Morgunblaðið - 26.10.1988, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1988
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1988
25
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
BjörnJóhannsson,
ÁrniJörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst IngiJónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, pími 691100. Auglýsingar:
Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033.
Áskriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 70 kr. eintakið.
Kasparov
og sovéska kerfið
Garrí Kasparov, heimsmeist-
ari í skák, varð sigurvegari
á Heimsbikarmóti Stöðvar 2,
sem lauk í Borgarleikhúsinu í
fyrradag. Kasparov er mikill og
sérkennilegur baráttumaður,
eins og sést í Morgunblaðssam-
tali við hann í gær. Þar kemur
glöggt fram, að enginn nær
langt á skákbrautinni nema sá,
sem er til þess búinn að helga
sig skáklistinni og efla með sér
baráttuþrek og styrk. Kasparov
lætur sér ekki nægja að berjast
við andstæðinga sína á skák-
borðinu heldur býður hann þeim
einnig birginn utan þess. Þannig
hefur hann sagt forráðamönn-
um FIDE, Alþjóðaskáksam-
bandsins, og stjómendum sov-
éska skáksambandsins stríð á
hendur og ögrar þeim með
margvíslegu móti, svo sem því
að stofna Stórmeistarasam-
bandið til að gæta hagsmuna
atvinnuskákmanna.
í samtalinu við Kasparov
kemur fram sami efínn um sov-
éska stjómkerfíð og hjá öðrum,
er gera sér grein fyrir því að
sósíalisminn hefur í raun mnnið
sitt skeið. Kasparov kveður
vissulega ekki eins fast að orði
og forveri hans í heimsmeistara-
stólnum, Boris Spasskíj, sem
sagði í Morgunblaðssamtali fyrir
skömmu, að hann hefði ekki hug
á því að snúa til ættjarðar
sinnar, Sovétrílganna, við nú-
verandi aðstæður: „Það er svo
sársaukafullt fyrir mig að sjá
hið mikla ríki eins og Rússland
var fyrir byltinguna sokkið í
smánarlegt tóm. Ég treysti
Gorbatsjov ekki,“ sagði
Spasskíj. Kasparov segist reyna
að gera allt sitt besta fyrir ætt-
jörðina og telur einu leiðina þá,
að reyna að hjálpa fólki innan
ramma kerfísins. Hann telur
stefnu Gorbatsjovs einu leiðina
í „átt til eðlilegs ríkis, eðlilegra
laga, eðliiegs mannlífs, eðlilegra
viðskiptahátta og frelsis fyrir
þjóðina. Ég legg ríka áherslu á
frelsi í viðskiptum. Ég reyni að
beita mér mjög á þessu sviði.“
í framhaldi af þessu er heims-
meistarinn spurður, hvort frjálst
markaðskerfí samrýmist sósíal-
ismanum og hann svarar:
„Ég veit það ekki, ég vona
það. Eg get komið með samlík-
ingu úr skákinni. Ef staðan er
góð þá getur maður leyft sér
hitt og þetta. Ef staðan er mjög
slæm þá verður maður að feta
einstigið út úr vandræðunum.
Þá tjóir ekki að hugsa langt
fram í tímann heldur einungis
um það að bjarga því sem bjarg-
að verður." Og á öðrum stað
segir hann að kerfískarlar í
skáklífínu í Sovétríkjunum sæki
vald sitt í einokunina, sem sé í
sínum ýmsu myndum helsta
vandamál landsins. „Ég ætla
mér að bijóta þessa einokun á
bak aftur,“ segir Kasparov.
í stuttu máli dregur Kasparov
upp ófagra mynd af hinu staðn-
aða sósíalíska einokunarkerfi
Sovétríkjanna, án þess þó að
hann lýsi yfir því að hann ætli
að starfa utan þess. I orðum
hans endurspeglast vafalaust
vonir margra sovéskra afreks-
manna, sem vilja ekki yfirgefa
ættjörðina, enda er sagt að
málflutningur Gorbatsjovs sé
ekki síst sniðinn með það í huga
að hann falli slíkum mönnum í
geð. Hvort Kasparov tekst að
tefla skákina við sovéska kerfið
til vinnings skal ósagt látið.
Hann hefur óneitanlega óvenju-
lega góða stöðu vegna sniili
sinnar, sem hann sýndi enn einu
sinni á Heimsbikarmóti Stöðvar
2.
íslenskt
ævintýri
ær þjóðir eru ekki margar
sem geta státað sig af því,
að í sjónvarp þeirra sé flutt um
þúsund ára gamalt ljóð á sömu
tungu og þær tala enn þann dag
í dag. Þetta gerðist á sunnu-
dagskvöldið, þegar Gunnar Eyj-
ólfsson, leikari, flutti Höfuð-
lausn Egils Skallagrímssonar
með eftirminnilegum hætti í
þætti ríkissjónvarpsins Úr ljóða-
bókinni.
Egill Skallagrímsson flutti
Höfuðlausn að sögn við hirð
Eiríks blóðaxar í Jórvík á Eng-
landi. Nú berast þær fréttir það-
an, að vegagerðarmenn hafí
ákveðið að leggja lykkju á leið
sína umhverfís haug Eiríks blóð-
axar, sem enskir sagnfræðingar
segja að hafí fallið í skærum í
Stainmoor, skammt frá Jórvík,
954. A Englandi skilja menn
ekki Höfuðlausn nú á tímum,
þótt þeir vilji varðveita gröf
Eiríks blóðaxar. Það er hið
íslenska ævintýri, að hún skuli
flutt íslenskum áheyrendum eins
og Egill gerði forðum höfði sínu
til bjargar.
Samdráttur í þorsk-
veiðum bitnar fyrst á
innlendu mörkuðunum
- segja ft’amkvæmdastjórar fiskmarkaðanna
Frá fyrsta uppboðinu á Fiskmarkaði Vestmannaeyja.
„VIÐ ÓBREYTTAR aðstæður
held ég að innlendu fískmarkað-
imir verði fyrst útundan vegna
samdráttar í þorskveiðum,*1
sagði Finnur Sigurgeirsson,
framkvæmdastjóri Fiskmarkaðs
Vestmannaeyja, í samtali við
Morgunblaðið. „Haustin eru erf-
iðust fyrir fiskmarkaðina vegna
lítils afla á þeim tima. Við höfum
verið að selja fiill lítið magn að
undanförnu og ætlum að skoða
málin frá öllum hliðum um næstu
mánaðamót," sagði Finnur Sig-
urgeirsson.
„Ég er hins vegar ekki á móti
því að menn selji óunninn fisk á
erlendum mörkuðum þegar þar fæst
hátt verð fynr hann, eins og að
undanfömu. Ég held þó að allir séu
sammála um að einhver stjómun
þurfí að vera á útflutningi óunnins
fisks til að koma í veg fyrir verð-
hrun á erlendum mörkuðum," sagði
Finnur Sigurgeirsson.
„Gámaútflutningur hefur aukist
í haust en ég skil ekki af hveiju,
því það hefur fengist gott verð á
innlendu mörkuðunum að undan-
fömu,“ sagði Einar Sveinsson fram-
kvæmdastjóri fiskmarkaðarins í
Hafnarfirði. „Markaðurinn lifír
haustið hins vegar örugglega af.
Við stöndum í skilum við alla. Minni
þorskafli verður þó fyrst og fremst
að koma niður á gámaútflutningi
en með honum em Islendingar bún-
ir að endurbyggja fiskvinnslufyrir-
tæki í Englandi. Ef enskir verka-
menn verða látnir ganga fyrir þurf-
um við og allir aðrir í þessu þjóð-
félagi að pakka saman,“ sagði Éinar
Sveinsson.
„Það er of snemmt að tala um
að við séum að fara á hausinn,"
sagði Bjami Thors framkvæmda-
stjóri Faxamarkaðar í Reykjavík.
„Við þurfum alla vega eitt ár í við-
bót til að fá úr því skorið hvort
þessi tilraun með fiskmarkaðina
hafí heppnast. Við höfum hins vegar
verið að selja fisk fyrir svipað verð
og í fyrra en kostnaðurinn hefur
aukist mikið á síðastliðnu ári. Verð
á innlendu mörkuðunum hefur hins
vegar verið hátt að undanfömu
vegna lítils framboðs. Menn hafa
verið að vinna fiskinn með tapi,
meðal annars vegna þess hversu
mikill hráefniskostnaðurinn hefur
verið.
„Erum í gífurlegri
samkeppni við er-
lenda fiskmarkaði"
Ég held að samdráttur í þorsk-
veiðum komi til með að bitna á inn-
lendu fiskmörkuðunum fyrst og
fremst. Við erum í gífurlegri sam-
keppni við erlenda fiskmarkaði en
ég held að það sé ekki rétt að stjóm-
völd takmarki eða banni útflutning
á óunnum fiski til að bjarga inn-
lendu fískmörkuðunum. Menn ættu
einfaldlega að viðurkenna að þessi
tilraun með innlenda fiskmarkaði
hafí ekki heppnast. Það er eðlilegt
að menn selji óunninn fisk á erlend-
um mörkuðum þegar þar fæst hátt
verð fyrir hann. Útgerð og fisk-
vinnsla eiga í miklum erfiðleikum
og það verður hver og einn að bjarga
sjálfum sér,“ sagði Bjami Thors.
„Ef við fáum ekki lengur þorsk
til sölu getum við dregið saman
seglin og selt eingöngu til dæmis
ýsu, karfa, steinbít, keilu og löngu,“
sagði Ólafiir Þór Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðs Suður-
nesja. „Sú þjónusta, sem við getum
veitt, myndi hins vegar minnka.
Útflutningur á óunnum fiski hefur
aukist hlutfallslega að undanfömu
vegna aflasamdráttar. Það er erfitt
að keppa við erlenda fiskmarkaði
en ég yrði þó manna síðastur að
hvetja menn til að hætta að flytja
út óunninn fisk ef þeir fá hærra
verð fyrir hann erleiylis en hérlend-
is.
Ég held þó að menn geri sér ekki
alltaf grein fyrir því að útflutningur
óunnins físks í gámum kostar 7%
vigtarrýmun, 15% kvótaskerðingu
og ís- og umbúðakaup, þannig að
kostnaðurinn við útflutninginn er
allt að 25 krónur fyrir kílógrammið.
Það keyptu margir fisk á innlendu
mörkuðunum til að selja á mörkuð-
unum í Bretlandi en þeir eru allir
hættir því þar sem það borgaði sig
ekki.
Það er skynsamlegast að erlendir
aðilar, sem vilja kaupa óunninn fisk
af íslendingum, kaupi hann á
íslesnku fiskmörkuðunum. Stjóm-
völd fengju einnig mun betri upplýs-
ingar en nú um fískveiðar og -sölu
ef fiskurinn væri eingöngu seldur á
innlendu mörkuðunum," sagði Ólaf-
ur Þór Jóhannsson.
Vandræði Ungmennafélagsins Vorboðans:
Fengu tvisvar
rangar teikningar
af íþróttavelli
UNGMENNAFÉLAGIÐ Vorboðinn í A-Húnavatnssýslu hefúr lent í
hínu mesta basli við gerð íþróttavallar síns undanfarin 4 ár. Hafa þeir
í tvígang fengið sendar rangar teikningar af vellinum frá embætti
íþróttafúlltrúa ríkisins. Er vinnu var lokið við völlinn í fyrsta sinn
kom í ljós að hlaupabrautin við hann var 370 metrar en ekki 400.
Vorboðinn fékk þá aðra teikningu senda sem gerði ráð fyrir að
lengja völlinn um 20 metra. Eftir að það hafði verið gert kom í ljós
að beygjurnar á hlaupabrautinni voru of krappar. Nú verða félagar
í Vorboðanum því að breikka völl sinn um 7 metra til að koma honum
í eðlilegt horf.
í ljós að beygjurnar á hlaupabraut-
inni voru of krappar. Við eftir-
grennslan kom í ljós að þessi teikn-
ing var einnig röng og raunar átti
að vera búið að taka hana úr um-
ferð tveimur árum áður.
Valdimar segir að nú standi þeir
félagamir í Vorboðanum frammi
fyrir því að þurfa að breikka völlinn
um 7 metra og kosti það æma fyrir-
höfn. Því hafí þeir farið fram á að
fá þennan aukakostnað borgaðan
úr íþróttasjóði. Hann segir að ekki
sé hér um stórar upphæðir að ræða,
vallargerðin í heild standi nú í um
2 milljónum króna. Hinsvegar er
Vorboðinn ekki stórt félag né eigi
digra sjóði til að grípa til.
„Þetta hefur verið hið mesta basl
vegna þessara mistaka. Við ætlum
hinsvegar ekki að gefast upp og
höldum ótrauðir áfram við að koma
þessum velli okkar í lag,“ segir
hann.
Valdimar Guðnason, formaður
Vorboðans, segir að mál þetta sé
nú í biðstöðu. Félagið hafi farið fram
á það að fá aukakostnað við vallar-
gerðina greiddan úr íþróttasjóði en
ekki fengið svar við þeirri beiðni...
„Við fórum fram á þetta þar sem
ljóst er að íþróttafulltrúinn hefur í
tvígang sent okkur rangar teikning-
ar af vellinum," segir Valdimar.
Fyrir 4 árum réðst félagið í að
gera íþróttavöllinn á mel' í landi
Bakkakots. Verkið var að mestu
unnið í sjálfboðavinnu utan vinna
með stórum vinnuvélum. Við mæl-
ingu á hlaupabrautinni kom svo í
ljós að 30 metra vantaði til að hún
væri af löglegri stærð og reyndist
röng teikning hafa verið send þeim
af vellinum.
Vorboðinn fékk þá aðra teikningu
senda að sunnan og í henni var
gert ráð fyrir að lengja völlinn um
20 metra. Það var gert en þá kom
Hér sést einn af fímm nýjum Scania-sorpbílum borgarinnar, sem
keyptir voru á árinu. Leitað var tilboða hjá helstu umboðum við kaup
á bílunum, eins og á öðrum stórum bílum og tækjum sem borgin kaupir.
Borgin leitar tilboða í
öllum bílaviðskiptum
Reykjavíkurborg býður ekki út bifreiðaviðskipti sín á sama hátt
og Innkaupastofúun ríkisins, en hefúr fengið að ganga inn í tilboð
í bílakaup ríkisins og leitar tilboða í stærri bíla hjá helstu umboðun-
um. Hersir Oddsson, forstjóri Vélamiðstöðvar Reykjavíkurborgar,
segir að ekki hafí verið reiknað út nákvæmlega hve mikið borgin
spari með þessu, en það sé líklega álíka mikið hlutfallslega og ríkið,
þó að umsvifin séu miklu minni. Ríkið sparar um 86 milljónir króna
á ári með því að bjóða út bílakaup og tryggingar, eins og fram kom
í frétt í Morgunblaðinu fyrir skömmu.
Á þessu ári eyðir Reykjavíkur-
borg um 88 milljónum króna í kaup
á bílum og vélum, en þar af eru
20-22 milljónir króna í dráttarvélar,
valtara og gatnagerðartæki ýmis-
konar. Óvenjumikið var keypt af
smærri bílum, svo sem fólksbílum
og sendiferðabílum í ár, að sögn
Hersis Oddssonar, eða 25 stykki
sem kostuðu 12 milljónir króna.
Við þessi kaup hefur borgin fengið
að ganga inn í tilboð sem berast
Innkaupastofnun ríkisins.
Við tilboð á stærri bílum, svo sem
sorphreinsibílum og vörubílum, er
ekki gert almennt útboð, heldur er
leitað eftir tilboðum hjá helstu inn-
flytjendum slíkra bíla, sem síðan
gera Innkaupastofnun Reykjavíkur-
bórgar skriflegt tilboð. Hersir sagði
að engir bílar eða vélar væru keypt
án þess að leita hagstæðustu kjara.
Aðrir aðilar gætu notið góðs af
þessu, til dæmis hefði Hafnarfjarð-
arbær nýlega keypt bíl með því að
ganga inn í tilboð til borgarinnar.
Þá hefur verið leitað tilboða i
tryggingar á bílum Reykjavíkur-
borgar og gengið að sérstökum
kjörum Brunabótafélags íslands.
Kaup á strætisvögnum eru einn
stærsti liðurínn í bílakaupum borg-
arinnar, én um 20 vagnar eru
keyptir á 3-4 ára fresti. Eyjólfur
Kolbeinsson hjá Innkaupastofnun
Reykjavikurborgar sagði að við þau
kaup færi fram eins konar útboð,
sem væri auglýst sem verðkönnun.
Nú færi ein slík fram og væri skila-
tími á tilboðum þann 1. nóvember,
en það gæti tekið fram yfir áramót
að fara yfir þau tilboð sem bærust
og taka ákvarðanir um næstu kaup.
Pakistan: AF ERLENDUM VET7VANGI
------ eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Því er spáð að einn lífs
og tveir liðnir selji svip
á kosningabaráttuna
EFTIR að hæstiréttur Pakistans kvað upp þann úrskurð, að kosn-
ingarnar í landinu þann 16. nóvember skyldu fara fram á flokks-
legum grundvelli, hefúr færst §ör í leikinn. Frambjóðendur fara
um landið þvert og endilangt og segja að nú muni verða mjög
erfitt fyrir yfirmenn hersins að reyna að hafa rangt við í kosning-
unum. Fréttaritari ritsins Far Eastern Economic Review í La-
hore, Ahmed Rashid, Qallar um útlit og horfúr í nýjasta hefti
blaðsins og er stuðst við grein hans hér. Hann segir að eftir öll-
um sólarmerkjum að dæma muni tveir framliðnir menn hafa
hvað mest áhrif á gang kosningabaráttunnar, sem hafin er.
ar er vitanlega átt við draug
Zia-ul Haqs, forseta, sem
fórst í flugslysi í ágúst, eins og
rækilega hefiir verið fjallað um
og nú upplýst að hafi trúlega ver-
ið um hryðjuverk að ræða, og
hins vegar Zulifikar Ali Bhutto,
sem Zia lét taka af lífi árið 1979
fyrir að hafa átt hlut að því að
fyrirkoma pólitískum andstæð-
ingi.
Zia hefur þegar verið tekinn
opinberlega í dýrlingátölu, af
hemum svo og stjórnmálamönn-
um, sem hyggja að það geti orðið
þeim til framdráttar að nota nafn
hans til að halda völdunum. Þá
hefur Benazir Bhutto óspart og
allar götur frá því hún hóf að
skipta sér af stjómmálum notað
nafn föður síns. Pólitísk stefna
þessara tveggja píslarvotta vegur
töluvert í hugum kjósenda í Pa-
kistan sem vita ekki svo glöggt
um stefnu annarra en þessara
tveggja manna.
Þegar Zia fórst, ásamt blóman-
um af yfirmönnum hersins,
brugðu borgaralegir skjólstæð-
ingar hans í ríkisstjóminni við
skjótt og reyndu að byggja upp
dýrkun á honum. Flugvöllurinn í
Islamabad verður skírður upp á
nýtt og honum verður helgað nýtt
sjúkrahús, götur í flestum bæjum
og borgum munu fá nafn hans.
Ákveðið hefur verið að heimili
hans í Rawalpindi verði gert að
safni í hans minningu. Forsvars-
menn ríkisútvarpsins í landinu
fengu fyrirmæli um að setja orðið
shaheed, sem þýðir píslarvottur,
jafnan fyrir framan nafn hans ef
á Zia væri minnst.
Hinir ýmsu héraðsstjómendur
og ráðherrar drifu síðan í því að
ná samkomulagi við hægrisinnaða
flokka og fá islamska smáflokka
á sitt band til að vera sterkari í
glímunni við Lýðræðislegu endur-
reisnarhreyfínguna og Þjóðar-
flokkinn, en þessir tveir eru öflu-
gustu stjómarandstöðuflokkamir.
En ekki er nóg með að tveir
framliðnir píslarvottar kunni að
verða fyrirferðarmiklir í kosn-
ingabaráttunni, einn píslarvottur
í viðbót er nefndur til sögunnar
og sá lífs, það er Mohammed
Khan Juneijo fyrrverandi forsæt-
isráðherra. Zia forseti rak hann
úr embætti í maí, þegar honum
þótti orðið nóg um hversu ráðrík-
ur Juneijo var og hafði einnig
orðið þess vísari, að hann naut
vaxandi hylli meðal almennings.
Það er varla að efa að brottvikn-
ing Juneijos úr starfí kom af stað
alvarlegri pólitískri kreppu. Ju-
neijo segist vera píslarvottur og
fómarlamb valdagræðgi og ólýð-
ræðislegra hugmynda Zia forseta
og sá málflutningur hans hefur
fengið veralegan hljómgrann.
Juneijo er fulltrúi þess afls inn-
an kerfisins sem hugnast ekki
málflutningur Bhuttos né heldur
sættir hann sig við þá stefnu sem
eftirmaður Zia hefur fylgt. Hann
fullyrðir að í rauninni sé hann
eini sanni lýðræðissinninn sem
geti leitt landið á rétta braut og
segist visa á bug lýðskrami
Benazir Bhuttos og annarra
Benazir Bhutto
stjómarandstæðinga og stjómar-
sinna.
Sumir fréttaskýrendur héldu
að stuðningur við Benazir Bhutto
myndi fara þverrandi eftir að böð-
ull föður hennar, Zia forseti, hafði
nú sjálfur horfið til feðra sinna.
Margir hafa sakað hana um að
hafa enga stefnuskrá aðra en
heimta hefnd yfír Zia og því gæti
svo farið, að fylgið hryndi af henni
nú. En á það ber að líta að Benaz-
ir nýtur mikilla persónulegra vin-
sælda og það hefur ekki dregið
úr þeim, eftir að hún ól eigin-
manni sínum sveinbam fyrir
skemmstu. Hún hefur upp á síð-
kastið hamrað á því að hún væri
hvort tveggja í senn lítilmagninn
og fulltrúi hins pakistanska lítil-
magna sem vildi heyja heiðarlega
og alvarlega baráttu í þágu þeirra
sem illa væru settir í þjóðfélag-
inu. Þetta hefur mælst vel fyrir
að sögn Ahmeds Rashids, frétta-
ritara Far Eastern Economic
Review.
Þó svo að Zia hafi verið tekinn
í dýrlingatölu og stuðningsmenn
hans reyni hvað þeir mega til að
benda á hvað hann hafí aukið
hróður landsins á alþjóðavett-
vangi og átt þátt í ýmsum umbót-
um sem til framfara horfi, era
þó kannski öllu fleiri sem tengja
hann herlögum, einræðisstjóm og
því að hann hafði engin áform á
prjónunum um að snúa Pakistan
aftur til lýðræðis, hvað sem leið
loðnum yfírlýsingum hans annað
veifíð, svo og loforðum um kosn-
ingar, sem hann sveik mörgum
sinnum.
Benazir Bhutto hefur í máli
sínu færst nokkuð lengra til
hægri, væntanlega til að afla sér
stuðnings innan stjómkerfísins og
sannfæra herinn um að hún gæti
orðið traustur og áreiðanlegur
Zia, dáinn dýrlingur og písiar-
vottur.
þjóðhöfðingi. Hún hefur varpað
fyrir róða slagorði föður síns S
kosningunum 1970 um „brauð,
föt og húsaskjól handa öllurn" og
segir að það sé of róttækt.
Nokkur vafi er á því hversu
þungt píslarvottamálið vegur þeg-
ar út í alvörana er komið. Sunni
múhameðstrúarmenn sem era
meirihluti Pakistana hafa ekki
jafn tilfínningaríka afstöðu til
dýrlinga og píslarvotta eins og
shiar sem eru um 25% þjóðarinn-
ar. Og í grein Ahmeds Rashids
segir einnig að þorri almennings
geri sér grein fyrir að meginmálið
sem er í húfi, hvaða flokkur sem
í hlut á, sé ekki hvaða dýrlingur
sé bestur, heldur hver verður
staða hersins í landinu í nánustu
framtíð.
Stjómmálasérfræðingar segja
að í bili sé ekki ástæða til að ótt-
ast að svindl verði í kosningunum.
Þeir segja að kannski verði kosn-
ingamar til þess að vofur þeirra
Zia og Bhuttos verði kveðnar nið-
ur í eitt skipti fyrir öll og Pakist-
anar geti snúið sér að því að
móta lýðræðislega alvörastefnu.