Morgunblaðið - 20.10.1988, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988
‘J'ijiii fitmui
WERJHER
tjcmdáig,
Laugavegi 59, 2. h., sími: 1 52 50
Hávaxtasteftian kvödd
eftirMagna
Guðmundsson
Ég ætia að leyfa mér að segja
fáein orð í tilefni þess, að horfið
hefir verið af braut hávaxta, sem
fylgt hefír verið sl. 7 ár. Að vísu
hefír aðeins stutt skref verið stigið
ennþá, meiri hraða hins vegar lofað
innan tíðar. Með greininni lýkur
minni umræðu um þessi efni.
Ekki var seinna vænna að taka
ákvörðun í þessa átt, þegar obbinn
af fyrirtækjum landsins og fjöldi
heimila er kominn á heljarþröm.
Bókstaflega öll fyrirheit, sem gefín
voru með hávöxtum, hafa brugðizt.
Verðbólga hefír haldizt óskert.
Heildarspamaður hefir ekki aukizt.
Hagtölur, sem það sanna, voru
skráðar í greinaflokki mínum í
Morgunblaðinu snemma árs. Er-
lendar lántökur hafa ekki minnkað,
og erlendar skuldir eru nú í há-
marki. Röng fjárfesting hefir sjald-
an eða aldrei verið meiri en síðustu
ár.
Ef til vill væri ekki úr vegi að
riíja upp í örstuttu máli, hvers
vegna útkoman varð þessi. Megin-
ástæðan er sú, að vextir við ríkjandi
aðstæður eru óvirkir á íslandi.
Þeir hafa engin áhrif í þá átt að
draga úr eftirspum lánsfjár. Til
þess að þeir verði virkir og hafí
slík áhrif, þarf alhliða stjóm eftir-
spumar að koma til. Hún felur
Gæöamerki sem veiði-
menn eru öruggir með.
Fyrirliggjandi í ýmsum
stærðum.
Kaupfélögin um land allt
og sportvöruverslanir í
Reykjavík
5IMDN5EN
farsímar við allar aðstæður
léttur;
vatnsþéttur,
vinnuþjarkur.
Viðurkenndur fyrir gœði og
einstakt notagiidi.
Verð aðeins frá kr: 99.000,-
í burðar- eða bflaútgáfu.
BENCO hf.
^Lágmúla 7, sími 84077. j
HEILSUGARÐURINN
- nýr lifstíl/ -
OFFITA - MEGRUN
Heilsugarðurinn með enn eina nýjung
Við segjum áhættuþáttunum stríð á hendur og
nú eru það aukakílóin sem skulu burt.
Lovísa.
iþróttakennari
Jóhann Heiðar
Jón,
næringarfræðingur
Sæmundur, Jóhannlngi,
sálfræðingur sálfræðingur
Ráðgjöf, næringarfræðingar, læknir, sálfræðingar
og íþróttakennarar.
Þátttakendur fá:
0 Tfu vikna námskeið sem hefst með einstaklings-
viðtali við næringarfræðing.
0 Einn fræðslutíma f hverri viku með sérfræðingum
Heilsugarðsins (á laugardögum).
0 Einn tíma í hverri viku í leikfimisal undir leiðsögn
íþróttakennara (á laugardögum)
0 Aðra daga vikunnar geta þátttakendur valið á milli
þol- og styrktarþjálfunar í leikfimi- og tækjasal und-
ir eftirliti sjúkraþjálfara og íþróttakennara.
Tækjasalur er alltaf opinn og hægt er að velja tíma í
leikfimisal fyrir hádegi, um miöjan dag eða á kvöldin.
Það grennist enginn án áreynslu. Breytt mataræði og
aukin hreyfing er eina raunhæfa leiðin til megrunar og
betri heilsu.
Jóhann Ásgeirsson 44 ára setti sér það markmið að léttast
um 30 kg á einu ári undir etirliti sérfræðinga okkar.
HEILSUGARÐURINN
Garðatorgi, Garðabæ, sími 656970-71
tvennt í sér aðallega: Annars vegar
umfangsmikil verðbréfaviðskipti
miðbankans á opnum markaði, þ.e.
víðtæk sala ríkisskuldabréfa, þegar
peningaframboð er of mikið, kaup
ríkisskuldabréfa, þegar peninga-
framboðið er of lítið. Engin skipuleg
starfsemi af þessu tagi hefír verið
rekin af Seðlabanka Islands. Hins
vegar felst stjóm eftirspumar í
hallalausum rekstri opinbera geir-
ans. Á tíma ofþenslu á ríkissjóður
að skila tekjuafgangi. Hið gagn-
stæða hefír gerzt.
Þegar vextir eru með þessum
hætti óvirkir, bætast vaxtahækkan-
ir umsvifalaust við verð vöm og
þjónustu og magna þannig verð-
bólguna. Ef lánskjaravísitala er
notuð, fáum við vaxta- og verðlags-
skrúfu. Hún hættir ekki fyrr en hún
er stöðvuð með skipun stjómvalda,
— með „handafli", eins og sumir
segja. Þar er ekki eftir neinu að
bíða. Þau lönd, einkum í S-
Ameríku, sem lengst hafa búið við
vísitölutengda verðtryggingu fjár-
skuldbindinga, em nú með verð-
bólgu allt að 700% á ári.
Það, sem ég hefí sagt hér að
framan, er ekki mín persónulega
kenning. Þetta er hagfræði pen-
ingamála, eins og hún var kennd
mér í þremur þekktum háskólum
erlendis, tveimur þeirra heims-
frægum. En því er svo lítill stuðn-
ingur við þessar skoðanir hérlendis?
Það er vegna þess, að einn maður
með fámenna hirð um sig ræður
ferðinni. Margir hagfræðingar leiða
málið hjá sér eða samþykkja þegj-
andi. Kann slíkt að vera í ætt við
það, sem Stefan Zweig, rithöfund-
ur, kallaði „þrælslund gagnvart
hópnum".
Til íhugunar að lokum: Allt fé í
bönkum er ekki „sparifé". í dæmi-
Dr. Magni Guðmundsson
„ Allt fé í bönkum er
ekki „sparifé“. í dæmi-
gerðum viðskiptabanka
eru tveir þriðju innlána
í formi viðskiptareikn-
inga, og yfir 90% af
rekstrarkostnaði banka
fer í að þjónusta þá
reikninga.“
gerðum viðskiptabanka eru tveir
þriðju innlána í formi viðskipta-
reikninga, og yfír 90% af rekstrar-
kostnaði banka fer í að þjónusta
þá reikninga. Eigendur þeirra borga
fyrir þjónustuna með lágum vöxtum
af reikningunum. Sparifé takmark-
ast hins vegar við langtíma inn-
stæður. Þær á að vemda. Hefí ég
áður greint frá því, hvemig það á
að gera.
Höfundur var um skeið hagfræði-
legur riðgjaS kanadískra sijóm-
valda, síðarhjá ráðuneytum og
rikisstofhunum hér heima.
Aðeins í 3 daga
ítölsk herraföt og stakir jakkar.
Ath. opið kl. 10-14 laugardaga.
Sími 17575.
Laugavogur 47
Laugavegi 47
Kjörgaróur g -p
Adami