Morgunblaðið - 27.10.1988, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 1988
49
úðgu landnámskonu, Hvammi, Döl-
um.
Nú þegar leiðir skilja þá verður
manni hugsað aftur til hinna ótal
skipta er ég var gestkomandi á hinu
mikla rausnarheimili þeirra Ingi-
bjargar og Stephans. Þangað var
ávallt gaman og notalegt að koma,
sem stafaði af hinni léttu lund
Stephans og áreiðanleik Ingibjarg-
ar. Hjá Stephani var ávallt grunnt
á glettni, og átti hann til að vera
óhemju stríðinn og fór hann ekki í
manngreinarálit í því á hveijum það
lenti. Frændrækinn var hann með
mesta móti. Hafði hann gaman af
allri umræðu um íjölskyldu sína og
ætt, enda var hann fróður mjög í
þeim efnum. Áttum við minniháttar
grúskarar í þeim fræðum gott að
geta leitað í smiðju til Stephans.
Minnist ég þess ekki að hafa nokk-
um tímann komið að tómum kofun-
um hjá honum um nokkum hlut er
varðaði forfeður okkar. Þá vissi ég
engan mann duglegri og fómfúsari
í að nálgast og forða frá glötun
gömlum munum er tilheyrðu ein-
hveijum forvera okkar. Stephan
varði ómældum tíma og fjármunum
í að bjarga hlutum frá því að glat-
ast ættinni, og eigum við smælingj-
amir í fjölskyldunni Stephani mikl-
ar þakkir að gjalda.
Stephan var vel kirkjurækinn.
Mun það hafa þótt tíðindum sæta
ef hann vantaði í messu í Dómkirkj-
una. Alltaf var Stephan mættur í
hinu sama sætinu, og væri ég ekki
hissa þótt kirkjuvörðurinn hafi stillt
úrið sitt eftir honum. Menn komust
ekki hjá því að veita Stephani eftir-
tekt hvar sem hann fór, því hann
var tiginmannlegur í fasi og vörpu-
legur á velli.
~ ••,
4...'. '> .a v_____________________Z 7 J. #
Einar Farestveit&Co.hf.
BOMARTIM M, UMAM. (•<) 1HN OO 111*00 - WO llUIT/M
Leið 4 stoppar við dyrnar
Nú er skarð fyrir skildi í fjöl-
skyldunni. Að Stephani gengnum
em aðeins eftir af 11 systkinum
þær Elín Stephensen á Egilsstöðum
og Ingibjörg Stephensen á Seltjam-
amesi. Ég leyfi mér að vona að
Stephani vegni vel á þeim brautum
er hann hefur nú hafíð vegferð sína
á. Er það nú varla efamál þar sem
hið fomkveðna segir að þeir deyi
ungir sem guðimir elska, og á það
svo sannarlega við um hann Steph-
an. Hann var ungur allt til enda,
eins og reyndar á við um systkini
hans.
Ég bið þess að endingu að algóð-
ur Guð styrki eftirlifandi konu
Stephans, Ingibjörgu frænku mína
Guðmundsdóttur Böðvarssonar, í
hinum mikla missi hennar, og sendi
Ólafí, einkasyni þeirra, og fjöl-
skyldu hans innilegustu samúðar-
kveðjur.
Þorsteinn Halldórsson
MITSUBISHI
JJmALANT
1989
BILL FRA HEKLU BORGAR SIG
0HEKLAHF
Laugavegi 170 -172 Simi 695500
VERÐFRAKR.
714.000,-
Áskriftarsíminn er 83033
TVIEFLDAR
TROPIC VÉLAR
Tropic heitir sambyggð þvottavél og þurrkari frá Zerowatt.
Hún er tvíefld í orðsins fyllstu merkingu - afkastagetan
allt að því tvöföld á við venjulegar þvottavélar.
Nokkrir kostir:
Þvottavél + þurrkari í einni og sömu vél
(B-H-D) 60sm x 85sm x 60sm
Þvær allt að 7 kg í einu (tveir þvottar
jafngilda þremur í venjulegri þvottavél)
Þvær og þurrkar 4 kg á 60 mínútum
400-1000 snúninga
28 þvottakerfi
Engin gufumyndun
Sparneytin
■* “iu
SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 SÍMAR 6879/0-68 /266
85.40