Morgunblaðið - 25.11.1988, Blaðsíða 48
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1988
VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Hollustuvernd ríkisins:
Tyrkneskar gráfíkj-
ur teknar úr umferð
DREIFING og sala tyrkneskra
gráfikja hefur verið stöðvuð hér
á Landi og eru fikjumar ná til
rannsóknar á rannsóknarstofu
Hollustuvemdar ríkisins.
I frétt. frá stofnuninni segir að
grunur leiki á að lítill hluti þeirra
gráfíkja, sem ræktaðar eru í Tyrkl-
andi, séu mengaðar af þekktum
krabbameinsvaldi .eiturefninu Af-
latoxín. Samstarfsaðilar Hollustu-
vemdar á Norðurlöndum gerðu
stofnuninni vart um þetta.
Við sérstök vaxtarskilyrði getur
þetta efni myndast af myglugróðri.
Hollustuvemd getur ekki rannsakað
málið til fullnustu hérlendis og hefur
þegar gert ráðstafanir til að senda
sýni úr fíkjunum utan í fullnaðar-
greiningu.
Kaupfélag Þing-
eyinga dæmt til að
greiða dráttarvexti
Húsavik.
KAUPFÉLAG Þingeyinga hefiir
verið dæmt í bæjarþingi Húsavík-
ur til að greiða bændum í félags-
búinu í Garði II í Mývatnssveit
dráttarvexti vegna tafar á
Brutust inn og
stálu bjómum
SJÓMAÐUR, sem býr einn í Vest-
urbænum í Reykjavík, kom heim
til sín í fyrrinótt eftir mánuð á
sjó. Þá var íbúð hans upplýst og
að innan heyrðist tónlist úr út-
varpi. Greinilegt var af um-
merkjum að brotist hafði verið
inn og 10 bjórkassar, sem sjó-
maðurinn hafði átt, voru horfiiir.
Engu var líkara en nokkrir menn
hefðu hafst við í íbúðinni um skeið
og gert sér þar glaðan dag en væru
nýlega famir. Maðurinn hringdi
strax til lögreglu og vinnur RLR
nú að rannsókn málsins.
greiðslu andvirðis sauðljáraf-
urða haustið 1987.
Málið reis út af því að bændurnir
í félagsbúi Garði II í Mývatnssveit
töldu sig samkvæmt búfjárlögum
eiga að fá greitt hinn 15. október
og 15. desember andvirði innlagðra
sauðfjárafurða haustið 1987. Það
var ekki gert á nefndum gjalddög-
um heldur síðar og þá greitt með
venjulegum viðskiptareikningsvöxt-
um.
Því vildu bændumir í Garði II,
Þorgrímur Starri Björgvinsson og
sonur hans, Kári, ekki una heldur
kröfðust dráttarvaxta.
Málið fór fyrir bæjarþing
Húsavíkur og kvað Sigurður Briem
Jónsson dómarafulltrúi upp dóm í
máli þessu nú nýlega og dæmdi
Kaupfélag Þingeyinga til að greiða
dráttarvexti eins og bændurnir
kröfðust. Málinu verður líklega
vísað til hæstaréttar.
- Fréttaritari
Konan flutt í sjúkrabifreið.
Morgunblaðið/Júlíus
Kona stungin hnífí
KONA á fimmtugsaldri var stungin hnífi í kviðarhol í Reykjavík
síðdegis í gær. Konan var strax flutt á sjúkrahús og gekkst þar
undir aðgerð. Ekki fengust upplýsingar um líðan hennar í gær-
kvöldi. Maður á þrítugsaldri var handtekinn, grunaður um verkn-
aðinn.
Atburðurinn átti sér stað á
Keimili konunnar við Síðumúla.
Þar var fólkið statt ásamt þriðja
manni. Hinn handtekni var á vett-
vangi er lögregla og sjúkralið kom
á vettvang. Yfírheyrslur yfír hon-
um vora ekki hafnar í gærkvöldi.
Vegna ölvunár, eða annarrar
vímu, var hann ekki talinn í
ástandi til skýrslutöku. Að sögn
Þóris Oddssonar vararannsóknar-
lögreglustjóra verður ákveðið í
dag hvort gæsluvarðhalds verður
krafíst yfir manninum.
Það á ekki að niður-
Laxaslátrun á Dalvík
Laxeldisstöðin Ölunn hf. á Dalvík slátraði i gær
sjö tonnum af laxi sem fer flugleiðis á markað
í Bandaríkjunum í dag. Meðalvigt laxanna er
um þrjú kg, sem telst mjög gott, að sögn Gunn-
ars Blöndals, framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
„Ég er mjög ánægður með það verð, sem fyrir
hann fæst. Þetta er stór fiskur og fyrir hann
fáest gott verð miðað við þann smáa. Ég ætla
að vona að meðalverð verði um það bil 370 krón-
ur fyrir kg,“ sagði Gunnar.
Sjá frásögn á Akureyrarsíðunni bls. 28
greiða gróðureyðingu
— sagði viðskiptaráðherra í umræðum á Alþingi þar sem
hann var krafínn um afsökunarbeiðni
SNARPAR deilur urðu á Alþingi
i gær um þau ummæli Jóns Sig-
urðssonar viðskiptaráðherra á
Flugleiðir:
Aætlun-
arflug til
Japans
undirbúið
FLUGLEIÐIR hafa leitað til
samgönguráðuneytisins með
ósk um að ráðuneytið hefli und-
irbúning að því að sækja um
leyfi fyrir áætlunarflug milli
Keflavíkur og Tókýó.
Nýlega gekk fraktdeild Flug-
Ieiða frá samningi við Japan Airli-
nes um að flytja frakt frá íslandi
til Japans um London. Flugleiðir
hafa talið þann samning sér mjög
hagkvæman.
Þessar fyrirætlanir Flugleiða-
manna koma í kjölfar umræðu í
hópi manna í atvinnu- og efna-
hagslífi hérlendis um nauðsyn á
markaðssókn fyrir íslenskar afurð-
ir í Austurlöndum, og þá einkum
Japan, í því skyni að auka íj'öl-
breytni í útflutningsviðskiptum og
stöðugleika í þjóðarbúskapnum.
flokksþingi Alþýðuflokksins, að
almenningur ætti ef til vill ekki
að kaupa kjöt af kindum og hross-
um, sem alin hefðu verið á afrétt-
um í uppblásturshættu. Töldu
ýmsir þingmenn að viðskiptaráð-
herra bæri að biðjast afsökunar á
þessum orðum, og ráðherrar heil-
brigðis- og samgöngumála sögðu
að ummæli hans mætti ekki túika
sem stefiiu ríkisstjórnarinnar. Jón
Sigurðsson sagði gróðureyðingu
vera eitt stærsta umhverfisvanda-
málið á íslandi. Lausaganga búfj-
ár og ofbeit ættu mikinn þátt í
því, hvemig komið væri. Lang-
lundargeð almennings væri á þrot-
um og ekki ætti að greiða niður
gróðureyðinguna.
Pálmi Jónsson fór fram á umræð-
ur utan dagskrár vegna fréttar í
Morgunblaðinu um þessi ummæli
Jóns. Gagnrýndi hann þau harðlega
og hvatti ráðherra til að biðjast af-
sökunar á þeim. Undir þetta tóku
fjölmargir alþingismenn, auk þess
sem þeir Guðmundur Bjamason heil-
brigðisráðherra og Steingrímur J.
Sigfússon landbúnaðarráðherra lýstu
sig andvíga þessari hugmynd. Sagði
Guðmundur að ekki mætti túlka þessi
orð viðskiptaráðherra sem stefnu
stjómarinnar.
Þorsteinn Pálsson formaður Sjáif-
stæðisflokksins sagði að viðskipta-
ráðherra hefði með ummælum sinum
lýst því yfir, að beita skyldi bændur
efnahagslegum þvingunum. Slíkt
væri fordæmanlegt.
Sjá þingfréttir á bls. 29.
Fiskmarkaðurinn í Haftiarfirði:
Víðir HF fékk 8 inillj-
ónir fyrir einn farm
Hæsta heildarverð ft*á upphafí
TOGARINN Víðir HF seldi 215 tonn fyrir 7,965 milljónir króna á
fiskmarkaðinum í Hafiiarfírði í gær og á miðvikudag. Það er hæsta
heildarverð sem fengist hefúr fyrir einn farm síðan fiskmarkaður-
inn í Hafiiarfirði tók til starfa 15. júní í fyrra, að sögn Einars
Sveinssonar framkvæmdastjóra markaðarins.
Víðir HF fékk þennan afla á
Vestfjarðamiðum, að sögn Einars
Sveinssonar. Úr Víði vora meðal
annars seld 172 tonn af þorski fyr-
ir 41,20 króna meðalverð, 17 tonn
af ufsa fyrir 16,42 króna meðal-
verð, 3 tonn af ýsu fyrir 35 króna
meðalverð, 5 tonn af steinbít fyrir
32 króna meðalverð og 11 tonn af
karfa fyrir 18 króna meðalverð.