Morgunblaðið - 23.02.1989, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1989
7
Það sem allir œttu að vita... um viðskipti með skuldab réf og hlutabréf
Geymið auglýsinguna Geymið auglýsinguna
Er grái
markaðurinn
skrímsli?
Eða-
sjálfsagður og
eðlilegur hluti af
fjármagnsmarkaði?
Sá hluti fjármagnsmarkaðs-
ins hér á lancli sem sér um
miölun skuldabréfa og hluta-
bréfa er oft kallaður grái
markaðurinn. Margir líkja
honum við skrímsli sem færi
sér lánsíjárþörf almennings og
fyrirtækja í nyt og vilja setja á
han n höft. Aðrir ben da ré tti lega
á að grái markaðurinn hefur
veigamiklu hlutverki að gegna.
Það er að miðla fé, á skilvirkan
og ódýran hátt, frá þeim sem
leggja fyrir og eyða minna en
þeir afla, til atvinnúfyrirtækja
og annarra sem þurfa á lánsfé
eða auknu eigin fé að halda.
Grái markaðurinn hefur
skilað þessu hlutverki sínu með
sóma. Hann hefur einnig
ávaxtað peninga spari-
fjáreigenda á góðan og örugg-
an hátt. Góð ávöxtun fær lands-
menn til að spara sem aftur
leiðir til þess að fyrirtæki og
aðrir geta aflað sér innlends
lánsfjár og eigin fjár og þurfa
ekki að leita til erlendra spari-
fjáreigenda.
Þannig fá Islendingar góð-
ar tekjur af sparifé sínu og
dýrmætur hluti þjóðartekna
rennur ekki í vasa útlendinga.
Til að skiija möguleika og
kosti gráa markaðsins þarf
nokkra þekkingu og réttar
upplýsingar.
Það sem fram kemur hér á
síðunni hefur verið tekið sam-
an á vegum VIB. Það er von
okkar að þessi samantekt korni
lesendum að nokkru gagni.
HVAÐ ERU
SKULDABRÉF
OG
HLUTABRÉF?
Skuldabréf og hlutabréf
kallast einu nafni verðbréf.
Skuldabréf eru gefin út til
sönnunar og viðurkenningar á
skuldum. Þau eru skrifleg
yfirlýsing útgefanda um skyldur
hans til að greiða peninga á
ákveðnum tíma. Hlutabréferu
ávísun á hlut í hlútafélagi.
Eigandi hlutabréfs á því hlut í
eigum fyrirtækis, viðskiptavild
þess og framtíðarhagnaði.
Talaö er um að verðbréf séu
skráð þegar bankar eða
verðbréfafyrirtæki kaupa ]jau
og selja á auglýstu verði. Skráð
verðbréf eru t.d. Spariskírteini
ríkissjóðs, bankabréf og skulda-
bréf verðbréfasjóða en skulda-
bréf einstaklinga og lítilla fyrir-
tækja eru yfirleitt ekki skráð.
Flestir flokkar skráðra skulda-
bréfa eru traust og örugg
verðbréf.
FJOGUR
LYKILATRIÐI SEM
HAFAÞARFÍ
HUGAVIÐKAUP Á
VERÐBRÉFUM:
1. Öryggi
2. Góð ávöxtun
3. Trygg endursala
4. Aðgengilegar
upplýsingar
Hvert prósentubrot skiptir
máli þegar sparifé er ávaxtað.
Há ávöxtun kemur þó að litlu
gagni efspariféð tapast. Stund-
um þarf eigandinn aö selja
bréf fyrir gjalddaga og það er
auðvelt séu þau skráö hjá opin-
beru verðbréfafyrirtæki. Því er
mikilvægt að skipta við slík
fyrirtæki. Þau búa einnig yfir
sérþekkingu á sviöi verðbréfa-
viðskipta og auðvelt er að leita
upplýsinga hjá þeim.
53% VELJA
VERÐBREF
Oryggi og ávöxtun i fyrirrumi samkvæmt skoöana-
könnunum Gallups og Félagsvísindastofnunar.
Svör Gallups voru í %:
Samkvæmt skoðanakönnun
Gallups sem Ijirt er í febrúar
tölublaði Frjálsar verslunar
kysu 53% aðspurðra að ávaxta
fé sitt í verðbréfum ef þeir ættu
eina milljón króna. I sömu skoð-
anakönnun k(jm fram að spari-
fjáffcigendur leggja áherslu á
tvennt: öryggi oggóða ávöxtun.
Þetta kom einnig í ljós t
skoðanakönnun Félagsvísinda-
stofnunar sem birt var í
Morgunblaðinu 14. janúar sl.
1. Leggja inn í banka/
sparisjóð 40,7
2. Kaupa spariskírteini 30,0
3. Kaupa verðbréf í
verðbréfafyrirtæki 23,2
Fólk var einnig spurt: „Hvers
vegna tnundir pú velja
pennan kost?“
1. Mesta öryggið 37,6
2. Besta ávöxtunin/kjörin 24,5
Algeng ávöxtun
skráöra skulda-
bréfa á sidasta ári
var 8-11 % yfir
verðbólgu
Það kom m.a. fram í
•könnunum Félagsvísindastofn-
ttnar og Gallups að spari-
fjáreigendur leggja mikla
áherslu á góöa ávöxtun þegar
þeir velja sér sparnaðarleið.
Þeir sem kaupa skuldabréf
gera það einmitt vegna þeirrar
góðu ávöxtunar sem skulda-
bréf bjóða.
Vaxtamunur á verð-
bréfamarkaðnum er
oftast aðeins 1-2%.
Skuldabréf eru yfirleitt gef-
in út í háum fjárhæðum til
langs tíma. Því verður kostn-
aður við veltu peninga lítill.
Bankar eða verðbréfafyrirtæki
sem sjá um miðlun skulda-
bréfa komast því af með minni
vaxtamun en þörf er á í venju-
legri innlánsstarfsemi og geta
þannig greitt sparifjáreigend-
um hærri vexti en ella.
Þrátt fyrir að skuldabréf séu
gefin út til nokkurra ára geta
eigendur skráðra skuldabréfa
að jafnaði selt þau aftur fyrir
gjaiddaga þurfi þeir á pening-
um sínum að halda. Fyrirtæki
eða stofnanir sem kaupa og selja
verðbréf á auglýstu verði og
greiða þannig fyrir viðskiptum
kallast viðskiptavakar.
Flest skuldabréf eru seld
í 50.000 króna eining-
um minnst. Skuldabréf
verdbréfasjóða og Span-
skírteini ríkissjóbs eru pó
til í minni einingum t.d.
5.000 krónutn.
Hárri ávöxtun
fylgir aukin
áhœtta
Yfirleitt má gera ráð fyrir
því að bréf sem bera háa
ávöxtun séu áhættusamari en
þau sem bera lægri ávöxtun.
Það er því ekki nóg að líta
bara á ávöxtun verðbréfa, fólk
verður einnig að meta hversu
örugg bréfin eru. Sumir \'ilja
helst enga áhættu taka, aðrir
taka nokkra áhættu í von um
meiri ávöxtun. Hver og einn
verður að meta fyrir sig hvað
borgar sig best fýrir hann.
Helstu tegundir skulda-
bréfa eru Spariskírteini
ríkissjóðs, bankabréf,
hlutdeildarbréf verð-
bréfasjóða auk skulda-
bréfa fjárfestingar-
lánasjóða og eignar-
leigufyrirtækja.
Spariskírteini ríkissjóðs eru
öruggust þessara bréfa þar
sem hverfandi líkur eru á að
ríkið standi ekki við skuld-
bindingar sínar. Þau bera því
lægstu vexti skuldabréfa.
Spariskírteini voru fyrst gefin
út fyrir 25 árum og hafa verið
verðtryggð frá upphafi.
Iðnaðarbankinn hófútgáfu
verðtryggðra bankabréfa árið
1985 en sala bankabréfa hafði
þá legiö niðri um áratuga skeið.
Aörir bankar fylgdu í kjölfarið.
Bankabréferu talin mjögörugg
skiddabréf. Avöxtun þeirra er
hærri en spariskírteina og er
nú 8,5-9,2% yfir verðbólgu.
Fyrstu verðbréfasjóðirnir
voru stofnaðir hér á landi í maí
1985 og nú eru starfandi hér 15
verðbréfasjóðir. Kostir þeirra
eru háávöxtun, áhættudreifmg
og sveigjanleiki. A árinu 1988
var ávöxtun Sjóðsbréfa 1 hjá
VIB 11,1% yfir verðbólgu.
HVAÐA SKULDABREF
HÆGTAÐ KAUPA?
Auk þessara skuldabréfa má
nefna skuldabréf eignarleigu-
fyrirtækjas.s. Glitnishf. og fjár-
festingarlánasjóða s.s. Iðnlána-
sjóðs. Þau teíjast til traustra
skuldabréfa og gefa jafpframt
háa ávöxtun, þau fyrrnefndu
11-12% yfir verðbólgu á ári og
þau síðarnefndu 7,5-9%.
HVAÐ ERU
VERÐBRÉFASJÓÐIR ?
Sktddabréf verðbréfasjóða
njóta vaxandi vinsælda hér á
landi. Þegar fólk kaupir
skuldabréf verðbréfasjóða má
segja aö það sé að leggja sparifé
sitl í sjóð með fjölmörgum
öðrum sparifjáreigendum. Það
fé er síðan notaö til kaupa á
ýmsum tegundum skulda-
bréfa. Verðbréfasjóðir eru
þannig nokkurs konar pottar
og líta má á skuldabréf þeirra
sem ávísun á lduta í öllum
þeim bréfum sem í pottinum
ER
eru. Skuldabréf verð-
bréfasjóða má því einn-
ig nefna hlutdeildar-
bréf.
Hlutdeildarbréf þau
sem verðbréfasjóðir
gefa út eru þó misörugg
og fer áhættan eftir fjárfesting-
arstéfnu sjóðánna. Sum eru til-
tölulega áhættusöm, önnur
mjögörugg, allteflir því hvers
konar skuldabréf standa að
baki hlutdeildarbréfunum. I
þessu sambandi er nauðsynlegt
að hafa í huga að aukin áhætta
er venjulega samfara hárri
ávöxtun.
Verðbréfasjóði má yfirleitt
greina í t\'o flokka, vaxtarsjóði
og tekjusjóöi. Vextir og verð-
bætur leggjast við höfuðstól
hinna fyrrnefndu og greiðast
út í einu lagi þegarbréfin eru
seld. Eigendur tekjubréfa fá
vextina greidda út reglulega og
aðeins verðbætur leggjast við
höfuðstól.
Verðbréfasjóðir gera fólki
kleift að kaupa skuldabréf fyrir
tiltölulega lágar upphæðir. Það
er líka auðvelt að selja hlutdeild-
arbréf verðbréfasjóða því
útgefendur þeirra sjá um inn-
lausn á jjeim.
HVAÐMEÐ
HLUTABRÉF?
Avöxtun hlutabréfa gelur verid
mjöggóð ogmiklu hærri en afskulda-
bréfutn ef rekstur fyrirtœkis gengur
vel.
A sidasta ári varraunávóxtun
skrábra hlutabréfa að meðaltali
25%.
Hlulabréf teljast yfirleitt ekki eins
öruggogskuldabréfþví að hlulhafar
geta þurft að seetta sig við lága
ávöxtun eða jafnvel lap þegar illa
árar, en eigandi skuldabréfs fær
ákveðna vexli hvort sem fyrirliekið
gengurveleða illa. Hluthafargeta
nolið arðgreiðslna og skattfríðinda
ault ýtnissa réttinda og annarra
fríðinda.
Á áirinu 1988 seldi Hlulabréfa-
vi a rkaðu ri n n hf. ( HMA RK)
hlulabréffyrir 120 milljónir króna.
VIB sér utn rekstur HMARKS.
HVERNIG FARA
VIÐSKIPTIN
FRAM HJÁ VIB?
Þegar viðskiptavinur kemur
í afgreiðslu VIB í Ármúla 7 til
að spyrjast fyrir um verðbréf er
honum vísað til eins af níu
ráðgjöfum okkar. Þeir kynna
honum hvaða bréf eru á
boðstólum og svara spurning-
um sem hann kann að hafa.
Til hvers er verid að
spara ?
Það skiptir öllu máli í hvaða
tilgangi viðskiptavinurinn er að
spara. Er hann að hugsa um að
spara til langs tíma eða vill hann
aðeins geyma fé sitt í nokkra
mánuði?
Er hann að spara fýrir íbúð,
bíl eða ferðalagi eða er hann að
hugsa um framtíðaröryggi sitt
og ljölskyldu sinnar? Þetta eru
allt atriði sem skipta miklu máli
þegarviðskiptavinirokkarvelja
sér verðbréf til að ávaxta spari-
fé sitt.
Þegar viðskiptavinurinn
hefur valið þau skuldabréf eða
hlutabréf sem henta honum
best, tekur ekki langan tíma að
ganga frá viðskiptunum. Flest-
ir kjósa að láta VIB og Iðnaðar-
bankann sjá um geymslu og
innheimtu bréfa sinna þv.í aö
skuldabréf eru ígildi peninga
og því nauðsynlegt að geyma
þau á öruggum stað, t.d. í
bankahólfi.
Á boðstólum
VIB leggur áherslu á örugga
og góða ávöxtun og hefur á
boðstólum ýmsar tegundir
traustra skuldabréfa og
hlutabréfa. Fyrirtækið sér um
reksturverðbréfasjóðaVlBsem
gefa út Sjóðsbréf 1, 2, 3 og 4.
Sjóðir 1,2 og 3 fjárfesta að-
eins í skuldabréfum ríkis, sveit-
arfélaga, banka og traustra
fýrirtækja en Sjóður 4 fjár-
festir einnig í hlutabréfum
traustra fýrirtækja. Á síöasta ári
var ávöxtun Sjóðsbréfa 1 um
11,1% yfir verðbólgu, Sjóðs-
bréfa 2 um 11,6% og Sjóðsbréfa
3 um 9,7%. Sjóður 4 er ný-
stofnaður.
Auðveld viðskipti
- góðar upplýsingar
VIB leggur áherslu á að
veita viðskiptavinum sínum
bestu þjónustu og upplýsingar.
Til að auðvelda veröbréfa-
viðskiptin býður VIB viðskipta-
vinum að stofna Veröbréfa-
reikning eða Eftirlauna- og
Söfnunarreikning. Vandað
mánaðarlegt fréttabréf fæst í
áskrift og hefur að geymaýmsan
fróðleik um það sem efst er á
baugi í fjármálaheiminum.
Hafi einhverjar spurningar
vaknað við lestur þessarar
auglýsingar er velkomið að
hringja til okkar eðakomavið á
skrifstofunni í Ármúla 7. Þar
liggja frammi fimni nýir
bæklingar um verðbréfa-
þjónustu VIB.
Verið velkomin í VIB.
VIB
VERÐBREFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Ármúla 7, 1C8 Reykjavík. Sími 68 15 30