Morgunblaðið - 20.10.1988, Side 27
STYRKTARFÉLAG íslensku óperunnar og Tónlistarfélagið í
Reykjavík hafa sameinast um kaup á nýjum Steinway-konsertflygli
og verður hann vigður á sérstökum hátiðartónleikum i íslensku
óperunni á tónlistardaginn, laugardaginn 22. október, kl. 16.30.
í frétt frá Styrktarfélaginu og
Tónlistarfélaginu segir:
Tónlistarfélagið í Reykjavík hef-
ur staðið fyrir tónleikahaldi í borg-
inni um áratuga skeið og hafa tón-
leikar félagsins .ævinlega talist til
helstu viðburða í tónlistarlífi lands-
manna. Flestir helstu tónlistarmenn •
þjóðarinnar hafa komið fram á tón-
leikum Tónlistarfélagsins, auk fjöl-
margra heimsþekktra tónlistar-
manna. Félagið á konsertflygil sem
nú er kominn svo mjög til ára sinna
að hann telst ekki lengur boðlegur
til notkunar á meiriháttar tónleik-
um og hefur því tvívegis þurft að
fá lánaðan flyil Sinfóníuhljómsveit-
ar fslands á síðastliðnu ári. Enn-
fremur þurfti að fá flygil Kjarvals-
staða lánaðan fyrir tónleika Lista-
hátíðar í íslensku óperunni síðast-
liðið sumar.
Ástæða þess að Tónlistarfélagið
og Styrktarfélag íslensku óperunn-
ar hafa nú sameinast um kaup á
konsertflygli er sú að á næstu árum
mun Tónlistarfélagið halda flesta
tónleika sína í íslensku óperunni
þar sem Styrktarfélagið heldur
einnig fjölmarga tónleika, auk fleiri
aðila. Það er því bráðnauðsynlegt
að í húsinu sé góður flygill. Og til
þess að tryggja góð kaup fóru
píanóleikaramir Halldór Haralds-
son og Jónas Ingimundarson til
Steinway-verksmiðjunnar í Ham-
borg og völdu þar úr tíu hljóð-
færum.
Sem fyrr segir verður flygillinn
vígður á sérstökum hátíðartónleik-
um í íslensku óperunni á íslenska
tónlistardaginn, 22. október. Á tón-
leikunum leika flestir helstu píanó-
leikarar landsins endurgjaldslaust
og verður ágóðanum varið til kaup-
anna. Kaupverð flygilsins er um 2,5
milljónir króna. Píanóleikaramir
fagna mjög þessum kaupum og til
marks um það má nefna að Rögn-
valdur Siguijónsson kemur nú fram
á tónleikum eftir margra ára hlé
og Halldór Haraldsson leikur á
þessum tónleikum, þótt handleggs-
brotinn sé. Rögnvaldur ■ verður
fyrstur til þess að leika opinberlega
á nýja hljóðfærið en á eftir honum
leika þau Guðríður Sigurðardóttir,
Selma Guðmundsdóttir, Guðmund-
ur Magnússon, Öm Magnússon,
Halldór Haraldsson, Gísli Magnús-
son, Jónas Ingimundarson, Þor-
steinn Gauti Sigurðsson, Brjmja
Guttormsdóttir, Anna Guðný Guð-
mundsdóttir, Snorri Sigfús Birgis-
son og Lára Rafnsdóttir.
Tökum á Meffi frestað
vegrn tryggingamála
TÖKUM á kvikmyndinni „MefB“ hefur verið frestað til næsta vors,
en til stóð að þær myndu hefjast þann 15. nóvember næstkomandi.
Jón Ólafsson, framleiðandi myndarinnar, sagði að ástæðan fyrir
frestuninni væri eingöngu sú að ekkert erlent tryggingafyrirtæki
hefði fengist til að tryggja gerð myndarinnar á þessum árstima á
íslandi.
Jón sagði að um væri að ræða
sérstaka tryggingu fyrir kvik-
myndagerð, svokallaða verkloks-
ábyrgð, sem tryggði að lokið væri
við gerð myndar ef eitthvað færi
úrskeiðis hjá framleiðendum henn-
ar. Hann sagði að auðvitað kæmi
þessi frestun sér illa. en hún kæmi
þó ekki niður á myndinni listrænt
séð og fjárhagslegur grundvöllur
hennar væri tryggður. Ásamt Jóni
stendur kanadískt fyrirtæki, SC
Entertainment, að gerð „Meffí“.
Upphafleg kostnaðaráætlun hljóð-
aði upp á 140 milljónir, en Jón sagði
að hún væri nú orðin töluvert hærri.
Alls munu um 40-50 manns
vinna að gerð myndarinnar. Jón
Ólafsson sagði að íslensku leikar-
amir í Meffí hefðu nú möguleika á
því að taka hlutverk sem þeim
væri boðið í leikhúsunum í vetur,
sem þeir hefðu að öðrum kosti orð-
ið að hafna. Tökur myndu að líkind-
um heflast í maí og yrði væntan-
lega lokið á 6-8 vikum. Til stendur
að tökur fari að öllu leyti fram á
íslandi, utan 3 mínútna kafla.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988
Flugleiðir:
Lifendi ígulker til
Tókýó á mettíma
Sérstakt fraktflug milli Evrópu og
Bandaríkjanna hófst fyrir skömmu
Hljómplata með píanóleik
Rögnvaldar Sigurjónssonar
SKÍFAN hf. gefur f lok þessa
mánaðar út hljómplötu með
pfanóleik Rögnvaldar Sigur-
jónssonar f tilefhi af sjötugsaf-
mæli hans 15. október sfðastlið-
inn, að sögn Jóns Ólafssonar
framkvæmdastjóra Skífiinnar.
Verkin á þessari plötu eru tek-
in upp á nærri tíu ára tfmabili
til útsendingar f útvarpi. Hið
fyrsta var á dagskrá útvarpsins'
f janúar 1968 en hið sfðasta í
júlf 1977.
Á hljómplötunni spilar Rögn-
valdur verk eftir Joseph Haydn,
L. v. Beethoven, Fr. Chopin og
R. Schumann. Meðleikarar Rögn-
valdar í trfói eftir Haydn eru
Konstantín Krechler flðluleikari
og Pétur Þorvaldsson sellóleikari.
Rögnvaldur Siguijónsson
fæddist á Eskifirði og voru for-
eldrar hans Siguijón Markússon
sýslumaður og kona hans, Sigríð-
ur Þorbjörg Bjömsdóttir. Rögn-
valdur útskrifaðist frá Tónlistar-
skóianum í Reykjavík árið 1937
og sama ár fór hann til náms hjá
M. Ciampi í Parfs. Heimsstyijöldin
batt enda á nám Rögnvaldar þar
og árin 1942 til 1945 var Rögn-
valdur við nám í New York. Aðalp-
íanókennari hans þar var Sascha
Gorodnitsky en Rögnvaldur lærði
einnig orkestrasjón í Julliard-
skólanum hjá Vittorio Giannini.
Frá árinu 1945 var Rögnvaldur
kennari við Tónlistarskólann í
Reykjavík. Einnig hefur hann ver-
ið með tónlistarþætti í Ríkisút-
varpinu.
Rögnvaldur Sigurjónsson
FLUGLEIÐIR hafa náð samningi við japanska flugfélagið Japan
Air Lines um sérstök kjör á vöruflutningum frá Islandi til Jap-
ans. Flugleiðaþotur flytja vörurnar til London og þar taka þotur
JAL við þeim og flytja til Tókýó. Lifandi ígulker voru flutt Japans
á þennan hátt fyrir skömmu. Ferðir þessar eru farnar þrisvar í
viku og líða tæpir tveir sólarhringar frá þvf varan fer frá íslandi
þar til hún nær til Tókýó. Þá hófiist fyrir skömmu sérstakar frakt-
ferðir á vegum Flugleiða milli Evrópu og Bandaríkjanna. Flogið
er frá Belgíu til Billund f Danmörku, þaðan til íslands og síðan
til New York og sömu leið til baka.
„Það hefur lengi verið í undir-
búningi að koma upp flutningaleið
til Japans sem nýttist til dæmis
útflytjendum fískafurða," sagði
Sigmar Sigurðsson, forstöðumað-
ur fraktdeildar Flugleiða, í sam-
tali við Morgunblaðið. „Gjald fyrir
flutninginn er 145 krónur á kílóið
afmatvælum og er lágmarkssend-
ing 250 kg. Ferðir þessar eru
þrisvar í viku, morgun- og síðdeg-
isferðir á mánudögum og ein ferð
á fimmtudögum. í fyrri mánu-
dagsferðinni er rými fyrir 2 til 3
tonn en í hinum ferðunum eru
teknir fraktpallar og því hægt að
taka mun meira.
Með sérstökum fraktferðum
milli Evrópu og Bandaríkjanna er
komið til móts við þarfír þeirra
sem flytja vilja ferskan fisk frá
íslandi til landa beggja megin
Atlantshafsins. Þetta gefur mögu-
leika á auknum fraktflutningum
til íslands, til dæmis grænmeti
sem í vaxandi mæli er flutt í flugi.
Flugleiðir hyggjast þannig efla
fraktflug í millilandafluginu og
þétta nú net viðkomustaða sinna
með því að taka upp flug frá Ost-
ende í Belgíu," sagði Sigmar Sig-
urðsson.
„Nú tekur um 20 klukkustundir
að senda ígulker héðan til Japans
en áður gat það tekið á þriðja
sólarhring," sagði Guðmundur
Einarsson, framkvæmdasjóri
Neysluvara hf. Fyrirtækið er .í
samvinnu við fiskvinnslufyrirtæk-
ið Stíganda í Sandgerði um veiðar
og útflutning á ígulkeijum.
„Það er geysilega mikilvægt
fyrir okkur að Flugleiðum skuli
hafa tekist að stytta þann tíma
sem það tekur að senda vörur til
Japans því ígulkerin þurfa að
koma sem ferskust þangað. Við
höfum flutt út sýni úr ígulkeijum
undanfarin tvö ár og vonumst til
að geta hafíð útflutning á þeim
fyrir alvöru eftir tvö ár,“ sagði
Guðmundur Einarsson.
FAXAFENI5. SÍMI68 56 60
(SKEIFUNNI)
el hannað bað
eykur vellíðan
Innréttingin er lykilatriði í hönnun
baðherbergis. Þar þarf oft að beita
hugkvæmni og útsjónarsemi ásamt
þekkingu á viðfangsefninu.
Innréttingar Finns Fróðasonar í verslun
okkar bera það með sér að þar standa
fagmennaðverki.
Líttu inn.
Nýr flygiH vígður á tónlistardegi
Rögnvaldur Sigurjónsson leikur eftir margra ára hlé
Átta einleikarar við nýja flygilinn.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg