Morgunblaðið - 20.10.1988, Síða 63

Morgunblaðið - 20.10.1988, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR RMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 1988 63 KNATTSPYRNA / UNDANKEPPNI HEIMSMEISTARAKEPPNINNAR ADN Atll EAvaldtson, fyrirliði íslands, spymir knettinum frá áður en Rainer Emst nœr til hans. Til vinstri er Gunnar Gíslason. li Enn hrellir t,eldingin Islendinga Andreas Thom hefur gert sjö mörk í þremur leikjum gegn íslandi ANDREAS Thom, hinn eldfljóti framherji Austur-Þjóðverja, hefur greinilega gaman af því að leika gegn Islandi. Thom, sem er kallaður „eldingin'* vegna þess hve snöggur hann er, skoraði bœði mörkin í 2:0 sigri á íslandi f Berlín í gœr. Hann skoraði einnia bœði mörkin f 2:0 sigri á Islandi f Kari Marx Stadt f undankeppni EM1986. Þá gerði Thom þrennu í 6:0 sigri Austur-Þjóð- verja á Laugardalsvellinum í sömu keppni ffyrra. Andreas Thom. „Mörkin erumér dýrmæt“ Mörkin tvö eru mér mjög dýr- mæt og ég er gífurlega ánægður," sagði Andreas Thom fyrirliði a-þýska landsliðsins eftir leikinn. Áður en FráJóni leikurinn hófst baul- H. Garðarssyni uðu áhorfendur á /A-Þýskalandi hann en eftir að hann skoraði var hann vinsælasti maður vallarins. „Mörkin sýndu austur-þýskum áhorfendum að ég er enn góður knattspymumaður og það er gott að hafa tryggt okkur dýrmætan sigur," sagði Thom. -Island Heimsmcistarakcppnin ( knaUspymu. A-Berlin, miðvikudagur 19. október 1988. Mörk A-Þýskalands: Andreas Thom 2 (34. ng 88. mln.). Ahorfendun 12.000. Dómari: Einar Halle, Noregi. Gul spjöld: Guðmundur Torfason, Atli Eðvaldsson og Rainer Emst. Rautt spjald: Sœvar Jónsson. Lið Íslands: Bjami Sigurðsson, Gunn- ar Gíslason, Ólafur Þórðarson, Sævar Jónsson, Guðni Bergsson, Atli Eðvalds- son, fyrirtiði, Ómar Torfason, Asgeir Sigurvinsson, Amór Guðjohnsen, Guð- mundur Torfason (Ragnar Margeirsson 77. mfn.) og Sigurður Grétarsson. Lið A-Þýskalands: Jörg Weissflog, Ronald Kreer, Dirk Stahmann, Matthi- as Linder, Matthias Doeschner, Jörg Stubner (Sammer 34. mln.), Jörgen Raab, Rainer Emst, Schössler, Ulf Kireten og Andreas Thom, fyrirliði. „Mistök dómarans kostuðu okkur mikið“ - sagði Siegfried Held, landsliðsþjálfari íslands „FYRRA markið sem Austur- Þjóðverjar skoruðu setti okkur út af laginu. Markið var ólög- legt, þar sem ýtt var á bakið á Guðmundi Torfasyni þegar knötturinn kom fyrir markið. Lfnuvörðurinn lyfti upp flaggi sínu, en hann setti það niður þegar Bernd Stange, þjálfari Austur-Þjóðverja hljóp út úr búrinu - í átt að línuverðin- um,“ sagði Siegfried Held, landsliðsþjálfari íslands, sem var ekki ánægður með norska dómarann, Einar Halle, sem dæmdi landsleik A-Þýskalands og íslands, sem A-Þjóðverjar unnu, 2:0. Dómarinn kom svo aftur við sögu þegar hann rak Sævar Jónsson af leikvelli. Sá dómur var Sævar fékk aðsjárautt m Eg átti að sjálfsögðu ekki að ýta við leikmanninum, en í hita leiksins - eftir að hann hafði brotið gróflega á Gunnari Gíslasyni, þá gekk ég að honum til að ýta honum frá. Austur-Þjóðvetjinn sýndi þá mikinn leikaraskap og kastaði sér niður á völlinn. Dómarinn féll fyrir leikaraskapnum og sýndi mér rauða spjaldið," sagði Sævar Jónsson, sem var rekinn af Ieikvelli á 71. mín. „Austur-Þjóðveijamir voru bæði búnir að ýta við Ásgeiri Sigurvins- syni og Gunnari Gíslasyni áður í leiknum, án þess að dómarinn gerði nokkra athugasemd. Kannski hefur það verið vegna þess að þeir Ás- geir og Gunnar voru ekki með neinn leikaraskap," sagði Sævar. Sævar Jónsson er fyrsti íslend- ingurinn sem hefur fengið að sjá rauða spjaldið i landsleik. Hann á nú jrfir höfði sér leikbann - eins eða tveggja leilqa bann í heims- meistarakeppninni. Það kemur í ljós þegar aganefnd FIFA kemur sam- an, hvað refsing Sævars verður þung. geysilega FráJóni Halldón Garóarssynii A-Berlin harður og óréttlátur. Þessi tvö mistök dómarans kostuðu okkur mikið," sagði Held, sem var ekki óánægður með leik sinna manna. „Strákamir léku vel, eða eins og ég sagði þeim að gera. Þeir börðust hetjulega og gáfust ekki upp þrátt fyrir hafa aðeins verið tíu að glíma við Austur-Þjóðveija undir lokin. Þeir reyndu að jafna, en náðu ekki að bijóta Austur-Þjóðveija á bak aftur. Með smá heppni hefði Sigurð- ur Grétarsson náð að jafna, en það var brotið á honum - fyrst var ýtt við honum og síðan sparkaði vam- arleikmaður Austur-Þjóðveija Sig- urð niður," sagði Held. „Það kom mér nokkuð á óvart hvað Austur-Þjóðveijir voru ragir við að sækja í byijun leiksins. Eg átti von á því að þeir myndu leika stífan sóknarleik gegn okkur, þann- ig að við fengjum tækifæri til að geysast fram í skyndisóknir og hrella vamarleikmenn þeirra. Við fengum fá tækifæri til þess, þar sem Austur-Þjóðveijar vom afar vark- árir,“ sagði Held og síðan bætti hann við: „Möguleikar okkar em ekki úr sögunni. Við eigum þijá heimaleiki eftir - gegn Austur- Þjóðveijum, Austurríkismönnum og Tyrkjum. Við verðum að ná góðum úrslitum í þessum þremur leikjum," sagði Held. íslendingar sektaðir? Atli og Gunnar báðir í skyrtu nr. 2 Það vakti mikla athygli að tveir leikmenn íslenska landsliðsins léku í skyrtu nr. 2 í seinni hálfleiknum gegn A-Þjóð- veijum. Gunnar FráJóni Gíslason, sem var H. Garóarssyni skráður á leik- lA-Þýskalandi skýrslu sem leik- maður nr. 2 og Atli Eðvaldsson, fyrirliði lands- liðsins sem var skráður nr. 3. Þetta er brpt á reglum FIFA og því mega íslendingar búast við sekt. Atli skipti um skyrtu í hálfíeik enda orðið heitt í hamsi og farinn að svitna. Hann skipti og fór í stutterma skyrtu. Hann ætlaði að sjálfsögðu að taka skyrtu nr. 3 en tók skyrtu nr. 2 í misgripum. Enginn tók eftir þessu fyrr en um seinan en í hátalarakerfinu á vell- inum var sagt að nú væri eitthvað undarlegt að gerast; tveir leik- menn Islands væru nr. 2. Eftir leikinn komu A-Þjóðveijar svo að máli við íslendingana og sögðu að þeir gætuð bókað sekt fyrir þetta. Gula spjaldiö skréð á Gunnar Atli Eðvaldsson fékk að sjá gula spjaldið í leiknum og var skráður í bók dómarans, sem leik- maður nr. 2. Það er því Gunnar Gíslason sem er skráður í leik- skýrslu með gult spjald. Þessi mistök Atla hefðu getað orðið dýrkeypt, þvf að ef Gunnar hefði fengið gula spjaidið undir lok leiksins, hefði hann í fram- haldi af þessu fengið að sjá rauða spjaldið, fyrir tvö gul spjöld í leiknum. Jón Halldór Garóarsson skrifarfrá Austur-Beriin Thom skoraði fyrra markið í gær á 34. mín. með þrumuskoti utan úr teig eftir homspymu og gulltrygði svo sigur Austur-Þjóð- veija tveimur mín. fyrir leikslok með skoti frá vítateig. Hann er greinilega einn þeirra sem gef- ast ekki upp fyrr en flautað er til leiksloka — í Karl Marx Stadt skor*P“' aði hann á 89. mín. og á þeirri 88. í Laugardalnum, eins og í gæri Thom skoraði fyrra markið eftir homspymu, en er knötturinn var á leið inn í teiginn brutu Austur- Þjóðveijar greinilega á Guðmundi Torfasjmi, sem gerði sig líklegan til að skalla frá. Hann náði þvi ekki til knattarins og því fór sem fór. „Við stukkum báðir upp, ég og Guðmundur, og honum var greinilega hrint. Þetta átti ekki að vera neitt annað en aukaspjma,ajp sagði Guðni Bergsson, vamarmað- urinn sterki, í samtali við Morgun- blaðið eftir leikinn. Sævar Jónsson var rekinn af velli á 71. mín. fyrir að ýta einum Austur-Þjóðveijanum, sem brotið hafði gróflega á Ólafi Þórðarsjmi. Þetta var algjör óþarfi og ljótt að sjá. „Það var mjög slæmt að missa Sævar útaf þegar við vomm að komast inn f leikinn. Þetta var furðulegur dómur þvf Sævar rétt stuggaði við honum. Austur-Þjóð- veijinn hlýtur að fá 9,95 fyrir góð- an og dramatískan leik þegar hann kastaði sér niður og greip um and- litið," sagði Guðni. „Okkur gekk þokkalega í vöminni. Það var að<C-_ visu erfitt að eiga við Thom. Hann er góður leikmaður en við vomm svo sem ekki stjarfir af skelfingu. En það var leiðinlegt að fá þessi mörk á sig og ég er alls ekki sáttur við tap,“ sagði Guðni Bergsson. íslendingar lögðu mesta áherslu á vömina, léku skynsamlega en beittu skyndisóknum. Þær urðu hins vegar fáar og lítt hættulegar. Liðið lék mjög aftarlega en kom framar á völlin eftir hlé, án þess þó að ógna austur þýska markinu vemlega. „Stigin ern okkur mjög mikilvæg“ - sagðiStange, þjálfari A-Þýskalands w ■ Eg er vissulega ánægður með sigurinn en með smá heppni hefði fsland getað náð öðm stiginu." En þessi stig era okkur mjög mikil- væg,“ Bemd Stange, þjálfari A- Þýskalands í samtali við Morgunblaðið. „Þrátt fyrir að við höfum sigrað í þessum leik er ljóst að við þurfum að leika betur í næstu leikjum. Gegn Sovétríkjunum og^ Austurríki verðum við að sýna betri knattspymu," sagði Stange. FráJóni H. Garðarssyni ÍA-Þýskalandi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.