Morgunblaðið - 25.11.1988, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988
3
. *
Astæða áfrýjunar í Sturlumáli:
Dómurinn talinn jafii-
gilda óútfylltum tékka
FORSENDA þess, að fjármálaráðherra ákvað í sumar að áfrýja
svonefndu Sturlumáli til Hæstaréttar, var sú, samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins, að ríkislögmaður taldi niðurstöðu borgar-
dóms Reykjavíkur jafiigilda því, að skilinn væri eftir óútfylltur
tékki fyrir alla forstöðumenn rikisstofiiana til að fara að ásettu
ráði fram úr fjárlögum. Ólafur Ragnar Grimsson fjármálaráð-
herra segist ekki líta svo á, að með því að hætta við áfrýjun sé
hann að gefa fordæmi fyrir því, að hægt sé af ásettu ráði að
fara framúr Qárlagaheimildum.
Sverrir Hermannsson fyrrver-
andi menntamálaráðherra vísaði
Sturlu Kristjánssyni úr embætti
fræðslustjóra Norðurlands eystra í
ársbyijun 1987, fyrir að hafa farið
fram úr fjárlagaheimildum og brot-
ið trúnað við menntamálaráðuneyt-
ið. Sturla höfðaði síðan skaðabóta-
mál vegna brottvikningarinnar.
I niðurstöðu borgardóms
Reykjavíkur var staðfest að um-
framnotkun fræðsluumdæmis
Norðurlands eystra hefði á árinu
1986 verið 4,2% umfram heimildir,
eða rúmlega 10 milljónir króna.
Dómurinn taldi einnig að Sturla
hefði bugðist starfsskyldu sinni með
því að heimila sérkennslu umfram
fjárlagaheimildir, og brotið trúnað
við menntamálaráðherra við stjóm-
un embættis síns og í opinberri
umfjöllun. Hins vegar þóttu sakir
hans ekki nægilega alvarlegar til
að réttlæta fyrirvaralausa brott-
vikningu að fullu, og einnig hafi
form brottvikningarinnar verið
ábótavant. Því voru Sturlu dæmdar
900 þúsund krónur í skaðabætur.
Jón Baldvin Hannibalsson þáver-
andi fjármálaráðherra ákvað að
Loðnuveiðar:
Fullt tungl
og lítil veiði
FULLT TUNGL var í fyiri-
nótt og því lítil loðnuveiði,
að sögn Astráðs Ingvarsson-
ar starfsmanns loðnunefnd-
ar.
Síðdegis í gær, fimmtudag,
hafði Bergur tilkynnt um 240
tonn til Siglufjarðar og
Grindvíkingur 750 tonn til
Seyðisfjarðar.
Síðdegis á miðvikudag til-
kynnti Fífill um 100 tonn til
Krossaness og Harpa 400 tonn
til Raufarhafnar.
Fógetaréttur:
áfrýja þessum dómi til Hæstarétt-
ar, og átti að taka málið fyrir í
febrúar nk. Forsendan fyrir áfrýj-
uninni var, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins, það álit ríkislög-
manns að fyrst það þótti ekki næg
brottrekstrarsök að Sturla fór
vísvitandi fram úr fjárlögum, væri
verið að gefa það fordæmi að for-
stöðumenn stofnana gætu farið
fram úr fjárlögum að vild, án þess
að það varðaði öðrum viðurlögum
en áminningu.
Þegar Morgunblaðið spurði Ólaf
Ragnar Grímsson hvort hann liti
ekki svo á, að með því að hætta
við áfrýjun væri hann að gefa for-
dæmi fyrir að hægt væri að fara
framúr fjárlögum, sagði hann svo
ekki vera. „Ef að einhveijir færu
að túlka þennan gjöming á þann
veg myndi ég auðvitað grípa til
ráðstafana. En þá væri aðdragand-
inn orðinn eðlilegur og sjálfsagður
og með öðrum hætti, heldur en var
í þessu máli, sem því miður varð
mikið tilfinningamál, mikið pólitískt
hitamál og allir aðilar málsins létu
falla orð, sem ekki er heppilegur
grundvöllur undir það að ríkisvaldið
sæki sér agavald gegnum úrskurð
Hæstaréttar, sem þá hefði átt að
vera andstæður úrskurði undirrétt-
ar,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson.
Pása í síldarsöltun.
Síldarsöltun:
Morgunblaðið/Helena
Um 16.700 tunniir eftir
EFTIR var að salta í um 12.500 tunnur af hausskorinni og
slógdreginni síld í gærkvöldi og 4.200 tunnur af síldarflökum.
20 söltunarstöðvar voru búnar með kvóta sinn í fyrrakvöld
en 43 stöðvar hafa leyfi til söltunar. í fyrrakvöld hafði verið
saltað í 210.444 tunnur og reiknað var með að búið yrði að
salta í um 213.500 tunnur í gærkvöldi, sögn Kristjáns Jóhannes-
sonar, birgða- og söitunarstjóra síldarútvegsnefiidar.
Síldveiði var í Mjóafirði, Fá-
skrúðsfirði og Reyðarfirði í gær.
í fyrrakvöld hafði verið saltað í
36.027 tunnur á Eskifirði, 34.745
tunnur á Höfn í Homafirði,
24.372 tunnur á Seyðisfirði,
22.222 tunnur í Grindavík og
20.289 tunnur á Reyðarfirði. Þá
var búið að salta í 21.480 tunnur
í Fiskimjölsverksmiðju Homa-
flarðar, 14.732 tunnur í Pólarsfld
á Fáskrúðsfirði, 13.522 tunnur í
Strandarsfld á Seyðisfirði, 13.136
tunnur í Skinney á Höfn í Homa-
firði og 10.858 tunnur í Norð-
ursfld á Seyðisfirði, að sögn
Kristjáns Jóhannessonar.
Þýzka verzlanakeðjan Aldi:
Nafn íslands verði fjar-
lægt úr vörumerlgum SL
- siglum ekki undir fölsku flaggi, segir Theodór S. Halldórsson
SÖLUSTOFNUN lagmetis hefur
borizt óformleg ósk frá þýzku
verzlanakeðjunni Aldi þess efiiis
að nafii íslands verði Qarlægt
úr vörumerkjum stofnunarinnar
til þess að ekki komi til vand-
Kröfii um íimsetníngu í
eignir Vemdar hafnað
kvæða við sölu sjávarafurða frá
íslandi í Vestur-Þýzkalandi.
Theodór S. Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri SL, telur ólíklegt
að stofiiunin verði við þessari
beiðni.
Sölustofnun barst í gær skeyti
frá umboðsmanni sínum í Vestur-
Þýzkalandi þar sem sagt’ var frá
mótmælum Grænfriðunga við verzl-
anir Aldi á þremur svæðum í Norð-
ur-Þýzkalandi. Kom þar jafnframt
til einhverra pústra og munu stjóm-
endur viðkomandi verzlana hafa í
hyggju að hætta að selja þá íslenzku
rækju, sem þeir hafa haft á boðstól-
um.
Stjómendur Aldi höfðu áður til-
kynnt að þeir myndu halda áfram
að kaupa sjávarafurðir frá Islandi,
svo fremi sem viðskiptahagsmunir
væru ekki í hættu. Theodór sagði,
að Aldi- menn hefðu meðal annars
lagt til að íslenzka rækjan yrði sögð
grænlenzk, en slíkt kæmi auðvitað
ekki til mála. „Við viljum ekki sigla
undir fölsku flaggi og það er alveg
óvíst að þessi beiðni verði rædd
innan stoftiunarinnar," sagði Theo-
dór.
FÓGETI hefiir hafhað kröfii Guðmundar Jóhannssonar um að
hann verði settur inn í umráð eigna Félagasamtakanna Verndar,
þar sem ekki hafi verið staðið rétt að kosningu stjórnar, sem
kaus Guðmund formann samtakanna á síjórnarfiindi, sem hluti
félagsmanna í Vernd efiidi til. Þremur vikum áður var haldinn
aðalfundur í samtökunum, en honum var slitið og stjórnin, undir
forystu Jónu Gróu Sigurðardóttur, ákvað að boða til framhaldsað-
alfundar. Hluti fimdarmanna vék af fiindi, en þeir sem eftir sátu
kusu nýja sljórn og síðar Guðmund formann hennar.
Aðalfund Verndar þann 22. sept-
ember sátu 65 manns, en u.þ.b. 30
voru ekki félagsmenn. Deilt var um
hveijir skyldu hafa atkvæðisrétt á
fundinum. Þeim deilum lyktaði svo
að hlé var gert á fundinum og fram-
kvæmdastjórn lagði síðan fram bók-
un þar sem sagði að þar sem ágrein-
ingur þessi hefði komið upp þætti
framkvæmdastjóm rétt að leita til
löglærðra manna, slíta fundinum
og boða til framhaldsaðalfundar
þegar álitsgerð lægi fyrir. Formað-
ur stjórnar, Jóna Gróa Sigurðar-
dóttir, sleit fundinum og gekk af
honum ásamt um 25 fundarmönn-
um.
Þeir sem eftir sátu á fundinum
héldu honum áfram og kusu nýja
stjórn. Þann 17. október héldu þeir
stjórnarfur.d og á honum var Guð-
mundur Jóhannsson kosinn formað-
ur Verndar. Guðmundur fór síðan
fram á fógetaaðgerð þar sem Jóna
Gróa hefði ekki skilað af sér eignum
samtakanna til nýrrar stjómar.
Jóna Gróa hélt því m.a. fram að
þar sem hún hafi slitið fundinum
22, september hafi það stjórnarkjör
sem á eftir fór verið markleysa og
samtökunum óviðkomandi. Sama
gilti um fundinn 17. október.
Fógeti komst að þeirri niður-
stöðu, að eftir að aðalfundinum var
slitið og hluti fundarmanna hvarf
af fundi hafi þurft að boða að nýju
til aðalfundar til að ljúka aðalfund-
arstörfum. Það sem fram fór á
fundinum eftir að aðalfundi var slit-
ið sé því málefnum Félagasamtak-
anna Vemdar óviðkomandi. Sú nið-
urstaða leiði til þess að synja beri
kröfu gerðarbeiðanda.
Valtýr Sigurðsson, borgarfógeti,
kvað upp úrskurðinn. Málsaðilar
hafa tekið sér frest til að ákvarða
hvort þeir áfrýji úrskurðinum.
Sjá úrskurðinn í heild i miðopnu
Bæjarsljórn HaftiarQarðar:
Ottarr Proppé forstöðumaður
flármálasviðs hafiiarstjómar
ÓTTARR Proppé, fyrrverandi ritstjóri Þjóðviljans, var kosinn
forstöðumaður Qármálasviðs hafharstjórnar Hafnarfjarðar á
fundi bæjarstjórnar í gær.
Óttarr hlaut 6 atkvæði meiri-
hlutans, Alþýðuflokks og Al-
þýðubandalags, en Guðjón Tóm-
asson fékk 4 atkvæði fulltrúa
Sjálfstæðisflokks. Ólafur Proppé,
fulltrúi fijálsa framboðsins, sem
er bróðir Óttars, vék af fundi. Á
fundi hafnarstjómar í gærmorg-
un fékk Óttarr 3 atkvæði en
Guðjón 2 atkvæði sjálfstæðis-
manna.
Á fundi bæjarstjórnar í gær
var Sveinn Bragason kosinn for-
stöðumaður kostnaðareftirlits
Hafnarfjarðarbæjar með 10 at-
kvæðum. Umsækjendur um þá
stöðu voru 16.