Morgunblaðið - 20.10.1988, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988
Neikvæð
áhrif, ef
einhver eru
„ÞAÐ ER mjög erfitt að meta
hvort aðgerðir hvalaverndunar-
manna hafa haft einhver áhrif á
rekstur okkar, ef þau eru ein-
hver þá eru þau neikvæð," sagði
Pétur Eiriksson framkvæmda-
stjóri markaðssviðs hjá Flugleið-
um í gær. Morgunblaðið leitaði
álits forsvarsmanna nokkurra
stórra fyrirtækja, sem eiga við-
skipti við útlönd, á því hvort að-
gerðir hvalaverndunarmanna
hafi haft einhver áhrif á rekstur
fyrirtækjanna.
Pétur sagði Flugleiðir hafa orðið
fyrir ákveðnu ónæði af hvalavemd-
unarmönnum, einkum í sumar, þeg-
ar þeir efndu til mótmælaaðgerða
við flugvöllinn í Luxemborg. „Hins
vegar höfum við ekki orðið fyrir
beinu aðkasti. Við vitum þó að í
Þýskalandi og Luxembourg hafa
gengið undirskriftalistar þar sem
fólk er hvatt til að ferðast ekki með
Flugleiðum. Við vitum ekki hvort
það hefur haft áhrif á reksturinn,
en höfum það þó á tilfinningunni.
Astæðan er sú, að margir farþegar
okkar eru ungt háskólafólk sem er
mjög meðvitað um umhverfismál,"
ði Pétur Eiríksson.
Jmar Jóhannsson forstjóri
Skipadeildar Sambansins sagðist
ekki vita um annað tilvik, en þegar
grænfriðungar hlekkjuðu sig fasta
við lestunarkrana Jökulfellsins í
Bandaríkjunum fyrir nokkrum vik-
um. Að öðru leyti taldi hann Skipa-
deildina ekki hafa orðið fyrir neinu
ónæði vegna hvalavemdunar-
manna.
Hjá Amarflugi og Emskip hafði
ekki orðið vart neinna aðgerða og
því einskis ónæðis af hálfu hvala-
friðunarsinna.
„Skýrsla A&P
er aðeins
vinnuplagg“
ÞORLEIFUR Jónsson fram-
kvæmdastjóri Landssambands
iðnaðarmanna segir að bráða-
birgðaskýrsla breska ráðgjafa-
fyrirtækisins A&P Appledore um
íslenska skipasmíðaiðnaðinn sé
aðeins vinnuplagg. Eftir eigi að
gera lokaskýrslu og áður en hún
verði tilbúin eigi fúlltrúar A&P
Appledore eftir að koma hingað
til nánari viðræðna.
„Það er ljóst að ýmislegt í bráða-
birgðaskýrslunni á eftir að breyt-
ast. Annað stendur áfram, svo sem
sú staðreynd að við erum ekki sam-
keppnisfærir á þessum vettvangi
við þennan iðnað í þeim löndum sem
niðurgreiða hann,“ segir Þorleifur.
Hann segir að málið allt sé enn á
umræðustigi og því of snemmt að
ræða um efnisatriði þess.
Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða og Borge Boeskov Evrópusölustjóri Boeing við líkan af vél eins og Flugleiðir kaupa.
Flugleiðir semja um kaup á
tveimur Boeing 757-200 þotum
SIGURÐUR Helgason forstjóri
Flugleiða og Borge Boeskov fiill-
trúi Boeing-verksmiðjanna und-
irrituðu í gær samning um kaup
Flugleiða á tveimur Boeing
757-200 farþegaþotum. Kaup-
verð þeirra er 4,7 milljarðar
íslenskra króna. Ráðgert er að
afhenda þoturnar í febrúar og
mars árið 1990. „Ég er sannfærð-
ur um að við höfúm valið réttu
vélarnar og að þessi framsýni sé
heillaspor fyrir Flugleiðir,"
sagði Sigurður Helgason for-
stjóri í samtali við Morgunblaðið.
„Það var rétt ákvörðun i vor að
panta framleiðslunúmer á þessar
þotur þvi skömmu síðar komu
stórar pantanir sem lengdu af-
greiðslufrestinn um þijú ár og
sú bið hefði orðið félaginu dýr,“
sagði Sigurður ennfremur.
Stjórn félagsins tók ákvörðun um
kaupin á fúndi 4. október sl. en
þá hafði staðið yfir könnun á
vélum i um tvö ár sem Leifúr
Magnússon, einn framkvæmda-
stjóra félagsins, hefúr stjórnað.
Nýjar aðstæður á markaði, kröf-
ur um minni hávaða frá flugvélum
Morgunblaðið/Bjami
Skák-
meistarar
í afslöppun
ÞÁTTTAKENDUR á Heimsbikarmót-
inu í skák áttu firi frá skákborðinu í
gær, nema hvað þeir Beljavskíj og
Kasparov áttu ólokinni biðskák. Þeir
sömdu um jafntefli án þess að tefla
skákina frekar.
Nokkrir skákmannanna notuðu tæki-
færið í gær og fóru í veiðiferð í
Hvammsvík þar sem þeir renndu fyrir
silung. Þá hélt borgarstjórinn í Reykjavík
þátttakendum á mótinu boð f Höfða
síðdegis í gær, en þar voru jafnframt
viðstaddir margir af forystumönnum
íslenskrar skákhreyfingar.
í dag verður 14. umferðin á skákmót-
inu tefld, og m.a. tefla þá saman Ehlvest
og Jóhann, Kortsnoj og Spasskíj, Tim-
man og Kasparov og Beljavskíj og Tal.
Jaan Ehlvest var meðal þeirra sem
brugðu sér i veiði i Hvammsvík i gær
og er ekki annað að sjá en hann sé
bærilega ánægður með árangurinn.
Stjómarliðar deila um stöð-
ur í utanríkismálanefnd
HJÖRLEIFUR Guttormsson, fúlltrúi Alþýðubandalagsins í utanríkis-
málanefnd Alþingis, segist ganga með óbundnar hendur til formanns-
kjörs f nefndinni. Alþýðubandalagið hafi tilkynnt hinum stjórnar-
flokkunum þetta áður en gert var samkomulag um skiptingu í nefiid-
ir, þegar ihlutun stj órnarandstöðunnar í þá átt að útiloka flokkinn
úr trúnaðarstöðum í nefndinni hafi komið í Ijós. Jóhann Einvarðsson
annar fúlltrúa Framsóknarflokks í nefndinni, og Eiður Guðnason,
formaður þingflokks Alþýðuflokks, segja það af og frá að gert hafi
verið samkomulag við stjórnarandstöðu um þetta mál.
Kjósa átti formann nefndarinnar
í gær, en Jóhann Einvarðsson frest-
aði fúndi nefndarinnar í gær vegna
tímaskorts og af öðrum ástæðum
sem hann vildi ekki tilgreina, að
því er hann sagði í samtali við
Morgunblaðið- Hann sagði
að væntanlega yrði haldinn fúndur
og formannskosning innan nokk-
urra daga.
Hjörleifur Guttormsson sagði að
Alþýðubandalagið hefði sóst eftir
varaformennsku í utanríkismála-
nefnd en Alþýðuflokkur og Fram-
sóknarflokkur hefðu hafnað því án
nokkurrar formlegrar skýringar.
Hann sagði aðspurður að það væri
fullyrt af mörgum að framkvæmda-
stjóri Sjálfstæðisflokksins hafí
komið við sögu þegar boð hefðu
gengið á milli Sjálfstæðisflokks og
einhverra stjómarliða um þetta
mál. Þá teldi hann að Páll Péturs-
son hefði verið skotspónn í þessu
máli vegna skoðana sinna, engu
og rekstrarkostnaður eldri vélanna
ráða mestu um þotukaupin nú. Við
hönnun B757 hafa Boeing-verk-
smiðjumar tekið upp ýmsar tækni-
nýjungar og lagt hefur verið kapp
á spameytni þeirra. Þannig eyða
þær allt að 43% minna eldsneyti á
hvert sæti en DC-8 þotumar sem
þær leysa af hólmi og með nýjum
vélum verður viðhaldskostnaður í
lágmarki miðað við það sem nú er
enda meðalaldur millilandaflugflota
Flugleiða kringum 20 ár.
í fyrra var gengið frá samningum
um kaup Flugleiða á tveimur
B737-400 þotum til Evrópuflugsins
sem verða afhentar næsta vor. Alls
er þessi flárfesting félagsins yfir 8
milljarðar króna. Þegar hafa verið
greidd 10% af kaupverði B737-400
vélanna úr eigin sjóðum Flugleiða
og söluhagnaðar DC-8-63 vélanna
sem seldar vom fyrir nokkrum vik-
um rennur upp í kaup á nýju þotun-
um. Sigurður Helgason segir að
framundan sé að ganga frá samn-
ingum við erlendar lánastofnanir
um flármögnun kaupanna en næsta
greiðsla fellur við afhendingu.
Tryggingar fyrir lánum sem tekin
verða fyrir kaupunum eru bundnar
við veð í þotunum sjálfum. Ekki
verður leitað ríkisábyrgðar en að
flármögnuninni er þó unnið í sam-
ráði við íslensk sljómvöld.
Viðstaddir undirritun samning-
anna voru Borge Bœskov, sölu-
stjóri Boeing fyrir Evrópu, og
Patrick Ellis, sölustjóri Rolls Royce,
framleiðanda hreyflanna. Boeskov
sem er fæddur á íslandi kvað það
sérstaklega ánægjulegt að eiga nú
þessi viðskipti við Flugleiðir, hann
hefði verið viðstaddur þegar fyrsta
þotan var keypt til íslands frá Bo-
eing árið 1967. Patrick Ellis sagðist
einnig hafa átt samstarf við íslend-
inga lengi því það væru yfir 30 ár
síðan RR-hreyflar voru settir í Vis-
count vél Flugfélags íslands.
síður en Alþýðubandalagið, en Páll
tapaði fyrir Jóhanni Einvarðssyni í
kosningu um sæti og væntanlega
formennsku í neftidinni. „Ég tel
þetta náttúrulega afskaplega óeðli-
leg vinnubrögð. Ég held að aðilar
að ríkisstjóminni þurfi að átta sig
á því að menn þurfi að standa að
málum með heilindum."
Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins,
sagði að það væri hugarburður að
hann hefði haft nokkur afskipti af
þessu máli.
Fjölburafæð-
ingumfeekkar
Fjölburafeeðingar hafa ver-
ið nokkuð til umræðu að und-
anfórau. Nýfæddir era
þríburar og fjórburafæðingar
er að vænta I byijun nóvem-
ber. AIls hafá 23 sinnum feeðst
þríburar á landinu og einir
fjórburar frá árinu 1951. Þó
eru fjölburafæðingar nú um
helmingi sjaldgæfari en um
siðustu aldamót.
Á tímabilinu frá 1951—87
urðu þríburafæðingar flestar
árið 1985, en þá fæddust þrenn-
ir þríburar.