Morgunblaðið - 30.03.1989, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 30.03.1989, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1989 35 Kristín Karlsdóttir Akranesi - Minning Fædd 27. september 1932 Dáin 26. febrúar 1989 Þriðjudaginn 7. marz 1989 var kvödd frá Akraneskirkju mæt samtíðarkona, Kristín Karlsdóttir. Foreldrar hennar voru Karl Auð- unsson og kona hans Guðrún Sig- urðardóttir, Gíslasonar smiðs á Hjarðarbóli og konu hans Elísabet- ar Auðunsdóttur. Faðir Karls var Auðunn Auðunsson. Þessi Auðuns nöfn benda á sömu ættina, sem sagt Grundarættina alkunnu sem er upprunnin á Grund í Skorrad- al. Móðir Karls var Jónína Kristín, dóttir hinna kunnu dugnaðarkonu, Kristínar á Jaðri, og manns henn- ar, Jóns Hálfdánarsonar. Kristín á Jaðri var karlmanns ígildi og bjó lengi ein ekkja á Jaðri. Hún ól dótturson sinn Karl upp, móðir hans mun hafa dáið ung. Sú Kristín sem hér er minnst mun ekki hafa borið sama yfirbragð og amma hennar og nafna á Jaðri. Það fór oft gustur af þeirri kraftm- iklu gömlu konu, sá sem hér skrif- ar sá hana oft. Kristín Karlsdóttir bar ekki tilfínningar sínar fyrir almenning. Eitt áttu þær nöfnur sameiginlegt, þær háðu báðar erf- iða lífsbaráttu. Kristín á Jaðri missir fljótt fyrirvinnuna, veikindi heija á fjölskylduna og hún verður að beita dugnaði og hörku við sjálfa sig til að takast á við fátækt- ina og þá hörðu kosti sem henni fylgja, en hún lét aldrei bugast. Sumum þótti óvenjulegt að sjá konu standa bogna útí mýri við að rista torf á hey og hús, þetta vílaði þessi kraftakona lítt fyrir sér. Hún stóð alltaf sér með reisn og kvaddi þetta líf að lokum sem alkunn hetja. Við hjónin áttum Kristínu Karlsdóttur á Jaðarsbraut 21 að vinnufélaga um sex ár i Akra- pijóni. Hún bauð af sér góðan þokka sú kona. Alltaf stillt og prúð, æðrulaus og með glettnis- bros í augum, hlý í orðum og vin- gjamleg kona. Ekki þurfti að spyija um aðstæður hennar, þó hún gæfi áldrei tilefni til að minn- ast á slíkt þá vissu allir vinnufélag- amir að hún gekk ekki, sem áður ung og fögur stúlka, erfið lífsbar- átta var búin að setja á hana sinn stimpil. Maðurinn hennar var hættulega veikur og engin miáttar- stoð lengur, nema síður væri, mér var sagt oft erfiður sjúklingur, sem eðlilegt var. Það er þung raun fyrir fólk á góðum aldri að verða að lúta því þunga lögmáli að vera dæmdt til að kveljast, og bíða einskis annars en dauðans. Kristín hefur í hjarta sínu haft mikla sam- úð með manni sínum, það veit ég. Lengi vel reyndi hann að koma á bíl þeirra að sækja hana í vinn- una. Ég gat oft komist við af því að sjá hvað þama var við þungar þrautir að fást hjá hjónum sem héldust í hendur og mættu sínum örlögum af þolgæði og í hljóðri þögn. Veikindin em og hafa lengi verið okkar þjóð þungur kross að bera. Ljósið í myrkrinu vora börn- in, þau hjón áttu bamaláni að fagna, fátt eða ekkert jafnast á við það í lífínu. Maður Kristínar var Siguijón Bjömsson vélstjóri frá Ósi. Böm þeirra hjóna era fjögur í aldursröð þessi, Guðrún, vinnur skrifstofu- störf og er gift húsmóðir í XJöfðar til XI fólks í öllum starfsgreinum! Reykjavík, Björn Almar vélstjóri, á unnustu og býr á Akranesi, Karl vélstjóri, giftur og býr á Akranesi og Stefnir, vélstjóri, ógiftur Akurnesingur. Þeir bræður era allir vélstjórar hér á toguran- um. Einnig lifa systur sína Kristínu, þrír bræður, Sverrir, Sig- urður og Birgir, allt vélamenn, hver á sínu sviði. Þetta er eftir- sótt fólk til ábyrgðar verka og mannkosta fólk, svo orð fer af. Við íslendingar eigum aldrei of mikið af úrvals fólki, það er raun- ar dýrmætasta þjóðareignin og stærsta guðsgjöfin. í hinni hug- ljúfu minningarræðu sr. Björns Jónssonar, nú sem oft áður, var vel sagt frá mannkostum Kristínar Karlsdóttur, en hvergi um of. Kristín var mikil mannkostakona. Hún hafði mikla löngun til fram- haldsnáms, en aðstæður lögðu leið til annarra átta. Fyrst þurfti hún að ljúka stóra móðurhlutverki, fæða bömin sín og koma þeim til manns. En þá gafst tækifærið, og viljinn til náms bjó í bijósti, hún hóf nám í öldungadeild og fékk réttindi á verslunarsviði og fékk góðan vitnisburð. Kristín vann hjá H.B. & Co. um árabil, sem fyrr segir í Akrapijón og síðast, allt til í janúar sl. á skattstofunni hér við góðan orðstír sem annarsstaðar. Hún var sérstaklega vandvirk og vönduð í hveiju starfi. Hún lét ekki mikið á sér bera og var hlé- dræg. En vináttan var traust og óbrigðul það sannaði hún oft á sinn hljóðláta hátt. Ekki hefur henni fímdist við hæfí að hverfa frá Akrapijóni án þess að votta vinnufélögunum þakklæti og virð- ingu og það gerði hún með því að halda þeim smá veislu á vinnu- stað þegar komið var að kveðju- stund. A þennan hátt og fleiri náði Kristín Karlsdóttir hylli sinni vina og samtíða fólks. Kærleikur- inn blundaði alltaf í bijósti þessar- ar mætu konu. Það leyndi sér aldr- ei að þar var traust kona og vel gerð af skaparans hendi, sem Kristín fór. Það verða margir sem hugsa hlýtt og með þakklætið efst í huga til Kristínar nú á hinstu kveðjustund. Við geymum minn- ingu um góða samtíðarkonu, sem f©]Perstorp Form - PLASTBAKKAR - ALLSSTAÐAR í ATVINNULSFINU STERKIR - LÉTTIR OG HANDHÆGIR NES tt. PÖRTHP UMBOÐS OG HEILDVERSLUN Austurströnd 1 sími 62 11 90 Seltjarnarnesi kærleiksgeisla bar af þrátt fyrir hún ætti við þraut að glíma, sem veikindin era. Nú era þrautir á enda runnar og fyrirbæn okkar sú að nú megi Kristínu mæta birta vors og friðar þar sem vinir fagna sínum ástkæra vin, á landinu eilífa. Við blessum minningu Kristínar Karlsdóttur. Ástvinum sendum við hjónin samúðarkveðjur. Valgarður L. Jónsson Heba hekluf vió heilsunni Námskeið hefjast 3. apríl nk. KONUR! Burt með vetrarslen og þreytu. Byggjum upp og bætum heilsu og form með besta leikfimi-trimmi (aerob, magi + rass + iæri). Miserfiðir tímar, en flokkar fyrir alla ald- urshópa. Vigtun, mæling, sauna og Ijós, GOTT AÐHALD. TRIMMFORM - leið að bættri heilsu. Árangursrík meðferð. Leitið frekari upplýsinga. Látið aðstoða ykkur við val á tímum í símum 641309 og 42360. Innritun stendur yfir. Kennari: Eiísabet Hannesdóttir, íþróttakennari. Heilsurœktin Heba Auðbrekku 14. Kópavogl. I ' 'y'-iJ U. ■ási.ri i‘ Tr - '■ : x. v- Vönduð heildarútgáfa AB á Ijóðum Tómasar Guð- mundssonar — óskaskálds Reykjavíkur. Glœsilega innbundið með kápuskreytingu eftir listamanninn Torfa Jónsson. Kristján Karlsson skrifar afar glöggan og skarpsýnan formála sem gefur okkur ómetanlega innsýn í hugar- heim skáldsins. Kvœði Tómasar skipa veglegan sess í hugum Islend- inga og œttu að vera sjálfsögð á hverju heimili. Fermingargjöf sem njóta má um aldur og œvi. UNDSSON Austurstæeti og Eiðistorgi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.