Morgunblaðið - 15.09.1988, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1988
Tillögur forsætisráðherra í efnahagsmálum:
Strangt verðlagsað-
hald og vaxtalækkun
Hér á eftir eru birtar í heild drög
að tillögu að samþykkt ríkisstjóra-
arinnar unj efnahagsaðgerðir,
drög að bráðabirgðalögum um
efnahagsaðgerðir og drög að yfir-
lýsingu ríkisstjói-narinnar um að-
gerðir í efnahagsmálum, sem for-
sætisráðherra hefur lagt fyrir
ríkisstjórnina:
> Um strangt aðhald í
verðlagsmálum
Ríkisstjórnin felur Verðlagsstofn-
un að framkvæma strangt aðhald
að verðlagsþróun í framhaldi af verð-
stöðvun sem ákveðin var til loka sept-
ember. í því skyni skal stofnunin
beita gildandi heimildum í lögum nr.
56/1978 um verðlag, samkeppnis-
hömlur og óréttmæta viðskiptahætti.
Breytingar á gjaldskrám ríkisfyr-
irtækja skulu áfram vera háðar sam-
þykki ríkisstjómarinnar, sbr. 7. gr.
bráðabirgðalaga nr. 14/1988.
Um lækkun vaxta
Ríkisstjómin ákveður að flármála-
ráðherra skuli í framhaldi af að-
naldsákvörðunum í ríkisfjármálum
beita sér fyrir lækkun á vöxtum á
spariskírteinum ríkissjóðs á gmnd-
velli fyrirliggjandi samkomulags við
lánastofnanir.
Ríkisstjómin ákveður að flármála-
ráðherra og félagsmálaráðherra skuli
beita sér fyrir endurskoðun á gild-
andi samkomulagi við samtök lífeyr-
issjóða með það að markmiði að vext-
ir lækki á skuldabréfum Húsnæðis-
stofnunar ríkisins. Jafnframt ákveð-
ur ríkisstjómin að til að greiða fyrir
jjð samkomulag takist í þessu efni'
og til að stuðla að auknu framboði
lánsfjár á hinum almenna lánamark-
aði og lækkun raunvaxta skuli fé-
lagsmálaráðherra undirbúa löggjöf
um að skylda lífeyrissjóða til kaupa
á skuldabréfum Húsnæðisstofnunar
ríkisins verði afnumin í áföngum.
Ríkisstjómin felur Seðlabankan-
um í samráði við viðskiptaráðuneytið
að halda áfram viðræðum við lána-
stofnanir um lækkun vaxta. Leiði
þær viðræður hins vegar ekki til
samkomulags um vaxtaþróun sam-
þykkir ríkisstjómin beina fhlutun
Seðlabankans um vaxtaákvarðanir
innlánsstofnana, skv. 2. mgr. 9. gr.
Seðlabankalaga nr. 36/1986, til þess
að viðunandi niðurstaða náist.
Um beitingu heimildar til
gengisbreytingar
Ríkisstjómin felur Seðlabanka ís-
lands að beita heimild þeirri sem
bankanum var fengin í mafmánuði
til að breyta gengi krónunnar um
allt að 3%.
Drög að bráðabirgðalögum
um efnahagsaðgerðir
Forseti íslands
gjörir kunnugt: Forsætisráðherra
hefir tjáð mér að í framhaldi af frest-
un á hækkun launa og búvömverðs
beri brýna nauðsyn til að ákveða
aðgerðir sem leggi gmnn að stöðug-
leika í efnahagslffinu og hafi m.a.
að markmiði að styrkja afkomu at-
vinnuvega, treysta atvinnuöryggi,
draga úr verðbólgu og lækka vexti.
Fyrir því em hér með sett svofelld
bráðabirgðalög samkvæmt 28. grein
stjómarskrárinnan
1. gr.
1. gr. bráðabirgðalaga nr. 14, 20.
maí 1988, orðist svo:
Laun, þ.e. launataxtar og kjara-
tengdir liðir, þar á meðal kauptrygg-
ing sjómanna, í síðastgildandi lqara-
samningum, skulu hinn 1. júní 1988
hækka um það sem á kann að vanta
10% hækkun frá 31. desember 1987
að telja.
Gildandi kjarasamningar, sem
ákveða minni hækkun launa en felst
í 1. mgr. þessarar greinar, breytast
í samræmi við hana.
Ákvæði 1. mgr. þessarar greinar
raska þó ekki þeim ákvæðum gild-
andi kjarasamninga, sem falið hafa
í sér meiri hækkun iauna en kveðið
er á um í 1. mgr., enda hafi sú
hækkun komið til framkvæmda fyrir
gildistöku bráðabirgðalaga nr. 74,
26. ágúst 1988.
Frekari hækkun launa, kjara-
tengdra liða, og hvers konar endur-
gjalds fyrir unnin störf en kveðið er
á um í þessari grein er óheimil á tíma-
bilinu til 10. apríl 1989. Ákvæði þess-
arar greinar breyta ekki reglum um
starfsaldurshækkanir eða aðrar ein-
staklingsbundnar launabreytingar
samkvæmt þegar gildandi kjara-
samningum.
2. gr.
2. gr. bráðabirgðalaga nr. 14, 20.
maí 1988, orðist svo.
Fjárhæðir launaliða í verðlags-
grundvelli búvöru skulu ekki taka
meiri hækkunum en mælt er fyrir
um í 1. gr.
3. gr.
3. gr. bráðabirgðalaga nr. 14, 20.
maf 1988, orðist svo:
Fjárhæðir launaliða í gjaldskrám
sjálfstætt starfandi sérfræðinga
skulu ekki hækka meira en greinir
í 1. gr. Sama gildir um hvers kyns
útselda vinnu og þjónustu.
4. gr.
3. tl. 29. gr. laga nr. 46, 27. júní
1985, um framleiðslu, verðlagningu
og sölu á búvörum með síðari breyt-
ingum falli brott.
5. gr.
1. mgr. 9. gr. vaxtalaga nr. 25,
27. mars 1987, orðist svo:
Dráttarvextir af peningakröfu
skuiu reiknast sem dagvextir frá og
með gjalddaga hennar, sé hann fyrir-
fram ákveðinn, fram að greiðsludegi.
6. gr.
2. mgr. 10. gr. vaxtalaga nr. 25,
27. mars 1987, orðist svo:
Seðlabanki íslands skal eigi
sjaldnar en mánaðarlega reikna veg-
ið meðaltal ársávöxtunar á nýjum
almennum útlánum hjá viðskipta-
bönkum og sparisjóðum og birta
meðaltal þetta í Lögbirtingablaði
ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1.
mgr., og skulu þeir dráttarvextir
gilda næsta mánuðinn eða uns næsta
tilkynning er birt í Lögbirtingablaði.
7. gr.
Almennt fiskverð samkvæmt til-
kynningu Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins nr. 6, 3. júní 1988, skal gilda
óbreytt til 31. janúar 1989.
8. gr.
Fjármálaráðherra fyrir hönd ríkis-
sjóðs er heimilt að taka lán að fjár-
hæð allt að 450 milljónir króna eða
jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri
mynt. Fé þessu skal ráðstafa til
greiðslu sérstakra tfmabundinna
verðbóta á framleiðslu freðfisks og
hörpudisks átfmabilinu 1. september
1988 til 31. janúar 1989. Þessar
verðbætur skulu ákvarðaðar sem til-
tekið hlutfall af fob-verði útfluttra
afurða. Sjávarútvegsráðherra setur
reglugerð um framkvæmd þessarar
greinar, þar á meðal um greiðsluhlut-
fall og greiðslutilhögun.
9. gr.
Þrátt fyrir ákvæði laga nr. 72, 28.
maf 1969, um Verðjöfnunarsjóð fisk-
iðnaðarins, skal 250 milljónum króna
af innstæðu á reikningi vegna skel-
flettrar rælqu í deild fyrir frystar
afurðir í Verðjöfnunarsjóði fiskiðnað-
arins varið til endurgreiðslu til þeirra
rækjuframleiðenda, sem gert hefur
verið að greiða í sjóðinn á tímabilinu
1. febrúar 1986 til 30. september
1988. Skal upphæðinni skipt milli
framleiðenda í hlutfalli við það sem
þeim hefur verið gert að greiða til
sjóðsiiis vegna rækjuframleiðslu á
framangreindu tímabili að frádregn-
um verðbótum sem til falla vegna
framleiðslu þeirra á sama tfmabili.
Sjávarútvegsráðherra setur reglu-
gerð um tilhögun endurgreiðslu sam-
kvæmt þessari grein.
10. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Drög að yfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar um
aðgerðir í efnahagsmálum
Ríkisstjómin hefur í framhaldi af
frestun á hækkun launa og búvöru-
verðs ákveðið aðgerðir í efnahags-
málum sem leggja grunn að stöðug-
leika í efnahagslífinu og hafa m.a.
að markmiði
að styrkja afkomu atvinnuvega,
að treysta atvinnuöryggi
hag heimila,
að draga úr verðbólgu og
að lækka vexti.
Gefin hafa verið út bráðabirgðalög
um efnahagsaðgerðir sem taka þegar
gildi. Aðgerðir ríkissfjómarinnar eru
þessar
Aðhald í verðlagsmálum
Ríkisstjómin hefur ákveðið að fela
Verðlagsstofnun að framkvæma
strangt aðhald að verðlagsþróun í
framhaldi af verðstöðvun sem ákveð-
in var til loka september. í því skyni
skal stofnunin beita gildandi heimild-
um í lögum nr. 56/1978 uin verðlag,
samkeppnishömlur og óréttmæta
viðskiptahætti.
Breytingar á gjaldskrám ríkisfyr-
irtækja verða áfram háðar samþykki
ríkisstjómarinnar.
Fjárhæðir launaliða f gjaldskrám
sjálfstætt starfandi sérfræðinga eru
frystar til 10. apríl 1989. Sama gild-
ir um hvers kyns útselda vinnu og
þjónustu.
Frysting launa
Með bráðabirgðalögum er kveðið
á um að samningsbundnar og lög-
bundnar launahækkanir skuli frystar
til 10. apríl 1989.
Verðlagsgrundvöllur
búvöru
Með bráðabirgðalögum er kveðið
á um að fjárhæðir launaliða í verð-
lagsgrundvelli búvöm skuli ekki
hækka á tímabilinu til 10. apríl 1989.
Jafnframt er fellt úr gildi ákvæði um
ársflórðungslegar hækkanir til
bænda í tengslum við breytingu á
verðlagsgrundvelli búvöru.
Fiskverð
Almennt fiskverð sem ákveðið var
í júníbyijun framlengist óbreytt til
31. janúar 1989.
Sérstakar tímabundnar
verðbætur á frystar afurðir
Allt að 450 milljónum króna, sem
Qármálaráðherra fyrir hönd ríkis-
sjóðs er heimilað að taka að láni,
verður ráðstafað til greiðslu sér-
stakra tímabundinna verðbóta á
framleiðslu freðfisks og hörpudisks
á tímabilinu 1. september 1988 til
31. janúar 1989. Verðbætumar skulu
ákvarðast sem tiltekið hlutfall af
fob-verði útfluttra afurða.
Endurgreiðsla úr
Verðjöfnunarsjóði til .
rækjuframleiðenda
Þrátt fyrir ákvæði laga um Verð-
jöfnunarsjóð fískiðnaðarins verður
250 milljónum króna af innstæðu á
reikningi vegna skelflettrar rækju í
deild fyrir frystar afurðir í Verðjöfn-
unarsjóði varið til endurgreiðslu til
þeirra rækjuframleiðenda, sem gert
hefur verið að greiða í sjóðinn á tíma-
bilinu 1. febrúar 1986 til 30. septem-
ber 1988. Verður flárhæðinni skipt
milli framleiðenda í hlutfalli við það
sem þeim hefur verið gert að greiða
til sjóðsins vegna rækjuframleiðslu á
framangreindu tímabili að frádregn-
um verðbótum sem til falla vegna
framleiðslu þeirra á sama tímabili.
Lækkun vaxta
Fjármálaráðherra mun beita sér
fyrir lækkun á vöxtum á spariskír-
teinum ríkissjóðs á grundvelli fyrir-
liggjandi samkomulags við lána-
stofnanir í framhaldi af aðhalds-
ákvörðunum í ríkisfjármálum.
Fjármálaráðherra og félagsmála-
ráðherra munu beita sér fyrir endur-
skoðun á gildandi samkomulagi við
samtök lífeyrissjóða með það að
markmiði að vextir lækki á skulda-
bréfum Húsnæðisstofhunar rfkisins.
Til að greiða fyrir að samkomulag
takist í þessu efni og til að stuðla
að auknu framboði lánsfjár á hinum
almenna lánamarkaði og lækkun
raunvaxta mun félagsmálaráðherra
undirbúa löggjöf um að kaupskylda
lífeyrissjóða á skuldabréfum Hús-
næðisstofnunar ríkisins verði afnum-
in í áföngum.
Ríkisstjómin hefur falið Seðla-
bankanum í samráði við viðskipta-
ráðuneytið að halda áfram viðræðum
við lánastofnanir um lækkun vaxta.
Leiði þær viðræður hins vegar ekki
til samkomulags um vaxtaþróun
samþykkir ríkisstjómin beina íhlutun
Seðlabankans um vaxtaákvarðanir
innlánsstofnana til þess að viðunandi
niðurstaða náist.
Breyttur útreikningur
dráttarvaxta
í bráðabirgðalögunum er kveðið á
um að dráttarvextir skuli reiknast
sem dagvextir, en til þessa hefur
verið heimilt að reikna fiilla mánað-
arvexti fyrir brot úr mánuði. Bráða-
birgðalögin kveða jafnframt á um
að Seðlabankinn skuli reikna dráttar-
vexti eigi sjaldnar en mánaðarlega.
Um beitingu heimildar til
gengisbreytingar
Ríkisstjómin hefur falið Seðla-
banka íslands að beita heimild þeirri
sem bankanum var fengin í maímán-
uði til að breyta gengi krónunnar
um allt að 3%.
Aðhald í ríkisfjármálum
og lánsfjármálum
Ríkisstjómin mun í framhaldi
efnahagsaðgerða taka ákvarðanir
um flárlög ársins 1989 sem verða
afgreidd án rekstrarhalla. Lánsfjár-
lög ársins 1989 munu einkennast af
ströngu aðhaldi að erlendum lántök-
um.
Ákvarðanir á sviði lánsfjármála
munu lúta að því að draga verulega
saman erlendar lántökur á næsta
ári, en jafnframt að skapa heilbrigða
umgjörð á þessu sviði með setningu
almennra reglna.
Eiginfjárstaða fyrirtækja
Ríkisstjómin mun undirbúa að-
gerðir á gmndvelli fyrirliggjandi til-
lagna til að treysta eiginfjárstöðu
atvinnufyrirtækja. Einnig verða und-
irbúnar breytingar á skattareglum
fyrirtækja þannig að þeim verði gert
kleift að fresta skattlagningu í góð-
æri og flytja hagnað fram á við til
að mæta hugsanlegum taprekstri
sfðar. Með þessum aðgerðum verður
dregið úr lántökuþörf atvinnurekstr-
arins og undir hann skotið styrkari
stoðum.
Aðgerðir ríkisstjómarinnar koma
í veg fyrir stöðvun undirstöðuat-
vinnuveganna og tryggja með því
atvinnuöryggi og afkomu heimila.
Jafnframt er komið f veg fyrir
víxlgengi verðlags og launa og
gmndvöllur lagður að frekari hjöðn-
un verðbólgu og lækkun vaxta. Með.
þessum aðgerðum em sköpuð skil-
yrði til að mæta áhrifum verðfalls á
erlendum mörkuðum og samdrætti í
afla mikilvægra fisktegunda. Með
aðgerðunum er lagður gmnnur að
auknum stöðugleika og jafnvægi sem
er forsenda þess að þjóðarbúið glæð-
ist nýjum þrótti og lífskjör almenn-
ings batni á nýjan leik.
MASÝNING í KRINGLUNNI 14.-17. SEPT.
ingu á milli síma, látið vekja þig 01
svona mœtti lengi halda áfram.
Almenna gagnaflutningsnetið gerir þé.
kleift að sœkja uþþlýsingar úr gagna
bönkum víða um heim — með tölvunn
þinni — senda telex, þanta þjónustu
o.fl.
Komdu á símadaga í Kringlunni 14. -
17. seþtember. Þú hefur örugglega gam
an af því.
POSTUR OG SIMI
KRINGLUNNI
Hélstu uð þetta reri bara hcegt i bíómyndum ?
Þú fcerð að vita allt um nýja og bráð-
skemmtilega þjónustu Pósts og síma á
símadögum í Kringlunni 14. -17. seþt-
ember.
Sérþjónustan í stafrœna símakerfinu
býður uþþ á ýmsa forvitnilega mögu-
leika (vcegast sagt). Þú getur haldið
})riggja manna símafundi, flutt hring-