Morgunblaðið - 26.10.1988, Page 45
MORGUNBLAÐEÐ IÞROTT1R MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1988
45
FRJALSAR IÞROTTIR
ÞjálfaH
Kristiansen
ogWaitz
til Islands
JOHAN Kaggestad, þjálfari
norsku hlauapdrottninganna
Grete Waitz og Ingrid Krist-
iansen, hefur samþykktþá ósk
Frjálsíþróttasambands Islands
að koma hingað til lands og
miðla af þekkingu sinni. Að
sögn Ágústs Ásgeirssonar,
formanns FRÍ, er nú unnið að
því að finna heimsókninni tíma.
Kaggestad hefur verið lands-
þjálfari Norðmanna í lang-
hlaupum og hefur árangur norskra
hlaupakvenna undanfarin áratug,
og einnig karla í seinni tíð, vakið
mikla athygli. Er hann eftirsóttur
fyrirlesari á námskeiðum og þjálf-
unarráðstefnum. Erlingur Jóhanns-
son, íslandsmethafi í 800 metra
hlaupi, sem búsettur er í Noregi og
þekkir Kaggestad, hefur óskað eftir
því við hann fyrir hönd FRÍ að
hann komi í heimsókn til fslands.
Sagðist Kaggestad hafa lengi lang-
að að koma til íslands og sam-
þykkti strax að koma og miðla af
þekkingu sinni hérlendis. Hann er
hins vegar umsetinn og tími því
vandfundinn til að koma í bráð en
vonast er til að af heimsókninni
verði nú í haust.
„Stjóm FRÍ samþykkti að gera
sérstakt átak til þess að stuðla að
Johan Kaggestad.
framförum í millilengda- og lang-
hlaupum. Liður í því verður þátt-
taka í Heimsmeistaramótinu í víða-
vangshlaupum í Stavanger í Noregi
í mars á næsta ári. Þá bindum við
miklar vonir við að heimsókn Kag-
gestad, ef tekst að koma henni í
kring, auki þekkingu þjálfara og
hlaupara á langhlaupaþjálfun og
að hún verði til þess að hvetja alla
viðkomandi til dáða,“ sagði Ágúst.
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
Sigurður með UBK
SIGURÐUR Þorsteinsson
þjálfar 2. deildarlið Breiða-
bliks í knattspyrnu fyrir næsta
keppnistímabil. Gengið hefur
verið frá ráðningu Sigurðar,
aðeins á eftir að skrifa undir
samning.
Sigurður er ekki ókunnugur f
herbúðum Blikanna. Hann
tók við liðinu eftir 12. umferð í
sumar, ásamt Vigni Baldurssyni,
er Pólveijinn Gregorz Bielatowicz
hætti störfum. Lið Breiðabliks var
þá í mikilli fallhættu, en var í 7.
sæti þegar upp var staðið.
Vignir Baldursson hefur ákveð-
ið að taka sér frí frá þjálfun, en
aðstoðarmaður Sigurðar verður
Guðmundur Helgason, sem verður
einnig þjálfari 2. flokks Breiða-
bliks.
Þess má geta til gamans að
Sigurður Þorsteinsson tók einnig
við meistaraflokki Breiðabliks
sumarið 1982, er það lék í 1.
deild. Þá var það Þjóðverðinn
Fritz Kissing sem var rekinn frá
félaginu og „bjargvætturinn" Sig-
urður tók við og hélt liðinu uppi.
„Hann þjálfaði 2. flokk félagsins
það sumar, en flokkurinn varð þá
Islandsmeistari með fullu húsi
stiga — vann alla sína leiki,“ sagði
Sigurvin Einarsson, formaður
knattspymudeildar Breiðabliks, í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Sigurður er formaður knatt-
spymuþjálfarafélags íslands.
Því má bæta við að Guðmundur
Þ. Guðmundsson, fyrrum leik-
maður Breiðabliks, hefur æft með
Blikunum í haust, þó ekki sé enn
ljóst hvort hann verður með liðinu
næsta sumar. Hann lék með Völs-
ungi í sumar.
Bannað að stíga
á tær dómarans
Frank Röset, leikmaður 2.
deildar liðs Elverum í hand-
knattleik, hefur verið dæmdur í
sex mánaða leikbann fyrir væg-
ast sagt kjána-
legt brot, sem
átti sér stað í leik
Elverum og
Fjellhammer fyr-
ir skömmu, þar sem Fjell-
hammer vann 28:20.10 sekúnd-
um fyrir leikslok sýndi Svein
Kvisle dómari Röset rauða
spjaldið og þakkaði ieikmaður-
inn fyrir sig með því að ganga
að dómaranum og stiga fast á
tæmar á honum, sem kærði.
Fró
Sigurjóni
Bnarssyni
ÍNoregi
AMERISKI FOTBOLTINN
Efstu liðin unnu
ENN eiga stjórnendur NFL-
liðanna í ameríska fótboltanum
í erfiðleikum. Margir þeirra
hafa misst úr leiki vegna
meiðsla og um helgina áttu
margir þeirra í erfiðleikum áð
eiga við varnarlið andstæðing-
anna. Um helgina bættist stór-
stjarna Denver Broncos, John
Elway, í hóp meiddra stjórn-
enda þegar hann varð að fara
meiddur af leikvelli í Pitts-
burgh. Lið hans náði sér aldrei
á strik í þessum leik sem það
átti að vinna samkvæmt styrk-
leika liðanna.
■ ■
Oll efstu liðin unnu nú um helg-
ina í áttundu umferð deildar-
innar. Buffalo sigraði New England
23:20, en Buffalo gat jafnað leikinn
HBI með snertimarki
Gunnar þegar 14 sekúndur
Valgeirsson vora eftir. Tilraun
skrífar liðsins mistókst
hinsvegar og Buff-
alo hefur því unni sjö af fyrstu átta
leikjum sínum. Gott afrek hjá liði
sem gat vart unnið leik fyrir þrem-
ur til fjórum áram.
Bengals með met
Cincinnati Bengals heldur áfram
sigurgöngu sinni eftir ósigur um
sl. helgi. Nú sigraði liðið Houston
44:21. Bengals gerði í raun út um
leikinn strax í fyrsta leikhluta, en
þá skoraðu leikmenn liðsins 28 stig
og náðu öraggri foiystu. Þetta var
nýtt stigamet hjá félaginu í einum
leikhluta og eftir þessar hamfarir
var sigur liðsins aldrei í hættu.
Bemie Kosar tók við stjómar-
taumunum hjá Cleveland að nýju
eftir meiðsl og stjómaði liði sínu til
sigurs gegn Phoenix, sem nú viðist
aðeins vera að missa flugið eftir
gott upphaf á keppnistímabilinu.
Washington Redskins vann
Green Bay í Milwaukee 20:17. Þar
gat Green Bay jafnað leikinn og
knúið fram framlengingu með því
að skora snertimark af 18 metra
færi þegar rúmar 20 sekúndur vora
til leiksloka. Slíkt færi er talið nokk-
uð öraggt, en sparkari Green Bay
var eitthvað taugastrekktur og hitti
ekki markið og Redskins slapp þar
með með skrekkinn.
í Miami tókst leikmönnum New
York Jets að komast fjóram sinnum
inn í sendingar besta stjómandans
í deildinni, Dan Marino hjá Miami.
Marino kastaði þó knettinum sam-
tals 521 metra í leiknum, sem er
frábært afrek. Þetta dugði liði hans
þó ekki til sigurs, því Jets vora í
stuði og unnu ^4:30. Þess má geta
að besti vamarmaður Jets, Mark'
Gastinau, tilkynnti forráðamönnum
liðsins að hann væri hættur að spila
fyrir fullt og allt. Unnusta Gasti-
nau, Birgitte Nilsen (fræg dönsk
fyrirsæta sem bjó með Silvester
nokkram Stallone), er sögð hafa
fengið krabbamein og Gastinau vill
frekar eyða tíma sínum með henni
en elta leikmenn með hjálma og
leðurtuðra.
Leikur botnliðanna Kansas City
og Detroit þótt afspymulélegur og
mátti sjá marga vallargesti geispa
á leiknum, en 20 þúsund þeirra
fengu frítt inn þar sem banki einn
í Kansas-borg vildi sína stuðning
sinn við liðið með þvi að bjóða þess-
um ijölda frítt á leikinn. Höfðu
margir þeirra á orði að þeir hefðu
betur heima setið. í kaupbæti tap-
aði heimaliðið 7:6!
Á mánudagskvöld sigraði
Chicago lið San Fransico 10:9 í
hörkuleik. Þá vann New Orieans lið
Los Angeles Raiders 20:6. Lið Buff-,
alo, Cincinnati, Chicago og New
Orleans hafa öll unnið sjö af fyrstu
átta leikjum sínum á þessu keppn-
istímabili, sem nú er hálfnað.
Annars urðu úrslit leikja í 8.
umferð þessi:
Cincinnati-Houston.............44:21
Buffalo Bills-New England......23:20
Philadelphia-Dallas Cowboys....24:23
New Orleans-Los Angeles Raiders...20:6
Washington-Green Bay Packers...20:17
New York Giants-Atlanta........23:16
Minnesota Vikings-Tampa Bay....49:20
Detroit Uons-Kansas CKy Chiefs...7:6
PKtsburgh-Denver Broncos.......39:21
Cleveland-Phoenix Cardinals....29:21
Indianapolis-San Diego..........16:0
Los Angeles Rams-Seattle.......31:10
New York Jets-Miami Dolphins...44:30
Chicago Bears-San Fransico......10:9
KNATTSPYRNA / ENGLAND
Glenn Cockeri II
sökkti Tottenham
Skoraði tvívegis í
Hart Lane í
GLENN Cockeriil tryggði Sout-
hampton sigur á Tottenham í
ensku 1. deildinni í knattspyrnu
í gærkvöldi með því að skora
bæði mörk liðsins í 2:1 sigri.
Leikurinn fór fram á White
Hart Lane, velli Tottenham.
Cockerill er fyrir skömmu kom-
inn inn í Southampton-liðið á
ný eftir að hann kjálkabrotnaði í
leik. Hann skoraði fyrra markið í
gær á 69. mín. með þramuskoti og
sjö mín. fyrir leikslok náði Cocker-
ill knettinum við miðlínu vallarins,
lék alla leið upp að vítateigog skor-
aði öragglega framhjá Bobby
Mimms í markinu. Mark Tottenham
var sjálfsmark Ray Wallace á 16.
mín. Southampton er í toppbarátt-
unni en Tottenham hins vegar í
næst neðsta sæti. Tottenham fékk
nokkur mjög góð tækifæri til að
skora, þ. á m. enski landsliðsmaður-
inn Chris Waddle tvö, en allt kom
2:1 sigri á White
gærkvöldi
fyrir ekki og því fór sem fór.
Þá gerðu Luton og Arsenal jafn-
tefli í Luton, 1:1. Alan Smith skor-
aði enn einu sinni fyrir Arsenal —
kom liðinu yfir á 13. mínútu. En
vonir leikmanna Arsenal um sjötta
sigurinn í röð urðu að engu er norð-
ur írski landsliðsmaðurinn Kingsley
Black jafnaði á 56. mín., með marki
beint úr aukaspymu. Arsenal komst
viðþetta í þriðrja sæti deildarinnar.
Urslit á Englandi í gærkvöldi'
urðu annars sem hér segir 1. deild: I.uton - Arsonal 1:1
Tottenham - Southampton.... 1:2
2. deild:
Birmingham - Stoke 0:1
Crystal Palace - Oxford 1:0
Hull - Chelsea 3:0
Ipswich - Portsmouth 0:1
Öldham - Boumemouth 2:0
Plymouth - Shrewsbury 0:0
Sunderland - Blackbum 2:0
Watford - Bamsley 4:0
JUDO
Tékki ráðinn
landsliðsþjálfari
TÉKKINN Michal Vachun hef-
ur verið ráðinn landsliðsþjálf-
ari íslands í júdó til næstu
tveggja ára.
Vachun hefur áður þjálfað hér
á landi, hann hóf einmitt
þjálfaraferil sinn á íslandi. Hann
starfaði hér frá 1973 til 1975, en
hefur síðan verið landsliðsþjálfari
Tékka síðustu þrettán ár, frá
1975. Vachun tók síðan við
íslenska landsliðinu núna strax
eftir Ólympíuleikana og er kominn
til landsins.
Hann mun vera einn eftirsótt-
asti júdóþjálfari í Evrópu og er
mjög virtur í sínu fagi.
Kynningarfundur
verður á vegum íslenskra getrauna með íþróttafélögunum á
höfuðborgarsvæðinu fimmtu-
daginn 27. október kl. 20.00 í
húsnæði ÍSÍ í Laugardal.
Sending frá
ESCADA
,,||I
TIZKAN
Laugavegi 71 II haeð Simi 10770