Morgunblaðið - 20.10.1988, Page 62
62
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988
KNATTSPYRNA / HEIMSMEISTARAKEPPNIN
Katanec tryggði
Júgóslövum
stig í Glasgow
BRUNO Katanec, félagi Ás-
geirs Sigurvinssonar hjá VfB
Stuttgart í Þýskalandi, skoraði
fyrir Júgóslava gegn Skotum á
Hampden Park í Glasgow í
gærkvöldi, og tryggði þeim þar
með jafntefli. Úrslitin urðu 1:1,
en áður hafði Maurice Jo-
hnston tekið forystuna fyrir
Skota.
Góð byrjun Skota
Skotar byrjuðu betur og Steve
Nicol frá Liverpool fékk fljótlega
gott færi eftir mjög góða sendingu
frá Brian McClair, leikmanni Manc-
hester United. Tomislav Ivkovic,
. markvörður Júgóslavíu, varði skot
Nicols vel.
Mark Skota kom svo eftir aðra
mjög góða sókn. Bakvörðurinn
Maurice Malpas þrumaði að marki,
Ivkovic varði en hélt ekki knettin-
um. Johnston var fyrstur að átta
sig, renndi sér að knettinum og
potaði honum yfir marklínuna.
Skotar fengu fleiri færi en náðu
ekki að skora — en það gerði hins
vegar Katanec sem fyrr segir. Hann
þrumaði knettinum í netið af stuttu
færi eftir homspymu.
Dæmlð snýst vlð
Skotar vom sterkari í fyrri hálf-
leiknum en dæmið snérist við í þeim
sfðari. Júgóslavar sóttu meira og
fengu ágæt tækifæri. Þeir náðu þó
ekki að bæta við marki og deildu
liðin því með sér stigunum.
Áhorfendur í Glasgow vom
42.771.
Liðin voru þannig skipuð:
Skotland: Andy Goram, Richard Gough,
Mauríce Malpas, Steve Nicol, Alex McLeish,
Willie Miller, Paul McStay, Roy Aitken (David
Speedie vm. á 70.), Mo Johnston, Brían McCla-
ir, Jim Bett (Aily McCoist vm. á 55.).
Júgóslaviæ Ivkovic, Stanojkovic, Spasic,
Jozic, Hadzibegic, Radanovic, Stojkovic, Kat-
anec, Cvetkovic, Bazdarevic, Vujovic.
Johnston skoraði á 17. mín. við
mikinn fögnuð áhorfenda á
Hampden Park, en Katanec jafnaði
á 36. mín.
Reuter
Skotlnn Steve Nlcol f baráttu við Júgóslavann Spasic á Hampden Park f
gærkvöldi.
Yfirburð-
ir Belgíu
- enaðeinseins
marks sigur
BELGÍA sigraði Sviss 1:0 í 7.
riðli HM á Heysel leikvanginum
í Brussel í gærkvöldi.
Frá Bjama
Markússyni
ÍBelgiu
Það var Patrick Vervoort sem
skoraði með skalla á 29.
mínútu, eftir góða fyrigjöf félaga
síns hjá Anderlecht, George Griin.
Belgar höfðu
gífurlega yfirburði í
leiknum og hefðu
úrslitin allt eins get-
að orðið 7:0. Þeir
sóttu stanslaust og fengu fyrirliðinn
Jan Ceulemans og Enzo Scifo báðir
mjög góð tækifæri til að skora.
Scifo var annars besti maður vallar-
ins, átti frábæran leik.
Undir lokin munaði ekki miklu
að Svisslendingar næðu að stela
sigrinum. Framheiji þeirra Kua-
bilay Turkyilmaz komst í gegn en
Gilberg Bodart í marki Belga varði
mjög vel. Hann lék í markinu í stað
Michel Preud’homme, sem nef-
brotnaði í vináttuleik gegn Brasilíu
f síðustu viku.
Áhorfendur á Heysel-leikvangin-
um voru 14.450.
Sovétmenn sannfærandi
^Sigruðu Austurríkismenn 2:0 í Moskvu og eru þar með komnir í efsta sæti þriðja riðils
ALEXEI Mikhailichenko og
Alexander Zavarov tryggöu
Sovétmönnum sannfærandi
sigur, 2:0, á Austurríkismönn-
um f 3. riöli heimsmeistara-
keppninnar f Kiev í gær. Þeir
skoruðu hvor sitt markið —
bæði í sfðari hálfleik — og Sov-
ótmenn eru þar meö komnir á
topp riðilsins.
Lítið markvert gerðist í fyrri
hálfleiknum; Sovétmenn sóttu
linnulítið en náðu ekki að bijóta
niður sterka vöm gestanna sem
pökkuðu í vöm.
Mikhailichenko kom Austurríkis-
mönnum svo í opna skjöldu með
því að skora þegar aðeins tvær
mínútur voru liðnar af sfðari hálf-
leik. Hann skallaði knöttinn glæsi-
lega efst í vinstra markhomið.
Knötturinn var á vallarhelmingi
Austurríkismanna mest allan sfðari
hálfleikinn, eins og f þeim fyrri.
Sovétmenn sóttu látlaust og það
var Alexander Zavarov sem var
maðurinn á bak við flestar sóknir
þeirra. Hann kom knettinum einu
sinni í net Austurríkismanna í fyrri
hálfieik — á 36. mín. — en var rang-
stæður og mark var ekki dæmt.
Hann gerði síðan löglegt mark á
69. mín. og gulltryggði Sovétmönn-
um sigur.
Manfred Zsak fékk það erfiða
að passa Zavarov í leiknum, en
hann var einfaldlega ekki nógu
góður. Sovétmaðurinn snjalii, sem
f vetur leikur með Juventus á ít-
alíu, var miklu fljótari og knattmeð-
ferð hans er frábær, þannig að
hvað eftir annað hreinlega skildi
hann Austurríkismanninn — og
byfTgði upp sókn.
Reiknað hafði verið með sovésku
leikmönnum þreyttum eftir erfítt
tímabil. Deildarkeppninni þar í landi
er nú að Ijúka og nokkrir úr hópnum
voru í gullverðlaunaliði þeirra á
Óiympíuleikunum, þar á meðal
markakóngurinn Mikhailichenko.
En þeir léku vel, voru mjög sann-
færandi og eru nú á toppi riðilsins.
Hafa þijú stig, fengu eitt á Laugar-
dalsvelli í ágúst og tvö í gær.
Liðin voru þannig skipuð ( gœr.
Sovétríkin: Rinat Dasayev, Valdas Ivanausk-
as, Vagiz Khidiatullin, Andrei Zygmantovich,
Anatoly Demyanenko, Vasily Rats, Sergei
Aleinikov, Gennady Litovchenko, Alexander
Zavarov, Oleg Protasov, Alexei Mikhailic-
henko.
Austurríki: Klaus Linderberger, Kurt Russ,
Josef Degeorgi, Anton Pfeffer, Herbert We-
ber, Manfred Zsak, Christian Kegelevits, Pet-
er Artner, Anton Polster, Walter Hoermann,
Gerald Wilfurt.
VHM 1. RIÐILL
GRIKKLAND- DANMÖRK............1:1
BÚLGARiA - RÚMENlA............3:1
F). lelkja u J T Mörk Stlg
BÚLGARlA 1 1 0 0 3: 1 2
DANMÖRK 1 0 1 0 1: 1 1
GRIKKLAND 1 0 1 0 1: 1 í
rúmenIa 1 0 0 1 /1:3 0
HM 2. RIÐILL
PÓLLAND - ALBANlA...........1:0
ENGLAND- SVÍPJÓÐ ...........0:0
FJ. lelkja U J T Mörk Stlg
PÓLLAND 1 1 0 0 1:0 2
ENGLAND 1 0 1 0 0:0 1
SV/ÞJÓÐ 1 0 1 0 0:0 1
ALBANÍA 1 0 0 1 0: 1 0
HM 3. RIÐILL
fSLAND- SOVÉTRlKIN ....1:1
TVRXIANO- ISLAND ....1:1
A-bÝSKAI AMD - SLAND ....2:0
SOVÉTRlKIN - AUSTURRlKI.. ....2:0
FJ. leikja U J T Mörk Stlg
SOVÉTRlKIN 2 1 1 0 3: 1 3
A-ÞÝSKAL. 1 1 0 0 2:0 2
/SLAND 3 0 2 1 2:4 2
TYRKLAND 1 0 1 0 1: 1 1
AUSTURRÍKI 1 0 0 1 0: 2 0
HM 4. RIÐILL
FINNLAND- V-ÞÝSKALAND.........0:4
HOLLAND- WALES................1:0
WALES - FINNLAND..............2:2
V-ÞÝSKALAND- HOLLAND .........0:0
'FJ. Mkja U j T Mðrk Stlg
V-ÞÝSKAL 2 1 1 0 4: 0 3
HOLLAND 2 1 1 0 1: 0 3
WALES 2 0 1 1 2: 3 1
FINNLAND 2 0 1 1 2: 6 1
HANDKNATTLEIKUR / SPÁNN
Atli Hilmarsson skoraði
sex möric gegn Barcelona
Mikill fögnuður hjá Granolles, sem vann Katalóníubikarinn
ATLI Hilmarsson, landsliös-
maður í handknattleik, náði
að falla vel inn I leik Granol-
les, þegar hann lék með með
llðinu í Katalónfumeistara-
keppninni um sl. helgi. Atli
skoraði sex mörk þegar Gran-
olles vann Spánarmelstarana
Barcelona, 24:19, f úrslitaieik
mótsins.
Geysilegur fögnuður var í
Granolles, sem er borg rétt
við Barcelona, þegar fregnir um
sigurinn bárust þangað. Atlf skor-
aði tvö mörk með langskotum, tvö
eftir gegnumbrot og tvö úr vfta-
köstum. Þá átti hann línusending-
ar á spænska landsiiðsmanninn
Puig, sem gáfu mörk. Puig skor-
aði átta mörk í leiknum. Þess má
geta að sænski landsliðsmaðurinn
Per Carlen leikur með Granolles.
Hann Ieikur bæði sem línumaður
og sem útileikmaður hægra meg-
inn. Þess má geta að Júgóslavinn
Vujovic leikur með Barcelona.
HM 5. RIÐILL
NOREGUR- SKOTLAND FRAKKLAND- NOREGUR ....1:2 ....1:0
SKOTLAND- JÚGÓSLAVlA ....1:1
FJ.IelkJa U J T Mörk Stig
SKOTLAND 2 1 1 0 3: 2 3
FRAKKLAND 1 1 0 0 1:0 2
JÚGÚSLAVÍA 1 0 1 0 1: 1 1
KÝPUR 0 0 0 0 0: 0 0
NOREGUR 2 0 0 2 1: 3 0
HM 6. RIÐILL
N-ÍRLAND- MALTA ....3:0
N-ÍRLAND- ÍRLAND ....0:0
UNGVERJALAND N-lRLAND ....1:0
FJ.IeikJa U J T Mörk Stlg
N-lRLAND 3 1 1 1 3: 1 3
UNGVERJAL. 1 1 0 0 1:0 2
IRLAND 1 0 1 0 0:0 1
SPÁNN 0 0 0 0 0:0 0
MALTA 1 0 0 1 0: 3 0
HM 7. RIÐILL
LUXEMBURG - SVISS
LUXEMBURG- TÉKKÓSLÓVAKlA ...0:2
BELGlA- SVISS . ...1:0
FJ. lelkja U J T Mörk Stlg
SVISS 2 1 0 1 4: 2 2
TÉKKÓSL. 1 1 0 0 2: 0 2
BELGlA 1 1 0 0 1: 0 2
PORTÚGAL 0 0 0 0 0:0 0
LUXEMBURG 2 0 0 2 1: 6 0