Morgunblaðið - 04.01.1989, Síða 12

Morgunblaðið - 04.01.1989, Síða 12
12 MORGUNBLA.ÐIÐ MIÐYIKUDAGUR 4. JANÚAR Í989 Hvað er miðbæjarstarfsemi? eftirElínu G. Ólafs- dóttur, Guðrúnu Agústsdóttur og Hildigunni Haralds- dóttur Hinn 10 nóvember 1988 birtist þessi auglýsing í dagblöðunum: Auglýsing frá Borgarskipulagi Kvosarskipulag — lóð Happdrættis Háskóla Islands 1. Tillaga að breytingu á stað- festu deiliskipulagi Kvosarinn- ar er hér með auglýst sam- kvæþit 17. og 18. gr. skipu- lagslaga nr. 19/1964. Upp- bygging lóðanna Suðurgata 3 syðri hluta, Suðurgata 5 og Tjamargata 8 breytist vegna sameiningar lóðar. 2. Landnotkun í deiliskipulagi miðbæjarins verði í samræmi við staðfest Aðalskipulag Reykjavíkur 1984—2004 þ.e. miðbæjarstarfsemi. Uppdrætt- ir og greinargerð verða al- menningi til sýnis hjá Borgar- skipulagi Reykjavíkur, Borg- artúni 3, frá fímmtudeginum 10. nóv. til fímmtudagsins 22. des. 1988, alla virka daga frá kl. 8.30-16.00. Athugasemdum, ef einhveijar eru, skal skila skriflega á sama stað eigi síðar en kl. 16.15, fímmtudaginn 5. jan. 1989. Þeir sem eigi gera athuga- semdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir breytingunni. Reykjavík, 10. nóvember 1988 Borgarskipulag Reykjavíkur Borgartúni 3, 105 Reykjavík Okkar greinarhöfundum sem er- um í Skipulagsnefnd borgarinnar, borgarráði og borgarstjóm kom þessi auglýsing á óvart. Reyndar kom hún öllum minnihlutanum í borgarstjóm á óvart. Við könnuðumst fjarska vel við fyrri hluta auglýsingarinnar sem fjallaði um breytingu á lóðunum Suðurgötu 3 og 5 og Tjamargötu 8, enda hafði verið um hana fjallað kyrfilega í þar til gerðum fagnefnd- um og ráðum á eðlilegan hátt. Elín G. Ólafsdóttir En hvað þýðir þessi auglýsing? Þ.e.a.s. síðari hluti hennar: „Land- notkun í deiliskipulagi miðbæjarins verði í samræmi við staðfest Aðal- skipulag Reykjavíkur 1984—2004 þ.e. miðbæjarstarfsemi.“ í fljótu bragði virðist þetta ekki sérlega flókið. En það hefur samt sem áður vafíst fyrir fólki að skilgreina hvað við er átt. Ekki síst orðið MIÐ- BÆJARSTARFSEMI. í nýsam- þykktu Aðalskipulagi Reykjavíkur er engin skýr skilgreining á þessu orði. Þess vegna bað ein okkar Borgarskipulag um skilgreiningu á því si. fímmtudag og óskaði eftir svari á borgarráðsfundi daginn eft- ir. Á þeim fundi óskaði borgarstjóri eftir nokkurra daga fresti til að útskýra þetta orð. Það er orðið mjög aðkallandi að skilgreina nákvæmlega þetta hug- tak, og hvað þessi auglýsing þýðir í raun þar sem frestur til að skila inn athugasemdum rennur út á morgun 5. jan. kl. 16.15. Nú er það ekki svo að meirihlut- inn í borgarstjóm hafí ekki haft töluvert svigrúm til þess að gera sér og öðrum grein fyrir því hvað hér væri á ferðinni. í borgarráði hinn 15. nóv. var vakin athygli á málinu og í borgarstjóm tveimur dögum seinna lögðu borgarfulltrúar minnihlutans fram tillögu um að auglýsingin yrði dregin til baka, þar sem um hana hafí ekki verið fjallað sérstaklega hvorki í skipulagsnefnd né borgarráði. Eins er í þessari til- lögu lagt til að í skipulagsnefnd Guðrún Ágústsdóttir „Það sem við óttumst er, að verið sé að gera breytingu á deiliskipu- laginu sem getur haft afdrifaríkar afleiðing- ar fyrir miðborgina. Ef íbúðum fækkar en verslunar- og skrif- stofuhúsnæði eykst kallar slík breyting á mun meiri bílaumferð sem aftur kallar á fleiri bílastæði, bílastæðahús og greiðari umferðar- æðar að og frá hjarta borgarinnar ásamt auk- inni mengun.“ verði skilgreint nákvæmlega hvað „miðbæjarstarfsemi skv. aðalskipu- lagi" þýðir og hvaða afleiðingar breytingin hefði hugsanlega á mið- bæinn ekki síst umferð og bíla- stæði. Þessari tillögu var hafnað. í skipulagsreglugerð grein 1.1.3. um deiliskipulag segir svo: „Deili- skipulag skal gera fyrir einstök hverfi, bæjarhluta eða reitj innan ramma aðalskipulagsins. í deili- skipulagi er gerð nánari grein fyrir notkun lands, tilhögun gatna, íbúð- arhúsa, atvinnu- og þjónustuhús- næðis, stofnana, leiksvæða, útivist- Hildigunnur Haraldsdóttir arsvæða og annars er þurfa þykir. Deiliskipulag skal taka mið af þeirri stefnu sem mörkuð er í aðalskipu- lagi hlutaðeigandi sveitarfélags.“ Það er því skýrt tekið fram að deili- skipulag sé nánari útfærsla á aðal- skipulagi en ekki öfugt. Þetta útskýrir e.t.v. að orðið mið- bæjarstarfsemi er ekki skilgreint nákvæmlega í aðalskipulaginu — því gert er ráð fyrir slíkri útskýr- ingu í deiliskipulagi. Það vekur líka furðu að Skipulagsstjóm ríkisins skuli heimila auglýsingu þar sem allar nánari skilgreiningar skv. þessari grein 1.1.3. vantar. Ef reynt er að geta sér til um hvers vegna þessi auglýsing birtist skyndilega í blöðunum án nokkurr- ar umfjöllunar í borgarkerfínu þá dettur okkur fyrst í hug nýfallinn úrskurður félagsmálaráðherra vegna byggingar á lóðinni Aðal- stræti 8, þar sem Fjalakötturinn stóð. Ein aðalástæða þess að bygg- ing hússins var stöðvuð var sú, að í staðfestu deiliskipulagi Kvosarinn- ar segir: „að minnsta kosti efsta hæð allra húsanna skal vera íbúð eða ca. 20% af heildargólffleti." bls. 7. „Höfundar telja aukningu íbúða á svæðinu mikilvæga til að auka jafnvægi á móti verslun og þjónustu." (bls. 7), og á bls. 3 er eitt af meginmarkmiðunum: „—Fjölgun íbúða á svæðinu til að bærinn deyi ekki út eftir að verslan- ir og skrifstofur loka.“ Og til að tiyggja að eftir þessu væri farið var gerð nákvæm grein fyrir land- notkun á hverri hæð í nýbyggingum í Kvosinni og sú landnotkun var staðfest í Skipulagsstjóm ríkisins. Þetta meginmarkmið samþykkti meirihlutinn og gerði raunar að sinni tillögu. Húsbyggjendur Aðal- strætis 8 hugðust hins vegar aðeins hafa eina litla húsvarðaríbúð í þess- ari stóru byggingu. Félagsmálaráð- herra tók undir þá skoðun íbúa í nágrenninu, sem kærðu þessa ný- byggingu, að aðeins ein íbúð á þess- ari lóð bryti í bága við landnotkun í staðfestu deiliskipulagi Kvosarinn- ar. Getur verið að þama sé fundin ástæðan fyrir margumræddri aug- lýsingu? Fyrst við sem um þessi mál eig- um að fjalla og meirihluti borgar- stjómar sem ákvað að auglýsa veit ekki um hvað málið snýst raun- verulega, er ekki mjög líklegt að almenningur í borginni bregðist við og geri athugasemdir fyrir kl. 16.15 á morgun. í auglýsingunni kemur fram að almenningur gat að vísu gengið að uppráttum og greinargerðum hjá Borgarskipulagi til 22. des. sl. Við skoðun kom í ljós að útskýr- ingar varðandi annan lið auglýs- ingarinnar er ein örk, A3. Skv. því plaggi er engin skýring gefín á því hvað verið er að auglýsa skv. 2. tölulið og af uppdráttum verður maður litlu nær. í deiliskipulaginu er hins vegar gerð grein fyrir landnotkun hverrar hæðar fyrir sig. Það sem við óttumst er, að verið sé að gera breytingu á deiliskipu- laginu sem getur haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir miðborgina. Ef íbúðum fækkar en verslunar- og skrifstofuhúsnæði eykst kallar slík breyting á mun meiri bílaumferð sem aftur kallar á fleiri bílastæði, bílastæðahús og greiðari umferðar- æðar að og frá hjarta borgarinnar ásamt aukinni mengun. Ennþá eru þetta einungis getgát- ur okkar, því okkur vantar skil- greiningu á nauðsynlegum hugtök- um. Vonandi reynist ótti okkar ástæðulaus, en þvi miður höfum við fengið fjölmargar ástæður til þess að vera fullar tortryggni. Af þessu tilefni munum við ítreka ósk okkar um lengri frest og höfum ekki trú á öðru en að við henni verði orðið nú. Reykjavík, 2. janúar 1989. Elín G. Ólafsdóttir er borgnrfull- trúi fyrir Kvennalista, Gaðrún Ágústsdáttir er borgarfulltrúi fyr- ir Alþýðubandalagið, Hildigunnur Haraldsdóttir er fulltrúi Alþýðu- bandalagsins í Skipulogsnefnd. Breyting á bólusetningu ungbarna: Þess verður gætt að ónæmi gegn rauðum hundum verði nægjanlegt - segir Guðjón Magnússon aðstoðarlandlæknir Vignir Jóhannsson Norræn myndlistarsýning í New York: Vignir Jóhannsson ftilltrúi Islands FRÁ og með þessu ári verða öll börn bólusett við hettusótt, misl- ingum og rauðum hundum í einni sprautu við átján mánaða aldur samkvæmt ákvörðun landlæknis. Margrét Guðnadóttir prófessor hefúr gagnrýnt þessa ákvörðun, og telur að með þessari aðferð verði töluverður hópur kvenna á barneignaaldri í sýkingarhættu eftir nokkur ár vegna lélegrar móte&iamyndunar. Guðjón Magnússon aðstoðarlandlæknir sagði í samtali við Morgunblaðið að þessi ákvörðun hafí verið tek- in að vandlega athuguðu máli, og samráð hafi verið haft við barnalækna, heimilislækna og héraðslækna, sem hafi Qallað um þetta mál. „Það er talin mjög heppileg ráð- stöfun að taka þessa bólusetningu upp, en með þessu erum við að fylgja sömu stefnu og nágranna- þjóðir okkar, og til dæmis verður Island síðast Norðurlandanna til að taka þessa bólusetningu upp. Okkur fínnst því ekki að með þessu séum við að taka neina ákvörðun sem þarf að hafa áhyggjur af,“ sagði Guðjón Magnússon. Guðjón segist telja að með því að taka upp bólusetningar á öllum bömum við 18 mánaða aldur aukist líkur á að hægt verði að koma í veg fyrir að rauðir hundar geysi sem faraldur hér á landi. „Með þeirri aðferð sem hefur viðgengist höfum við ekki haft nein tök á að koma í veg fyrir að stórir faraldrar af rauðum hundum gangi hér á landi eins og gerst hefur á tíu ára fresti. Einungis hafa verið bólusett- ar þær 12 ára stúlkur sem mælst hafa næmar fyrir rauðum hundum, og þannig eru öll böm sem eru yngri en 12 ára næm fyrir sýk- ingu.“ „Sú hætta sem Margrét Guðna- dóttir hefur bent á er þó raunhæf, og vissulega er það betra ónæmi sem fæst með sýkingu heldur en bólusetningu. Hins vegar kemur það á móti að minni þörf er fyrir þetta ónæmi ef komið er í veg fyr- ir að faraldur gangi. Þama er um tvær aðferðir að ræða, sem báðar geta komið að gagni, en munurinn á þeim er sá að í öðru tilvikinu er sífellt verið að veija þann hóp sem óttast er að fari verst út úr sýk- ingu, það eru konur á bamseignar- aldri, en í hinu tilvikinu eru allir bólusettir til að að koma í veg fyr- ir að upp komi faraldur af rauðum hundum. Þessi aðferð hefur verið notuð í Bandaríkjunum í yfír tutt- ugu ár, þannig að mjög góð reynsla er komin á það bóluefni sem notað er. Það veður að sjálfsögðu fylgst með því að þessi bólusetning skili þeim árangri sem að er stefnt, og ekki er reiknað með því að byija að bólusetja nema átján mánaða bömin, þannig að í nokkuð mörg ár héðan í frá verður báðum þessum aðferðum beitt. Það er því alls ekki strax verið að leggja niður þá að- ferð sem hingað til hefur verið beitt, og vandlega verður fylgst með því í framtíðinni að ónæmi sé nægjanlegt og bóluefnið sé nægjan- lega gott,“ sagði Guðjón Magnús- son. AMERÍSK-Skandinavíska félag- ið í New York gengst fyrir nor- rænni myndlistarsýningu í Pri- vatbanken í New York dagana 13. janúar til 28. febrúar. Á sýn- ingunni verða verk eftir fimm norræna myndlistarmenn og er Vignir Jóhannsson fulltrúi ís- lands. Auk Vignis eiga verk á sýning- unni þau Peter Astrom frá Svíþjóð, Thor Furulund frá Noregi, Mette Petri frá Danmörku og Kari Walden frá Finnlandi. í fréttatilkynningu fíá Amerísk-Skandinavíska félag- inu segir að allir listamennimir hafí numið myndlist í New York og njóti alþjóðlegrar viðurkenning- ar, en í myndum þeirra allra komi fram sterk viðhorf sem spegli nor- rænt skaplyndi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.