Morgunblaðið - 27.04.1989, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1989
35
Oskubuska á Wall Street
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Bióhöllin:
Ein útivinnandi - „Working Girl“
Leiksljóri MikeJNichols. Handrit
Kevin Wade. Kvikmyndatöku-
stjóri Michael Ballhaus. Klipping
Sam O’Steen. Tónlist Carly Sim-
on. Aðalleikendur Harrison
Ford, Melanie Griffith, Sigour-
ney Weaver, Alec Baldwin, Joan
Cusack. Bandarísk 20Th Century
Fox 1988.
Ein útivinnandi er dæmigerð fyr-
ir þær myndir sem gáfu Hollywood
gælunafnið „draumaverksmiðjan“,
slípuð, ósvikin afþreying, gaman-
mynd um sigur lítilmagnans með
ljúfum endi sem tryggir að áhorf-
andinn fer út í sólskinsskapi.
Uppaútgáfa Öskubuskuævin-
týrsins segir frá uppgangi Griffith
á harðsvíraðasta peningamarkaði
veraldar, Wall Street. Þar þykir
ekki lakara að vera með menntun
frá Harvard, Yale eða Stanford, svo
vesalings Griffth á á brattann að
sækja — almúgastúlka frá Staten
Island með kvöldskólapróf. En hún
er hugmyndarík og metnaðarfull.
Hún er einkaritari deildarstjórans
Weaver og segir henni frá bráð-
klárri hugmynd. Það kemur svo í
ljós er hin framagjama Weaver
slasast og dettur úr leik um sinn,
að hún hefur ætlað sér að ræna
hugmyndinni. Nú tekur sú kvöld-
skólagengna heldur betur við sér
og með hjálp Fords, sem jafnframt
er mannsefni Weaver, er hún svo
gott sem búin að hrinda hugmynd
sinni í framkvæmd er skassið snýr
til baka. Upphefst nú óþvegið valda-
tafl . . .
Rakið efni fyrir sviðsleikstjórann
Nichols sem heldur öllum endum
smekklega saman og keyrir þetta
sígilda Hollywood-efni áfram af
þeim léttleika að mann skiptir litlu
máli veikleikar handritsins. Ein úti-
vinnandi er einkar vel lukkuð gam-
anmynd sem kemur manni i gott
skap án þess að vera nokkurt stór-
virki. Það er tii hennar vandað og
það sýnir sig. Valinn maður í hveiju
rúmi; Ballhaus, O’Steen, Simon og
einstaklega skemmtilegur leikhópur
þar sem Griffith ber hæst. Semsagt
fáguð Hollywood-framleiðsla í sól-
skinsskapi.
Franska kvikmyndavikan:
Borgarstjóradóttirin
og brotameimimir
Regnboginn:
Savannah
Leikstjóri Marco Pico. Aðalleik-
endur Jacques Higelin, Daniel
Martin, Elodie Gautier
Lítil en hugguleg mynd um yfir-
stéttartelpu, langþreytta á afskipta-
leysi foreldra sinna, mitt í jarðnesk-
um allsnægtum, sem leggur á strok.
Felur sig í niðurníddum bílgarmi
sem hún telur ónýtan. En þá vill
ekki betur til en svo tveir utan-
garðsmenn á flótta undan réttvís-
inni hafa tekið hann traustataki og
lendir nú stúlkubamið með þeim á
flæking um sinn.
Það er engu líkara en Savannah
sé frönsk útgáfa af hinni ljúfu og
fallegu Skugginn af Emmu, sem
einnig er sýnd í Regnboganum um
þessar mundir. Báðar fjalla mynd-
imar um stúlkuböm af forríku for-
eldri sem einmanna og afskipt gera
uppreisn gegn illþolandi tilveranni
í leit að athygli og ástúð — sem
þær svo finna hjá öðram hornrekum
þjóðfélagsins.
Savannah er ekki nándar nærri
eins áhrifarík og hin danska stalla
hennar og líður nokkuð fyrir að
koma beint í kjölfar hennar. En hún
er auðug af franskri, grárri glettni
og leikaratríóið er óaðfinnanlegt.
Lipur, brosleg skoðun á vonleysis-
legu brölti undirmálsfólks og til-
finningum, æðri stéttarskiptingu.
Leikari - Einræðisherra
Fremri röð, frá vinstri: Jón H.
Sigurðsson, Sigurður Björnsson.
Aftari röð frá vinstri: Ruth Páls-
dóttir, Ragnar Gunnar Þórhalls-
son, Hildur Jónsdóttir.
Nýir stgórn-
armenn hjá
Sjálfsbjörg
Á aðalíundi Sjálfsbjargar, fé-
lags fatlaðra í Reylgavík og ná-
grenni, þann 30. mars urðu skipti
í stjórn félagsins. Hana sitja nú:
Ragnar Gunnar Þórhallsson
form., Sigurður Bjömsson vara-
form., Jón H. Sigurðsson gjald-
keri, Ruth Pálsdóttir ritari og
Hildur Jónsdóttir vararitari.
í fréttatilkynningu frá Sjálfsbjörg
segir m.a.: „Stjóm Sjálfsbjargar
fagnar góðum árangri Lionshreyf-
ingarinnar í landssöfnuninni „Léttum
þeim lífið“ með sölu á rauðu fjöðr-
inni. Rétt fjölfatlaðra einstaklinga til
að búa á eigin heimili með þeirri
þjónustu sem nauðsynleg er teljum
við ótvíræðan. Við lýsum yfir ánægju
okkar með byggingu vistheimilis fyr-
ir fjölfatlaða að Reykjalundi.
Stefna Sjálfsbjargar í húsnæðis-
málum kemur fram í stefnuskrá sam-
takanna. Kjami þeirra stefnu felst í
hugtakinu „blöndun". Með blöndun
er átt við að fatlaðir eigi að heima
innan um ófatlaða. Til þess að þetta
megi takast verður að uppfylla
ákveðnar kröfur: Húsnæði verður að
vera aðgengilegt öllum. Skipulag
þarf að vera í lagi. Nægileg þjónusta
þarf að vera fyrir hendi. Sjálfsá-
kvörðunarréttur og sjálfstæði ein-
staklingsins verður að sitja í fyrirr-
úmi. Heimaþjónustu þarf ekki síst
að efla svo þessu markmiði verði náð.
KvikmyndBr
Amaldur Indriðason
Tungl yfir Parador („Moon
Over Parador"). Sýnd í Laugar-
ásbiói. Leikstjóri: Paul Mazur-
sky. Helstu hlutverk: Richard
Dreyfúss, Sonia Braga og Raul
Julia.
Paul Mazursky hefur gert marg-
ar ágætis gamanmyndir m.a. end-
urgerð franskrar myndar sem hann
kallaði „Down and Out in Beverly
Hills" og var með Richard Dreyf-
uss. En það er sáralítið varið í nýj-
ustu myndina sem þeir tveir gera
saman og heitir Tungl yfir Parador.
Það er líka etidurgerð í þetta sinn
um B-mynda leikara sem þröngvað
er til að leika einræðisherra í hinu
ímyndaða smáríki Parador f S-
Ameríku þegar raunveralegi ein-
ræðisherrann deyr.
Efnið bíður sannarlega uppá
kómískar uppákomur með Dreyfuss
í hlutverki leikarans/einræðisherr-
ans og aukaleikurum sem era ekki
af verri endanum; Sonia Braga er
lostafull ástkona einvaldsins og
Raul Julia er sadisti og eiginlegur
stjórnandi landsins.
En þetta era innantómar persón-
ur sem tekst hvorki að vekja áhuga
manns eða framkalla hlátur og það
er líka tómahljóð í óvenju bragð-
daufu handriti og efnisferðferð
Mazurskys. Það er eins og hann
klúðri öllum möguleikum til að
draga fram fyndni úr skemmtileg-
um kringumstæðum, metnaðarleysi
og deyfð ráða ferðinni, atriðin drag-
ast á langin hvert á fætur öðru án
þess að kvikna til lífsins frekar en
myndin í heild þangað til eftir
stendur ein af þessum athyglisverðu
Hollywoodframleiðslum sem gera
aldrei betur en að valda vonbrigð-
um.
Mazursky kemur sjálfur fram
sem mamma einræðisherrans en
aðrir gestaleikarar með örlítil hlut-
verk era m.a. Edward Asner, Dick
Cavett og Sammy Davis jr.
Kynningarfundur
INNHVERF ÍHUGUN er einföld þroskaaðferð
sem allir geta lært. Iðkun hennar veitir djúpa
og endurnærandi hvíld sem losar um streitu.
Kynningarfyrirlestur í kvöld, fimmtudag,
í Garðastræti 17 (3. hæð) kl.20.30
Aðgangur ókeypis. Nánari uppl. í síma 16662.
íslenska ihugunarfélagið
Maharishi Mahesh Yogi
Höfum opnað aftur eftir
algera andlitslyftingu.
Nýjarperur.
Verið ætíð velkomin.
Te og kaffi á könnunni.
Tilboö:
12 tímar á 2000 kr.
Aðeins i april.
E
■unOCARD
Mínar innilegustu þakkir til þeirra Jjölmörgu,
sem heiðruöu migogglöddu á aldarafmœlinu.
GuÖ blessi ykkur ríkulega.
Rann veig Jósefsdóttir,
Helgamagrastræti 17,
Akureyri.
Innilega þakka ég öllum vinum og vandamönn-
um sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum
og skeytum á 80 ára afmœli minu þann 15.
apríl sl.
Guð blessi ykkur öll.
Kristján Gestsson,
Borgarnesi.
Hjartans bestu þakkir til ykkar allra, er gerðuÖ
mér 75 ára afnœlisdaginn minn, 15. apríl
1989, að ógleymanlegum gleÖidegi.
LifiÖ heil, vinir mínir.
Greipur Þ. Guöbjartsson.
FAKSFIELAGAR
ATHUGIÐ!
Minnum á skráningu í hvítasunnukappreiðar Fáks.
Lokadagur er föstudagurinn 28. apríl. Sjá auglýsingar
í helgarblöðum 15.-16. apríl.
Hlégarðsreið 29. aprfl. Brottför frá félagsheimilinu
kl. 13.30.
Kvennadeild minnir á heimsókn til Gustskvenna
sunnudaginn 30. apríl. Brottför frá félagsheimili Fáks
kl. 19.00.
Hestamannafélagið Fákur.
STEYPT
NKXJRFÖLL,
RtSTAR,
KARMAR
OGLOK i
Sérsteypum einnig annað eftir pöntun.
JÁRNSTEYPAN HF.
ÁNANAUSTUM 3, SÍMAR 24407 - 624260
JÁRNSTEYPA - ÁLSTEYPA - KOPARSTEYPA