Morgunblaðið - 01.10.1988, Blaðsíða 33
33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988
Jón Ögmundur Þormóðsson
„Annað hvort styðja
menn skaðabótaskylda
uppsögn sljórnarinnar
eða þeir koma til varn-
ar góðum dreng. Hvort
er meira í anda kristn-
innar?“
laust fyrir vantrausti Alþingis. Aðr-
ir stjómarmenn hafa fengið tíma
til að huga að afsögn. Hefði mátt
telja eðlilegast að þeir segðu af sér
en gæfu út yfirlýsingu þess efnis
að þeir teldu sig ekki með því viður-
kenna að þeir hefðu farið að and-
stætt lögum safnaðarins samkvæmt
eigin skilningi varðandi uppsögn
prestsins. Á þann hátt hefðu þeir
getað sýnt sáttavilja sinn og stuðlað
að friði í söfnuðinum þannig að
m.a. verði afstýrt málarekstri fyrir
dómstólum varðandi uppsögnina og
tryggt að helgihald geti hafist að
nýju án tafar. Stjómarmennirnir,
sem eftir em, hafa hins vegar kos-
ið að bæta gráu ofan á svart með
því að efna til skoðanakönnunar,
sem þeir kalla allsheijaratkvæða-
greiðslu, um uppsögn prestsins,
m.ö.o. um þá ákvörðun safnaðar-
fundarins að lýsa uppsögnina
ógilda. Slík skoðanakönnun hefði
átt rétt á sér þegar biskup lagði
slíkt til fyrir nokkmm vikum. Þá
sinnti stjómin því ekki þótt með því
hefði mátt höggva á hnútinn í deil-
unni. Eftir að hún hafði hins vegar
orðið í minnihluta var þessi leið
loksins orðin nógu góð. Stuðnings-
menn séra Gunnars Bjömssonar
munu þó ekki una slíkum leik með
ákvarðanir æðsta valds í málefnum
safnaðarins, safnaðarfundarins, og
hyggjast því ekki taka þátt í at-
kvæðagreiðslunni.
Þeir sem greiða munu atkvæði
með uppsögn safnaðarprestsins,
jafnvel á gmndvelli þess misskiln-
ings að unnt sé samkvæmt lögum
safnaðarins að segja prestinum upp
án gildra ástæðna, taka að mínum
dómi þátt í að viðhalda því skaða-
bótaskylda ranglæti sem fjölmenn-
asti safnaðarfundur á íslandi sættir
sig ekki við, og viðhalda enn um
sinn ófriði innan safnaðarins, sóa
fé safnaðarins og tíma safnaðar-
fólks, í stað þess að snúast á sveif
með þeim sem vilja beijast gegn
ranglætinu og koma í veg fyrir
skaðabóta- og æmmeiðingamál auk
áframhaldandi tmflunar á messu-
haldi og jafnvel brottfarar fólks úr
söfnuðinum. í sambandi við hið
síðastnefnda má ekki gleyma því
að á altaristöflu kirkjunnar stend-
ur: „Komið til mín, allir.“
Annað hvort styðja menn skaða-
bótaskylda uppsögn stjómarinnar
eða þeir koma til varnar góðum
dreng. Hvort er meira í anda kristn-
innar?
Höfundur er lögfræðingur.
* ••
I tilefni sýningar Grínidjunnar á N.O.R.l).
býðurARNARHOLL sérstakan matsedil áföstudags-
og laugardagskvöldum - fyrir og eftir sýningu.
REGNBOGAKÆFA CLÖRV kr. 325,-
(Regnbojfakœfa med hunangssósu)
WALDGRAVE SÚPA kr. 275,-
(Súpa kvöldsins)
NÆR ÖLDUNGIS GÓMSÆTl HIŒKKJUSVÍN í POKA kr. 995,-
(Innbakadur/'rísavödvi nm) nsii, sveppum og kn'ddjurtasósu)
RISTUD SMÁLÚDA HJ.Á RICK OG RANSÝ kr. 795,-
(Risiud smálúöuflök mei) pnstu, hrísgrjónum og kmklingasósu)
KOMDU OG FÁDU l>ÉR RUGLUKOLLU Á BARNUM
opinn á kvöldinfrá kl. 111:00, þriÖjud. til laugard.
pantanasími IH833 Hvetfisgölu8-10
Messa og
sembaltón-
leikar í Skál-
holtskirkju
Kirkja Óháða safnaðarins í Reykjavík.
Kirkjudagur Oháða
safiiaðarins
KIRKJUDAGUR Óháða saftiað-
arins er á sunnudaginn kemur,
þann 2. október, og hefst með
guðsþjónustu kl. 14.00.
Kirkjudagurinn er árviss hjá
Óháða söfnuðinum og er ávallt
haldinn hátíðlegur á sunnudegi í
október.
Kvenfélag safnaðarins sér um
kaffísölu í Kirkjubæ eftir messu,
og hægt er að fullyrða, að veislu-
borð bíður kirkjugesta. Kirkjubær
er nú sem nýr, húsnæðið hefur ver-
ið endumýjað og ný húsgögn hafa
verið keypt inn og er þar mjög vist-
legt.
Kirkjudagurinn er fyrir alla fjöl-
skylduna, verið því öll velkomin.
Þórsteinn Ragnarsson,
saftiaðarprestur.
NÆSTA sunnudag klukkan 14
prédikar dr. Axel Torm í messu
í Skálholtskirkju. Dr. Torm var
um áratugi formaður hins
dansk-ísraelska kristniboðs. En
jafiift-amt starfi sínu sem prestur
og kristniboði hefur hann ritað
um kristniboðsguðfræði. Hann
er nú liðlega áttræður, en sístarf-
andi.
Fyrir tveim ámm var hann
sæmdur doktorsnafnbót við háskól-
ann í Kaupmannahöfn fyrir ævi-
starf sitt.
Klukkan 17.30 síðdegis heldur
Helga Ingólfsdóttir semballeikari
stutta tónleika sem hún nefnir
sembalstund í Skálholtskirkju. Öll-
um er heimill aðgangur.
Doktor Axel Torm er hér í boði
samtaka um kristna boðun meðal
gyðinga. Samtökin vom stofnuð
fyrir 10 ámm og minnast afmælis-
ins með samkomu og borðhaldi eft-
ir tónleikana.
- Bjöm
Nú bregðum við á betri leik
með fleiri og flölbreyttari möguleikum Lottó 5/38
Pú velur ems og áður 5 tölur,
en nú af 38 mögulegum.
Eðli leiksins er hið sama
og áður og vinningamir ganga
allir til þátttakenda.
ustala!
Það er nýjung sem segir sex. í
hverjum útdrætti verður dregin út
sjöttatalan, svokölluðbónustala. Þeir
sem hafa hana og að auki fjórar réttar
tölur fá sérstakan bónusvinning.
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111