Morgunblaðið - 30.03.1989, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1989
31
Minning:
Bogi V. Bogason
frá Varmadal
Fæddur 3. nóvember 1904
Dáinn 19. mars 1989
Mig langar að minnast í fáum
orðum frænda eins og við frænd-
systkinin kölluðum afabróður okk-
ar, Boga Viggó Bogason. Bogi
fæddist í Varmadal á Rangárvöllum
3. nóvember 1904. Hann var í hópi
átta systkina, eitt dó í vöggu, en
af þeim er upp komust voru Oskar,
Svanhildur, Þórður og Sigurgeir en
þau eru nú látin, eftir lifa systumar
Valgerður og Sigríður. Bogi var
sonur hjónanna Boga Þórðarsonar
og Vigdísar Þorvarðardóttur.
Bogi bjó tvíbýli ásamt Óskari
(afa) bróður sínum í Varmadal. Afí
og hans fjölskylda bjuggu í vestur-
bænum en frændi sem aldrei
kvæntist bjó í austurbænum. Ég
minnist frænda fyrst sem bam í
sveitinni hjá afa og ömmu. Er árin
liðu og ég gerðist vinnumaður hjá
ömmu á sumrin eftir að afí dó urðu
samskipti okkar frænda nánari,
sérstaklega í sambandi við smala-
mennsku, rúningu og fleira kring-
um sauðféð. Hestar og sauðfé
ásamt því að rækta landið var hans
líf og yndi. Ég sé frænda fyrir mér
á Fal sem var stór og glæsilegur
grár hestur. Það var sama hvort
þeir félagar væra að smala eða
fara til kinda á vorin þegar sauð-
burður stóð sem hæst, eða frænda
með hestapelann í vasanum sitjandi
á Fal, í skemmtiferð með góðum
félögum á góðum hestum, alltaf var
hrein unun að sjá samspil þessara
tveggja félaga. Við frændi voram
ekki alltaf sammála hvemig haga
bæri smalamennskunni. Ég á aldr-
inum 13—16 ára og frændi farinn
að nálgast sjötugt, öraggur um að
á Fal hefði hann sama úthald og
hann fertugur væri. Þeir félagar
fóra yfírleitt lengst og þeyttust
þvert og endilangt yfír landið og
ráku féð áleiðis til okkar hinna sem
áttum síðan að þétta safnið. Ja, þær
vora stundum allhressilegar orða-
sennumar sem við áttum í smala-
mennskunni en alltaf gekk það nú
upp í lokin. Krafturinn og þróttur-
inn í gamla manninum var ótrúleg-
ur. Síðustu fjögur ár ævi sinnar
dvaldi frændi á Ljósheimum á Sel-
fossi og leið þar vel. Hafí allt starfs-
fólk Ljósheima bestu þakkir fyrir
umönnunina. Ég get því miður ekki
státað af að hafa heimsótt frænda
oft þann tíma sem hann dvaldist
hér á Selfossi. Ég fylgdist þó grannt
með honum því foreldrar mínir og
þá sérstaklega mamma heimsóttu
hann reglulega allan þann tíma sem
frændi dvaldist hér á Selfossi. Bogi
andaðist að morgni 19. mars og var
jarðsettur á Odda á Rangárvöllum
laugardaginn 25. mars. Kæram
frænda þakka ég samfylgdina,
blessuð sé minning hans.
Óskar G. Jónsson
og ijölskylda.
Emil E. Emilsson
- kveðjuorð
Fæddur 1. maí 1932
Dáinn 17. mars 1989
í hvert sinn þegar ég stend niður
við Grímsstaðavör, koma í hugann
myndir og minningar frá löngu liðn-
um dögum. Einnig um þá æskufé-
Iaga mína sem famir era yfír móð-
una miklu. Einn úr þeim hópi hefur
nú kvatt sinn jarðneska ævidag,
Emil Emilsson, Fálkagötu 32 á
Grímsstaðaholti. Þær æskustöðvar
yfírgaf ég rétt rúmlega tvítugur.
Ekki varð það þó til þess að breyt-
ingar urðu á kunningsskap okkar
Emils heitins eða annarra af mínum
tryggustu æskufélögum. Lífsferill
Emils var á hinn rétta veg. Hann
tók snemma að taka lífið ákveðnum
tökum. Bílstjórastarfíð mun vera
það starf sem hann stundaði mest,
eftir því sem ég best veit. Hann var
fjölskyldumaður og áttu þau tvö
böm: Dóttur sem þau misstu í
blóma lífsins og son sem býr á
Fálkagötunni. Systur á Emil á lífi
sem búsett er suður í Grindavík!
Foreldram þeirra þeirra var ég vel
kunnugur. Eg kom oft í þeirra hús
og var mér jafnan vel tekið þar.
Bæði era þessi heiðurshjón nú látin.
Emil Emilsson var mjög hreinskipt-
inn maður, laus við alla yfírborðs-
mennsku, ákveðinn í öllu fasi og
framkomu, jákvæður maður. Hann
hefur nú á góðum aldri verið hrifínn
skyndilega burt. Minning þess liðna
geymist um hina björtu áhyggju-
lausu lífdaga.
Eftirlifandi konu hans, syni og
sonarsyni, systur hans og öðram
nánum ástvinum hans votta ég
samúð og hluttekningu. Blessuð sé
minning Emils Emilssonar.
Þorgeir Kr. Magnússon
KÁRSNESBRAUT 106 - KÓPAVOGI - SÍMI46044
TIIBOÐ
10-30% afsláttur
Marmari á gólf og veggi.
Baómottur - stakar/sett.
Baðhandklæði.
Fyrir baðherbergió s.s. snagar,
handklæðaslár, sápuskálar,
salernis-pappírshöldur o.fl.
Flísabúóin,
Kársnesbraut 106,
Kópavogi.
Kynnið ykkur
vortilboðið
FLOTT FORM
ÆFINGAKERFIÐ FtOTT FORM
býður upp á þægilega leið til að styrkja og liðka líkamanri, án þess að ofreyna
vöðva og fá harðsperrur. Vegna einstaks samblands af líkamshreyfingum og
síendurteknum æfingum, þar sem vöðvarnir eru spenntir án þess að lengd
þeirra breytist, geta bekkirnir okkar sjö styrkt og liðkað mismunandi hluta líka-
mans. Auknar birgðir súrefnis og bætt blóðstreymi hjálpa til við að brjóta nið-
ur erfiða appelsínuhúð og losa um vöðvabólgu, bakverk svo og aðra álagssjúk-
dóma.
GETUR ELDRA FÓLK
NOTIÐ GÓÐS AF ÞESSUM TÆ.KJUM?
Þessi þægilega leið við að hreyfa líkamann er kjörin fyrir eldra fólk, vegna
þess að allir geta æft á sínum hraða. Aukinn sveigjanleiki og aukið vöðvaþol,
sem kemur með þessum tækjum, er kjörið fyrir þá, sem hafa stífa vöðva eða
eru með liðagigt.
Halldóra Anna
Gunnarsdóttir
Á þeim stutta tíma sem óg hef stund-
aö Flott form hefur kílóunum og cm
fækkaö. Ennfremur hef ég losnaö viö
vonda verki ( mjaöma- og hnjáliöum
sem hafa hrjóð mig í óraraðir. Mér
var róölagt að fara í lótta leikfimi en
allt kom fyrir ekki, mór leið ekkert
betur. Þó ságði læknirinn minn mór
aö hann heföi heyrt um Flott form
bekkina og gæti maöur nóð góðum
árangri þar. Ég fylgdi hans ráöum
og órangurinn hefur ekkí lótiö ó sór
standa. Ég hef alveg losnaö viö allar
þrautir, sem höföu hrjóö mig (
mjöömum og hnjém. Sem sagt alveg
verkjalaus, aðeins vellíöan. Ég get
hiklaust mælt meö Flottu formi fyrir
alla aldurshópa hjó körtum og kon-
um.
Sigrí&ur Jónsdóttir
Þegar óg só auglýsingu um bekkja-
leikfimi hjá Flottu formi fannst mór
spennandi aö prófa. Strax eftir fyrstu
tímana fann óg breytingu til batnaö-
ar, aukiö þrek og þol, laus viö bjúg
í fótum, blóöþrýstingur í betra lagi
og svo er óg mikið betri af vöövabólg-
unni + færri kfló og sentímetrar. öll
líðan miklu betri. Ég mæli meö Flottu
formi.
Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson
Þetto er ágætis þjélfun. hressendi
og hæfilega ertiS. Ég tel e« þessl
tœki henti fólki é öllum eldri og I öll-
um þyngdarflokkum.
Jakobína Kristjáns-
dóttir
Ég hef fengiö heilmikiö út úr þvf aö
fara í æfingamar ón þess þó aö þaö
reyndi of mikiö ó mlg, sem er mikill
kostur fyrir fólk, sem ekki hefur
stundaö líkamsrækt lengi. Þetta er
eina formið sem hefur hentaö mér
og flestu fólki ó minum aldri, þvi þaö
eru ekki allir sem geta fariö í leik-
fimi, svona einn, tveir og þrír svo aö
ég mæli eindregið meö Flottu formi.
Pantið tíma tímanlega
FL0TT F0RM
Hreyfing sf. Hreyfing sf.
Kleifarseli 18, Breiðholti Engjateigi 1, Rvík
sími 670370 (Dansstúdíó Sóleyjar)
sími 680677
I/ið bjóðum alltafeinn
frian kynningartíma.
Frábær sól- og gufu-
baðsaðstaða
Við höfum opið frá kl.
9-22 alla virka daga.