Morgunblaðið - 15.09.1988, Síða 62
Alþýðusamband
Suðurlands;
Ákvörðun
um byggingu
Alvers fagnað
Á FUNDI stjórnar Alþýðusam-
bands Suðurlands var samþykkt
ályktun, þar sem fagnað er
ákvörðun stjórnvalda um bygg-
ingu álvers, sem fyrirsjáanlega
leiði til umfangsmikilla virkjana-
framkvæmda á virkjunarsvæð-
um á Suðurland.
í ályktuninni segir enn fremur
að: „Vegna alvarlegra áfalla í sunn-
lensku atvinnulífi á síðustu árum
og því óvissuástandi sem nú ríkir á
sunnlenskum vinnumarkaði, þá
hvetur fundurinn ríkisstjóm og
stjóm Landsvirkjunar til þess að
hraða eftir því sem unnt er undir-
búningi að framkvæmdum, svo
áhrif þeirra til atvinnutækifæra á
Suðurlandi gæti sem fyrst.
Jafnframt bendir stjóm Alþýðu-
sambands Suðurlands á nauðsyn
þess, að samfara væntanlegum
tímabundnum virkjanaframkvæmd-
um verði leitað leiða til varanlegrar
atvinnuuppbyggingar á Suður-
landi."
Margrét
Ámadóttir
sýnir í
Bókasafni
Kópavogs
SÝNING Margrétar Árnadóttur
hófst mánudaginn 12. septem-
ber á um 20 pastelmyndum í
listastofu Bókasafns Kópavogs.
Margrét fæddist í Neskaupstað
12. desember 1926. Hún stundaði
nám í Myndlista- og handíðaskóla
íslands 1944-1947, og við Kon-
unglegu listaakademíuna í Kaup-
mannahöfn 1947—1950.
Hún hefur verið útivinnandi hús-
móðir frá námslokum, lengst af á
teiknistofu Pósts og síma. Hún
hætti ■ störfum þar árið 1987 og
hefur nú snúið sér að myndlistinni.
Sýningin er opin á sama tíma
og bókasafnið; mánudaga til föstu-
daga kl. 9—21 og stendur hún til
loka september. Allar eru myndim-
ar til sölu og veita starfsmenn
safnsins upplýsingar um þær.
Bókasafnið er til húsa í Fann-
borg 3—5, aðgangur er ókeypis og
öllum heimill.
4
Þeir Penn og Duvall eru í miðjum brennisteinsfnyknum í Klíkum,
hinni ógnvekjandi mynd Hoppers.
KALDIR LITIR
Kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
Háskólabíó:
Klíkur — „Colors"
Leikstjóri Dennis Hopper. Hand-
rit Michael Schiffer. Saga Schiff-
er, Richard Dilello. Kvikmynda-
tökustjóri Haskell Wexler. Tón-
list Herbie Hancock. Aðalleik-
endúr Sean Penn, Robert Duvall,
Maria Conchita Alonso, Randy
Brooks, Grand Bush. Bandarísk.
Orion 1988.
Dennis Hopper, sá sögufrægi,
bíræfni sukkari og hæfíleikamaður,
sem ber með réttu hinn hæpna titil
„enfant terrible" Hollywoodborgar,
er aftur kominn í náðina í kvik-
myndaborginrii og tekinn til við að
leikstýra á nýjan leik. Með tilþrif-
um. Hopper leikstýrði Easy Rider,
einni þekktustu mynd sjöunda ára-
tugarins, og engum tókst betur að
lýsa tíðaranda og hippamenningu
þessa einstaka tímabils ftjálsra
ásta, hæverskrar þjóðfélagsgagn-
rýni og eituráts. Þessi hræódýra
smámynd malaði gull um allan heim
og nú stóðu þessum óstýriláta, hálf-
óða listamanni allar dyr opnar.
Hann gekk á mála hjá Universal
og gerði ein sögulegustu mistök
kvikmyndasögunnar, The Last
Movie. Lá nærri að hún stæði und-
ir nafni hvað feril leikstjórans varð-
aði, því nú fyrst þótti Hopper gjör-
samlega óalandi og ófeijandi. Við
tóku ár sukks og niðurlægingar,
fékk smáhlutverk hér og þar en
fékk að spreyta sig norður í Kanada
við að leikstýra Out of the Blue
(’80), fíma sterkri mynd um fjöl-
skylduvandamál fyrrverandi fanga,
fór sjálfur með aðalhlutverkið.
Síðan fóru aukahlutverkin að verða
æ matarmeiri og nú hefur semsagt
fyrsta leikstjómarverk hans um
árabil verið frumsýnt. 0g þvílík
mynd! Áhorfandinn er hreinlega
kaffærður í djöfulskap og vonleysi.
Ef hægt er að tala um Helvíti
á Jörðu, eru það fátækrahverfi stór-
borganna þar sem ekkert gott fær
að festa rætur, mannleg niðurlæg-
ing er í hámarki, lestimir allsráð-
andi, ofbeldi, vændi, eiturlyfja-
neysla og hámark lífsfyllingar þessa
utangarðsfólks að drepa hvert ann-
að. Eitt þeirra, hörmungarslömm
Los Angeles, er bakgrunnur Klíka.
Penn er'nýliði í sérsveit lögreglunn-
ar sem á að halda niðri glæpum í
fátækrahverfunum og er settur sem
félagi Duvalls. Sá er gamalreyndur
í samskiptum við þessar dreggjar
þjóðfélagsins, reynir samningaleið-
ina í lengstu lög, enda umhugað
að komast á eftirlaun heill heilsu.
Penn hefur aðrar hugmyndir. Hann
sést ekki fyrir, beitir fantaskap og
valdníðslu, uns uppúr sýður með
félögunum. Inní myndina fléttast
svo rannsókn á einstöku morði sem
á eftir að draga dilk á eftir sér.
Hið eirðarlausa, ofsafengna og
gagnrýna listamannsauga Hoppers
nýtur sín vel í biturri þjóðfélags-
ádeilunni. Okkur verður ljóst að
lausn vandamála fátækrahverf-
anna, einskismannslanda tilverunn-
ar, eru ekki í sjónmáli. íbúamir og
yfírvöldin hafa gagnkvæma vantrú
hvort á öðru. í slömminu eru það
klíkumar sem stjóma, en þær heyja
innbyrðis blóðugt stríð um völd, þær
þyrstir ekki í frið né sættir. Hopper
valdi rétt í að fá Penn til að fara
með aðalhlutverkið, þessi ágæti
leikari og frægi ofstopamaður er
sem fæddur í það, því hann er engu
síður fær um að sýna hlýjar tilfinn-
ingar, ef svo ber undir. Duvall er
ætíð jafn traustur og leikaramir í
hlutverkum rustalýðsins virðast
hafa verið valdir á staðnum. Alonso
er jafn afleit og óþörf og það ástar-
ævintýri allt.
Klíkan er einstaklega grimm og
illileg mynd, énda vonandi að
áhrfendur eigi seint á hættu að
Hopper fari að fegra hlutina. Sjálf-
sagt ofbýður einhveijum hið hrika-
lega ofbeldi hennar, en hér er ekki
verið að leika sér að því, það er hið
sterka afl umhverfísins. Og Hopper
er með enn einn uppreisnarmanninn
í liði sínu, Haskell Wexler, sem
gegnumlýsir samfélagsbölið með
sínu kunna, kalda auga. Og áreitin
tónlist Hancocks fyllir rammann.
Illúðleg, athyglisverð og hreinskilin
mynd. Hopper hefur engu gleymt.
Vitni í fortíð o g nútíð
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Vitni að morði („The Lady in
White“). Sýnd i Laugarásbíói.
Bandarisk. Leikstjóri: Frank
LaLoggia. Helstu hlutverk: Luk-
as Haas, Alex Rocco og Kather-
ine Heimond.
Það fer að verða regla hjá
drengnum Lucas Haas að leika vitni
að morði. Hann var aðalvitni Harri-
sons Fords í Vitninu og í þessari
hrollvekjandi drauga-glæpa-
spennumjmd Laugarásbíós, Vitni
að morði („The Lady in White"),
leikur hann skyggnan dreng sem
verður vitni að morði sem framið
var í drungalegum skólanum hans
fyrir tíu árum. Hinn prúði Haas er
ágætur leikari og það sem meira
er; þessi draugasögulega mynd
hans fær sannarlega hárin til að
sperra sig og hrollinn til að læðast
niður eftir bakinu.
Hún blandar saman á velheppn-
aðan hátt óhuggulegu morðmáli við
ekta, næstum gamaldags og þræl-
góða draugasögu. Sögusviðið er
smábær í Bandaríkjunum og sögu-
efnið er fengið jöfnum höndum úr
smiðjum Hitchcocks og Spielbergs.
Leikstjórinn, Frank LaLoggia,
þræðir bil beggja í tvískiptri sög-
unni sem annars vegar fjallar um
mjög raunverulegan bamamorð-
ingja sem gengur laus og hins veg-
ar, á yfírskilvitlega sviðinu, um
stelpu að handan, fómarlamb morð-
Lukas Haas leikur skyggnan dreng sem verður vitni að morði,
sem framið var fyrir tíu árum.
Lífið er Zanzi-Bar
„Montenegro". Sýnd í Regn-
boganum.
Sænsk. Leikstjórn og handrit:
Dusan Makavejev. Framleiðandi:
Bo Jonsson fyrir Viking Film,
Smart Egg Pictures og Europa
Film. Kvikmyndataka: Tomislav
Pinter. Tónlist: Kornell Kovach.
Helstu hlutverk: Susan Anspach,
Erland Josephson, Per Oscarsson
og Svetozar Cvetkovic.
Dusan Makavejev, hinn júgó-
slavneski leikstjóri og handrits-
höfundur myndarinnar „Monte-
negro" (eða Perlur og svín), sem
endursýnd var í Regnboganum í
nokkra daga, gat ekki valið sér
betra lag til að gefa mynd sinni
rétta tóninn en hinn frábæra sorg-
arsöng Marianne Faithful um út-
hverfahúsmóðurina Lucy Jordan
sem 37 ára kemst að því að hún á
aldrei eftir að þeysa um París í
sportbíl með hlýjan andvarann í
hárinu heldur er dæmd að eilífu til
að hugsa um stofublómin, bónda
og bú.
Kvenhetjan í hinni makalausu
mynd Makavejev ber sama eftimafn
og stendur í sömu sporum og Lucy
Jordan; lífið hefur siglt framhjá
Marilyn Jordan (Susan Anspach)
þar sem hún situr í ríkmannlega
úthverfínu sínu og er að grotna
niður í steindauðu hjónabandi.
Makavejev fjallar á grátbroslegan
hátt um tilvistarvanda og uppreisn
Marilyn og hæðist óspart og af sér-
stökum prakkaraskap að milli-
stéttaveröldinni, tilfínningalega
djúpfrystum eiginmanninum, sál-
fræðingum og seníl gamalmennum
og síðast en ekki síst Júgóslövum
á eilífðarfylleríi í sænska velferð-
arríkinu.
Þegar hin seinþreytta Marilyn
hverfur í tvo daga eftir frekar und-
arlega hegðun í fallega fangelsinu
sínu heldur eiginmaðurinn, leikinn
Þú færð að vita allt um nýja og bráð-
skemmtilega þjónustu Pósts og síma á
símadögum í Kringlunni 14.-17. seþt-
ember.
Sérþjónustan í stafrœna símakerfinu
býður uþþ á ýmsa forvitnilega mögu-
leika (vcegast sagtj. Þú getur haldið
þriggja manna símafundi, flutt hring-
ingu á milli síma, látið vekja þig og
svona mcetti lengi halda áfram.
Alrnenna gagnaflutningsnetið gerir þér
kleift að scekja uþþlýsingar úr gagna-
bönkum víða um heim - með tölvunni
þinni — senda telex, þanta þjónustu
o.fl.
Komdu á símadaga í Kringlunni 14. —
17. seþtember. Þú hefur örugglegagam-
an af því.
mmm
PÓSTUR OG SÍMI
k" R I M C. I I I M M I
SÍMASÝNING I KRINGLUNNI 14.-17. SEPT.
Hélstu oó þetto »œri boro hœgt i bíómyndum ?