Morgunblaðið - 23.02.1989, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1989
39
Einara G. Björns-
dóttir - Minning
Fædd 6. febrúar 1921
Dáin 17. febrúar 1989
í dag verður jarðsungin frá Hafn-
arfjarðarkirkju systir mín, Einara
Guðbjörg Bjömsdóttir. Eyja, eins
og hún var ávallt kölluð, var dóttir
hjónanna Stefaníu Þómýjar Einars-
dóttur og Bjöms Benediktssonar
trésmiðs og var hún í miðið þriggja
systkina. Elst var Ingibjörg, fædd
23. júlí 1919, dáin 1972, þá Eyja,
og yngstur Benedikt húsgagna-
smiður sem býr í Garðabæ.
Eyja byijaði snemma að vinna
fyrir sér, enda voru kröpp kjör hjá
flestum heimilum á þeim ámm.
Fljótlega kom í ljós að hún var
mjög bamelsk enda byiiaði hún
snemma að passa böm. I nokkur
ár vann hún á Hafnarfjarðarspítala
sem gangastúlka og kom sér þar
sem annars staðar mjög vel. Einnig
vann hún við saumaskap hjá móður-
bróður sínum Einari Einarssyni
klæðskera í Hafnarfirði.
Minningamar frá æskuárunum
með systrum mínum em mér afar
kærar en verða ekki raktar hér.
Eyja var söngelsk, glaðlynd og átti
mjög gott með að samlagast fólki
bæði ungum og öldnum, og var
ætíð gott að hafa hana með f ráðum
hvort sem var í leik eða starfí. Hún
var vinaföst og hélt sambandi við
vini sína meðan heilsan entist.
Eyja giftist Hálfdáni Þorgeirs-
syni bifvélavirkja 16. október 1943,
en hann lést 21. janúar á síðast-
liðnu ári eftir stutta legu á sjúkra-
húsi. Þau byggðu sér ból í Köldu-
kinn 18, Hafnarfirði, og áttu sitt
heimili þar til ársins 1987. Eyja
vann í nokkur sumur með konu
minni í veiðihúsi norður í Vatnsdal.
Þar undi hún hag sfnum mjög vel
og naut þess að geta verið í tengsl-
um við fagurt umhverfí.
Þeim hjónum varð ekki bama
auðið en fóru þó ekki varhluta af
bamauppeldi, þar sem fjögur systk-
inaböm Eyju vom alin upp á heim-
ili þeirra hjóna að miklu leyti.
Eyja missti heilsuna langt um
aldur fram og dvaldi á sjúkrahúsinu
Sólvangi síðastliðin sex ár. Þar fékk’
hún eins góða umönnun og hægt
var, og skulu læknum og hjúkmnar-
fólki sem þar starfar færðar góðar
þakkir.
Ég og fjölskylda mín biðjum
henni blessunar Guðs.
Kallið er komið,
komiii er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn siðsta blund.
í dag er við kveðjum föðursystur
okkar og fósturmóður, Einum Guð-
björgu Bjömsdóttur, sem lést í Sól-
vangi, Hafnarfirði, þann 17. febrúar
sl., langar okkur að minnast hennar
með fáeinum orðum. Eyja, eins og
Einara var alltaf kölluð, giftist
Hálfdáni H. Þorgeirssyni bifvéla-
virkjameistara, en hann lést fyrir
rúmu ári. Þau hjón bjuggu sér sitt
heimili í Köldukinn 18 í Hafnar-
firði. Atvik sem ekki verða rakin
hér, höguðu því þannig að ung að
aldri komum við systkinin inn á
heimili þeirra þar sem við svo
ílengdumst fram á fullorðinsár við
góða umhyggju og mikla hlýju. Á
heimilinu var einnig föðuramma
okkar og systursonur Eyju sem þau
hjón ólu upp frá bamæsku. Eyja
var nægjusöm og glaðlynd kona,
sem sýndi alla tíð af sér mikla fóm-
fysi, enda hændust böm mjög að
henni. Hjónaband hennar var alla
tíð gott og reyndist hún manni
sínum vel. Á miðjum aldri tók Eyja
bflpróf, en það kom þó ekki í veg
fyrir að hún færi margar göngu-
ferðir enda hafði hún yndi af úti-
veru. Síðustu æviár sín dvaldist
Eyja á Sólvangi við góða umönnun
starfsfólks þar. Við viljum að lokum
þakka Eyju fyrir allt sem hún gerði
fyrir okkur og biðjum góðan Guð
að blessa hana. Minningin um góða
konu mun lifa.
í hring í kringum allt og ekki neitt
ókunnur máttur knýr oss hraðar, hraðar.
Og enginn spyr, hvort ljúft sé eða leitt
Löng er vor ferð. Vér nemum aldrei staðar.
(Steinn Steinarr)
Hvfl í friði.
Ella, Björn og Guðbjörg.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nútt. (V.Briem)
í dag verður til moldar borin
móðursystir okkar Einara Guðbjörg
Bjömsdóttir. Hún fæddist í Hafnar-
firði 6. febrúar 1921. Eiginmaður
hennar var Hálfdán H. Þorgeirsson,
f. 8. okt. 1922, d. 21. jan. 1988.
Þegar við minnumst Eyju, verður
okkur efst í huga hve einstaklega
kærleiksrík og bamgóð hún var.
Böm hændust að henni, fundu hjá
henni ástúð og hlýju og var það
einnig svo með okkur. Örlögin hög-
uðu því þannig að hjá Eyju og
Danna í Köldukinn 18 áttum við
okkar annað heimili. Þar var oft
kátt á hjalla enda margt um mann-
inn á þeim bænum.
Hennar missir var mikill er móð-
ir okkar lézt, en þá var það hún,
sem stóð eins og klettur okkur við
hlið og studdi okkur með ráðum og
dáð.
Hafi hún þökk fyrir allt og allt.
Blessuð sé minning þessarar
góðu konu.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fýlgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt (V.Briem)
Þórný og Guðríður
Ef svo er þá getur þú eignast
Skutlan er eins og sniðin fyrir nútimafólk. Hún er
sparneytin, 5 manna og sérlega létt og lipur I um-
ferðinni. Skutlan er flutt inn af Bílaborg h/f. Það _ , ,
sem9íii þeírÞ|ónustu'sem er rómuð af ölu,m splunkuiiýj a LANCIA SKUTLU!
* LANCIA SKUTLA kostar kr. 386 þús.kr. stgr. Ut■
borguh kr. 96.500, eftirstöðvar greiðast á 30
mártuðum, kr. 12.211 pr. mánuð að viðbættum verð■
bótum. Kostnaður við ryðvörn og skráningu erekki
innifalinn. GengissHr. 132 -89
VERÐ !
BÍLABORG I
FOSSHÁLSI 1.S.68 1
Opið laugardaga frá kl. 1 - 5.
Mátt þú sjá af
400 krónum
á dag?*
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin strið.
(V. Briem)
Benedikt Björnsson
Einara Guðbjörg Bjömsdóttir er
látin. Hún lézt langt um aldur fram
eftir langa sjúkralegu. Mitt fyrsta
minni af móðursystur minni, Eyju
eins og við kölluðum hana, er frá
saumaverkstæði Einars Einarsson-
ar þar sem Eyja vann að fatasaum
í mörg ár, og ég fékk að vera með
henni í vinnunni.
Ég var aðeins eins árs þegar
Eyja og Hálfdán heitinn Þorgeirs-
son maður hennar tóku mig í fóst-
ur. Þær em margar minningamar
hlýju frá bemsku minni og æsku.
Við vomm mörg systkinaböm Eyju,
sem áttum meiri eða minni sama-
stað á heimili Eyju og Danna, þar
sem allir vom ævinlega velkomnir
og ætíð glatt á hjalla.
Þrátt fyrir tveggja áratuga bú-
setu erlendis hefrr hugur minn allt-
af leitað heim. Ég minnist sérstak-
lega hæglætis, jafnaðargeðs og ör-
lætis Eyju á erfiðleikastundum.
Ég þakka Eyju og Danna.
í Guðs friði.
Dflí-- Tí_______
ÞEYTIR, BLANDAR
O G HNOÐAR.
HANDHÆGT OG
ÞÆGILEGT TÆKI.
<
i/i
6
MOULINEX HANDÞEYTARINN