Morgunblaðið - 23.02.1989, Blaðsíða 52
SltaQgnnfclðfrtfe
SAGA CLASS
í heimi hraða og athafna
FLUGLEIÐIR
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1989 VERÐ í LAUSASÖLU 70 KR.
Afram norðan-
og norðaustanátt
Fyrsti bjórinn íhús hjá Á TVR
Fyrsti bjórinn sem ATVR kaupir inn er nú kominn
Morgunblaðið/Sverrir
í hús. Það var síðdegis í gær sem fyrsti gámurinn,
fullur af Budweiser bjór, var fluttur í birgða-
geymslu ÁTVR við Stuðlaháls f Reykjavík og er
myndin tekin við það tækifæri. Hinar erlendu teg-
undimar koma um mánaðamótin, Kaiser 28. febrúar
og Tuborg 1. mars. Búast má við að handagangur
verði \ öskjunni við að koma þeim tegundum í versl-
anir ÁTVR, enda hefst bjórsalan 1. mars. Samning-
ar hafa náðst við innlenda bjórframleiðendur um
innkaupsverð til ÁTVR og er það rúmar 20 krónur
fyrir hveija 33 sentilítra dós, sem er nálægt því að
vera helmingi hærra en erlenda bjórsins. Útsöluverð
á innlendum bjór var ákveðið í gær. Dós af Egils
gull mun kosta 100 krónur, dós af Sanitas pilsner
93 krónur, dós af Lövenbrau 105 krónur og dós af
lager 110 krónur. Verð á Budweiser og Tuborg
verður ákveðið í dag en Kaiser mun kosta 120 krón-
ur dósin.
Fyrsti samningafundur BHMR, HÍK, KÍ og ríkisvaldsins
Tugi prósenta ber
„Það gerðist ekki neitt. Þeir
höfðu ekkert fram að færa annað
en ummæli Qármálaráðherra um
''•^öreyttan kaupmátt fyrsta árs-
fjórðungs þessa árs. Það var í
raun þeirra tilboð,“ sagði Páll
Halldórsson, formaður Banda-
lags háskólamenntaðra rikis-
starfsmanna eftir fyrsta samn-
ingafund BHMR, Hins íslenska
kennarafélags og Kennarasam-
bands íslands annars vegar og
samninganefndar rikisins hins
vegar i gær ura kjarasamninga
fyrir næsta ár. Annar fundur
hefur verið ákveðinn í næstu
viku, en hann hefur ekki verið
tímasettur nánar.
BHMR lagði fram kröfugerð sína
á fundinum. Páll sagði að megin-
krafan væri sú að ríkið greiddi sömu
laun og greidd væru háskólamönn-
um á_ hinum almenna vinnumark-
aði. í þessari atrennu væri ekki
verið að fara fram á mögulegar
jrfirborganir, sem tíðkuðust á al-
menna markaðnum, heldur „skil-
greinum við markaðslaun eftir þeim
töxtum sem við þekkjum bæði frá
verkfræðingum og tæknifræðing-
um. Til skilningsauka lögðum við
einnig fram launatöflu verkfræð-
inga,“ sagði Páll.
Hann sagði að þetta þýddi mis-
munandi hækkanir eftir því hvar
menn væru staddir í taxtakerfinu,
sem væri mjög flókið. Svo dæmi
væri tekið af handahófi væru
lægstu laun tæknifræðings um 76
þúsund krónur á mánuði, en lægstu
laun samkvæmt taxta Félags
íslenskra náttúrufræðinga væru í
kringum 50 þusund krónur.
HIK og KÍ gera kröfu um að
laun hækki verulega. Aðrar kröfur
félaganna eru endurskoðun á gildi
menntunar og á starfsaldurskerfi
og full verðtrygging. BHMR gerir
kröfu um hækkun yfirvinnustuðuls,
styttingu vinnutíma, endurskoðun á
desemberuppbót, auk ýmissa atriða
eins og dagvistunarmála, endurbóta
á reglugerðum um veikindaforföll
og bamsburðarleyfi og aukin fram-
lög til endurmenntunar. HÍK og
KI gera kröfu um að kennsluskylda
í grunnskólum og framhaldsskólum
lækki, afsláttur verði á kennslu--
skyldu eftir 10 og 15 ára starf, sem
og vegna sérstakra starfsþátta.
VEÐURSPÁIN fram á sunnudag
gerir ráð fyrir áframhaldandi
norðan- og norðaustanátt með
éljagangi um norðan- og austan-
vert landið en úrkomulaust eða
léttskýjað verður í öðrum lands-
hlutum. Áfram verður kalt í
veðri eða á bilinu 5-15 stiga
frost. Þá er búist við að vindur
verði hægur í dag og á morgun,
en gæti orðið all hvass á laugar-
dag og sunnudag.
Þrátt fyrir óvenju mikla snjó-
komu og ótíð á þessum vetri hefur
varla farið framhjá neinum þessa
dagana að smám saman lengir dag-
inn. Nú eru liðnir rúmir tveir mán-
uðir frá vetrarsólstöðum 21. desem-
ber og nýtur dagsbirtu fimm og
hálfri klukkustund lengur nú en þá.
Þann 21. desember kom sólin upp
í Reykjavík klukkan 11.22 og sett-
ist kl. 15.30 og var sólarhæð á
hádegi 2,7 gráður. í dag kemur
sólin upp klukkan 8.56 og sest kl.
18.28.
Til samanburðar má geta þess
að samkvæmt Almanaki Háskóla
íslands sest sólin í Reykjavík í dag
á sama tíma og 9. október síðastlið-
inn.
ímilli
„Við kynnum þessa niðurstöðu
fyrir félagsmönnum okkar og þeir
verða að taka afstöðu til þess hvern-
ig þeir vilja snúa sér í þessu," sagði
Páll aðspurður um framhaldið.
„Ætla menn að láta það ganga eft-
ir sem fjármálaráðuneytið býður
upp á eða ætla menn að snúast til
vamar. Það er sú spuming sem
snýr að hinum almenna félags-
manni.“
Sólarhæð á hádegi í Reykjavík í
dag er 16,2 gráður, svipuð og var
18. október síðastliðinn.
Sjá veðurkort á bls. 4.
2000 ára
gamallísúr
Vatnajökli
til Evrópu
í ÞESSARI viku verður 20 tonn-
um af 2000 ára gömlum is úr
Vatnajökli skipað um borð í skip
á Höfii í Hornafirði. Þaðan fer
isinn á markað til Norðurlanda
og Bretlandseyja. Það er norsk/-
sænska fyrirtækið Fecon A/S
sem stendur að þessiun útflutn-
ingi en bændurnir á Hala II,
Steinþór og Fjölnir Torfasynir,
hafa séð um að afla íssins og
pakka honum.
Steinþór segir að ísinn hafi þeir
fengið úr lóninu í Jökulsá á Breiða-
merkursandi sem er í um 15 km
fjarlægð frá Hala. ísinn saga þeir
> köggla 30X40 sm að stærð. Um-
boðsmenn Fecon A/S höfðu sam-
band við þá og báðu þá um þetta
verk fyrir um hálfum mánuði.
Isinn verður notaður í drykki.
Hann er mjög þéttur í sér og er
hann bráðnar í glasi heyrast snark
og hvellir í nokkum tíma. Japanir
munu til dæmis kaupa jökulís af
Bandaríkjamönnum vegna þessara
eiginleika hans.
í Evrópu mun Fecon markaðs-
setja ísinn undir nafninu Eldelis.
Steinþór segir að hann geti ekki
sagt um á þessari stundu hvort
þessi ísvinnsla geti orðið dijúg
aukabúgrein hjá þeim. Það verði
reynslan af fyrstu tilraunasending-
unni að leiða í ljós. Verðið sem
þeir bændur fá fyrir ísinn dugir
hinsvegar vel fyrir vinnu- og til-
kostnaði.
Óprúttnir viðgerðarmenn;
Viðgerð dýrari
en nýr dyrasími
MARGAR kvartanir hafa boríst
til Félags ísienskra rafverktaka
vegna tveggja manna sem
gengið hafa á milli Qölbýlis-
húsa í borginni og gert við eða
kannað ástand dyrasíma, án
þess að íbúar hafi óskað aðstoð-
ar þeirra. Morgunblaðinu er
kunnugt um tvö dæmi þess að
símakerfi fjölbýlishúsa hafi
verið í lamasessi eftir heim-
sóknir mannanna. Einn heim-
ildarmaður Morgunblaðsins
sagði að reikningur, sem menn-
irnir hugðust leggja fram fyrir
óumbeðna vinnu með notuðum
varahlutum, hafi verið dýrarí
en nýtt símtæki og uppsetning
á því en sú aðgerð hafi reynst
óhjákvæmileg að lokinni heim-
sókn þessara viðgerðarmanna.
Að sögn Árna Brvnjólfssonar,
ffamkvæmdastjóra FIR, eru dæmi
þess að mennimir hafi gefið rang-
lega í skyn að þeir hafi verið
fengnir til verksins af umsjónar-
mönnum eða forsvarsmönnum
húsfélaga. Hann sagði að sér
væri kunnugt um að kvartað hefði
verið símleiðis til RLR vegna
þessa en þar hefði verið sagt að
ekkert væri hægt að gera. Eina
leiðin væri að vara fóik við þessum
heimsóknum. Hann sagði að ann-
ar mannanna væri rafvirkjalærð-
ur en hefði ekki löggildingu til
sjálfstæðra starfa I Reykjavík.
Ami sagði að fólk virtist granda-
laust fyrir heimsóknum af þessu
tagi og tæki mönnunum, sem
helst munu vera á ferð að kvöld-
lagi eða um helgar, í góðri trú.
Talið væri að í einu húsi hefðu
mennimir haft um 30 þúsund
krónur upp úr krafsinu á einni
kvöldstund. Hins vegar hefði fjöldi
manns lent í því að bilana hefði
fyrst orðið vart að lokinni heim-
sókn mannanna.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Múlagöngin orðin lengst
Göngin í gegnum ÓlafsQarðarmúlann verða í dag lengstu jarð-
göng á tslandi. í gær náðu göngin 783 metrum en það það er
sama lengd og á Strákagöngum við SigluQörð. Með sprengingum
í dag ná Múlagöngin forystunni. Á myndinni sést Björn A. Harð-
arsson staðarverkfræðingur, til hægrí, bera mælingar undir einn
star&manna í göngunum í gær. Sjá nánar á Akureyrarsíðu.