Morgunblaðið - 23.02.1989, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1989
31
Rauðglóandi línur vegna útvarpsfréttar:
Mikil eftirspurn eft-
ir fiskvinnu í Hrísey
„VIÐ höfum ekki haít frið fyrir símanum í allan dag. Fólk hvaðanæva
af landinu er að hringja og spyija um vinnu,“ sagði Jóhann Þór Hall-
dórsson, framkvæmdastjóri fiskvinnslu KEA i Hrisey, í samtali við
Morgunblaðið i gær. í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins i gær var frá
þvi gTeint að mikill afli hefði borist á land í Hrísey og gætu Hríseying-
ar tekið á móti allt að 200 manns i vinnu.
„Ég veit ekki og skil ekki hvemig ekki borist á land í Hrísey eftir ára-
þessar upplýsingar eru fram komn-
ar. Við fyllum nú 37 heil störf sem
50 manneskjur skipta á milli sín og
þurfum síst á fleira fólki að halda.
Síminn hefur verið glóandi í allan
dag og höfum við svarað því til að
þessi frétt RÚV hljóti að vera á mis-
skilningi byggð. Atvinnuástand er
ágætt hér, en ekkert í líkingu við
það sem gefið var til kynna í útvarps-
fréttunum," sagði Jóhann Þór.
Fiskvinnsla KEA í Hrísey hefur
getað haldið uppi dagvinnu frá ára-
mótum. Aðeins hefur fallið úr einn
vinnudagur. Ferskur fiskur hefur þó
mót fyrr en í gær þegar Súlnafell
ÞH frá Þórshöfn landaði þar 55 tonn-
um af þorski í gegnum Fiskmiðlun
Norðurlands á Dalvík. KEA greiddi
43 krónur fyrir kg. Að sögn Hilmars
Daníelssonar hjá Fiskmiðlun Norður-
lands lætur nærri að útgerð skipsins
fái rúmum 600.000 þúsundum krón-
um meira fyrir hráefnið með því að
fara í gegnum markaðinn heldur en
að leggja upp í frystihúsi í heima-
höfn þar sem verð er 28 krónur á
kg auk kassa- uppbótar.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Göngin f gegnum Ólafsfjarðarmúla eru nú orðin lengstu veggöng landsins. í dag verður búið að
sprengja rúma 790 metra inn í Múlann. Þeir sem unnu við sprengingar I gær eru Njáll Haukur og
Haraldur Kristjánsson og Norðmennirnir Paal Mork og Torbjörn Ubestad.
Tónleikar
strengjadeildar
TÓNLEIKAR strengjadeild-
ar Tónlistarskólans á Akur-
eyri verða haldnir í sal skól-
ans í kvöld, fimmtudags-
kvöld, og hefjast þeir kl.
20.30.
Flutt verður tónlist fyrir
fiðlu, lágfiðlu, selló og píanó
eftir þá Bach, Eccles, Mozart,
Vivaldi, Wagner og Pepusch.
Aðgangur er ókeypis.
Strákagöug ekki lengnr lengstu veggöng landsins
Jarðgangagerðinni í gegnum
ÓlafsQarðarmúla miðar vel
áfram og í dag verða göngin
lengstu veggöng landsins.
Strákagöng við SigluQörð hafa
tíl þessa verið lengstu veggöng
landsins, alls 783 metrar að
lengd. Hinsvegar urðu þáttaskil
f þeim efnum um miðjan dag f
gær þegar starfsmenn Kraft-
taks, sem vinna við gangagerð-
ina f Múlanum, náðu þvf tak-
marki. Um hádegi í dag verður
búið að sprengja yfir 790 metra
inn í.Múlann.
Göngunum í gegnum Ólafsfjarð-
armúla er ætlað að verða alls 3.130
metrar að lengd og er því nú búið
að sprengja fjórðung þeirra. Þau
verða sex metra há og fimm metra
breið. „Verkið er á áætlun og eng-
in óvænt óhöpp hafa komið upp
enn sem komið er. Unnið er á
tveimur vöktum, tíu og fjórtán
tíma, og eru starfsmenn 25 tals-
ins, þar af tólf Norðmenn. Sam-
kvæmt áætlun, verðum við komnir
í gegnum Múlann í marsmánuði á
næsta ári og því er rúmt ár eftir
f borunum og sprengingum. Vinna
við ýmsan frágang svo sem við
slitlag og veginn sjálfan nær fram
til ársloka 1990. Þá er stefnt að
verklokum ogopnunjarðganganna
í gegnum Ólafs§arðarmúla,“ sagði
Bjöm A. Harðarson; staðarverk-
fræðingur Vegagerðar ríkisins í
Ólafsfjarðarmúla.
Fyrsta sprengjan var sprengd í
Múlanum í byijun október og
lengst af hefur vinna verið allan
sólarhringinn. Starfsmenn fá tíu
daga páskafrí, frá 17. til 28. mars,
og síðan er áætlað nokkurra daga
frí um hvítasunnu. Norðmennimir
fara í þriggja vikna frí í júlímán-
uði, en þrátt fyrir það verður unn-
ið í vegagerðinni af krafti auk
þess sem unnið verður við upp-
steypu á forskálum, sem koma eiga
við báða gangamunnana.
T Ó N L E
K A R
í HÁSKÓLABÍÓI
laugardagiim
25. febrúar kl. 5.
I Jndirleilvari Lára Rafnsdóttir
íslensk, skandinavísk og
ítölsk lög og aríur.
Aðgöiiguiniðasala í Háskólabíói