Morgunblaðið - 20.10.1988, Page 19

Morgunblaðið - 20.10.1988, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988 19 Listasafn Sigurjóns Ólafssonar í Laugamesi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Listasafii Siguijóns Olafssonar vígt USTASAFN Siguijóns Ólafssonar verður vígt og formlega opnað föstudaginn 21. október, en þann dag hefði Sigurjón Ólafsson orðið áttræður. Listasafnið var stofnað af Birgittu Spur, ekkju Siguijóns, þann 1. desember 1984. Tilgangur þess er að tryggja að hið mikla safii listaverka, sem Siguijón lét eftir sig, verði varðveitt og aðgengilegt almenningi á þeim stað sem þau voru sköpuð, í húsi hans i Laugamesi. Vinnustofa Siguijóns hefur nú verið endurbyggð frá grunni og miklar endurbætur hafa Verið gerðar á byggingunum. Meðal annars hefur verið byggt 220 fer- metra viðbótarhúsnæði, og einn sýningarsalur hefur verið hannað- ur þannig að hann henti bæði fyrir sýningar og tónleikahald. Heildarrými safiisins er nú 445 fermetrar auk íbúðar safnvarðar, sem er 100 fermetrar. Fjár til endurbyggingarinnar hefur verið aflað með framlögum frá einstakl- ingum og fyrirtækjum auk styrkja frá ríki, Reykjavíkurborg og Þjóð- hátíðarsjóði. Þá barst safninu höfðingleg gjöf um síðustu áramót frá ónafngreindum velunnara safnsins erlendis, og skipti hún sköpum um framhald á bygginga- framkvæmdunum. Allar höfund- argreiðslur sem inn hafa komið vegna sölu á afsteypum af nokkr- um verkum Siguijóns eru beint framlag eigenda höfundarréttar- ins. Heiidarkostnaður við bygg- ingu listasafnsins er áætlaður 23 milljónir króna. í tilefni vígslunnar verður margvísleg dagskrá á vegum safnsins. Sunnudaginn 23. októ- ber kl. 15 verður ljóðalestur og tónlist. Ljóðskáldin Einar Bragi, Vilborg Dagbjartsdóttir, Susanne Jom og ísak Harðarson lesa eigin ljóð, Freyr Siguijónsson leikur á flautu, Margarita Reizabal leikur á pianó og Olafur Spur Siguijóns- son leikur á selló. Sama dag kl. 20.30 verða tónleikar, þar sem Maijorie Melnick mezzosópran, Hlíf Siguijónsdóttir fiðlu- og víóluleikari, David Tutt pfanóleik- ari, Freyr Siguijónsson flautuleik- ari og Margarita Reizabal pfanó- leikarí flytja verk eftir Bach, Schumann, Brahms og Kuhlau. Miðvikudaginn 26. október kl. 20.30 verða tónleikar þar sem Hlíf Siguijónsdóttir, Christian Gi- ger og David Tutt flytja „Dumky“ tríóið eftir Dovrak og tríó opus 8 í Hdúr eftir J. Brahms. Föstudag- inn 28. október kl 20.30 heldur Walter Prossnitz pfanótónleika með fjölbreytta efnisskrá. Listasafn Siguijóns Ólafssonar verður fyrst um sinn opið laugar- daga og sunnudaga kl. 14-17, en tekið verður á móti hópum eftir samkomulagi. Stjóm Listasafn Siguijóns Ól- afssonar skipa Birgitta Spur, Biynja Benediktsdóttir, Ögmund- ur Skarphéðinsson og Ingi R. Helgason, en stjóm Styrktarsjóðs Listasafns Siguijóns Ólafssonar skipa Birgitta Spur, Matthías Jo- hannessen og Baldvin Tryggva- son. í byggingamefnd safnsins eru: Birgitta Spur, Ögmundur Skarphéðinsson arkitekt, Gissur Sfmonarson trésmíðameistari og verkfræðingamir Jóhannes Guð- mundsson og Sigurður Ejólfsson frá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen. Nánar verður fjallað um Lista- safn Siguijóns ólafssonar í Les- bók Morgunblaðsins næstkom- andi laugardag. BAU sófasettið erfallegt, þægilegtog ódýrt, Það er klætt hinugeysisterka BAU fæstímörgumlitum og 4 útgáfum: 3+2+1,3+1+1 6 sæta hornsófa og 5 sæta homsófa. Útb: 18.000kr.,- Afb: 6.000kr.,- á mán. REYKJAVÍK TEG.BALI 3+2+1 kr. 91.400 3+1+1 kr. 82.370,-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.