Morgunblaðið - 20.10.1988, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 20.10.1988, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988 41 SIEMENS SIEMENS uppþvottavél LADY SN 4523 með Aaua-Stop vatnsörygai. Þjóðdansafélag Reykjavíkur með söngdansa á íþróttavellinum, þótti vel við hæfi er þeir sungu Votur er ég vindandi fyrir 6.000 áhorfendur, þó svo ég efist um að margir hafi heyrt nokkuð í okkur þvf vindurinn hvein í hátalarakerf- inu. Um kvöldið var síðan mótinu slit- ið. Þá dönsuðu um 3.000 manns dansa frá öllum Norðurlöndunum sem æfðir höfðu verið í vetur. Einn- ig spiluðu hljóðfæraleikarar frá 5 löndum nokkur lög. AUa mótsdagana var boðið upp á tónleika, danssýningar og nám- skeið. Einnig dans og hljóðfæra- slátt fram á rauðanótt og var það aðallega þá sem fólk náði að kynn- ast og sinna sameiginlegu áhuga- máli. Oftast fóru þátttakendur ör- magna í rúmið eftir að hafa dansað eða spilað í 10—20 tíma samfellt. Nú spyija sjálfsagt margir hvað Nordlek sé. Nordlek er samband ýmissa ólíkra félaga á Norðurlönd- um á sviði þjóðhátta. Má þar nefna þjóðdansa, þjóðlagatónlist, þjóð- búninga, rannsóknir, gamla leiki og hannyrðir (heimilisiðnaður). Á vegum sambándsins eru haldin Qöldamörg námskeið sem ýmist eru opin öllum sem áhuga hafa eða ein- göngu fyrir leiðbeinendur. Mikil áhersla er nú lögð á námskeið fyrir böm og unglinga til að gera þau meðvituð um þann þjóðararf sem við eigum. Annað markmið sam- bandsins er að auka vináttu og sam- kennd milli þjóðanna með kynnuiS?' Einnig að draga fram hið sérstaka í norrænni menningu og skapa henni virðingu jafnt innan sem utan Norðurlanda. Og að auka áhuga á norrænni menningu á Norðurlönd- um. Sambandið er þátttakandi í nor- rænni samvinnu á sviði menningar- mála. Þjóðdansafélag Reykjavíkur hefur verið þátttakandi í þessari samvinnu undanfarin 27 ár. Við höfum þriðja hvert ár sent hóptfR stóm Nordlek-mótin sem haldin em til skiptis f Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi. Sjálf höfum við haldið 2 minni mót hér á landi og næsta sumar verður það haldið í þriðja sinn. Þessi mót höfum við kallað ísleik og hafa þau verið vel sótt af Norðurlandabúum. Tímastilltarviftur með eöa án sjálflokandi gardínu. Rörmál:4"-5“-6". HAGSTÆTT VERÐ. Elnar Farestvett&Co.hf. eftirLilju Petru Ásgeirsdóttur í júlímánuði fór 44 manna hópur frá Þjóðdansafélagi Reykjavíkur, þar af 4 undirleikarar og 2 söngvar- ar, til Bergen til að taka þátt í 28. Nordlek-mótinu sem haldið er. Þar vom samankomnir u.þ.b. 5.000 dansarar og spilarar frá Noregi, Svíþjóð, Danmörk, Færeyjum, Álandseyjum, Finnlandi og íslandi. Hópurinn fór utan mánudaginn 4. júlí en mótið var ekki sett fyrr en 6. júlí. Þessa tvo daga notuðu ferða- langamir til þess að skoða borgina sem hefur upp á margt að bjóða. Meðal annars var farið og skoðaður gamli bærinn sem breytt hefur ver- ið í safn. Það er ótrúlegt hve þétt húsin em enda eldhætta mikil. Hópurinn fór einnig upp á Flöyen og naut hins frábæra útsýnis sem er yfir bæinn og fjörðinn ofan af fjallinu. Einnig var litið í verslanir og meirihlutinn fjárfesti í hinum ómissandi regnhlífum sem komu að góðu gagni alla mótsdagana. A mótinu í Bergen var boðið upp á fjölbreytta efnisskrá, m.a. hélt hver þjóð námskeið í hannyrðum, þjóðdönsum og þjóðlagatónlist (söng og spili). Núverandi skólastjóri heimilis- iðnaðarskólans, Steinunn Ingi- mundardóttir, sá um námskeið í leppapijóni en hún var einnig í danshópnum. Einnig var mikil bún- ingasýning og heimilisiðnaðarsýn- ing í Grieg-höllinni alla mótsdag- ana. Miðvikudaginn 6. júli hófust námskeið á fimm stöðum samtímis. Þrír af spilurunum ákváðu að fara á námskeið hjá Finnum og Álands- eyingum í þjóðlagaspili. Það var mjög gaman og lærðum við þar nokkur lög. Um kvöldið var síðan formleg setning mótsins. Þar var í fyrsta skipti fluttur Nordlek-mars- inn, sem var sérstaklega saminn fyrir þetta mót. Hann spiluðu um 20 ungir Harðangurfíðluleikarar og fórst það vel úr hendi. Einnig var sýndur „Springdans", sem er sér- stakur fyrir héruðin í kringum Bergen. Þar voru einnig fluttar ræður. Meðal annarra sem það gerðu var borgarstjórinn í Bergen og menntamálaráðherra Noregs. Eftir setningarathöfnina var síðan byijað að dansa og stjómuðu Danir fyrstu dönsunum. En Islendingamir fluttu sig yfir í næsta leikfímishús þar sem þeir sáu um dansstjóm ásamt Svíum og Finnum. Næsta dag var mikið að gera hjá íslendingunum þar sem við sáum um námskeið í þjóðlagatónlist, leik- inni og sunginni. Á námskeiðinu í þjóðlagasöng var farið yfír sögu íslenskrar tónlistar og tekin tón- dæmi. M.a. sungu Unnur Eyfells og Jón Þorsteinsson tvísöng sem vakti mikla athygli. Einnig söng hópurinn ýmis íslensk þjóðlög og gátu áhugasamir þátttakendur tek- ið undir á íslensku. Stjómendur námskeiðsins vom Sölvi Sigurðsson og Maria Einarsdóttir. Tveimur hæðum ofar í félags- heimili norska þjóðdansafélagsins fór fram á sama tfma námskeið f þjóðlagaspili. Þar vom saman komnir 10 spilarar frá ýmsum þjóð- um sem reyndu að ná tökum á Dýravísum og Sprengisandi auk annarra laga. Erfiðast þótti hljóð- færaleikumnum að ná hinum mis- skipta takti í Dýravfsum enda ekki kynnst slfku áður. Námskeiðið ann- aðist Wilma Young. Síðar um daginn sáu íslending- amir um þjóðlagakaffí fyrir fullu húsi gesta sem nutu veitinga meðan hlýtt var á söng kórs Þjóðdansafé- lagsins undir stjóm Mariu Einars- dóttur og einsöng og tvfsöng Jóns og Unnar. Söngnum var n\jög vel tekið enda fjölbreytt efnisskrá fslenskra þjóðlaga. Um kvöldið sá Kolfinna Sigur- vinsdóttir um dansstjóm í Grieg- höllinni eftir sýningu á „Vestland, Vestland", og naut hún aðstoðar dansara og spilara. Þar vom þó 0 S þvottakerfi. • Fjórföld vörn gegn vatnsleka. 9 Óvenjulega hljóðlót og sparneytin. Smith og Norland, Nóatúni4, s. 28300. Vortice baðherbergisviftur Metsölublad á hverjum degi! haldnir í Grieg-höllinni. Þar komu fram margir efnilegir söngvarar og hljóðfæraleikarar. Þrír ungir fíðlu- leikarar spiluðu og sungu íslensk þjóðlög og alþýðulög með undirleik og aðstoð Wilmu Young. Eftir tón- leikana var slegið upp dansleik í höllinni þar sem tónlistarfólkið spil- aði fyrir dansi. Þetta sama kvöld vom haldnir kirkjulegir tónleikar f Krosskirkjunni sem er nokkurra alda gömul gullfalleg kirkja í miðbæ Bergen. Þar söng fyrir hönd íslands Jón Þorsteinsson, ópemsöngvari, sálminn Víst em Jesú kóngur klár, Kvöldvísur og helgilag frá 13. öld. Þess má geta að hann söng einnig með félaginu á öllum sýningum þess og tónleikum. Sunnudagurinn rann upp bjartur og fagur og dansarar bjuggu sig undir að taka þátt í stærstu sýningu mótsins sem var haldin á íþrótta- vellinum Kronsminde. Þegar svo 5.000 dansarar og spilarar höfðu stillt sér upp til að marsera inn á völlinn opnuðust allar flóðgáttir himins og regnið fossaði niður á uppábúna þátttakendur. Skrúð- ganga og dansar einstakra þjóða fór þó fram en fresta varð samdöns- um og samspili fram á kvöldið. ís- lendingamir, sem vom aðallega Höfundur er formaður Þjóðdansa- félags Reykjavíkur. Sjómannaskottís undir berum himni í Bergen. „Springdans". ekki unglingamir í hópnum því þeir sóttu á sama tíma unglingasam- komu f Gimli. Þar var mjög þröngt á þingi og mikið fjör. Unglingunum gafst kostur á að læra dansa frá öllum þátttökulöndunum sem bama- og unglingaleiðbeinendur sáu um. Meðal annars sem kennt var þar var „springdans" sem fólg- inn er í því að ná hatti af priki sem haldið er í 2 metra hæð. Ekki má taka hann af með höndum heldur er ætlast til að honum sé náð með fæti. Er þá stokkið í loft upp og fætinum sveiflað upp á við. Einn íslendingur úr hópnum reyndi við þessa þraut og tókst í annarri til- raun að ná hattinum af prikinu. Margt fleira var til skemmtunar og fór íslenski unglingahópurinn glað- ur heim eftir ánægjulegt kvöld. Á fostudeginum hófst dagskrá fslenska hópsins klukkan tfu með námskeiði í íslenskum dönsum und- ir leiðsögn Kolfínnu Sigurvinsdóttur og var það vel sótt. Um kvöldið var sýning í Grieg-höllinni sem var skipt í tvennt. íslenski hópurinn kom fram á seinni sýningunni. Þjóð- dansafélagið vandaði sérstaklega til efnisvals og búninga á þeirri sýningu enda voru móttökur áhorf- enda frábærar. Dansaramir komu þar fram í 18. aldar upphlutum, faldbúningum, skautbúningum, kyrtlum og nútímaupphlut. Þótt fáir íslendingar kunni að meta íslenska þjóðdansa og viti hvemig þeir eru og hve fjölbreytileikinn er mikill þá kunna aðrir Norður- landabúar svo sannarlega að meta þá og þótti sýning Þjóðdansafélags- ins hápunktur kvöldsins. Laugardaginn 9. júlí voru útisýn- ingar í miðborg Bergen eins og reyndar var alla mótsdagana. Þó vom sýningamar stærri og á fleiri stöðu þennan dag. Um kvöldið vom sfðan tónleikar sem helgaðir vom ungu fólki f söng og hljóðfæraleik SIGLPIRDINGAFÉLAGID Reykjavik og nágrennl Aðalfundur Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni verður haldinn í Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar, Drafnarfelli 2-4, föstudaginn 21. október og hefst kl. 21.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. GEGN STREITU Vitundartækni Maharishi, INNHVERF ÍHUGUN, er einföld, huglæg aöferð sem vinnur gegn streitu og spennu. Almenn kynning verður haldin í kvöld fimmtudag kl. 20.30. I Garöastræti 17. Aögangur ókeypis. íslenska íhugunarfélagiö, s. 16662.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.