Morgunblaðið - 01.10.1988, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1988
39
Minning:
Guðbjörg Daníela Jóns-
dóttirfrá Króktúni
Fædd 2. september 1905
Dáin 30. ágúst 1988
Útför Daníelu Jónsdóttur fór
fram frá Stórólfshvolskirkju þann
10. september sl. að viðstöddu §51-
menni. Það gaf til kynna að hún
átti marga góða vini, sem hún rækt-
aði vináttu við og sem mundu hana
eins og hún mundi þá. Unga fólkið
var þar áberandi margt, í þess hópi
átti Dalla, eins og hún var jafnan
nefnd, marga góða vini.
Daníela átti sitt heimili í Krók-
túni í Hvolhreppi, hjá heiðurshjón-
unum Halldóri bróður sínum og
konu hans Katrínu Jónínu Guðjóns-
dóttur frá Brekkum og bömum
þeirra sem vom fimm.
Dalla giftist aldrei og átti ekki
böm, en hún elskaði þess í stað
böm þeirra Halldórs og Jónínu eins
og væru þau hennar eigin böm og
eignaðist að launum ást þeirra og
umhyggju allt til enda.
Króktúnsheimilið var opið böm-
um víða að. Ef eitthvað bjátaði á
hjá náunganum þá var gott að leita
þangað, hvort sem heldur var til
að koma bami fyrir á heimilinu eða
leitað var hjálpar af öðmm ástæð-
um, ævinlega var svarið jákvætt
og það var ekki gert til að auðg-
ast, peningar vom ekki teknir með
bömum þar eins og nú tíðkast, það
þekktist ekki á þeim bæ. Nei það
var gert til þess að létta byrðar
annarra manna, skyldra og vanda-
lausra um lengri eða skemmri tíma
eftir ástæðum. Á þessu heimili
kynntust bömin henni Döllu, hlýju
hennar og umhyggju.
Halldór í Króktúni var einnig
fljótur að búa sig af stað ef hjálpar
var þörf á öðrum bæjum og enginn
var giaðari en hann að loknu góðu
verki. Þetta hljóta allir að muna sem
til þekktu.
Þetta var Króktúnsheimilið þekkt
fyrir og bónbetri manneskjur hefi
ég aldrei þekkt því greiði við náung-
ann var bara eitthvað sem var alveg
sjálfsagt og ekki umtalsvert. Slíkt
fólk safnar sjaldan auði, það gefur
auga leið, en allt virtist blessast í
þeirra höndum. Nú er ekkert sem
minnir á það Króktún sem áður var
eða það höfðingsfólk sem þar bjó,
allt hefur verið jafnað við jörðu.
Eftir stendur minningin ein í
hugum þakklátra vina og samferða-
manna, sem aldrei gengu þaðan
tónleiðir til búða.
Daniela átti heilsteypta skap-
höfii, hún var ekki eitt í dag og
annað á morgun. Hún var vinaföst
og tiygg og hafði ákveðnar skoðan-
ir á mönnum og málefnum án þess
að fara geyst, það var ekki hennar
háttur.
Árið 1954 Iést Jónína kona Hall-
dórs langt um aldur fram. Þá tók
Daníela við hennar störfum á heim-
ili bróður síns. Halldór lést árið
1965. Það varð því hlutskipti Daní-
elu að standa yfir moldum þeirra
beggja með fárra ára millibili svo
og dóttur þeirra hjóna, Elísabetar,
sem lést í blóma lífsins frá eigin-
manni og tveimur ungum sonum,
það var þung raun, en svona er lífið.
Og að endingu sá Daníela á bak
vinkonunni góðu, heiðurskonunni
Birting af-
mælis og
minningar-
greina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minnmgargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð f
Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins i Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Jórunni Magnúsdóttur, sem hún bjó
hjá um árabil í Bræðraborg á Hellu,
eða þar til leiðin lá á Dvalarheimil-
ið Lund. Þar leið henni vel, hún var
þakklát því ágæta fólki „sem allt
vill fyrir mig gera,“ sagði hún þeg-
ar fundum okkar bar síðast saman.
Daníela unni tónlist, sjálf hafði
hún góða söngrödd. Hún söng í
Stórólfshvolskirkju þegar ég kom
fyrst í Hvolhreppinn. Hún var far-
sæll félagi í kvenfélaginu Einingu,
Hvolhreppi, þaðan á ég minningar
um hana og allar góðar.
Og nú er hún Dalla komin heim
að kirkjunni sinni til að hvfla meðal
vina í ró og friði. Ég þakka henni
áratuga vináttu og tryggð og bið
Móðir okkar,
BJÖRG ÁRNADÓTTIR,
Seljalandl 7,
fyrrum húsfreyja Stóra-Hofl, Gnúpverjahreppi,
lést á dvalarheimilinu Ljósheimum, Selfossi, 29. september.
Bömin.
Guð að blessa minningu hennar og
ástvini alla.
Ragnheiður Ólafsdóttir
Móðir okkar,
FRÚ VALGERÐUR S. AUSTMAR,
Furugerði 1,
Reykjavflc,
lést á gjörgaesludeild Borgarspítalans fimmtudaginn 29. september.
Jarðarförin auglýst síðar.
Bömln.
Hér sérðu merkilegt
verðtilboð á dönsk
feOÖfe innréttingum og
AEG eldhústækjum:
Dönsku kvik eldhús- og baðinnréttingarnar eru
vandaðar úr völdum viði og í fjölmörgum stílteg-
undum og litum. Verðið er lægra en þú átt að
venjast og afgreiðslutíminn er aðeins 3 vikur frá
staðfestingu. Þú færð allt kvik sem þig vantar
fyrir minna fé en aðrir bjóða og 10% afslætti í
október. Þér bjóðast AEG tæki í eldhúsið á sömu
kjörum. Komdu í dag og sjáðu þetta með eigin
augum. Einn samningur, ein heildarlausn.
Margir litamöguleikar.
Góð greiðslukjör.
Stuttur afgreiðslutími.
AEG tæki með í samningnum
Ódýr lausn en vönduð.
OPIÐ HÚS í DAG 10-16
OG Á MORGUN
SUNNUDAG 13 - 16
5 HÓLSHRAUN
Fit
hf
SKUTAHRAUN 2. HAFNARFIRÐI, S: 651499