Morgunblaðið - 25.11.1988, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988
21
Itölsk farþegaþota
hvarf með 81 manni árið 1980:
Italir bíða skýringa
á orsökum flug-
vélarhvarfsins
Hefiir herinn eitthvað að fela?
Intcrnational Herald Tribune.
HVARF ítalskrar farþegaþotu af gerðinni DC-9, sem fórst með
manni og mús er hún átti skammt ófarið til Sikileyjar í innan-
landsflugi á ítaliu, þykir enn hin mesta ráðgáta. Málið hefúr allt-
af þótt gruggugt og fyrir þrábeiðni ættingja farþega, sem fórust
með þotunni, hefúr ítalska stjórnin nú fyrirskipað nýja rannsókn
á hvarfi hennar.
Farþegaþota af gerðinni DC-9, sömu gerðar og sú, sem fórst í
innanlandsflugi á Ítalíu í júní árið 1980.
Þotan var í eigu flugfélagsins
Itavia, sem flaug á innanlands-
leiðum, en það heyrir nú sögunni
til. Um borð í henni var 81 Itali,
farþegar og áhöfn, er hún hvarf
eitt kvöld í júní árið 1980. Sá
orðrómur, að henni hafi verið
grandað, annaðhvort af líbýskri
orrustuþotu eða vestrænni, jafn-
vel ítalskri herflugvél,_hefur aldrei
verið kveðinn niður. ítalskir fjöl-
miðlar hafa sakað yfirstjórn hers-
ins um tilraunir til að hylma yfir
atburðinn og hvað raunverulega
olli hvarfi þotunnar. Nýverið birti
sjónvarpsstöð nýjan þátt um flug-
vélarhvarfið þar sem því var hald-
ið fram að orrustuþota, jafnvel
ítölsk, á æfíngu Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) nálægt
flugleið þotunnar hefði grandað
henni fyrir mistök.
„Ríkisstjómin hefur loksins
gert eitthvað af viti," sagði Romeo
Ferucci, lögmaður aðstandenda
þeirra sem fórust. Þeir hafa
myndað með sér samtök til þess
að reyna að fá sannleikann um
hvarf þotunnar fram í dagsljósið.
Niðurstöður fyrri rannsókna á
orsökum slyssins hafa ekki þótt
trúverðugar. Þar með er talin
rannsókn flugmálayfirvalda, sem
lokið var fyrir tveimur árum, en
niðurstöður hennar voru þær, að
þotan hefði sprungið í tætlur á
flugi. Engar útskýringar voru hins
vegar gefnar á því hvers vegna
hún hefði sprungið.
Brak úr þotunni náðist af hafs-
botni í júní í sumar. Var það sent
til rannsóknar hjá opinberri stofn-
un í Bretlandi. Niðurstöðu er að
vænta fyrir áramót og verður
skýrsla um rannsóknina afhent
nefnd, sem ítalska stjómin hefur
falið yfírumsjón hinnar nýju rann-
sóknar á orsökum þotuhvarfsins.
Þó svo að niðurstöður séu
ókomnar hafa fjölmiðlar á Ítalíu
skýrt frá því að brezku rannsókn-
armennimir telji nú þegar fullvíst
að sprenging hafi orðið utan frá
og að líklega hafi því eldflaug
grandað þotunni.
Skutu Líbýumenn
þotunaniður . . .
„Ég er þeirrar skoðunar að
Líbýumenn hafí átt hlut að máli,“
sagði Ferruci lögmaður. Þremur
vikum eftir hvarf DC-9 þotunnar
fannst brak líbýskrar MiG-þotu á
fyallstindi á sunnanverðri Ítalíu.
Ferruci heldur því fram að líbýska
þotan hafí horfíð á sama tíma og
ítalska farþegaþotan.
Ymsir ítalskir stjómmálamenn
hafa varpað fram þeirri kenningu,
að ef til vill hafí flugmenn líbýsku
þotunnar skotið á farþegaþotuna
fyrir mistök. Hafi þeir villzt á
henni og flutningaflugvél, sem
Líbýumenn töldu vera á leið yfír
Miðjarðarhaf með vopn til manna,
sem hefðu áformað að steypa
Moammar Gadhafí, Líbýuleiðtga,
af stóli.
Gadhafi átti fund með ítölskum
blaðamönnum í Trípólí fyrir
skömmu. Aðspurður um meinta
aðild Líbýumanna að flugvélar-
hvarfinu sagði hann: „Það vita
allir að það var bandarísk eldflaug
en ekki líbýsk sem grandaði þot-
unni".
Um það leyti sem flugvélin
hvarf myrtu hryðjuverkamenn
fjölda líbýskra andófsmanna, sem
búsettir voru á Ítalíu. Hafði Gad-
hafi haft í hótunum og sagst
mundu refsa andófsmönnum, sem
neituðu að snúa heim. ítölsk
stjómvöld létu á þessum tíma til
skarar skríða gegn hryðjuverka-
mönnum og stjórnaði Francesco
Cossiga, þáverandi forsætisráð-
herra, baráttunni gegn þeim.
Cossiga er nú forseti Ítalíu og
hefur verið frá því skýrt að það
hafí verið fyrir hans tilverknað
að hlutlaus aðili var fenginn til
að rannsaka brak úr þotunni, sem
náðist af hafsbotni í sumar. Þess
vegna hafi það verið sent til Bret-
lands til rannsóknar.
. . . eða gerðu ítalir
það sjálfir?
Orrustuflugvélar bandaríska og
franska hersins fljúga oft á þeim
slóðum þar sem flugvélin hvarf.
Af hálfu stjómvalda í París og
Washington hefur því þó alfarið
verið neitað að þær hafi verið
valdar að hvarfí ítölsku farþega-
þotunnar. Af hálfu NATO hefur
því og verið vísað á bug að sam-
tökin hafí staðið fyrir æfíngum í
nágrenni slysstaðarins þegar flug-
vélin fórst.
Þá hafa ítölsk stjómvöld harð-
lega neitað því að þarlendar her-
vélar hafí grandað þotunni. Fyrir
skömmu hélt ítalska sjónvarpið
því fram, að ítölsk ormstuþota
hefði villzt af leið og skotið eld-
flaug á þotuna í misgripum fyrir
fljúgandi æfíngaskotmark. Val-
erio Zanone, vamarmálaráðherra,
vísaði því alfarið á bug í síðustu
viku. Hann sagði, að aðeins tvær
herflugvélar hefðu verið á lofti á
þeim slóðum þar sem þotan hvarf
og hefði hvorug verið vopnuð eld-
flaugum.
Eftir slysið fannst brak úr fjar-
stýrðu fljúgandi æfingaskotmarki
skammt frá flugvélarbrakinu.
Yfírmenn ítalska hersins sögðu
ekkert samhengi vera þar á milli;
skotmörkin hefðu verið notuð við
æfíngar áður en flugvélin fórst.
Óáhægður með bætur
Ferucci lögmaður segir það
kappsmál skjólstæðinga sinna að
komast að því hvemig flugvél
ættingja þeirra hvarf. Takist að
draga einhvem til ábyrgðar geta
þeir vænzt hárra skaðabóta.
„Bætumar sem greiddar hafa
verið jafngilda því að það hafi
verið kjúklingar í vélinni en ekki
menn,“ sagði Ferucci. Að hans
sögn hafa verið borgaðar 50 millj-
ónir líra í bætur, eða jafnvirði
tæplega 1,8 milljóna íslenzkra
króna fyrir hvem farþega.
Flugfélagið, sem átti þotuna,
lagði upp laupana eftir slysið.
Forráðamenn þess vom sakaðir
um að viðhaldi þotunnar hefði
verið ábótavant og að hún kynni
að hafa liðast í sundur og splundr-
ast á flugi vegna málmþreytu.
Ferucci þykir lítið til þessarar
kenningar koma. „Flugfélagið var
neytt til uppgjafar. Við erum viss
um að það var eldflaug sem
grandaði þotunni". Hann segir að
háttsettir menn hafí haft afskipti
af rannsókn málsins og m.a. látið
ratsjámpptökur, sem leitt gætu
hið sanna í ljós, hverfa.
Ýmsir stjómmálamenn hafa
tekið undir fullyrðingar Femccis
um að reynt hafi verið að hylma
yfír flugvélarhvarfið. Eftir sjón-
varpsþáttinn, þar sem sagt var
að ítölsk ormstuþota hefði grand-
að flugvélinni, sagði Giuliano
Amato, fjármálaráðherra, í viðtali
við ítalskt tímarit: „Miðað við
framkomu yfírmanna hersins við
stjómmálamenn mætti ætla að
þeir hefðu eitthvað að fela.“
Fyrirspumum vegna þotu-
hvarfsins var nýlega beint til Zan-
one vamarmálaráðherra á þingi.
Hann kvartaði undan því að frá-
sagnir fjölmiðla af hvarfi flugvél-
arinnar hefðu valdið trúnaðar-
bresti innan hersins. Hann vísaði
á bug ásökunum um yfírhylmingu
og sagði, að embættismenn í vam-
armálaráðuneytinu og yfirmenn í
hemum hefðu aðstoðað hina nýju
rannsóknarnefnd við rannsókn
flugvélarhvarfsins.
Egyptaland
og Alsír taka
iipp stjórn- ~
málasamband
Kaíró. Reuter.
EGYPTALAND og Alsír tóku
upp stjórnmálasamband í gær og
var tilkynnt samtimis í ríkjunum
tveimur. Alsir og flest önnur
arabaríki slitu stjórnmálasam-
bandi við Egyptaland árið 1979
þegar þeir síðastnefndu skrifúðu
undir friðarsamning við Israela
í Camp David í Bandaríkjunum.
Þar með hafa öll arabaríkin
nema Líbýa, Sýrland og Líbanon
tekið upp stjórnmálasamband við
Egypta á ný.
Egyptar em enn brottrækir úr
samtökum arabaþjóða og þeir fá
ekki að taka þátt í leiðtogafundi á
vegum samtakanna. I yfirlýsingu
sem gefín var út í Kaíró í gær seg-
ir að stefnt sé að því að efla tengsl-
in milli þessara grannþjóða með til-
liti til gagnkvæmrar trúar þeirra á
sameinu átaki arabaþjóða sem mið-
ar að auknu frelsi og framfömm.
I yfírlýsingunni segir ennfremur að
þjóðimar hafi fallist á að taka upp
stjómmálasamband „með hliðsjðn
af því að þjóðirnar halda uppi vöm-
um fyrir arabískan og íslamskan
málstað, einkum málstað palestín-
sku þjóðarinnar“.
Arabískur stjómarerindreki
sagði að Egyptar myndu gegna enn
mikilvægara hlutverki en áður sem
sáttasemjarar í deilum 'milli araba-
þjóða og ísraela.
Flóð í Tælandi:
Hátt í 200
manns farast
Bangkok. Reuter.
AÐ MINNSTA kostl 140 manns
fórust í flóðum og skriðufollun
í kjölfar Qögurra daga úrhellis
í þremur héruðum í Suður-
Tælandi.
Tælenskir embættismenn sögðu
að 29.000 manns hefðu misst heim-
ili sín í hémðunum þremur og átta
hémð til viðbótar hefðu orðið illa
úti í mesta úrhelli sem verið hefur
í landinu í 38 ár.
Flugher Tælands flutti matvæli
til afskektra staða og þýrlur vom
notaðar til að bjarga þorpsbúum
af húsþökum. Ekkert lát var á flóð-
unum og rigningunum í gær og
veðurfræðingar spáðu einnig fár-
viðri á svæðinu.
Sofið saman
sitt í hvoru rúmi
REGUMATIC lagast að líkama hvers og eins.
Rúmbotninn stillir hver eftir þörfum og dýnan
gefur hæfilega eftir.
REGUMATIC dýnu er hægt að setja í flest
rúm.
ENGAR TVÆR MANNESKJUR
ERU EINS.
REGUMATIC MIÐAST VIÐ
ÞÍNAR ÞARFIR.
SNÆIAND
Pétur Snæland, Skeiiunni 8, sími 685588