Morgunblaðið - 27.04.1989, Blaðsíða 47
G8CÍ JÍaqA .TS íTJPAqUTMMra glgAJgKUOflOM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1989
VELVÁÍCANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
m uteuMSk
Happdrætti fyrr o g síðar
Til Velvakanda.
Löngum hefur það fylgt mann-
eðlinu að gera sér dagamun með
ýmsu móti. Sú tilbreyting er gjama
regluleg, t.a.m. einu sinni í mán-
uði. Happdrættin em þama í flokki
og kynni lesandann að hafa rennt
í gran að ég eigi einkum við Happ-
Tímamót!
„Tímamót“, hrópaði fjármálaráð-
herrann í fjölmiðlum þegar hann
hafði samið við vin sinn Ogmund.
Vindasamt hefur verið hjá Ólafí
Ragnari Grímssyni að undanförnu.
Eitthvað er farið að skyggja á upp-
haflegu valdagleðina og steigurlæt-
isbrosið svignað í grettu. En bót er
í máli er að englahárið fer aldrei
úr skorðum.
Tímamótin vom að vísu því mið-
ur fólgin í því að gera vitlausustu
samninga sem um getur, og er þá
mikið sagt. Fordæmissamninga fyr-
ir allan verkalýð sem fyrirtækin
geta aldrei skrifað undir, nema
ríkisstjómin framkvæmi stórfelldar
efnahagsaðgerðir, sem maðurinn
með englahárið er andvígur og
flokkurinn hans.
„Tímamót“ æpti fijármálaráð-
herrann á ný fyrir örfáum dögum
þegar hann hafði undirritað samn-
inga um kaup lífeyrissjóða á bréfum
húsnæðislánakerfisins. Og ekki fór
hárgreiðslan úr skorðum.
Að þessu sinni áttu tímamótin
að vera fólgin í ákvæðum um lægri
vexti. í sjónvarpinu sat þó við hlið-
ina á Ólafí Ragnari maður sem
hafði vit á málinu. Hann lýsti því
ósköp fumlaust yfír, að þessi samn-
ingur hefði alls engin áhrif á vexti
á fjármagnsmarkaði. Enda kemur
í ljós að ákvæði samningsins em
hurðarlaus vegna vaxtanna, sem
geta farið upp úr öllu valdi.
En félagi Svavar hrópar ekki
tímamót, enda rétt búinn að skrimta
ein af með Sjöfn sjaldhafnarkrata.
En kannski era þeir félagamir ekki
í sama kór í Alþýðubandalaginu.
Nokkur tímamót hefðu þó einhveij-
ir talið hjá Svavari Gestssyni að
vera lagstur í hernað við kennara-
stéttina í landinu, — eða hún við
hann.
Melamaður
drætti Háskóla íslands. Það mun
hafa tekið til starfa um áramótin
1933-34. Þar var einn helsti fram-
kvöðull dr. Alexander heitinn Jó-
hannesson háskólarektor sem setti
mikinn svip á samtíð sína og var
mikill vísindamaður á sínu sviði.
Ég hef ánægju af að styðja Happ-
drætti Háskóla íslands enda þótt
heppnin fylgi manni ekki ætíð því
uPPbygging menningarverðmæta
hlýst af hverri krónu.
Gunnar Sverrisson,
rithöfúndur
Foreldrar
Nú fer sá tími í hönd, þegar reiðhjólin era tekin fram. Yfírfarið
hjólin með bömum ykkar og sjáið um að allur öryggisbúnaður sé í
lagi. Brýnum fyrir bömum okkar að gæta varúðar og leiðbeinum
þeim hvar öraggast er að hjóla.
47
„Éq hef ekki áhyggjur cÁ hans -framtiá.
\J'iö voram c&tins ÍOm'inútor! skemrnti-
Cjart$inum..''
í gær sagði hún að það
væri lakkríslengja og i dag
að það sé spaghetti. — Það
er grunsamlegt...?
Með
morgiinkaffinu
Fyrirsætan gekk um dag-
inn undir botnlanga-
skurð ...
Víkverji skrifar
Náttúraverndarfélag Suðvest-
urlands hefur boðið upp á
margvíslegar nýjungar í starfsemi
sinni á síðustu áram. Markvisst
hefur verið reynt að kynna fólki
náttúra og sögu þess svæðis sem
félagið er kennt við. Því hefur ekki
verið gieymt, að innan borgarmark-
anna, svo dæmi sé tekið, er marga
athyglisverða staði að skoða. Lengri
og styttri gönguferðir hafa verið
uppistaðan í starfseminni, nefna
má sólargöngu um Jónsmessu og
gönguleið hefur hópurinn kynnt úr
Reylqavík upp í Bláfjöll, í gegnum
Heiðmörkina.
Það nýjasta í starfsemi félagsins
era bátsferðir í nágrenni borgarinn-
ar. Farið hefur verið út á Flóann og
í land í nálægum eyjum, sem þó
era í raun fjarri borgarbúanum.
Fólk hefur á þennan hátt fengið
tækifæri til að kynnast lífríki sem
það vissi lítið um áður. Góður róm-
ur hefur verið gerður að þessum
ferðum, sem enn era á dagskrá
tvær næstu helgar.
XXX
Nemendur í framhaldsskólum
era uggandi um sinn hag
þessa dagana enda gerir kennara-
verkfallið þeim erfitt fyrir, og ekki
í fyrsta skipti hjá sumum þeirra.
Eitthvað mun um að nemendur
hafi hætt námi vegna þessara verk-
falla. Fyrir kennara hlýtur það að
vera áhyggjuefni, að nemendur
virðast ekki standa eins einhuga
með þeim og áður. í samtali í vik-
unni sagði einn framhaldsskóla-
neminn, aðspurður um hvort þeir
stæðu með kennuram í verkfalli
þeirra, eitthvað á þá leið, að þau
hefðu að þessu sinni ákveðið að
standa með sjálfum sér, en taka
ekki afstöðu með öðram hvoram
deiluaðilanum.
xxx
Orðasmiðir láta ekki sitt eftir
liggja frekar en fyrri daginn.
Orðið þjónusta varð fyrir barðinu á
þeim í blaði allra landsmanna á
þriðjudag. Viðmælandi blaðsins
sagði meðal annars svo frá í sam-
tali um boðkerfí, sem Póstur og
sími er að undirbúa: „Þetta eru
grannþjónustumar tvær, en síðan
verður hægt að fá viðbótarþjónustu
við báðar þessar þjónustutegundir
og þá er nokkurs konar skilaboða-
þjónusta, talhólfaþjónusta áhuga-
verðust."
Orð eins og samkeppnisaðili og
áhafnarmeðlimur virðast vera að
festa sig í sessi, því miður í flestum
tilvikum. Er ekki hægt að nota orð-
in keppinautur og skipveiji eða
flugliði oftar en gert er?
HÖGNI HREKKVlSI
„ HAMN ATTI EKKI VON A A£> FÁ KJÖr
l'KÁLI.*