Morgunblaðið - 20.10.1988, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988
Virðingarleysi fyrir
lýðræðinu
Virðingarleysi fyrir lýðræðisleg-
um vinnubrögðum endurspeglast
ekki aðeins í störfum ríkisstjórna
og Alþingis heldur einnig í fjöl-
mörgum stofnunum hins opinbera.
Stjómmálamenn í valdastöðum
hafa óhikað sett sína menn í ýmsar
stöður til að tryggja hagsmuni og
völd, þótt slík skipan mála fari ekki
ætíð eftir settum lýðræðislegum
reglum. Slíkt er oft réttlætt útfrá
fyrri starfsháttum eða útfrá rang-
hugmyndum um lýðræðislega
starfshætti. Það segir sig sjálft að
einstaklingar sem settir eru í stöðu
á pólitískum forsendum en ekki
faglegum hljóta oft á tíðum að lenda
í trúnaðarárekstrum. Það ætti að
vera keppikefli sannra lýðræðis-
sinna að móta starfshætti (lög og
reghir) á þá vegu að allir séu í
jafnri aðstöðu gagnvart hinu opin-
bera, og að ekki skapist aðstaða til
að misnota vald. Og í þeim tilfellum
sem almennar reglur duga ekki
ætti faglegt mat og ábyrgð að vera
leiðarljós.
Ég held að það verði að viður-
kennast þegar litið er til þeirra
vinnubragða sem tíðkast hafa í t.d.
banka- og sjóðakerfí hérlendis á
undanfömum áratugum að við eig-
um ekki beint samleið með þróuðum
iýðræðisríkjum hvað þau vinnu-
brögð snertir. Afleiðingamar hafa
verið mistök á mistök ofan. Faglegt
mat hefur iðulega verið látið víkja
fyrir pólitísku mati. Ofíjárfesting
og sóun er á flestum sviðum og
enginn ber ábyrgðina. Undirrótin
er að stóram hluta virðingarleysi
eða vantrú á lýðræðislegum starfs-
háttum.
Afleiðingar ólýðræðislegra
starfshátta
Ólýðræðislegir starfshættir
slæva mjög lýðræðisvitund þegn-
anna, þar sem hún er að hluta til
áunnin og mótast af því umhverfi
sem þeir búa við3. Hér er því afar
mikilvægt að gæta að. En á móti
vegur, sem betur fer, að umhverfi
þegnanna nær út fyrir landstein-
ana. Fjöldanum öllum gefst kostur
á að kynnast lýðræðislegum stárfs-
háttum annarra vestrænna þjóða
og að þroska með sér sterka lýðræð-
isvitund.
Þá bendir margt til þess að hinir
ólýðræðislegu starfshættir komi í
veg fyrir að hægt sé að stjóma
þjóðfélaginu á farsælan hátt.
Stjómkerfíð er einfaidlega ekki það
heildstætt og samstillt við slíkar
aðstæður, að það megni að leysa
mörg af þeim vandamálum sem upp
geta komið. Þá era sterkar líkur á
að slíkir starfshættir laði fram (eða
móti) þingmenn sem hafa meiri
áhuga á valdapoti og sérhagsmuna-
vafstri en faglegum þingræðisleg-
um vinnubrögðum fyrir hinn al-
menna þegn. Og að lokum era líkur
á að þessir starfshættir dragi úr
bæði kröfum manna til sín sjálfra
og annarra, og úr ábyrgð almennt
í þjóðfélaginu. Lífsgæði samfélags-
ins, bæði efnisleg og félagsleg, era
með öðram orðum dregin niður.
Lokaorð
Mikilvægt er á þessari stundu
að menn staldri við og líti yfír far-
inn veg, og meti hvemig til hafi
tekist við mótun þessa samfélags.
Var það þannig sem við vildum
hafa það og svo framvegis? Við
vitum að breytingamar hafa verið
hraðar og miklar á stuttum tíma,
og að margt hefur þróast á annan
veg en ætlað var. Því er slík endur-
skoðun bæði eðlileg og mikilvæg
fyrir framrás þessa unga lýðveldis.
Það þarf að sjálfsögðu að rétta
stefnuna af við og við. Það er enn
nauðsynlegra þar sem mál hafa
æxlast þannig að stjómmálamenn
hafa verið meira og minna upptekn-
ir við stjómsýslustörf og skamm-
tímalausnir eins og áður greinir,
en gefíð sér minni tíma fyrir
langtíma stefnumótun.
En era líkur á að slík endurskoð-
un eigi sér stað? Ólíklegt er að hún
verði að framkvæði þeirra stjóm-
málamanna sem era samdauna hin-
um ólýðræðislegu starfsháttum, eða
hafa jaftivel átt sinn þátt í að koma
þeim á. En samt verður að gera ráð
fyrir að meðal þingmanna leynist
sannir hugsjóna- og lýðræðissinnar
sem vilja vinna að almennum hags-
munum í stað sérhagsmuna, og vilja
fagleg og lýðræðisleg vinnubrögð.
Þetta er ekkert einfalt verk nema
síður sé. Menn era í pólitík á mis-
munandi forsendum. Þá era freist-
ingamar margar og gimilegar, svo
að hugsjónir geta fokið út í veður
og vind áður en menn vita af. Því
þarf líklega fleira að koma til.
í fyrsta lagi þarf hinn almenni
þegn að vekja með sér löngun til
að hafa meiri áhrif á það umhverfi
sem hann lifir í, þ.e.a.s. að efla með
sér stjómmálalega vitund. Ekkert
er fyrirfram gefíð, og ekkert fellur
niður af himnum fullmótað. Þetta
er samfélag okkar, og hver og einn
hefur jafnan rétt til að hafa áhrif
á mótun þess.
í öðra lagi væri mjög ánægjulegt
og uppörvandi að sjá mun virkari
þátttöku Háskólans í þjóðfélags-
legri umræðu. Ekki bara varðandi
efnahagslega umræðu, heldur einn-
ig varðandi heimspekilega, sið-
fræðilega og lögfræðilega, sem iðu-
lega gefast tilefni til. Slík þátttaka
myndi lyfta umræðunni veralega
og gefa stjómmálamönnum gott
aðhald, og framþróuninni betri skil-
yrði.
Að lokum tel ég að hlutverk
blaðamanna eigi eftir að skipta
sköpum fyrir slíka endurskoðun eða
vakningu. Þeir hafa að visu verið
uppteknir við æsifregnir og að ná
til fólks, sem ef til vill er eðlilegt í
upphafí fijálsari fjölmiðlunar. En
líklegt er þegar fram í sækir að
þeir muni tileinka sér vandaðri
vinnubrögð og heilbrigðari viðhorf,
s.s. hvað varðar lýðræðisleg vinnu-
brögð; með þeim afleiðingum að það
verði þeim eðlilegt að bregðast hart
við ólýðræðislegum starfsháttum
og hverskyns lýðskrami. Þeir munu
því verða í ríkara mæli hið vakandi
auga, með tilheyrandi aðhaldi og
áeggjan um ný vinnubrögð.
1 Fiskveiðistefiuu Móta þarf heildstæða
fiskveiðistefnu, þar sem skýrt koma fram
markmið hennar og skilyrtar afleiðingar.
Taka þarf afstöðu til þátta eins og ákvörð-
unar aflamagns, veiðileyfa, þróunar at-
vinnugreinarinnar s.s. varðandi sjó- og land-
frystingu, o.s.frv. Landbúnaðarstefiuu
Þessi málaflokkur hefur valdið miklum deil-
um undanfarandi áratugi, og þarf þvl að
fara fram ýtarleg vandamálagreining,' mót-
un á langtíma stefhu og athugun á skilyrt-
um afleiðingum hennar. Og að lokum að
taka afstöðu til leiða til úrlausnar. Ferða-
málastefiia: Ferðaiðnaður er vaxtarbrodd-
ur i fslensku atvinnulifi, sem krefst ýtarlegr,
ar umfjöllunar og mótunar í langtíma
stefnumiðum. Atvinnuvegastefiia: Þegar
mótaðar eru stefnur i hinum ýmsu atvinnu-
vegum þarf að sjálfsögðu að taka mið af
heildstæðri atvinnuvegasteftiu, sem horfir
langt fram á veginn. Stefiiá f Íífeyrismál-
um: Sú staðreynd að aldurssamsetning
samfélagsins breytist mikið á næsta aldar-
flórðungi kallar á ýtarlega vandamálagrein-
ingu. Sem dæmi má nefna að nú eru aðeins
10% af þjóðinni 65 ára og eldri, árið 2010
verða þeir hins vegar 1796. Hér er mikið
verk óunnið, sem snertir ýmsa málaflokka.
Byggðastefiia: Byggðastefna tengist at-
vinnuvegastefnu óijúfanlegum böndum.
Hér þarf að móta farsæla langtíma stefnu,
sem tekur bæði mið af skilyrðum hagvsixtar
og félagslegum þörfum. Stefiia i peninga-
málum: Hér er á ferðinni málaflokkur sem
krefst ýtarlegrár umQöilunar og vanda-
málagreiningar, og i framhaldi af því mót-
unar á stefnu og leiðum til úrlausnar.
2 Hefðbundin timamörk i starfsemi Al-
þingis geta ekki verið aðalatriðin, þannig
að málefnalegar umræður og gæði úrlausna
liði fyrir þau.
3 Áhugavert væri að skoða þessa vitund
sögulega, og þá hvort hún sé sterkari nú
en áður. Og þá einnig hvort forsendur
ýmissa hefða hafi ekki breyst samfara
henni.
Höfíindur er þjódhaglræðingur.
Málverkasýn-
ing á Akranesi
ERLA Sigurðardóttir opnar sýn-
ingu á verkum sínum i sýningar-
sal Bæjar- og héraðsbókasafhs-
ins á Akranesi laugardaginn 22.
október kl. 14.
Erla er Kópavogsbúi, en fædd
1939 á Akranesi. Hún lauk námi frá
Myndlista- og handíðaskóla íslands
sl. vor.
Þetta er önnur einkasýning Erlu,
sú fyrri var á ísafirði ( júní sl. en
að auki hefur hún sýnt myndir á
Ferstiklu, svo og hefur hún tekið
þátt í tveimur samsýningum í
Hamragörðum í Reylqavík.
Sýning þessi, sem samanstendur
aðallega af vatnslitamyndum, er opin
virka daga kl. 16—20 og um helgar
kl. 14—21. Henni lýkur6. nóvember.
Pera dagsins í dag
DULUX EL
80% orkusparnaður dæmi:
\ ?w n 11 w I 15 W 1 20W y = 40 W ( ) = 60 W \ / 1 =. 75 W \ / J = 100 W YV
OSRAM
ÚRVAL - GÆÐI - ÞJÓIMUSTA
EGILL ARNASON HF., PARKETVAL
ÁRMÚLA 8 - REYKJAVÍK - SÍM> 91 82111.