Morgunblaðið - 23.02.1989, Side 43
e8€i SAuaaara .ss jnjOAdUTMMn ŒOAjaKuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1989
OlöfJ. Krisijáns-
dóttir - Minning
í dag kveðjum við elsku ömmu
okkar, Olöfu Jóhönnu Kristjándótt-
ur, en hún lést þann 17. febrúar
sl. Amma var orðin svo þreytt og
þráði hvíld. En þó við vitum að nú
líður henni vel, þar sem hún gengur
um grænar grundir með afa Kalla,
handan við móðuna miklu, getum
við ekki látið vera að gráta svolítið.
Við munum sakna hennar um
ókomin ár. Amma trúði statt og
stöðugt á líf eftir dauðann, svo við
vitum að við eigum eftir að hittast
aftur, þar er huggun harmi gegn.
Amma fæddist í Reykjavík 30.
janúar 1912. Hún bjó alla tíð í
Reykjavík og kunni frá mörgu
skemmtilegu að segja, sérstaklega
var gaman að heyra hana tala um
borgina sína þegar hún var ung
stúlka. Amma sigldi líka til Kaup-
mannahafnar þegar hún var ung,
það hefur áreiðanlega ekki verið
algengt að ungar stúlkur héldu til
útlanda til að skoða sig um á
millistríðsárunum, eins og hún
sagði alltaf. Amma talaði aldrei illa
um nokkum mann, hún var svo góð
og grandvör að' slíkt hefði henni
aldrei dottið í hug. Það var alveg
sama hvemig við létum, henni
fannst við alltaf ósköp indælar. í
hugum okkar, einu bamabama
hennar, lifír minningin um þessa
góðu kona, sem alltaf var svo fín,
las mikið og spilaði svo vel á píanó
á meðan hún gat. Hún hvatti okkur
alltaf til dáða og langaði til að við
gætum lært á hljóðfæri, og hjálpaði
okkur meira að segja til þess á
ógleymanlegan hátt. Og við emm
að reyna þó við verðum víst aldrei
eins duglegar og amma. Við sáumst
alltof sjaldan, því það var svo langt
á milli okkar, og eflaust hefur
amma oft verið einmana síðustu ár,
þegar vinimir fóm að týnast burt.
En alltaf var hún glöð þegar við
töluðum við hana og sagði að sér
liði vel og allir væm svo góðir við
sig. Síðustu vikumar vom erfíðar,
en þá naut hún umönnunar góðs
hjúkmnarfólks, fyrst á Landspítal-
anum og síðan á öldmnarlækninga-
deildinni Hátúni 10.
Við látum kvöldbænina okkar
verða okkar hinstu kveðju til ömmu
Ollu um leið og við biðjum góðan
guð að blessa minningu hennar.
Vertu guð faðir minn
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn
svo allri synd ég hafni
(Hallgrímur Pétursson)
Guðbjörg Lísa og Eygló Ida.
t
Þökkum innilega auösýnda samúð og hlýhug viö andlót og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdafööur og afa,
SVEINBJÖRNS BERENTSSONAR,
Túngötu 1,
Sandgerðl.
Elglnkona,
börn, tengdabörn
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir færum viö öllum þeim, sem auðsýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföð-
ur og afa,
DAÐA MAGNÚSSONAR,
Krossholti 6.
Sérstakar þakkir eru færöar samstarfsmönnum hans í slökkviliöi
og flugþjónustudeild Keflavíkurflugvallar.
Jóhanna Hallgrfmsdóttlr,
Magnús Daðason, Svala Pðlsdóttir,
Herborg Daöadóttir, Norman Drew Brylowe,
Daði Daðason, Ósk Svavarsdóttlr,
Vlgnir Daðason, Unnur Sigurðardóttlr
og barnabörn.
FRÆÐSLUFUNDUR
um ferðamál
fimmtudaginn 23. febrúar kl. 20.30 í félagsheimilinu.
Erindi flytja: Páll Richardson, sem kynnirstarf-
semiferðaþjónustu bænda íþágu hestamanna
og reiðleiðir í byggð, Sveinn Runólfsson, land-
græðslustjóri, semflyturerindi um hálendisferðir
á hestum. Fræðslunefnd.
Fulningahurðir
Fura - greni
VerA f rá kr.
11.780,-
BÚSTOFN
Smiðjuvegi 6, Kópavogi,
símar 45670 og 44544.
t
Móðir mín, tengdamóð(r, amma, langamma og langalangamma,
HÓLMFRÍÐUR SVEINBJÖRNSDÓTTIR
frð Hrollaugsstöðum
ð Langanssi,
verður jarðsungin fró Húsavíkurkirkju laugardaginn 25. febrúar
kl. 14.00.
Vilhjðlmur Magnússon, Guörún Þórðardóttir,
barnabörn,
barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúö við andlót og útför
BJÖRNS BJARNASONAR
maglsters
frð Steinnesl.
Systkinabörn.
Hvernig lyktar deilimni
um varaflugvöllinn?
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík,
Vörður, Hvöt, Oðinn og Heim-
dallur, efíia til síðdegisfundar
um varaflugvallarmálið í Átt-
hagasal Hótel Sögu í dag,
Smmtudag 23. febrúar klukkan
17.15.
Leitast verður við að fá svör við
ýmsum spumingum er málið varða,
s.s: Er varaflugvöllur, sem Mann-
virkjasjóður NATO kostar, hemað-
arstykki? Er þörf á slíkum flugvelli
hér á landi? Hvaða ráðherra hefur
forræði í málinu? Hvemig lyktar
deilunni um málið í ríkisstjóminni?
Ræðumenn verða: Jón Baldvin
Hannibalsson, utanríkisráðherra;
Halldór Blöndal, alþingismaður;
Matthías A. Mathiesen, alþingis-
maður og fyrrverandi ráðherra ut-
anríkis- oc sameönerumála: oer Al-
bert Jónsson, framkvæmdastjóri
Öryggismálanefndar.
Ræðumenn flytja stutt erindi um
varaflugvallarmálið. Hægt verður
að bera fram fyrirspumir.
Aukasýningar hjá
Alþýðuleikhúsinu
UM HELGINA verða tvær auka-
sýningar á leikritinu „Koss
kóngulóarkonunnar" eftir Manu-
el Puig, sem Alþýðuleikhúsið
heftir sýnt í Hlaðvarpanum, Vest-
urgötu 3, frá því 23. október.
Sýningar nú um helgina eru sem
hér segir: 39. sýning föstudag 24.
febrúar klukkan 20.30. og 40. sýn-
ing sunnudaginn 26. febrúar klukk-
an 17.00.
Gullhöllin hefur opnað nýja og glæsilega
verslun að Laugavegi 49.
í tilefni af því veitum við ] 5% afslátt af
öllum vömm út þessa viku.
Verið velkomin sem
LAUGAVEGI 49, SÍMI 17742