Morgunblaðið - 27.04.1989, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1989 , . ,,, [/l9n / 7
Aukin eftirspurn
eftir heimahjúkrun
Beiðnum synjað nema í neyðartil-
fellum, segja hjúkrunarforstjórar
VART hefur orðið aukinnar eftirspurnar eftir heimahjúkrun á
meðal fólks, sem sent var heim af sjúkrahúsum í kjölfar verkfalls
háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga. Synja hefur orðið öllum
slíkum beiðnum nema í neyðartílvikum, samkvæmt þeim upplýsing-
um sem Morgunblaðið fékk hjá hjúkrunarforstjórum á Heilsuvemd-
arstöð Reykjavíkurborgar og hjá Heilsugæslustöð Seltjarnarness.
Á Landspítalanum eru 130 rúm auð vegna verkfalls hjúkruna-
rfræðinga.
Mjög hefur dregið úr ungbama-
eftirliti og mæðraskoðun hjá Heil-
sugæslustöð Seltjamamess, en þar
em sjö hjúkrunarfræðingar í verk-
falli af níu. Hjúkmnarforstjórinn,
Þómnn Ólafsdóttir, sinnir neyðart-
ilvikum ásamt hjúkmnarfræðingi í
70% starfi sem er í Hjúkmnarfé-
lagi íslands og þar af leiðandi ekki
í verkfalli. „Við höfum sinnt vitjun-
um til nýfæddra bama eftir að þau
koma heim af sjúkrahúsi og höfum
við fengið tólf tilkynningar um
nýburafæðingar síðan verkfall
hófst þann 6. apríl sl. Þá er ekkert
reglulegt mæðraeftirlit í gangi. Við
sinnum aðeins þeim, sem annað-
hvort em langt á veg komnar eða
hafa haft við einhver vandamál að
stríða á meðgöngunni," sagði Þór-
unn.
Að staðaldri hefur Heilsugæslu-
stöð Seltjamamess sinnt heima-
hjúkmnum um það bil 20 sjúkl-
inga, aðallega hefur verið um að
ræða vikulegt eftirlit eldra fólks.
„Við drógum mjög úr þeirri þjón-
ustu þegar verkfall hófst, en þetta
fólk virðist bera sig einstaklega vel
og hefur tekið þessu ástandi með
mikilli þolinmæði. Ég er farin að
finna fyrir því að fólk, aðallega
eldra fólk, sem sent var heim af
sjúkrahúsum í kjölfar verkfallsins,
er í auknum mæli farið að hringja
og biðja um aðstoð. Við höfum
orðið að synja þessu fólki um hjálp
eða slá henni hreinlega á frest þar
til línur skýrast. Fmmskilyrði er
að stofna ekki öryggi sjúklinga i
hættu. í mörgum tilvikum er um
að ræða einstæðinga, en í þeim
tilfellum, þar sem sjúklingurinn býr
inn á aðstandendum, hafa þeir yfir-
leitt gripið inn í,“ sagði Þómnn.
Hún vildi koma því á framfæri að
læknaþjónustan sé með óbreyttu
sniði að öðm leiti en því að kvöld-
þjónusta hefur verið lögð niður.
„ Við finnum vel fyrir verkfallinu.
Hinsvegar getum við ekki sinnt
aukinni eftirspum eftir heima-
hjúkmn þar sem ekkert hefur verið
aukið við starfsmannahaldið hjá
okkur. Við emm ekki í neinni auka-
vinnu héma, heldur sinnum við
aðeins okkar vöktum eins og venju-
lega,“ sagði Marta Pálsdóttir, að-
stoðardeildarstjóri Heilsuvemdar-
stöðvar Reykjavikur, en þar starfa
um 40 starfsmenn, bæði hjúkmna-
rfræðingar og sjúkraliðar. Þar er
engin í verkfalli þar sem hjúkmna-
rfræðingar em í Starfsmannafélagi
borgarinnar, en ekki í BHMR.
A Landspítalanum hefur einni
og hálfri lyfjadeild verið lokað,
tveimur og hálfri handlæknísdeild,
einni bæklunarlækningadeild og
starfsemi hefur dregist saman á
kvenlækningadeild og barnadeild.
Samtals er um að ræða 130 rúm.
„Þetta er afskaplega leiðinlegt og
óeðlilegt ástand," sagði Vigdís
Magnúsdóttir, hjúkmnarforstjóri á
Landspítalanum, í samtali við
Morgunblaðið, en á Landspítalan-
um em hátt í 60 háskólamenntaðir
hjúkmnarfræðingar í verkfalli. Frá
upphafi verkfalls, hefur Landspítal-
inn þurft að vísa frá sér bráðamót-
töku ijórum sinnum og hefur þá
Landakotsspítali og Borgarspítali
hlaupið undir bagga. Vigdís sagði
að öllum bráðaaðgerðum hefði ver-
ið sinnt í verkfalli, þau hefðu ekki
verið látin bíða ef sýnt væri að
sjúklingurinn mundi skaðast á því.
Til dæmis hefði öllum nýjum
krabbameinstilfellum verið sinnt
og í slíkum tilvikum hefðu hjúk-
mnarfræðingar sýnt mikla ábyrgð
í undanþáguveitingum, að sögn
Vigdísar.
Pálmi Jósefsson, fv.
skólastíóri, látinn
Pálmi Jósefsson, fyrrverandi
skólastjóri, lést í gær, á 91. ald-
ursári.
Pálmi fæddist 17. nóvember 1898
á Finnastöðum í Sölvadal, sonur
hjónanna Sigríðar Jónsdóttur og Jó-
sefs Jónassonar bónda. Hann lauk
gagnfræðaprófi á Akureyri árið 1917
og kennaraprófi 1923. Pálmi las eðl-
isfræði í George Herriott Watt Col-
lege í Edinborg og sótti fyrirlestra í
uppeldis- og sálarfræði í kennara-
deild háskóla Edinborgar 1930-1931.
Hann var kennari við bamaskóla
Reylq'avíkur, Miðbæjarskólann, frá
1923, yfirkennari 1936-1938 og
1945-1948 og skólastjóri frá 1948
og allt þar til skólinn var lagður nið-
ur árið 1968. Hann kenndi í Náms-
flokkum Reykjavíkur í tíu ár og átti
sæti í nefnd sem samdi framvarp til
fræðslulaganna 1936. Þá var hann
einnig í nefnd til að semja námsskrá
fyrir bama- og unglingaskóla frá
1955. Hann átti sæti í stjómum
margra félaga um lengri eða
skemmri tíma, þar á meðal kennara-
félags Miðbæjarskóla, Stéttarfélags
bamakennara í Reykjavík, SÍB,
BSRB og bamavinafélagsins Sumar-
gjafar. Pálmi samdi þijár
kennslubækur, eðlisfræði, dýrafræði
og heilsufræði.
Eftirlifandi eiginkona Pálma er
Elín Sigurðardóttir. Þau hjón eignuð-
ust tvær dætur.
*
Olafíir Þorgrímsson,
lögfræðingur, látinn
Ólafur Þorgrímsson, lögfræð-
ingur, lést í gærmorgun á sjúkra- ^
húsi í Reykjavík, á 87. aldursári.
Ólafur Þorgrímsson fæddist þann
18. október 1902 í Reykjavík, sonur
hjónanna Ingibjargar Þóm Kristjáns-
dóttur og Þorgríms Jónssonar, söðla-
smiðs og veggfóðrara og síðar bónda
í Laugamesi. Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1923, prófi frá laga-
deild Háskóla íslands árið 1928 og
stofnaði málflutningsskrifstofu í
Reykjavík ásamt G. A. Sveinssyni
það ár. Á síðasta ári vom því liðin
60 ár frá því Ólafur hóf málflutnings-
störf. Síðustu 22 árin rak hann mál-
flutningsskrifstofu ásamt Kjartani
Reyni syni sínum. Hann gekk til
daglegra starfa sinna fram um miðj-
an janúarmánuð sl. og var aldurs-
forseti starfandi lögmanna í
Reykjavík.
Ólafur var einn stofnenda Strætis-
vagnn Reykjavíkur árið 1931. Hann
var formaður félagsins til 1938 og
jafnframt framkvæmdastjóri 1934-
1938. Þá var hann einn af stofnend-
um Tónlistarfélagsins 1932 og form-
aður þess hin síðari ár, allt til dauða-
dags. Hann var einnig stofnandi
Sambands íslenskra karlakóra 1929.
Þá átti hann einnig sæti í öðmm
stjómum um lengri eða skemmri
Ólafur Þorgrímsson
tíma, svo sem stjóm Austurbæjar-
bíós, Austurvers hf., Eddufilm, Sam-
bands smásöluverslana og síðar
Kaupmannasamtaka íslands. Þá var
hann heiðursfélagi Lúðrasveitar
Reykjavíkur og Hreyfils. Á 85. af-
mæli Ólafs var gefíð út nótnahefti
með lögum hans.
Ólafur kvæntist þann 16. október
1932 Ásdísi Ingiríði Pétursdóttur,
sem lést fyrir tveimur ámm. Þau
áttu tvö börn, Emu og Kjartan
Reyni, sem búsett em í Reykjavík.
KENWOOD
Ný og endurbætt
KENWOOD
CHEF
Aukabúnaður m.a.:
Grænmetiskvörn — Hakkavél
Grænmetisrifjárn — Ávaxtapressa
fÍTiHEKLA HF
Laugavegi 170-172 Simi 695500