Morgunblaðið - 20.10.1988, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988
59
VELVAKANDl
SVARAR í SÍMA
691282 KL.10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
■yia lf
Um nýiu bílnúmerín
Til Velvakanda.
Það er alkuftna að bifreiðastjórar
úr dreifbýlinu eru eigi færir að aka
vélknúnum ökutækjum sínum innan
borgarmarkanna. En vegna hinnar
landsfrægu góðmennsku borgarbúa
er þeim þó leyft að aka á gijót-
börðum bifreiðum sínum á bundnu
slitlagi borgarinnar. Þó er skilyrði
að þeir hafi þar til gerða platta,
bæði að framan og aftan á bílum
sínum, sem vísa til þess að þar sé
fólk utan af landsbyggðinni á ferð.
Vegna þessara merkinga geta
Reykvíkingar hagað ökulagi sínu
með fullu tilliti til aðstæðna. Þá er
átt við þegar borgin hálffyllist af
ökutækjum með bifreiðastjórum
sem einungis þekkja fyrirbæri eins
og malbik, hringtorg, tvístefnugöt-
ur o.fl. af afspum.
Nú um næstu áramót munu ör-
lagaríkir atburðir gerast, verði ekki
gripið til fyrirbyggjandi varúðarráð-
stafana. Því þá munu áðumefndir
plattar heyra sögunni til. f þeirra
stað koma glansskilti með númemm
sem lúta engum reglum né lögmál-
um. Því verður ekki hægt að sjá í
fljótu bragði hvort ökutæki sé með
alvanan reykvískan ökumann, ell-
egar dreifbýling innanborðs. Það
sér því hver heilvita maður hvílíkt
hættuástand það myndi skapa.
Afiiotagjöldin:
Léleg rök-
semd að fólk
geti slökkt
• Til Velvakanda.
Þann 28. september birtist grein
eftir Ólaf nokkum þar sem hann
kvartar yfir því að það sé bókstaf-
lega ekkert annað en íþróttaefni í
sjónvarpinu og var ég honum alveg
sammála. En 30. september birtist
hins vegar grein eftir Víkveija sem
sagði sig ósammála og hélt því fram
að Ólafur gæti þá bara slökkt á
sjónvarpinu eins og „aðrir“ ef hann
væri óánægður.
Þetta finnst mér ekki vera rétt.
Maður borgar ekki afnotagjöld til
þess að hafa slökkt á sjónvarpinu.
Þar að auki vil ég bæta því við að
mér þykir það asnálegt að þurfa
að borga fyrir stöð sem maður vill
ekkert hafa með, því að ríkissjón-
varpið hefur stutta og leiðinlega
dagskrá. Ég horfi bara á Stöð 2
sem er mjög góð og alveg nóg fyr-
ir mig.
Gunnlaugur
Að mínum dómi er lausnin að
skipta bifreiðaeign landsmanna í
tvo hluta: annarsvegar af höfuð-
borgarsvæðinu og hinsvegar utan
af landsbyggðinni. Myndi munur
þessi verða auðkenndur á fyrr-
nefndu glapsskilti á sem einfaldast-
an hátt. Á núverandi plöttum er
æði miklu púðri eytt í það að flokka
fólk niður eftir búsetu sem er hinn
mesti óþarfi. Nóg væri -að hafa
bókstafínn R fyrir Reykjavík og D
fyrir dreifara.
G og E.
Þessir hringdu...
Beita Grænfriðungum
fyrirsig
Grímur Karlsson hringdi:
„Fyrir nokkrum dögum hættu
Rússsar við kaup á físki fyrir 300
milljónir króna og sögðust ætla
að kaupa ódýrari fisk af Færey-
ingum og annars staðar frá. Rúss-
ar beita ekki Grænfriðungum fyr-
ir sig en segja okkur hreint út
að við höfum verðlagt okkur út
af þessum samningi. Aðrir kaup-
endur, austan hafs og vestan,
hafa verið að segja okkur það
sama varðandi sumar fiskafurðir.
Og nú beita þeir Grænfriðungum
fyrir sig vegna neytandans til að
komast hjá kaupum. Ásókn íjóð-
veija í ferskan fisk frá íslandi er
mikil og ber að stöðva þann út-
flutning meðan við íslendingar
fáum skýringu á afskiptum Græn-
friðunga af viðskiptum land-
anna.“
BMXhjól
Gullt og blátt BMX hjól fyrir
4-6 ára hvarf af leikvelli við
Klausturhraun fyrir nokkru og er
þess sárt saknað. Þeir sem orðið
hafa varir við hjólið eru vinsam-
legast beðnir að hringja I síma
54863.
Sýnið meira frá
Heimsleikum fatlaðra
Kona hringdi:
„Það þyrfti að sýna meira frá
Heimsleikum fatlaðra í Seoul í
sjónvarpi og sérstaklega frá fötl-
uðum bömum sem keppa. Gaman
væri að sjá beinar útsendingar en
það er þó ekki nauðsynlegt."
VETRARFAfiNAfiUR^
Hinn árlegi vetrarfagnaður verður haldinn í félags-
heimilinu fyrsta vetrardag 22. október. Hljómsveit
leikurfyrirdansi. Húsiðopnað kl. 19.30.
Miða- og borðapantanir á skrifstofu félagsins,
fimmtudaginn 20. októberfyrir kl. 18.00.
Hestamannafélaglð Fákur.
Pera dagsins í dag
DULUX EL
80% orkusparnaður dæmi:
OSRAM
æJÓHANN ÓLAFSS0N &C0.HF.
43Sundaborg 13-104Reykjavik-Sími688 588
OTRULEGT
EN
SKÓLAFÓLK - FYRIRTÆKI - STOFNANIR -
EINSTAKLINGAR - HEIMILI
fttfit1 -r ■ i«,f i'
■ ■ ,y
5';v.v;v.W&
12 gerðir og verðflokkar af AMSTRAD
PC-tölvum á tilboði sem ekki er hœgt að hafna.
DÆMI 1: AMSTRAD PC 1512/20MB harfiur diskur 14“ sv.hv.^\
skjár. Fjöldi fylgihluta og forrita t.d. MÚS, GEM,
RITV.ÁÆTLG., LEIKIR O.FL. O.FL.
Stór ísl. handbók og 30% afsl. á 12 tfma PC-nám-
skeiði hjá Tölvufræðslunni.
oaciui iija I uivuiiæuaiuiilil.
^OKTÓBERTILBOÐ 79.800,-
DÆMI 2: AMSTRAD PC 1640/20 MB harður diskur 14“ sv.hv.
hágæða skjár.
Innbyggt EGA, HERCULES OG CGA kort, fjöldi fylgi-
hluta og forrita.
Stór fsl. handbók og 30% afsláttur á 12 tíma nám-
skeiði hjá Tölvufræðslunni.
v0KTÓBERTILB0Ð 99.80Q,-
(j)DÝRASTA AMSTRAD PC: 1 drif 14“ skjár aðeins 49.800,-
1ÆMI 3: AMSTRAD PPC 612 ferðatölva/1 drif, 10“ skjár, AT-"\
lyklaborö, 5,4 kg.
v0KTÓBERTILB0D: 49»900,"_________________________
Kynntu þér AMSTRAD - Það er ekki að ástæöu-
lausu að AMSTRAD PC-tölvur eru mest seldu tölvur
í Evrópu í ár.
Ástæðurnar eru meðal annars: Fullkomlega IBM
samhæfðar + rikulega utbúnar af fylgihlutum og for-
ritum + ótrúlega lágt verð= Lang bestu tölvukaupin.
GREIÐSLUKJÖR VIÐ ALLRA HÆFI/
RAÐGREIÐSLUR
Allt verð miðað við gengi 30. september og staögreiðslu.
TOLUULOND - HLEMMi
LAUGAVEGI 116 V/HLEMM S.621122