Morgunblaðið - 01.10.1988, Page 41

Morgunblaðið - 01.10.1988, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. OKTÖBER 1988 41 Þórdís Gissurar- dóttir — Minning Fædd 13. júní 1910 Dáin 26. september 1988 í dag verður jarðsett frá Gaul- verjabæjarkirkju Þórdís Gissurar- dóttir, fyrrum húsfreyja í Arabæ í Flóa. Þórdís fæddist í Gljúfurár- holti í Ölfusi 13. júní árið 1910. Hún var yngst af 17 bömum hjón- anna Margrétar Jónínu Hinriks- dóttur og Gissurar Guðmundssonar er þar bjuggu árin í kringum alda- mótin. Af systkinum Þórdísar er aðeins á lífi næstyngsta systirin Sigrún sem nú dvelur á Sólvangi í Hafnarfirði. Þegar foreldrar Þórdís- ar brugðu búi 1920 fluttu þau fyrst til Eyrarbakka en síðar til Hafnar- fjarðar. Þórdís gekk í skóla á þess- um stöðum og minntist hún oft skólans og dvalarinnar á Eyrar- bakka, sem þá var miðstöð menn- ingar á Suðurlandsundirlendi. Að skólagöngu lokinni tóku við ýmis störf. Hún var mikið í vist sem ung stúlka og fór stundum í kaupavinnu á sumrin, en lengst mun hún hafa unnið á Farsóttarsjúkrahúsinu. Árið 1940 verða þáttaskil í lífí hennar þegar hún ræðst sem ráðs- kona að Arabæ í Flóa til Stefáns Hannessonar sem þar bjó. Þau gengu í hjónaband 13. september 1941 og bjuggu síðan í Arabæ, en Stefán lést 5. október 19(74. Arabær er ekki iandmikil jörð og var illa hýst er þau hófu þar bú- skap, en með eljusemi og hagsýni byggðu þau upp jörðina og rælrtuðu tún. Þau hjón eignuðust 5 böm. Elst- ur var Gissur Grétar sem var stór- iega fatlaður frá fæðingu og lést tæplega 17 ára gamall. Hin bömin em í þessari röð: Ingunn, gift Sigur- jóni Jónssyni lyfsala, Vestmanna- eyjum, Sigmundur viðskiptafræð- ingur, kvæntur Hafdísi Sigurgeirs- dóttur sérkennara, Margrét Jónína húsfreyja í Gerðum, Gaulveijabæj- arhreppi, gift Geir Ágústssyni bónda, og Hannes kennari á Sel- fossi. Kona hans er Helga Jóhann- esdóttir, fatahönnuður. Eftir lát Stefáns bjó Þórdís ( Arabæ með Hannesi syni sínum. Hún naut sín vel í að stjóma búi og hafði ánægju af sveitastörfum og gekk í þau af lífí og sál þó að kraftar tækju að minnka. Vorið 1983 tóku þau mæðgin þá ákvörðun að hætta búskap og flytja til Reykjavíkur og þar eyddi Þórdís síðustu æviárum sínum. Fyrir 10 árum kynntist ég Þórdísi þegar ég kom inn í ijölskyldu henn- ar. Hún var þá enn húsmóðir í Arabæ. Þórdís var dugleg og ósér- hlífin kona sem bar ótakmarkaða umhyggju fyrir fjölskyldu sinni. Hún var glaðlynd, hrein og bein í framkomu og afar hlý ( minn garð. Eftir að hún flutti til Reykjavíkur varð samband okkar meira og nán- ara og mér mikils virði. Aðstæður hennar breyttust mikið við flutninginn til Reykjavíkur því Fallinn er félagi, fagur meiður, horfínn sjónum, horfinn úr leik. Það er okkur skákmönnum ætíð mikill sjónarsviptir, þegar einn úr hópnum hverfur yfir móðuna miklu, en það gerðist er Baldur Þórarinsson féll frá, langt fyrir aldur fram, þann 14. september síðastliðinn. Cassia, gyðja skáklistarinnar, hefur töfrað hug milljóna manna og einn þeirra var vinur okkar Bald- ur. Ungur að árum lærði hann að tefla, en faðir hans, Þórarinn Þor- leifsson, var mikill skákáhugamað- ur. Við minnumst Baldurs sem góðs félaga, sem alla tíð fómaði skákinni frístundum sínum, þrátt fyrir strangan vinnudag og oft vonbrigði nú þurfti þessi vinnuglaða kona að aðlaga sig því að hafa ekki ákveðin verk að ganga í eins og í Arabæ. Hún hafði nú meiri tíma fyrir sjálfa sig. Þórdís hafði áhuga á þjóðlegum fróðleik og hafði gaman af að ferð- ast. Hún fór með okkur nokkrar ferðir innanlands og hafði mikla ánægju af. Hún velti þá gjaman fyrir sér hvemig lífsbarátta fólks hefði verið á þeim landsvæðum sem við fómm um. Ég minnist ferðar sem við fómm í ágústmánuði síðast- liðnum norður í Skagafjörð, þar sem við dvöldum í eina viku. Þórdísi fannst hápunktur hvers ferðalags að komast í beijamó, beijatínslan hafði fyrir henni nyt- semdargildi sem gaf hveiju ferða- lagi aukinn tilgang. Þar nyrðra eyddum við yndislegum degi við beijatínslu og naut Þórdís þess eft- irminnilega. Síðastliðin tvö ár var ég í námi samhliða vinnu og þessi ár passaði hún son minn ungan á meðan ég var í skólanum. Auk þess sem þessi pössun var mér ómetanleg vegna námsins var hún ekki síður mikils virði fyrir son minn því milli hans og ömmu hans skapaðist náið sam- band. Þórdís sýndi honum einstaka umhyggju og þolinmæði. Hún hafði gaman af söng og kenndi honum mikið af vísum. í hvert skipti sem við sonur minn fórum niður í bæ vildi hann heimsækja ömmu í Ból- staðarhlíðinni. Það er mikill missir fyrir lítinn dreng þegar amma er ekki lengur til að fagna honum og gleðja hann, en það dýrmæta vega- nesti sem hún gaf honum verður ekki frá honum tekið. Ég vil að leiðarlokum þakka Þórdísi af alhug fyrir ógleymanlega vináttu, hlýhug og þá umhyggju sem hún bar fyrir fjölskyldu minni. Blessuð sé minning hennar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þcr nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Hafdís Alltaf bregður manni óþægilega þegar dauðann ber að garði, sama hvort hann kemur að vitja ungra eða aldinna, hraustra eða lasburða. Alltaf er jafn erfitt að skilja það að komið sé skarð í vinahópinn og aldrei eigi maður eftir að deila stund, gleði eða daglegu amstri með manneskju sem orðin er hluti af lífi manns. Þórdís Gissurardóttir fæddist í Gljúfurholti í Ölfusi 13. júní 1910, yngst í hópi 17 systkina. Æviágrip Þórdísar mun ég ekki rekja hér, að öðru leyti en því að árið 1941 gift- ist hún Stefáni Hannessyni bónda í Arabæ, Gaulveijabæjarhreppi, og áttu þau fímm böm. Árin hennar í Arabæ urðu fjörutíu og þijú, tími í harðri lífsbaráttu. Baldur var víðlesinn maður og afburðafróður á flestum sviðum, ekki hvað síst um skák og skákmenn. Hann hafði komið sér upp fágætu safni skák- bókmennta, sem hann sökkti sér niður í, hvenær sem færi gafst. Við félagar í Taflfélagi Blöndu- óss nutum þekkingar hans og fróð- leiks um áratuga skeið og nú er við kveðjum hann í hinsta sinn, vilj- um við færa honum alúðarþakkir fyrir trygga vináttu, vaska fram- göngu og baráttu fyrir vexti og viðgangi féiags okkar og skáklistar- innar. u- Hann er staðinn upp frá skák- borðinu í síðasta sinn og genginn á vit hins ókunna. er spannar meira en hálft æviskeið- ið, og því auðvelt að álykta að ræt- ur hennar liggi þar. í Arabæ bjuggu þau hjónin af hagsýni og dugnaði. Búið var aldrei stórt en þótti myndarlegt og vel rekið. Rúmlega sextug missti Þórdís mann sinn. Hún bjó áfram í Arabæ með Hannesi syni sínum til ársins 1983, en þá bmgðu þau búi og fluttu til Reykjavíkur. Þar átti hún síðan heimili til hinstu stundar. Margar hugsanir og minningar leita nú á huga minn um Þórdísi, sem ég kynntist fyrir aðeins fáum ámm, en þótti orðið vænt um sem tengdamóður mína. Hér veit ég hins vegar að er ekki við hæfi að vera með tilfinningasemi því öll væmni var henni fjarri skapi. Gilti þá einu hvort um var að ræða talað mál, ritað, tónlist eða önnur mannanna verk. Eitt af því skemmtilegasta og eftirminnilegasta sem ég upplifði með Þórdísi, var þegar hún sagði mér sögur frá ámnum áður en hún gifti sig; leikur systkinanna á Gljúf- urholti, lífíð í Hafnarfirði snemma á öldinni, stéttaskipting þess tíma, lífskjör verka- og þjónustufólks, hjúkmnarstörf á tímum berkla, eða „að þéna" eins og hún kallaði það. Þessi störf vora hennar skóli, enda var hún mikil búkona fram á það síðasta. Þó kynni okkar yrðu stutt náði Þórdís að sýna mér inn í heim sem var mér borgarbaminu framandi. Það gerði hún með frásögnum af liðinni tíð, en ekki síður með lífsskoðunum sínum og daglegu lífi. Þó hún byggi orðið í Reykjavík var hugurinn í sveitinni. Þá naut hún þess að fylgjast úr fjarlægð með búskapnum í Gerðum hjá Margréti dóttur sinni. Eins og flestir íslendingar á hennar aldri var Þórdís mótuð af kröppum lífskjömm. Dyggðir þess- arar kynslóðar, nýtni, vinnugleði og hófsemi, em nú metnar til fárra fiska. Meðan nútíminn pakkar fá-. nýtinu í skrautlegar umbúðir heldur þetta fólk sönsum og spyr hvert sé innihaldið í öllu þessu. Ólíkt verð- mætamat okkar Þórdísar birtist ekki síst 'i því sem kalla mætti smáatriði. Ég man t.d. að eitt vetr- arkvöldið er ég leit inn til hennar sat hún við eldhúsborðið með lítið Við sendum eiginkonu hans, Guðrúnu Erlendsdóttur, bömum þeirra sex og öðmm ástvinum inni- Iegar samúðarkveðjur. Taflfélag Blönduóss Minning: Baldur Þórarinsson útvarpstæki fyrir framan _ sig og hlustaði á sígilda tónlist. Útvarpið var henni ekki afþreying eða síbylja heldur tæki til fróðleiks og yndis- auka. Tónlist hlýddi hún á til að njóta hennar og auðga andann. Þá skiptu umbúðimar engu máli. Þeg- ar ég festi þessi orð á blað minnist ég líka annars í fari Þórdisar sem mér þótti skiýtið í fyrstu, en það var áhugi hennar á fólki, ættum þess og fjölskyldum. Hafi ég ein- hvem tíma haldið að engir læsu minningargreinar nema nánir að- standendur, þá afsannaði hún þá kenningu fyrir mér. Seinna skildi ég að þessi séríslenski áhugi á eftir- mælum stafar ekki bara af forvitni heldur er þetta ein leið til að sýna látnum virðingu og votta hinum hluttekningu sem eftir lifa. Það sem mér þóttu vera helstu persónuein- kenni Þórdísar vom fastmótaðar skoðanir á mönnum og málefnum, hreinskilnin sem þó duldi ekki gott hjartalag, og síðast en ekki síst ein- stök hjálpsemin, er skein í gegn í öllum hennar gerðum. Þá dettur mér í hug hversu mjög hún naut að fylgjast með allri haustuppskem grænmetis og beija, með það í huga að allir fengju eitthvað í sinn hlut. Áhuga og hrifriingu á íslenskri náttúmfegurð sýndi hún ætíð, og er þá skemmst að minnast gleði hennar og þakklætis fyrir ferð um . Norðurland nú í sumar með Hafdísi og Sigmundi, tengdadóttur sinni og syni. Bömin vom henni mikils virði, fylgdist hún ætíð vel með ástvinum og ættingjum, og á það ekki síst við um bamabömin, sem orðin em ellefu. Um leið og ég þakka Þórdísi allt það sem hún var mér og skildi eft- ir sig hjá mér, vona ég að hún fái góða heimkomu til Stefáns og Giss- urar. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama, en orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. Helga Jóhannesdóttir Elías Bjarni ís- Ijörð — Minning Fæddur 30. ágúst 1927 Dáinn 12. september 1988 Við heilsuðumst að vanda á vinnustað okkar þennan morgun. Hann virtist hress og kátur að vanda, þó að ég vissi, að hann gengi ekki heill til skógar. Elías var ný- kominn úr endurhæfingu eftir': vandasaman uppskurð, en síðla dags var hann allur. Það vannst ekki tími til að kveðjast. Það hefð- um við báðir svo sannarlega viljað, því að við áttum mörg sameiginleg áhugamál og hann var sannur vinur vina sinna. Gömlu baráttufélögun- um fækkar nú óðum. Það er tímans kail, sem enginn mannlegur máttur fær stöðvað. Elías Bjami ísljörð fæddist 30. ágúst 1927 á ísafírði. Hingað til SigluQarðar fluttist hann með móð- ur sinni, Jónu Sigríði Jónsdóttur, 19 ára að aldri. Hér stundaði hann margs konar vinnu, var samt aðal- lega til sjós sem háseti og síðar matsveinn á ýmsum bátum og tog- umm. Hann þótti góður matsveinn og var eftirsóttur til þeirra starfa enda mikið snyrtimenni. Árið 1951, þann 8. júlí, gekk Elías að eiga eftirlifandi konu sína, Aðalheiði Þorsteinsdóttur, dugnað- arkonu, dóttur sæmdarhjónanna Jónu Aðalbjömsdóttur og Þorsteins Gottskálkssonar. Þau Aðalheiður og Elías eignuðust níu böm, en áður átti Aðalheiður Áma Þorkels- son og Jónu Þorkelsdóttur. Maður hennar er Halldór Sigurðsson. Böm Aðalheiðar og Elíasar em nú öll uppkomin, en þau em: Krist- ján, kona hans er Lilja Eiðsdóttir, Þorsteinn, Rafti og Gísli búa í heimahúsum, Dagmar; en maður hennar er Magnús Ásmundsson, Heiðar, sem kvæntur er Önnu Júl- íusdóttur, Sólrún gift Ómari Geirs- syni, Sigurbjörg, maður hennar er Friðfinnur Hauksson og Sverrir Eyland, en kona hans er Sigurrós Sveinsdóttir. Bamabömin em orðin tólf. Elías mátti vera og var stoitur af þessu fólki sínu öllu. I nóvember 1976 hóf Elías störf hjá Sfldarverksmiðjum ríkisins hér á Siglufirði. Fyrst vann hann við löndun, en síðar á lager verksmiðj- anna. Þar reyndist hann ábyggileg- ur og traustur maður, sem ekki mátti vamm sitt vita í neinu. Elías var virtur og vel liðinn af starfsfélögum sínum enda glaðvær og skemmtilegur í allri umgengni. Hann tók virkan þátt í starfí verka- lýðshreyfingarinnar hér, fyrst sem sjómaður og síðar verkamaður hjá SR. Hann átti í mörg ár sæti f Trún- aðarmannaráði Verkalýðsfélagsins Vöku og var trúnaðarmaður verka- manna á vinnustað um skeið. Lengi var hann í samninganefnd verka- manna hjá SR. Hann reyndist alls staðar tillögugóður, yfirvegaður og sanngjam, en hélt vel á málstað umbjóðenda sinna. Þannig kom hann mörgum málum f höfn ásamt félögum sínum. Hann þoldi heldur ekki óréttlæti og hafði samúð með þeim, sem minna máttu sín. Þannig var hann óvenjulega heilsteyptur verkalýðssinni. Baráttan skapaði honum ekki óviid yfirmanna hans, sem kunnu vel að meta hreinskilni hans og drenglyndi. Hjá SR á Siglufirði hefur gegnum árin unnið samhentur hópur verka- manna, sem hafa staðið vel saman um málstað sinn. Elías ísijörð var einn þeirra sem mótuðu þennan hóp síðari árin, enda hefur þessi vinnu- staður verið í mörgu til fyrirmyndar og átt stóran þátt í því að gera SR að góðu fyrirtæki, sem gott hefur verið að vinna hjá. Hans er nú sárt saknað úr hópnum, sem þakkar honum samstarfíð og samfylgdina. Aðalheiði, bömum þeirra og fjöl- skyldum svo og öðmm ástvinum hans flyt ég mínar dýpstu samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Elíasar Bjama ísfjörð. Jóhann G. Möller, Siglufirði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.