Morgunblaðið - 27.04.1989, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. APRIL 1989
félk f
fréttum
BITLAKVÖLD A HOTEL ISLANDI:
Anægjulegt ferðalag
til ung'lingsáranna
Morgunblaðið/Bjarni
FERÐAVEISLA
Duttu í lukkupottinn
Skemmtanir
Þórhallur Jósefsson
Bítlakvöld á Hótel íslandi byrj-
ar með því að gestir heyra
óm liðins tíma, úr hátalarakerfinu
streyma „bítlalög" frá fyrri hluta
sjöunda áratugarins. Og á meðan
gestirnir ljúka mat sínum og halla
sér saddir og sælir aflur á bak í
sætum sínum, sötra á kaffi og
konjakk, eru þeir í huganum leidd-
ir aflur í tímann af Hollies, Amen
Corner, Shadows, Credence Cle-
arwater Revival og öðrum hetjum
þess tima. Á sviðinu stendur grátt
Ludwig trommusett og bíður hins
rétta andrúmslofts í salnum.
Gestimir á Hótel íslandi njóta
matarins í . rólegu andrúmslofti,
stimamjúkir þjónamir eru undra
skjótir að lauma matnum á borðin.
Hörpuskelfiskur í forrétt, grísalundir
í aðalrétt og léttur ábætir. Það stenst
á endum að þegar Ijúffengur matur-
inn hefur fært yfír gestina rósemi
magafyllinnar og konjakkið byijar
að kynda undir minningunum, þá
streyma tónar bítlaáranna úr hljóm-
kerfinu. Klukkan er farin að halla í
tíu og klukka minninganna er færð
til baka með tónum, aftur á fyrri
hluta sjöunda áratugarins.
Ráðsettir gestir verða dreymnir á
svip, rifía upp sokkabandsárin með
útvíðum buxum, pínupilsum og
blúnduskyrtum, sumir fara alla leið
aftur í lakkrísbindin. Þá byija
„Bítlamir." Auðvitað á Sgt. Peppers
stefinu og eftir dágott forspil sam-
settu úr þekktum bítlalögum,
stökkva þeir „sjálfir“ upp á hljómn-
sveitarpallinn og „She loves you“ tók
alla með trompi.
Svo streymdu lögin fram, hvert
„Bítlamir" á Hótel íslandi.
af öðra í réttri tímaröð, engar tafír,
engir hnökrar, kynnirinn tengdi sam-
an atriðin og á stóra sýningartjaldi
á bak við „Bítlana“ var bragðið upp
myndum frá tímaskeiði tónlistarinn-
ar, af þeim John, Poul, George og
Ringo, af söngmönnum kvöldsins. Á
gólfínu sýndi dansflokkur tísku
tímans og tíðarandann, sviðsett var
orðuveitingin þegar Bretadrottning
veitti MBA orðuna, Yoko kom, en
Maharishi kom ekki.
Auðvitað endaði dagskráin á því
að „góðir gestir“ var spilað: Hey
Jude. Endaði þó ekki, þeir voru kall-
aðir fram og tóku aukalög, síðasta
lagið eins og loforð um að halda
áfram að vera saman, bítlamúsíkin
og við: I want to hold your hand.
Sýning „Bítlanna“ tókst með
ágætum, þeir léku sitt hlutverk vel.
Auðvitað vora þeir mislíkir fyrir-
myndunum, en með látbragði unnu
þeir það upp. Og sviðsmyndin, aug-
ljóslega er mikið í lagt að þeir líti
út eins og þeir einu sönnu. Meðal
annars var safnað saman hljóðfær-
um, sem era eins og þeir notuðu.
Til þess þurfti meðal annars að leita
til Hjálpræðishersins á Akureyri. Þar
var eina gráa Ludwig trommusettið
sem til er í landinu. Búningarnir eru
góðir, í samræmi víð minninguna.
Tónlistarflutningurinn var
hnökralaus. Þeir spiluðu að vísu ekki
sjálfír, á bak við er hljómsveit og fer
vel á að vera ekki að fela það. Stund-
um brá fyrir að gítarleikurinn væri
of nútímalegur, stundum minnti
hann á öðravísi músík, en það var
einungis í smámyndum. Það yljaði
að heyra réttu tónana í Something,
Birthday og dillandi ryþmann í All
my loving svo ólík dæmi séu nefnd.
Eitt tókst þó ekki að kalla fram, sem
varla er von. Það er hinn sérstæði,
eiginlega einstaki, trommuleikur
Ringos. í sumum lögum varð það
áberandi, einkum hinum eldri, eins
og vantaði léttleikdnn. Þá ber að
geta hornablásaranna. Hvað eftir
annað komu þeir á óvart með sérlega
góðri spilamennsku.
Ekki má ljúka þessari umsögn án
þess að geta um sönginn. Hann var
yfír höfuð góður, ekki síst ef tekið
er tillit til þess, að fyrirmyndunum
er líklega hreint ekki hægt að líkja
eftir. Af öðrum ólöstuðum bar þó
Ara „Roof Tops“ Jónsson hæst, hann
var á sínum heimavelli og tókst
snilldarvel upp.
í heild, góð skemmtun, vönduð
músík, ánægjulegt ferðalag aftur í
tímann 4 notalegri kvöldstund.
að ríkti mikil gleði á heimili
Baldvins Kristjánssonar og
Höllu Andersen í Vestamannaeyjum
á dögunum. Þá heimsótti þau Öm
Ólafsson, umboðsmaður Samvinnu-
ferða-Landsýnar, og tilkynnti þeim
að þau hefðu verið dregin út sem
vinningshafar í ferðaveislu ferða-
skrifstofunnar.
Samvinnuferðir-Landsýn efna til
þessarar ferðaveislu frir viðskipta-
vini sína. Allir þeir sem pantað
hafa ferðir hjá ferðaskrifstofunni
og greitt staðfestingargjald á rétt-
um tíma era sjálfkrafa þátttakend-
ur í þessu happdrætti. Hlýtur vinn-
Orlög síðustu keisarafjölskyl-
dunnar í Rússlandi hafa löng-
um þótt forvitnilegt efni fyrir rann-
sóknablaðamenn. Fyrir skömmu
birtust upplýsingar í Sovétríkjunum
sem þykja varpa nýju ljósi á hin
dapurlegu örlög þeirra. Nú segist
ingshafínn ferð fyrir sig og fjöl-
skyldu sína til þess staðar er hann
hefur pantað ferð á, fyrir aðeins
þijú hundruð krónur. Þessi vinning-
ur gildir ekki aðeins fyrir árið í ár,
heldur getur viðkomandi fjölskylda
farið í fríar sumarleyfísferðir á veg-
um Samvinnuferða-Landsýnar
næstu tvö árin.
Baldvin og Halla ákváðu í vetur
að fara til Benidorm með dætur
sínar, Erlu og Lóu. Fjölskyldan
hefur aldrei áður farið utan en
líklegt er að þau verði orðin ferða-
vön eftir að hafa nýtt vinning sinn.
Grímur
blaðið The Daily Mail í London
hafa komist yfir minnismiða Jakovs
Míkhailovítsj Juroskíjs, sem talinn
er vera sá er skipulagði aftöku Nik-
ulásar Rómanovs II Rússakeisara
og fjölskyldu hans árið 1918.
„Snemma kvölds 16. júlí barst
símskeyti frá borginni Perm með
fyrirskipun um aftöku Rómanov-
fjölskyldunnar," segir í tilvitnun í
minnismiða Jurovskíjs, sem þá var
fertugur úrsmiður. Jurovskíj, sem
lést árið 1938, sagði að hann hefði
valið 12 manns til að framkvæma
aftökuna, „einn fyrir hvem þann
sem átti að taka af lífi“.
Rómanov fjölskyldan, þjónustu-
fólk þeirra og heimilislæknir, voru
vakin upp um miðja nótt og flutt í
kjallara Ipatiev-hússins, hús kaup-
manns nokkurs í bænum Jekaterín-
búrg í Úralfjöllum, sem nú heitir
Sverdlovsk.
„Það var búið að ákveða hver
skyti hvern og ég sagði þeim að
miða beint í hjartastað svo blóð-
baðið yrði sem minnst,“ sagði
Jurovskíj.
Sonur Jurovskíjs afhenti sovéska
sagnfræðingnum Geli Ryabov ljós-
rit af minnismiðunum, en framritin
eru sögð í skjalahirslum Sovét-
stjórnarinnar. Ryabov fann jarðne-
skar leifar Rómanov-fjölskyldunnar
árið 1979 en skýrði ekki frá fundin-
um fyrr en í þessum mánuði.
JAZZ- OG BLÚS-
TÓNLEIKAR
Á BORGINNI í KVÖLD KL. 21.00
Tríó:
Guðmundur Ingólfsson - píanó
Guðmundur Steingrímsson - trommur
Gunnar Hrafnsson - bassi
Gestir:
Björn Thoroddsen - gítar
Stefán Stefánsson - sax (nýtt sánd)
Söngvarar:
Andrea Gylfadóttir
Björk Guðmundsdóttir
Megas
Ragnar Bjarnason
Bobby L. Harrison
Trommudúó:
Steingrímur Guðmundsson
Guðmundur Steingrímsson
Munnhörpuleikari:
Helgi Guðmundsson
Blús- og jazzgeggjarar!
Fjölmennum!
Jazzvakning
TÓNLISTARVIÐBURÐUR
ALTSAXÓFÓNLEIKARINN
CHARLES McPHERSON
í Heita pottinum í Duus-húsi miðvikudaginn
26. og fimmtudaginn 27. apríl kl. 21.00.
McPherson er talinn með bestu saxófónleik-
urum í heiminum í dag.
Aðgangseyrir 950 kr. við innganginn.
Meðleikarar: Egill B. Hreinsson, píanó, Tóm-
as R. Einarsson, kontrabassa, Árni Scheving,
víbrafónn, og Birgir Baldursson, trommur.
Reuter
Nikulás keisari í haldi í Selo, 1917. Vopnaðir verðir gæta hans.
AFTAKA
Skjöl um örlög
Rússakeisara birt