Morgunblaðið - 28.04.1989, Side 1
64 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
95.tbl. 77. árg.
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Gorbatsjov í miðstjórnarræðu:
Varað við vaxandi
tregðu o g andstöðu
Moskvu. Reuter.
MÍKHAIL Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, sagði í lokaræðu á
miðstjórnarfundi sovéska kommúnistaflokksins á þriðjudag, að hátt-
settir menn í flokknum væru ekki í takt við tímann og hefði mistek-
ist að laga sig að þjóðfélagsbreytingum þar I landi. Á fundinum voru
110 stjórnarmenn af 301 sviptir sætum sínum og sagði Gorbatsjov
frekari hreinsanir í vændum. TASS-fréttastofan skýrði ekki frá efhi
ræðunnar fyrr en tæpum tveimur sólarhringum eftir að hún var flutt.
„Starfshættir flokksins og
margra stofnana hans hafa ekki
verið í takt við raunveruleikann. Það
á einnig við um miðstjórnina og
stjórnmálaráðið,“ sagði Gorbatsjov.
Hann sagði að hreinsanimar hefðu
verið nauðsynlegar vegna sameigin-
legra hagsmuna flokksins og þjóðar-
innar allrar. Frekari breytinga
mætti vænta. „Þær verður að fram-
kvæma án nokkurs hiks,“ sagði
Gorbatsjov.
Moka upp
þorski við
Grænland
Þórshöfn. Frá Snorra Halldórssyni,
fréttaritara Morgunblaðsins.
MIKIL og góð þorskveiði er
nú á Grænlandsmiðum eins
og sjá má á því, að fyrir
nokkrum dögum kom græn-
lenski frystitogarinn Sim-
iutaa við í Þórshöfn á leið til
Cuxhaven með 1.024 tonn af
flökum eftir 70 daga á veið-
um.
Færeyingurinn Ragnar Ras-
mussen er skipstjóri á togaran-
um og giskaði hann á, að afla-
verðmætið væri allt að 178
milljónum ísl. kr. Ef rétt reyn-
ist verður hásetahluturinn
1.450.000 ísl. kr. Sagði Ragnar
í viðtali við blaðið Sosialurinn,
að þótt tíðin hefði verið stirð
hefði vel fiskast enda augljóst,
að mikill þorskur væri á miðun-
um, einkum við Vestur-Græn-
land.
Á Simiutaa er 48 manna
áhöfn, þar af fimm Færeying-
ar, sem allir eru yfirmenn um
borð. Hefur Ragnar verið með
skipið í hálft annað ár.
Sovétleiðtoginn sagði að sú til-
hneiging að tefja fyrir umbótum en
styðjast þess í stað við úrelt sjónar-
mið hefði farið vaxandi. „í auknum
mæli verðum við varir við tregðu
sem byggist á gamalli hugsun og
löngun til að stöðva þá þróun sem
á sér stað með skírskotun til gam-
alla hugmynda," sagði hann.
Gorbatsjov sagði að flokksmenn
bæru allir vissa ábyrgð og hefðu
skyldum að gegna gagnvart per-
estrojku í samræmi við ákvarðanir
stjórnmálaráðsins og ríkisstjómar-
innar. Lýðræði yrði að fá að þróast
áfram í Sovétríkjunum í takt við það
sem á undan væri gengið. Til marks
um hversu sumar flokksstofnanir
hefðu dregist aftur úr sagði hann
að sér fyndist hann stundum vera
foringi hersveita, sem blásið hefðu
til sóknar en kæmust annaðhvort
ekki upp úr skotgröfunum eða sigju
jafnharðan niður í þær aftur.
Sjá „Gorbatsjov sterkari eftir
nótt hinna...“ á bls. 20.
xveuter
Hörmungar í Bangladesh
Öflugur fellibylur fór yfir Bangladesh í gær með þeim afleiðing-
um, að mörg hundruð manns týndu lífi. Nefiidu stjórnvöld töluna
400 en hundruða var saknað í 30 þorpum, sem veðrið lagði í
rúst. Voru hamfarimar svo miklar, að engu var líkara en stór-
styijöld hefði geisað. Látið fólk, dauður búfénaður, brak úr bygg-
ingum og upprætt tré lágu eins og hráviði um allt og dæmi voru
um, að fullhlaðnir vömbílar fyþju hálfs kílómetra leið. Á mynd-
inni grætur ung stúlka yfir móður sinni látinni.
Vonir um
vopnahlé í
Líbanon
Beirut, Túnis. Reuter.
Utanríkisráðherra arabaríkj-
anna hvöttu í gær til vopnahlés
í Líbanon frá hádegi í dag og
kváðust mundu skipa nefind til
að fylgjast með því svo fljótt
sem auðið yrði. Einn leiðtogi
múslima í landinu fagnaði
vopnahléstillögunni en kristnir
menn svömðu henni ekki af-
dráttarlaust.
Tariq Aziz, utanríkisráðherra
íraks, skoraði í gær á stríðsaðila
í Líbanon að hætta vopnaviðskipt-
um á hádegi í dag og sagði, að á
utanríkisráðhertafundi Araba-
bandalagsins hefði verið ákveðið
að senda eftirlitsnefnd á vettvang
strax og því yrði viðkomið.
Selim Hoss, leiðtogi þeirra
múslima, sem Sýrlendingar styðja,
fagnaði vopnahléstillögunni og
kvaðst mundu gera sitt til að
hrinda henni í framkvæmd en
kristnir menn svöruðu henni ekki
beint. Fögnuðu þeir að vísu þeirri
ákvörðun að senda eftirlitsnefnd
til landsins en hvöttu um leið
Arababandalagið til að gangast
fyrir brottflutningi sýrlenska hers-
ins frá Líbanon. Sagði talsmaður
herstjórnar kristinna manna, að
skotið yrði á skyndifundi í dag til
að ræða vopnahléstillöguna.
Skammdræg kjarnorkuvopn í V-Evrópu:
Helmut Kohl hvattur til að
haftia þriðju núlllausninni
Kanslarinn ítrekar afstöðu ríkisstjórnarinnar á þingi
Bonn. The Daily Telegraph, Reuter.
HELMUT Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, ítrekaði I gær þá
kröfu ríkissljómar sinnar að
hafnar yrðu viðræður milli aðild-
arríkja Atlantshafsbandalagsins
og Varsjárbandalagsins um fækk-
un skammdrægra kjarnorku-
vopna í Evrópu. Utanríkisráð-
herra Breta og talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins ítrek-
uðu í gær andstöðu ríkisstjórna
sinna við slíkum viðræðum. Dr.
Heim tiljarðar
Þrír sovéskir geimfarar, sem
verið hafa um nokkurra mán-
aða skeið í Mir-geimfari á
braut um jörðu, lentu í gær
heilu og höldnu á steppunum
í Kazakhstan í Asíuhluta Sov-
étríkjanna. Til stóð að senda
upp aðra í þeirra stað en því
hefiir verið frestað í þrjá
mánuði að minnsta kosti. Er
það gert í spamaðarskyni
enda hefiir kostnaðurinn við
geimrannsóknaætlunina ver-
ið gagnrýndur. Geimfararair
þrír, Valeríj Poljakov, Alex-
ander Volkov og Sergei
Kríkalev, eru hér í góðra vini
hópi og með fast land undir
fótum.
Reuter
Max Streibl, forsætisráðherra
Bæjaralands og leiðtogi Kristilega
sósíalsambandsins, bræðraflokks
kanslarans, hefiir hins vegar hvatt
hann til að hafiia þeim möguleika
að skammdrægum kjarnorku-
vopnum verði útrýmt með öllu í
Evrópu.
Kanslarinn sagði í ræðu á þingi í
gær að aðstæður í Evrópu hefðu
breyst vegna umbótastefnu Míkhaíls
Gorbatsjovs Sovétleiðtoga og að
vestur-þýska ríkissjómin hefði
ákveðið að nýta sér þá möguleika
sem nú byðust til að tryggja frið og
öryggi í álfunni. Kohl lagði áherslu
á að Vestur-Þjóðveijar væru sann-
færðir um gildi aðildar landsins að
Atlantshafsbandalaginu og kvaðst
líta svo á að sú afstaða stjómvalda
í Vestur-Þýskalandi að hefja bæri
viðræður um fækkun skammdrægra
kjarnorkuvopna væri í samræmi við
yfirlýsta stefnu bandalagsþjóðanna.
Á miðvikudag skýrðu ljölmiðlar í
Vestur-Þýskalandi frá því að dr. Max
Streibl, forsætisráðherra Bæjara-
lands, hefði hvatt Kohl kanslara til
að lýsa yfir því í ræðunni í gær að
stjórn hans væri andvíg hugmyndum
um algera upprætingu kjarnorku-
vopna í Evrópu. Töldu fréttaskýr-
endur, að slík yfirlýsing af hálfu
kanslarans gæti orðið til þess að
greiða fyrir sáttum í deilu NATO-
ríkjanna en innan bandalagsins er
sú skoðun almenn að viðræður um
fækkun eldflauga muni á endanum
snúast um útrýmingu þeirra og hefur
sú tillaga verið nefnd „þriðja núll-
lausnin“.
Sýnt þykir að Kohl muni ekki
geta haldið sjónarmiðum sínum til
streitu án stuðnings bræðraflokksins
í Bæjaralandi. Kvaðst fréttaritari
The Daily Telegraph í Bonn hafa
heimildir fyrir því að ráðherrar í
ríkisstjórninni væm þegar teknir að
hvetja Kohl og Hans-Dietrich Gensc-
her utanríkisráðherra til að taka upp
sveigjanlegri stefnu.
Bretar og Bandaríkjamenn brugð-
ust í gær við ræðu Kohls með því
að vísa hugmyndum hans um viðræð-
ur um skammdrægu vopnin á bug.
Sagði Margaret Tutwiler, talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins,
að Sovétmenn hefðu þegar endumýj-
að sín kjarnavopn og hefðu mikla
yfirburði í vopnafjölda, og Sir Geof-
frey Howe, utanríkisráðherra Breta,
sagði, að það væri afar heimskulegt
ef Atlantshafsbandalagið semdi um
að afsala sér þessum vopnum.