Morgunblaðið - 01.10.1988, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 01.10.1988, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988 11 1__________________________________ LÍFSÞRÆÐIR Myndlist Bragi Ásgeirsson Vefarinn Ásá Ólafsdóttir sýnir tólf ný myndverk í hálfum vestri sal Kjarvalsstaða og lýkur sýning- unni á sunnudagskvöld. Ása er vel þekkt og atorkusöm myndlistar- kona, sem á að baki sjö sjálfstæð- ar sýningar og þar af eina í Kung- álv í Svíþjóð, ásamt því að hafa tekið þátt í fjöida samsýninga. Einfaldir, hugnæmir vefír hafa verið sterkasta hlið hennar til þessa og svo er einnig um verkin á þessari sýningu, þótt hún noti nú einnig órólegar og sterkar sveifiulínur, sem geta í senn minnt á rafmagn og eldingar og skeri iðulega myndflötinn að endilöngu. Þetta kemur af stað meiri spennu í myndir hennar en menn eiga að venjast, en hér er öðru fremur um að ræða ytri spennu. Ólga á mynd- fleti þarf ekki endilega að vera tákn innri spennu, en mun þó vera Eitt verka Ásu Ólafedóttur. En svo er annað mál að oft er málmurinn í sjálfu sér fallegastur ólitaður og jafnvel kolryðgaður. Allar þær myndir, sem Hall- steinn hefur gefíð nafnið Fönsun og eru frá þessu ári, eru einfaldar og formhreinar og ég minnist þess naumast að hafa séð skilmerki- legri verk frá hans hendi. Þrálynd- ið, sem vildi einkenna verk hans, er hér farið veg allrar veraidar og þessar myndir eru í mýkt sinni og áreynsluleysi líkastar því að hafa alltaf verið til. Þá er þetta öllu fjölbreyttri sýn- ing en maður hefur átt að venjast frá hendi Hallsteins og eftir því áhugaverð fyrir þá, sem hafa til- fínningu fyrir þessari tegund myndlistar. Má segja, að Hall- steinn Sigurðsson hafí hér upp- skorið þá þolinmæði og þraut- seigju, sem hann á til að bera í svo ríkum mæli. Ástæða er til að óska listamanninum til ham- ingju ... 1___________________________________________________ Arangurinn strax ferinn að segjatil sín Nýstofnuð Samtök sparifl áreigenda stríða við stj órnmálamenn ÞAÐ VAKTI athygli að Ólafur Ragnar Grímsson fíármálaráð- herra er búinn að draga verulega í land meö fyrri yfirlýsingar sínar um skattlagningu sparifiár, ef marka má ummæli ráðherrans í sjónvarpsþættinum 19:19 í gær- kvðldi. í sjónvarpsþættinum 19:19 í gærkvöldi voru Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra og Gunnar Helgi Hálfdanarson for- maður Samtaka sparifjáreigenda gestir þáttarins. Tilefnið var yfirlýs- ing fjármálaráðherra um skattlagn- ingu spariíjár. í umræðunum, sem voru töluvert heitar á köflum, lýsti fjármálaráðherra yfir því að tekjur af sparifé almennings, hvort sem þær væru af sparisjóðsbókum eða verðbréfum, yrðu ekki skattlagðar. Á hinn bóginn sagðist Ólafur Ragn- ar Grímsson ætla að skattleggja „nýríka spekúlanta" og stórfyrir- tæki. Það var auðheyrt að fyrstu að- gerðir Samtaka sparifjáreigenda hafa haft þó nokkur áhrif þessa tvo sólarhringa sem samtökin hafa ver- ið til. Boðun almenns borgarafund- ar um vamaraðgerðir spariljáreig- enda og viðnám gegn margsköttun sparifjár almennings hefur vafa- laust átt nokkum þátt í sinnaskipt- um ráðherrans. Undirtektir við fundarboðinu hafa verið góðar og söfnun félaga mjög árangursrík að sögn tals- manns samtakanna. Eins og áður er sagt, er opinn borgarafundur Samtaka sparifjáreigenda á Hótel íslandi á laugardag, 1. október, kl. 14.00. (Frá Samtökum spariQáreigenda.) LITGREINING MEÐ CROSFIELD Hallsteinn Sigurðsson að þessu sinni, því að listakonan virðist vera að vinna sig frá ein- hveiju í fortíðinni, — stokka upp spilin. í sýningarskrá hefur Ása ritað nokkrar hugleiðingar: „Að baki er dauðinn, framundan lífíð. Finna til, horfa inn á við. Líta út, yfír sjóinn, sjá fjöllin, jökulinn og sólar- lagið, fanga augnablikið. Horfa út, sjá þokuna, rigninguna. Horfa út, fínna grámann. Horfa út, sjá glytta í jökul, fínna innri orku.“ Þessar hugleiðingar lýsa myndun- um vel, því að maður skynjar í þeim margvíslegar lifanir frá um- hverfínu, svo og persónulegar li- fanir og orkustreymi. Myndvefnaðurinn er á háu gæðastigi handverkslega séð, því að Ása kann sitt fag og hún hefur einnig þörf fyrir skynræna útrás í litum og formum, svo sem út- færsla verkanna ber með sér. Lita- gleðin er meiri en áður, en ég sakna þó hinna djúpu og dökku vefja, sem vom einkennandi fyrir hana á tímabili og vom á köflum göldmm líkastir. En þetta er líkast til rökrétt framhald. JÓLAFRÍ í AUSTURRÖa SAALBACH HIM ERGLEM.VI Úrvals 2ja herb. íbúðir fyrir 2-4. Eldhús, svalir, sturta, salerni, útvarp og lita- sjónvarp, 8 rása gervihnöttur. Frábær staðsetning, rétt hjá skíðasirkus. Heilsurækt Sauna, rómverskt gufubað, heitur nuddpottur og glæsileg sundiaug. Aðgangur innifalinn í verði. Frábœr veitingastaður í hótelinu. Verð fyrir íbúð fyrir 4 frá ca 4.500.- ísl.kr. Farið frá Reykjavík 17. desember og flogið til Salzburgar. Ferðir til og frá Salz- buig innifaldar í verði. Komið til Reykjavíkur 31. desember. Tel. 9043/1643/6541/7331-0 Telefax 9043/1643/6541/7331-78 APART HOTEL ADLER Hótel sem gott er að búa á A NÆSTUNN! Sunnudag kl. 14.30 Danskennarasamband ísiands Haukur Morthens 02 m* | . w I0I&gS,rieika dinnertónlist syning Stjórnin og Kaskó spila dansmúsík og veröa í dúndrandi stuði til kl.3 í nótt Miðaverð á dansleik kr. 750.- Snyrtllegur klæðnaður._ «^SSu HÚTfljj'IAND Svipmyndir úr sögu rokksins á árunum 1955-1970 Tveggja tíma samfelld skemmtidagskrá á Hótel íslandi Næstu tvær helgar, í kvöld, laugardaginn 1. október, föstudag- inn 7. október og laugardaginn 8. október, verða sýningar á rokkskemmtuninni Rokkskór og Bítlahár á Hótel íslandi. Rokkskór og Bítlahór er fiutt af samvöldu liði stórsöngvara. Þeir eru: Einar Júiíus- son, Anna Vilhjálms, SigríÖur Beinteinsdóttir, Karl örvarsson, Ingvar Grótarsson, Júlíus Grótarsson, Sólveig Birgisdóttlr, Ólöf Sigríöur Valsdóttir og Þorsteinn Egg- ertsson. Hljómsveitin Pass ásamt nokkrum aukaliðsmönnum sér um allan hljóð- færaleik. 8 manna dansflokkur undir stjórn Jóhannesar Bachmann rokkar svo um munar. Sögumaður er Bjami Dagur Jónsson, sá kunni útvarps- og sjónvarpsmaö- ur. Höfundur og leikstjóri er Þorsteinn Eggertsson. Þessi rokkskemmtun var flutt á liðnum vetri ó Akureyri og vegna fjölda áskorana er hún nú tekin upp að nýju ó Hótel (slandi. Borðapantanir fara fram í síma 687111. Góða rokkskemmtun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.