náttúruverndarráð er nú að gefa út náttúruminjaskrá í fimmta sinn, en samkvæmt lögum ber Náttúruverndarráði að kynna sér eftir föngum náttúruminjar á landinu og semja skrá um þær. Að þessu sinni er skráin gefin út í 5.000 eintökum og er yfir 3.000 ein- tökum dreift til stofnana og einstaklinga um land allt. Skráin á m.a. að berast öllum þeim sem eiga land sem er friðlýst eða skráð sem náttúruminjar. færst um að munur væri á launum karla og kvenna. „Þrátt fyrir að fólk viðurkenni þetta þá er enn langt í land að jafnræði sé náð,“ sagði hún. „Við vonum að með útgáfu þessa bæklings getum við vakið athygli á bágum kjörum kvenna og um leið hvatt konur til að berjast fyrir sömu launum og karlar. Það er jú ekkert ódýrara fyrir konur að lifa en karla, svo launamisrétti er óafsakanlegt. Skýringar á hærri launum karla eru margar. Þeir fá til dæmis oftar en konur ýmsar aukagreiðslur, til dæmis óunna yfírvinnu og bfla- styrk.“ Við gerð bæklingsins studdist nefndin við gögn frá Byggðastofn- un, Kjararannsóknamefnd, fjár- málaráðuneytinu, Sambandi íslenskra bankamanna og Þjóð- hagsstofnun. í honum kemur fram, að konur ná hæstum meðaltekjum á ársverk á aldrinum 30-40 ára. Þá samsvara tekjur þeirra meðal- tekjum karla 75 ára og eldri og 15-19 ára pilta. Karlar á sama aldri voru hins vegar með miklu hærri laun. Vinna kvenna utan heimilis hefur vaxið úr 33% árið 1960 í rúm 80% árið 1985. At- vinnuþátttaka giftra kvenna hefur meira en fjórfaldast. Þá eru konur sem starfa hjá ríki, bæjarfélögum og bönkum hlutfallslega fjölmenn- astar í lægstu launaflokkunum. Hlutfall kvenna minnkar jafnt og þétt eftir því sem ofar dregur í launastiganum, en þesu er öfugt farið hjá körlum. Lára V. Júlíusdóttir, sem sæti á í nefndinni, sagði að ein leið til að’ konur næðu sömu launum og karl- ar væri að nýta þann möguleika sem jafnréttislög gæfu. „Lögin eru nú í endurskoðun og vonandi ský- rist enn betur en áður hvemig beita megi þeim í þessum til- gangi," sagði Lára. Skráin birtist lesendum nú í nýj- um búningi, því gerðar hafa verið verulegar breytingar á uppsetningu hennar. í þessari útgáfu er tekin upp sú nýbreytni, að hafa aðeins eina skrá, sem skipt er eftir lands- hlutum (kjördæmum). Hverjum landshluta er síðan skipt í tvennt, annars vegar friðlýst svæði og hins vegar náttúruminjar. Þá fylgir skránni nú ömefnaskrá. Þar koma fram nöfn friðlýstra svæða og náttúruminja og ömefni sem notuð eru í lýsingum á mörkum svæða. Kortum í náttúruminjaskrá hefur einnig verið breytt í samræmi við uppsetningu. Áður voru í skránni tvö kort, annað sýndi friðlýst svæði, en hitt náttúruminjar. Þessar upp- lýsingar hafa nú verið teknar saman á stórt litprentað kort, sem er í vasa aftast í skránni. Nokkurt upp- lag af kortinu er til óbrotið og er t.d. tilvaiið fyrir skóla og stofnanir að eiga það þannig. Friðlýst svæði á íslandi sam- kvæmt náttúruvemdarlögum em nú 69 talsins, og skiptast þannig: 2 þjóðgarðar 29 náttúmvætti 29 friðlönd 9 fólkvangar Á náttúmminjaskrá em 273 svæði og hefur þeim fjölgað um 18 frá síðustu útgáfu. Náttúmminjaskránni er dreift ókeypis og fæst hún á skrifstofu Náttúruvemdarráðs, Hverfísgötu 26. (Fréttatilkynnwg) Morgunblaðið/Árni Sœberg Frá námsstefnu fræðsludeildar kirkjunnar í Norræna húsinu. Dr. Finn Wagle í ræðustól. Námsstefna um ferm- ingarundirbúning ÞRIGGJA daga námsstefnu í Norræna húsinu á vegum ferm- ingarstarfanefndar fræðsludeild- ar kirkjunnar í samvinnu við Norræna húsið lauk á miðvikudag. Þar sem fjallað var um ferming- una og fermingarundirbúning. Fyrirlesarar á námsstefnunni voru þeir dr. Wolfgang Edelstein sem fjallaði rnn kennslufræðileg efni, Erla Kristjánsdóttir frá Kennaraháskólanum sem fjallaði um unglingamenningu og dr. Finn Wagle frá Noregi, en hann er framkvæmdastjóri IKO, sem er fræðsludeild kirkjunnar (Noregi. Að sögn sr. Bemharðs Guðmunds- sonar, fræðslustjóra kirkjunnar, var á námsstefnunni kynnt margskonar fermingarefni og rætt um hvemig bæta megi ferminguna miðað við íslenskar aðstæður. „ Dr. Finn Wagle, sem leiðbeindi á námsstefnunni hefur beitt sér fyrir mjög nýstárlegum leiðum í ferming- arfræðslunni, sem beinist ekki síst að því að koma boðskapnum á fram- færi til unglinganna í þeirra eigin umhverfí og á þann máta sem þeim er skiljanlegur. Meðal annars er þá lögð mikil áhersla á notkun tónlistar og sumarbúða við fermingarfræðsl- una. Orðið fræðsla er kannski ekki lengur aðalatriðið heldur að lifa lífi kirkjunnar í guðþjónustu og í þjón- ustu hennar, og að unglingamir og foreldrar þeirra taki ríkan þátt í safn- aðarlífinu. Vonandi verða þær hug- myndir sem fram hafa komið héma til þess að, gefa fermingarvinnunni meiri lit og líf, og væntanlega verður tekið dýpra á því þegar fram líða stundir, en nýlega hefur verið stofn- uð fræðsludeild kirkjunnar, sem hef- ur þessi mál innan sinna vébanda," sagði sr. Bemharður. Þátttakendur á námsstefnunni voru nálægt fjörutíu talsins og komu þeir alls staðar að af landinu. Verkamannafélagið Hlíf: Árásum á kjörin mótmælt MORGUNBLAÐINU hefur bo- rist eftirfarandi ályktun frá Verkamannafélaginu Hlíf: „Fundur haldinn í Verkamánna- félaginu Hlíf fímmtudaginn 8. september 1988 lýsir undrun sinni á þeirri óskammfeilni stjórnvalda að setja bráðabirgðalög til þess að halda niðri lægstu laununum í þjóðfélaginu, í stað þess að hækka þau og jafna þannig kjör fólksins í landinu. Það er hrópandi mótsögn við allt réttlæti þegar ráðherrar með 10—15-föld verkamannalaun setja lög um skerðingu Iágmarkslauna, sem eru undir þeim mörkum að duga til mannsæmandi lífs. Fundurinn mótmælir síendur- teknum árásum stjómvalda á kjör launafólks og skorar á þau að láta af þeim, en stjórna landinu heldur þannig að ekki þurfí að grípa til neyðarráðstafana meðan mesta góðæri sem um getur í íslandssög- unni gengur yfír. Fundurinn mótmælir þeirri lygi sem stjómvöld klifa sífellt á að rekstrarvandi fyrirtækja sé vegna of hárra launa verkafólks. Sann- leikurinn er sá að stjómvöld og þá alveg sérstaklega ráðherra- gengið sem nú situr að völdum í þjóðfélaginu hefur með fádæma stjómleysi og óraðsíu stuðlað að verðbólgu og vaxtaokri sem er orðið mörgum fyrirtækjum ofviða vegna óeðlilega mikils fjármagns- kostnaðar. Ríkisstjómin reynir með öllum tiltækum ráðum að halda þessum staðreyndum leynd- um en kenna launum verkafólks um efnahagsvandann. Þessari fjandsamlegu afstöðu stjómvalda í garð launafólks eiga verkalýðsfélögin að mæta með því að neita að ræða um annað en hækkun lægstu launa og jöfnun lífskjara í landinu."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.