Morgunblaðið - 04.01.1989, Side 4

Morgunblaðið - 04.01.1989, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1989 Morgunblaðið/Einar FaJur Nýárslamb íKópavogi SÍÐASTA lamb ársins fæddist í Kópavogi 30. desember. Það var ærin Sóleyjarkolla á Qárbúi þeirra feðga Arnórs Guðlaugs- sonar og Guðbjörns Arnórssonar sem eignaðist myndarlegan hrút. Þetta var í annað sinn á árinu sem Sóleyjarkolla bar, þann 4. mars 1988 fæddist henni einnig hrútur. Á myndinni sést ærin ftjósama ásamt nýjasta afkvæminu sem er í fangi Guðbjörns Arnórssonar. Sj óefnavinnslan: Athugasemdir gerðar við tryggmgar skuldabréfs Lögfræðingar iðnaðarráðuneytisins kanna málið Ríkisendurskoðun hefur gert athugasemd við tryggingar fyrir skulda- bréfi upp á 150 milljónir króna sem Hitaveita Suðumesja gaf út er hún keypti Sjóefiiavinnsluna á síðasta ári. Telur Ríkisendurskoðun að endurgreiðsla skuldabréfsins sé ekki nægilega tryggð. Kemur þeSsi athugasemd fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar við rikisreikning 1987. I skýrslunni telur Rikisendurskoðun einnig nauðsynlegt að ljóst sé hvort framkvæmdavaldið geti selt hlutabréf rikisins án heimildar Alþingis hveiju sinni. Forsaga málsins er sú að í tíð ríkisstjómar Þorsteins Pálssonar undirrituðu iðnaðarráðherra og §ár- málaráðherra f.h. ríkissjóðs samning um sölu á hlutbréfum Sjóefnavinnsl- unnar hf. Kaupandi var Hitaveita Suðumesja. Samkomulagið fól í sér að ríkissjóður seldi hlutbréf sín á 3,4 milljónir króna en þau voru skráð á 81 milljón. Jafnframt yfirtók ríkis- sjóður lán sem veitt höfðu verið til Sjóefnavinnslunnar af endurlánum ríkissjóðs að upphæð 406 milljónir króna. Á móti þessu gaf kaupand- inn, Hitaveita Suðumesja, út tvö skuldabréf, hið fyrra að upphæð 70 milljónir króna með lokagjalddaga árið 2000. Hið síðara að upphæð 150 milljónir króna án lokagjaldaga. Það mun verðtryggt en ber enga vexti. Endurgreiðsla þessara bréfa er háð afkomu fyrirtækisins og er miðað við að endurgreiðsluijárhæð sé 7,5% af hagnaði fyrir skatta. Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra segir, hvað sjálfa söluna á hlutabréf- unum varðar, að lögfræðingar iðnað- arráðuneytisins hafi kannað það mál sérstaklega. Samkvæmt lögunum um Sjóefnavinnsluna hafi hlutur ríkisins í henni verið nokkurskonar „varaskeifa“. Ef ekki tókst að afla hlutafjár á almennum markaði greip ríkið inni í og lagði til það fé sem á skorti. Samkvæmt þessu hafi lög- fræðingamir talið að ekkert væri því til fyrirstöðu að ríkið seldi síðan sinn hlut, eins og úr varð. Hvað tryggingar fyrir skuldabréf- unum varðar segir Jón að bréfið upp á 70 milljónir króna sé gulltryggt. Hvað varðar 150 milljóna króna bréfið segir hann að alltaf hafi legið ljóst fyrir að tryggingar fyrir því væru ekki traustar og hafi Alþingi verið gerð grein fyrir því á sínum tíma. „Þetta er spuming um hvað orðið „nægjanlegar" þýðir í þessu tilfelli. Ég mun láta lögfræðinga ráðuneyt- isins kanna þetta mál og gera síðan Ríkisendurskoðun grein fyrir þeirra niðurstöðum," segir Jón Sigurðsson. VEÐUR * r r * # * r r % r * * / % * r * r * r # / * r * / / * / # *■ r * r ÍDAGkl. 12.00:* * r * / / * ■ f r r * * / * * r * r * r * r * * r Heimild: Veðurstofa íslands f (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær) VEÐURHORFUR í DAG, 4. JANUAR YFIRLIT í GÆR: Gert er ráð fyrir stormi á IV og V miðum, Vest- ur-, Norður-, Suðaustur- og Suðurdjúpi. Um 600 km suðsuðvestur af Reykjanesi er 950 mb lægð sem þokast norðaustur. Veður fer kólnandi þegar líður á nóttina, fyrst norðvestanlands. SPÁ: Hvöss norðanátt og snjókoma eða slydda víða um land, mest þó norðanlands. Hiti frá +2 til +3 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA HORFUR Á FIMMTUDAG: Norðan- og norðaustanátt um mest allt land. Dálítil él við norður-, austur- og suðurströndina, en ann- ars þurrt. Frost 0-4 stig. HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðaustanátt og rigning eða slydda vfða um landið. Hiti 3—7 stig. x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r r Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius Skúrir * V E' = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur -j- Skafrenningur [T Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma httl vaftur Akureyri e rignlng Reykjavfk 8 þokumóða Bergen 6 alakýjað Helslnki 2 akýjað Kaupmannah. 4 þokumóða Narssarssuaq +19 Mttskýjaó Nuuk +8 alskýjað Oaló +1 hrímþoka Stokkhólmur 4 lóttskýjað Þórshöfn 8 alskýjað Algarve 14 léttskýjað Amsterdam 5 þokumóða Barcalona 12 mistur Beriín 0 þokumóða Chicago +4 frostúði Feneyjar 6 heiðskirt Frankfurt 3 þokumóða Glasgow 7 rigning Hamborg 2 þokumóða Las Palmas 20 létukýjað London 6 alskýjað Los Angeles 9 heiðskirt Lúxemborg +1 þokumóða Madrld 4 mtatur Malaga 14 alskýjað Mallorca 13 mistur Montreal +11 skafrenningur Naw York 3 skýjað Oriando 16 þoka Parfs +3 alskýjað Róm akýjað San Diego 8 heifiskírt Vfn 2 léttskýjað Washington 0 léttskýjað Winnipeg +24 haifiskfrt Eldeyjar-Hjalti landar fiski í körum í Grindavík eftir velheppnaða veiðiferð með línu. Morgunblaðið/Kr.Bcn. Útgerðarfélagið Eldey hf. Vanefiidir á hluta- flárloforðum skipta milljónum króna Grindavík. ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Eldey hf. í Keflavík á nú i miklum erfiðleik- um með að standa i skilum með afborganir af skipum sínum, EI- deyjar-Hjalta og Eldeyjar-Boða, þar sem vanefndir á hlutaflárlof- orðum eru mjög miklar og skipta milljónum. Gæti svo farið að hlut- hafafúndur verði látinn skera úr um framtíð félagsins á næstunni í ljósi þessara staðreynda. Jón Norðfjörð stjómarformaður í Eldey hf. sagði að sér virtist Suður- nesjamenn hafa gleymt markmiðum félagsins furðu fljótt og vissi hann dæmi þess að skuldabréf sem áttu að vera greiðsla hlutafjár hefðu ver- ið rifin. „Þá hafa brugðist loforð um lið- sinni á obinberum vettvangi, meðal annars aðstoð um fyrirgreiðslu af hálfu þingmanna kjördæmisins en það er sér kafli í sögu fyrirtækis- ins,“ sagði Jón og bætti við að ekki höfðu öll sveitarfélögin á Suðumesj- um vilja til að leggja málinu lið og nú nýlega felldu 95% fundarmanna hjá Skipstjóra- og stýrimannafélag- inu Vísi tillögu um þátttöku. „Við urðum vissulega varir við mikla óánægju fólks þegar við hurf- um frá kaupum á hlutabréfum SÍS í Hraðfrystihúsi Keflavíkur hf. en staðreyndin var sú að fyrirtækið er í raun gjaldþrota og ekkert þar að kaupa, enda voru togararnir, Aðal- vík KÉ og Bergvík KE, ekki til sölu og engar viðræður leyfðar um þann möguleika," sagði Jón. Rekstur skipa félagsins hefur gengið þokkalega og mun aflaverð- mæti þeirra vera tæpar 70 milljónir króna til samans. Kr.Ben. Nýr opnunartíim að Kjarvalsstöðum Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að breyta opnun- artíma Kjarvalsstaða. Framvegis verða Kjarvals- staðir opnir frá kl. 11.00 til 18.00 alla daga vikunnar, en auk þess verður hægt að fá opnað fyrir hópa utan þess tíma, eftir nánari samkomulagi. Veitingastofan að Kjarvals- stöðum verður jafnframt opin frá kl. 11.00 til 18.00, þar sem boðið er upp á léttar veitingar. Beðið með aðgerðir vegna skattskulda fyrirtækia Fjármálaráðherra hefiir farið þess á leit við innheimtumenn ríkissjóðs úti á landi að þeir gangi ekki hart eftir skattauppgjöri sjávarútvegsfyrirtækja sem eru nú f meðferð hjá Atvinnutrygg- ingarsjóði og ekki sé enn ljóst hvaða afgreiðslu þau fa þar. Ólafur Ragnar Grímsson sagði við Morgunblaðið, að nokkur fyrirtæki, sem Atvinnutryggingarsjóður væri nú að skoða, hefðu ekki gert skil á staðgreiðsluskatti starfsmanna sinna. f sumum tilfellum væru þetta eldri skuldir og því hluti af því skuld- auppgjöri sem lægi fyrir Atvinnu- tryggingarsjóði. Olafur Ragnar sagðist ekki vilja beita aðgerðum til að loka þessum fyrirtækjum af þessum ástæðum, enda væru þau sum hver einu fyrir- tækin í viðkomandi byggðarlögum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.