Morgunblaðið - 19.01.1989, Síða 52
52
MORGUNBLAÐE)
ÍÞRÓTTIR FIMMTUI )AGUH
19. JANUAR 1989
T í wm
faám
FOLK
■ JUSTIN FASHANU gamal-
þekktur miðhetji í ensku knatt-
spymunni, bróðir John Fashanu
hjá Wimbledon, hefur ekki ieikið
í deildinni síðustu
þrjú árin vegna
meiðsla. Hefur hann
dvalið í Banda-
ríkjunum meðan að
meiðsli hans hafa verið honum til
trafala. Fyrir skömmu kom hann
til Englands á ný og æfði um hríð
með Manchester City með samn-
ing í huga. En hann var vart byijað-
ur að æfa á ný er meiðslin tóku sig
upp og hvarf hann við svo búið
aftur vestur um haf. Er líklegt að
kempan leiki ekki framar á ferlinum
úr því að þriggja ára hvfld dugði
ekki til.
FráBob
Hennessy
ÍEnglandi
■ ALEX FERGUSON stjóri hjá
Manchester United hefur boðið
júgóslavneskum unglingalands-
liðsmanni til Old Trafford til
reynslu. Heitir pilturinn Ivica Bar-
baric og má reikna með orðaleikj-
um með nafn hans verði úr að hann
leiki fyrir enska áhorfendur. Hann
er nú leikmaður með Velez Mostar.
■ JOHN BARNWELL fyrrum
stjóri hjá Wolverhampton var ekki
lengi atvinnulaus eftir að hann var
rekinn frá Notts County. Hann var
í gær ráðinn til Walsall, botnliðsins
í 2. deild, en liðið hefur tapað 13
leilqum í röð.
■ NÚhefur það verið fastsett,
að Liverpool og Celtic mun mæt-
ast í hinni óopinberu Bretlands-
eyjakeppni sem reyndar heitir
Dubai Cup. Þessi tvö meistaralið
Englands og Skotlands síðasta árs
leiða saman hesta sína 4. apríl í
Dubai.
■ SAKSÓKNARIí Belgíu hefur
krafist þess að þeir sem sannanlega
bera ábyrgð á manndauða á Heys-
el-leikvanginum í Brussel um
árið, verði dæmdir til þriggja og
fjögurra ára fangelsisvistar. Málið
er nú fyrir dómstólum í Belgíu.
Kemur nokkuð á óvart að ekki skuli
vera krafist hámarksrefsingar yfir
Bretunum ungu. Alls eru þeir 15
talsins.
BADMINTON / EVROPUKEPPNIN
íslend-
ingar
mæta
Finnum
- í Evrópukeppni B-
þjóða í Budapest í dag
Islendingar taka þátt í Evrópu-
keppni B-þjóða, sem er liða-
keppni, og hefst í Budapest í Ung-
veijalandi í dag. íslenska landsliðið
fór utan á miðvikudag og skipa það
eftirtaldir keppendur:
Þórdís Edwald, Guðrún Júlíus-
dóttir, Inga Kjartansdóttir, Bima
Petersen, Þorsteinn Páll Hængsson,
Broddi Kristjánsson, Guðmundur
Adólfsson og Armann Þorvaldsson.
Þjálfari liðsins er Huang Weicheng.
Fimmtán þjóðir taka þátt í mót-
inu sem nefndist Helvitia Cup og
er þeim skipt í fjóra riðla. íslenska
liðið er í riðli með Belgum, Finnum
og ítölum. í hveijum landsleik eru
spilaðir sjö leikir.
Hrólfur Jónsson verður dómari á
mótinu og er þetta í fyrsta sinn sem
Islendingum er boðið að senda dóm-
ara á þetta mót. íslenskir dómarar
hafa áður dæmt í Finlandia Cup,
sem er samsvarandi mót fyrir ungl-
inga U-18 ára og svo í Evrópu-
keppni félagsliða.
Islenska liðið mætir Finnum í
dag, Belgum á morgun og ítölum
á laugardag.
SUND
Unglingamót KR
Fjórða unglingamót KR í sundi
fer fram 11. og 12. febrúar,
þar sem fjórir aldursflokkar keppa
í 50 greinum. Gert er ráð fyrir um
500 keppendum víðs vegar að af
landinu, en skráning stendur yfír
og lýkur þriðjudaginn 24. janúar.
Sala getraunaseðla lokar kl. V laugardögum. l:4í 5 á
3. LEIKVÍKA - 21, JANÚAR 1989 II X il
Leikur 1 Arsenal - Sheff. Wed.
Leikur 2 Coventry - Wimbledon
Leikur 3 Liverpool - Southampton
Leikur 4 Luton - Everton
Leikur 5 Middlesbro - Tottenham
Leikur 6 Newcastle - Charlton
Leíkur 7 Nott, For, - Aston Villa
Leikur 8 Q.P.R. - Derby
Leikur 9 West Ham • Man. Utd.
Leikur 10 Blackburn • Chelsea
Leikur 11 Cr. Palace - Swindon
Leikur 12 Oxford - Leeds
Símsvari hjá getraunum eftir ki á laugardögum er 91-84590 og - Muniö hópleikin 17:1 £ 84464 n .
íslenska landsllðlA f badmlnton sem tekur þátt í Evrópukeppni B-þjóða í Ungveijalandi. Efrí röð frá vinstrí:
Huang Weich'eng, þjálfari, Þorsteinn Páll Hængsson, Broddi Kristjánsson, Armann Þorvaldsson, Guðmundur Adólfsson
og Sigríður Julíusdóttir, fararstjóri. Fremri röð frá vinstri: Þórdís Edwald, Guðrún Júlíusdóttir og Bima Petersen.
NOREGUR / VETRAROLYMPIULEIKARNIR 1995
Tapar600 þúsund á ÓL sex
Frá
Sigurjóni
Einarssyni
ÍNoregi
Eins og flestum er kunnugt var
Lillehammer í Noregi úthlut-
að vetrar ÓL 1995, á þingi Al-
þjóða ÓL nefndarinnar í Seoul í
haust. Þegar það
var gert kunnugt
braust út mikil
gleði í Noregi eins
og vænta mátti,
og margir hugðu sér gott til glóð-
arinnar.
Einn af þeim sem ætlaði sér að
verða ríkur með skjótum hætti á
því að Liilehammer hlaut ÓL, var
maður einn á fertugsaldri, búsett-
ur í Vestur-Noregi. Maður þessi
rauk upp til handa og fóta strax
og ákvörðun ÓL-nefndarinnar var
gerð iýðum ljós, og skrásetti 25
svokölluð „skúffufyrirtæki" öll
með nöfnum sem tengdust
Ólympíuleikunum. í safninu mátti
sjá nöfn eins og Lillehammer
Oljrmpic hotel A/S, Lillehammer
Olympia hotel A/S, Lillehammer
Olympiat A/S, Lillehammer
Olympic Town A/S o.s.frv. Hug-
myndin var svo sú að seija nöfnin
til fyrirtækja og einstaklinga sem
hygðust hefja ýmiskonar rekstur
{ Ólympíubænum. Maðurinn
greiddi sem nemur ísl. kr.
600.000,- í skrásetningargjald
fyrirtækjanna og ísl. kr.
5.500.000,- í hlutafé fyrirtækj-
anna. Mikill tími og pappírsvinna
hefur svo án efa farið í skrásetn-
ingu og stofnskjalagerð. Þegar
þetta brambolt mannsins barst til
eyma nefndarmanna í norsku
ÓL-neftidinni kámaði gaman
manngreysins. Þannig er nefni-
lega um hnútana búið hjá alþjóða
ólympfunefndinni, að hún og
ólympíunefnd lands þess sem leik-
ana heldur hveiju sinni, hefur
eiiikarétt á Ólympía nafninu, og.
nefndimar einar geta selt nafnið
út til aðila sem áhuga hafa á að
kaupa. Þannig má því maðurinn
frá vesturlandinu afskrá öll fyrir-
tækin, og tapar í það minnsta
600.000,- ískr. sem hann greiddi
fyrir skrásetninguna, en einhveiju
heldur hann nú eftir af hlutafénu.
Maðurinn sem ætlaði að verða
ríkur er sennilega fyrsti Norðmað-
urinn sem beint hefur tapað pen-
ingum á Ólympíuleikum sem
halda á 1995 eða eftir 6 ár!!!
KNATTSPYRNA / SPANN
Atkinson fór án
leyfis til Englands
Ron Atkinson, sem verið hefur
framkvæmdastjóri Atletico
Madrid í 94 daga, var í gær rekinn
frá félaginu. Jesus Gil, forseti fé-
lagsins, lýsti því yfir að Atkinson
tæki starfið ekki nægilega alvar-
Iega og yrði því að fara.
Atkinson var í nokkurra daga
fríi í Englandi, án leyfís Atletico,
brást hinn versti við þessum frétt-
um. „Ég tel mig hafa náð góðum
árangri með liðið. Að taka við iiði
í 18. sæti og koma því upp í það
þriðja á nokkmm mánuðum ætti
að vera nóg fyrir hvaða þjálfara sem
er til að halda starfi sínu,“ sagði
Atkinson.
Við starfi Atkinsons tekur Colin
Addison, sem verið hefur aðstoðar-
maður Atkinsons í mörg ár. Mjög
ör þjálfaraskipti hafa verið í herbúð-
um Atletico og er Addison sjöundi
þjálfarinn sem ræðst til starfa hjá
félaginu síðustu 18 mánuðina.
■
Ron Atkinson
FELAGSMAL
Herrakvöld Vals
Herrakvöld Vals verður haldið
föstudaginn 20. janúar og
hefst dagskrá í félagsheimili Vals
kl. 18.
ÍÞfémR
FOLK
■ BÚIÐ er að ráða eftirmann
Alans Ball sem rekinn var frá
Portsmouth í vikunni. Er það John
Gregory, aðstoðarmaður stjórans
brottræka. Gregory þessi lék á
árum áður og fram undir síðasta
ár með ýmsum liðum, m. a. Aston
Villa og QPR.
■ BRIAN Stemmle frá Kanada
liggur enn á gjörgæslu á sjúkra-
húsi í Innsbruck, en hann meiddist
í brunkeppni heimsbikarmótsins um
helgina, er annað skíðið festist í
öryggisneti.
■ ALBANIR og GRIKKIR léku
vináttulandsleik í knattspymu í
Tirana í gærkvöldi. Leiknum lauk
með jafntefli, 1:1.
I MICK BAXTER sem lék fyrir
nokkrum árum með Preston og
Middlesbrough, lést f gær, aðeins
34 ára gamall. Hann var nokkuð
efnilegur og fór fyrir 300.000 pund
er Boro keypti hann af Preston
fyrir 4 árum. Baxter var með
krabbamein.