Morgunblaðið - 23.02.1989, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1989
Dröfii finnur mikið af
smáýsu:
Svæði lokað
SVÆÐINII frá Þorlákshöfn að
Vestmannaeyjum hefur verið
lokað fyrir dragnóta- og togveið-
um út að 4 sjómílum frá landi.
95% af ýsu, sem rannsóknaskipið
Dröfo veiddi á þessu svæði, var
undir 50 sentímetrum en svæðum
er lokað ef meira en 30% af
ýsunni er undir 50 sentímetrum,
að sögn Jakobs Jakobssonar for-
stjóra Hafrannsóknastofounar.
Jakob sagði að flesta mánuði
ársins væri svæðið frá Þorlákshöfn
að Vestmannaeyjum lokað út að 3
sjómflum frá landi. Lokanir í fyrra
hefðu verið 110 talsins, þar af um
fjórðungur vegna smáýsu.
Sakadómur Reykjavíkur:
6 ára fangelsi
fyrir mann-
drápstilraun
VÍÐIR Kristjánsson, 25 ára gam-
all, hefor f Sakadómi Reykjavíkur
verið sakfeUdur fyrir mann-
drápstilraun og dæmdur til 6 ára
fangelsisvistar fyrir að hafa
stungið 41 árs gamlan m»nn með
hnffi í kviðarhol. Atburðurinn átti
sér stað hinn 13. nóvember síðast-
liðinn á heinrili hins særða, sem
hlaut lffshættuleg áverka og
þurfti að gangast undir bráða
skurðaðgerð.
99 daga gæsluvarðhald, sem Víðir
var látinn sæta í þágu rannsóknar
málsins, kemur til frádráttar refsing-
unni. Honum var einnig gert að
greiða allan sakarkostnað. Þar sem
refsing sú sem Sverrir Einarsson
sakadómari ákvað er þyngri en fimm
ára fangelsi kemur málið sjálfkrafa
til kasta Hæstaréttar.
Vanskil
Olís 170
milljónir
VIÐ munnlegan málflutning um
innsetningarbeiðni Landsbank-
ans í útistandandi viðskiptakröf-
ur Olís kom fram að vanskil Olís
við bankann eru mun meiri en
áður var talið eða 170 miUjónir
króna. Þetta kom fram í greinar-
gerð Iögmanns bankans Reinhold
Kristjánssonar.
Lögmaður Olís, Óskar Magnús-
son, gerir þá kröfu að innsetningar-
beiðnin nái ekki fram að ganga.
Hann telur yfirlýsingu þá sem
Landsbankinn byggir mál sitt á
bijóta í bága við veðlög og lög um
hlutafélög. Auk þess telur hann að
gögn sem Landsbankinn hefur lagt
fram í máli þessu bijéti í bága við
lög um bankaleynd.
Yfirlýsing sú sem hér um ræðir
var undirrituð af fjórum af sjö
stjómarmönnum Olís síðla árs
1985. í henni segir að Landsbank-
inn geti hvenær sem er fengið í
hendur verðbréf og reikninga Olís
óski hann þess.
Sjá nánar á bls. 29.
Morgunblaðið/B.B.
Ahafiiir vélanna þriggja
að loknu fluginu. En á
innfeUdu myndinni eru
Herkúlesvélin og þyrl-
urnar tvær að koma tíl
Kellavíkur úr björgunar-
leiðangrinum.
Björgunarleiðangur vamarliðsþyrla í gær:
Ein mesta aðgerð vam-
arliðsmanna til þessa
Þyrlumar flugu 550 sjómílur á haf ót í vonskuveðri
Keflavfk.
TVÆR þyrlur og ein Hercules-flugvél frá varnarliðinu fóru f
björgunarleiðangur f gærmorgun í átt að flutningaskipinu SecU
Angola sem sökk undan írlandsströndum. Átti að freista þess að
bjarga áhöfo skipsins f þyrlurnar. TU þess kom þó ekki, þar sem
bresk þyrla hafði komið á staðinn og áhöfo hennar enga menn
fúndið á Iffi. Sautján manns fórust með skipinu. Vamarliðsþyrlun-
um var snúið aftur til Keflavíkurflugvallar og lentu þær þar klukk-
an 14.15 i gær, eftir átta tfma samfeUt flug.
Það var klukkan 2.45 í fyrri- einu vélamar sem áttu möguleika
nótt að haft var samband við vam-
arliðið og sagt frá erfiðleikum
skips suðaustur í hafi, að sögn
Friðþórs Eydal fréttafulitrúa
vamarliðsins. Áhafnir flugvél-
anna voru kallaðar út klukkan
4.00 og var lagt af stað klukkan
6.15 í gærmorgun. Tvær þyrlur
voru sendar af stað. Þær eru af
gerðinni Sikorsky HH3E, öðru
nafni „Jolly Green Giant" og eru
á að ná til skipsins og bjarga allri
áhöfninni, þar sem þær geta tekið
eldsneyti á flugi. Með í för var
Hercules-vél með eldsneytisbirgð-
ir.
V amarliðsvélamar lentu í
vonskuveðri á leiðinni, stormi og
ísingu. Þurftu þær að fljúga allt
niður í 30 metra hæð vegna slæms
skyggnis og taka á sig langan
krók framhjá versta veðrinu.
Ölduhæð var 8-9 metrar.
Klukkan 11.05 barst tilkynning
um að leit væri hætt. Vamarliðs-
vélamar héldu þó áfram en sneru
við klukkan 11.20, enda var þá
orðið ljóst að þær gátu ekkert að
gert. Þá höfðu þær flogið 550
sjómflur á haf út, eða sem sam-
svarar um 1.100 kflómetrum.
Þyrlumar þurftu tvisvar að
taka eldsneyti á leiðinni og gekk
það illa vegna ókyrrðar í lofti. 25
manns tóku þátt í þessari aðgerð
og er hún ein sú umfangsmesta
sinnar tegundar sem vamarliðið
hefur átt þátt í, að sögn Friðþórs
Eydal.
- B.B.
Sjá bls. 20 „Erum í mikilli
hættu, þyrlur flýtið ykkur“
Neskaupstaður:
Ólafiir K. ÓlaJfe-
son skipaður
bæjarfógeti
ÓLAFUR K. Ólafsson hefúr verið
skipaður bæjarfógeti á Neskaup-
stað frá 1. mars að telja. Hann
hefúr verið settur í embættið
undanfarið ár.
Ólafur er tæplega 33 ára, fæddur
22. maí 1956. Hann lauk stúdents-
prófí frá Menntaskólanum í
Reylqavík vorið 1976 og prófi frá
lagadeild Háskóla íslands 1983.
Hann er kvæntur Láru Gunnars-
dóttur og eiga þau þijú böm.
Fjarkamótið:
Balasjov vann
Hannes Hlííkr
SOVÉSKI stórmeistarinn Bala-
sjov vann Hannes Hlífar Stefáns-
son í 8. umferð Fjarkamótsins f
skák á Hótel Loftleiðum og er
einn í efsta sæti á mótinu með 6
vinninga, heilum vinningi fyrir
ofan næstu menn.
Úrslit í öðrum skákum urðu þau
að Jón L. Amason vann Sævar
Bjamason, Margeir Pétursson vann
Björgvin Jónsson og Hodgson vann
Sigurð Daða Sigfússon. Jafntefli
gerðu Watson og Helgi Ólafsson
og Tisdall og Eingom, en Karl Þor-
steins og Þröstur Þórhallsson höfðu
ekki lokið skák sinni.
Tálknafjörður:
14.000 bensín-
lítrar í jörðina
Tálknafirði.
FJÓRTÁN þúsund lftrar af
bensini, sem dælt var úr olíuskip-
inu Stapafelli, runnu niður í jörð-
ina við birgðastöð ESSO á Tálkna-
firði aðforanótt nriðvikudagsins.
Ástæðan fyrir óhappinu var sú að
opið var á milli tanka í skipinu án
þess að menn gerðu sér grein fyrir
þvf en ætlunin var að dæla öllu
bensíni úr einum af tönkunum yflr
í birgðastöðina. Bensínið spfttist 20
til 30 metra upp í loftið úr yfirfalls-
röri f birgðastöðinni vegna mikils
þrýstings frá skipinu.
JOÐBÉ
Búist við auknu atvinnuleysi á næstunni:
Áformað að draga úr veitiiigii
atvinnuleyfa til útlendinga
JÓHANNA Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, lagði á ríkisstjómar-
fúndi á fimmtudag fram greinargerð um stöðuna í atvinnumálum.
Jóhanna segir að búast megi við aukningu atvinnuleysis á næstunni
og að erfitt gæti reynst fyrir námsmenn að finna sumarvinnu. Meðal
aðgerða sem hún leggur til er aukin tölvuvæðing vinnumiðlunar sveitar-
félaga og að dregið verði úr veitingu atvinnuleyfo til útlendinga.
Jóhanna Sigurðardóttir sagði að
hún hefði talið rétt að leggja fram
þessa greinargerð þar sem orðið
hefðu veruleg umskipti f atvinnumál-
um upp á síðkastið. Hefði vinnumála-
skrifstofu félagsmálaráðuneytisins
Jón Baldvin Hannibalsson um Arnarflugsmálið:
Meirihlutí ríkisstjórnar ósáttur
JÓN Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra og formaður AI-
þýðuflokksins segir að meiri-
hluti ríkisstjórnarinnar sé ósátt-
ur við þá niðurstöðu sem sé fyr-
irsjáanleg f málefoum Araar-
flugs. Hins vegar sé ljóst að rfkið
muni þurfo að leggja fram nyög
mikla fjármuni ef tryggja ætti
rekstrargrundvöll Arnarflugs.
Viðræður fara nú fram af hálfu
ríkisins við Flugleiðir og Amarflug
um það hvort, og með hvaða hætti,
félagið yfirtaki rekstur Amarflugs.
Jón Baldvin Hannibalsson sagði við
Morgunblaðið að þetta mál væri
að vísu ekki útkljáð, en því væri
ekki að neita að allt stefndi f niður-
stöðu sem meirihluti ríkisstjómar-
innar er ekki sáttur við.
„Þetta er vond niðurstaða ef hún
verður slík sem er boðuð. Hitt er
annað mál, að allar tölur sem
nefndar hafa verið um skammtíma-
skuldir, langtímaskuldir og rekstr-
arafkomu Amarflugs frá því við-
ræður byijuðu í haust hafa reynst
brigðular og endanlega miklu hærri
en upphaflega var gefið í skyn
sagði Jón Baldvin Hannibalsson.
borist tilkynningar um 2.500 upp-
sagnir frá fyrirtækjum á síðustu
þremur mánuðum 1988. Taldi hún
að búast mætti við frekari aukningu
atvinnuleysis því samkvæmt könnun
sem tjóðhagsstofnun hefði gert fyrir
ráðuneytið á stöðunni í 75% atvinnu-
greina teldu atvinnurekendur sig
þurfa að losa um 400 störf á næst-
unni.
Félagsmálaráðherra sagðist einnig
hafa áhyggjur af þeim 12-15.000
námsmönnum sem myndu senn helja
leit að sumarvinnu. Undanfarin ár
hefðu flestir þeirra fengið vinnu yfir
sumartímann en nú ríkti mikil óvissa.
Langtímaatvinnuleysi hefði einnig
gert vart við sig á sumum stöðum.
Væru dæmi um að fólk hefði verið
atvinnuiaust lengur en eitt bótatíma-
bil, þ.e. sex mánuði, en eftir það
væri engin önnur úrlausn en að leita
framfærslu. Vinna í ákveðinn tíma
væri forsenda endumýjunar bóta-
réttinda. Þetta sagðist Jóhanna vilja
endurskoða.
Einnig'vildi hún virkja vinnumiðl-
Qnipnof cnm uípni i öllum sveitarfé-
lögum með fleiri en 500 íbúa. Hef
verið unnið að því að koma upp tölvi
væðingu hjá vinnumiðlununum <
það byði upp á stóraukna möguleil
til vinnumiðlunar milli byggðalag
Nú starfaði hver vinnumiðlun fyi
sig nánast einangruð í sínu byggða
lagi. Þá myndi félagsmálaráðuneyt
beita sér fyrir því að vinnumálaskri
stofan í samvinnu við Byggðastof
un, atvinnumálanefodir sveitarfélaj
anna og vinnumiðlanimar fync
lausn á málum þeirra sveitarfélaf
þar sem langtímaatvinnuleysis hef
orðið vart.
í greinargerð sinni til ríkisstjór
arinnar kemur félagsmálaráðhen
einnig inn á ríkisábyrgð á launu
en á síðastliðnu ári bárust 8<
greiðslubeiðnir vegna 84 gjaldþrot
Hafði verið ráðgert að greiða 5
m.kr. á síðasta ári vegna gjaldþro
en niðurstaðan varð tæpar 87 m.h
Jóhanna sagðist vilja skoða hvo
hlutafélagalöggjöfin byði upp á mi
notkun hvað þetta varðaði og hvo
astæða væri til að setja hámark
þau laun sem ríkisábyrgð næði til