Morgunblaðið - 28.04.1989, Side 4
4
MORGUNBLAÐH) FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1989
*
Islenskir aðalverktakar sf.:
224 milljóna króna hagnaður
af varnarliðsframkvæmdum
HAGNADUR íslenskra aðalverktaka sf. af vamarliðsframkvæmdum
á síðasta ári var rúmar 224 miiyónir kr., fyrir skatta, að sögn Thors
Ó. Thors forstjóra ÍAV. Velta varnarliðsframkvæmdanna var liðlega
2,8 milljarðar kr. og auk þess hefur félagið tekjur af eignum. Eigið
fé íslenskra aðalverktaka víir 3.356 milþ'ónir kr. um síðustu ára-
mót. Að sögn Thors hefúr ekki verið ákveðið hvort arður verður
greiddur út til eigenda.
Vilhjálmur Ámason formaður
stjómar íslenskra aðalverktaka
sagðist í gær vera almennt sam-
mála því sem Jón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra væri að
vinna að í sambandi við fyrirtækið.
Sérstaklega aðspurður um hug-
myndir ráðherra um að skipa þriðja
forstjórann að fyrirtækinu sagðist
Vilhjálmur vera því samþykkur.
Thor Ó. Thors forstjóri vildi ekki
tjá sig um þetta atriði. Auk skipan
nýs forstjóra hefur utanríkisráð-
herra náð samkomulagi við ÍAV um
að hann fái að tilnefna tvo stjómar-
menn í stað eins. Þá hefur hann
óskað eftir viðræðum við eigendur
um aukinn eignarhlut ríkisins í fyr-
irtækinu. Ráðning forstjóra er í
verksviði stjómar íslenskra aðal-
verktaka en hugsanlegar breyting-
ar á eignaraðild verða ræddar á
aðalfundum meðeigenda ríkisins.
Reginn hf., sem á 25% í ÍAV,
hefur ekki ákveðið aðalfund. Aðal-
fundur Sameinaðra verktaka hf.,
sem á 50% fyrirtækisins, verður
haldinn í Hótel Holiday Inn í dag
klukkan 14. Hlutafé var 32 milljón-
ir árið 1984, samkvæmt skýrslu
utanríkisráðherra til Alþingis það
ár, en það em nýjustu opinberu
upplýsingamar um _það efni. Þá
voru hluthafar 147. í stjórh félags-
ins em fímm menn.
Krían komin
til Haftiar
Hðb i Horaafirði
GARGQ) í krfunni vakd
Sverri Aðalsteinsson, starfs-
mann í fískiðjuveri Kaup-
félags Austur-Skaftfellinga.
Sverrir rak augun í þijár
kríur sem hnituðu hringi fram
af fískiðjunni. Um klukkustund
síðar sá hann svo tvær kríur
að sama leik, og þá var ekki
um að villast. Krían var komin.
Sverrir hefur ennfremur orð-
ið var við maríuerlu og sést
hefur til hrossagauksins svo
einhveijir vorboðar séu til
nefndir.
JGG
Auk þess fyrirkomulags sem
venjulegast er við kosningu stjómar
á slíkum fundum er heimilt, sam-
kvæmt hlutafélagalögum, að við-
hafa hlutfalls- eða margfeldiskosn-
ingu. Við margfeldiskosningu er
gildi hvers atkvæðis í félaginu
margfaldað með tölu þeirra manna
sem kjósa á, en síðan má hluthafí
veija öllu atkvæðamagni sínu, hvort
sem er á jafnmarga menn eða færri
en Iq'ósa skal. Ef til dæmis aðeins
einum manni er greitt atkvæði er
kjósa skal fimm manna stjóm, hef-
ur hver hlutur fímmfalt atkvæða-
gildi. Ákvæði um margfeldiskosn-
ingu var sett í lög til að tryggja
rétt minnihluta í hlutafélögum við
stjómarlq'ör. Við kosningu fímm
manna í stjórn geta hluthafar sem
ráða yfír meira en 16 % hlutafjár
og Iq'ósa allir sama manninn með
öllum atkvæðum sínum, komið
rnanni að.
Ef hluthafar sem ráða yfír
minnst fjórðungi hlutaflárins krefl-
ast þess með fímm daga fyrirvara,
skal beita hlutfalls- eða margfeldis-
kosningu við kjör stjómarmanna.
Ef krafíst hefur verið bæði hlut-
falls- og margfeldiskosningu skal
beita margfeldiskosningu.
Stjórnarformaður ÍAV:
Frjáls útboð fram-
kvæmda óraunhæf
VILHJÁLMUR Árnason formaður félagsstjómar íslenskra aðalverk-
taka sf. telur hugmyndir um fíjáls útboð vamarliðsframkvæmda
ekki raunhæfar, en Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, lýsti þeirri skoðun á Alþingi í umræðum um utanríkismál. Pálmi
Kristinsson framkvæmdastjóri Verktakasambands íslands segir að
verktakar tejji það ekki lausnina að hafa opin útboð með þeim hætti
að einstök fyrirtæki þyrftu að sækja með sin mál beint til Vamar-
liðsins. Taldi hann hugsanlegt að hugmyndir Jóns Baldvins Hannib-
alssonar utanrikisráðherra um að auka eignarhlut ríkisins í íslensk-
um aðalverktökum gæti verið skref í átt til hugmynda Verktakasam-
bandsins, þannig að ríkið hefði ákvörðunarvald um fyrirkomulag
framkvæmdanna.
„Mér fínnst þetta eðlileg hug-
mynd í sjálfu sér, en því miður
held ég að hún sé ekki raunhæf,"
sagði Vilhjálmur Ámason þegar
leitað var álits hans á hugmyndum
Þorsteins Pálssonar um fijáls útboð
á framkvæmdum fyrir Vamarliðið.
En eins og aðstæður era á Keflavík-
urflugvelli væri erfítt að koma við
almennum fijálsum útboðum.
Pálmi Kristinsson sagði að fyrir
einu ári hefði Verktakasambandið
lagt fram hugmyndir sínar um
breytingar á verktakastarfsemi á
Keflavíkurflugvelli. Þar hefði verið
gert ráð fyrir veralegum breyting-
um á núverandi fyrirkomulagi,
meðal annars með því að íslenskir
aðalverktar sf yrðu leystir upp og
sett á stofíi Innkaupastofnun vam-
arliðsframkvæmda sem yrði milli-
liður á milli verktaka og Vamarliðs-
ins og viðsemjandi við Vamarliðið
fyrir hönd stjómvalda. „Við höfum
aldrei séð það fyrir okkur að þama
yrðu algerlega opin útboð með þeim
hætti að íslensk fyrirtæki væru að
sækja með sín mál beint til Vamar-
liðsins," sagði Pálmi þegar leitað
var álits hans á hugmyndum for-
manns Sjálfstæðisflokksins.
Pálmi sagði vel hugsanlegt að
hugmyndir Jóns Baldvins Hanni-
balssonar utanríkisráðherra um að
auka eignarhlut ríkisins í Aðalverk-
tökum gætu verið skref í átt til
hugmynda Verktakasambandsins.
Sértaklega ef ríkið næði meirihluta
í fyrirtækinu, því þá hefði ríkið
völd til að ákveða fyrirkomulag
framkvæmdanna.
Morgunblaðið/Júlíus
Frá undirritun samningsins um stofnun hins nýja fyrirtækis. Frá
vinstri eru Helgi Gestsson, Guðlaugur Bergmann, Ólafúr Friðriksson
og Hafsteinn Eiríksson.
Saumastofan Sólin
og Gefjun sameinast
EIGENDUR saumastofúnnar Sólin hf. (Kamabær) og fataverksmiðj-
unnar GeQunar hafa stofnað með sér nýtt hlutafélag sem taka mun
við rekstri beggja fyrirtækjanna og yfirtaka samninga við viðskipta-
vini þeirra. Hið nýja fyrirtæki heitir Sólin-GeQun hf. Forráðamenn
beggja fyrirtækjana segja að þessi sameining sé einkum til þess að
halda þekkingu í fataiðnaði áfram hér innanlands og hagræða í
rekstri fyrirtækjanna.
Hið nýja fyrirtæki tekur form-
lega til starfa 2. maí n.k. Það verð-
ur til húsa að Nýbýlavegi 4 í Kópa-
vogi þar sem saumastofan Sólin var
til húsa. Starfsmenn verða 22 og
koma jafnmargir frá hvora fyrir-
tækjanna um sig. Fyrir sameining-
una vora starfsmenn fyrirtækjanna
beggja liðlega 30 talsins.
I máli forráðamanna hins nýja
fyrirtækis kemur fram að til þessa
samstarfs er stofnað vegna erfíð-
leika í fataiðnaði hérlendis og til
að styrkja íslenska fatagerð. Þann-
ig verði unnt að viðhalda nauðsyn-
legri þekkingu á þessu sviði innan-
lands. Erfíðleikamir í fataiðnaði era
einkum rangt skráð gengi, hömlu-
laus innflutingur á fötum frá lág-
launasvæðum og mikill ijármagns-
kostnaður, að sögn forystumanna
fyrirtækisins..
Hugmyndin að stofnun hins nýja
fyrirtækis kom upp í nóvember á
síðasta ári. Sljómarformaður verð-
ur Ólafur Friðriksson framkvæmda-
stjóri Verslunardeildar Sambands-
ins en aðrir í stjóm era Guðlaugur
Bergmann forstjóri G. Bergmann
hf. og Hafsteinn Eiríksson forstöðu-
maður sérvöradeildar Verslunar-
deildarinnar. Með framkvæmda-
stjóm fyrst um sinn fer Helgi Gests-
son framkvæmdastjóri Geflunar.
Hársnyrtistofur kærð-
ar fyrir verðlagsbrot
„ÞAÐ liggur beint við að kæra þær hársnyrtistofúr, sem hafe brot-
ið gegn verðlagslöggjöfinni og ekki látið sér segjast," sagði Guð-
mundur Sigurðsson, yfirviðskiptafræðingur Verðlagsstofíiunar.
Verðlagsstofnun kannaði verð á
hársnyrtistofum í byijun mars, eftir
að verðstöðvun lauk. Þá kom í ljós
að .sumar hárgreiðslu- og rakara-
stofur höfðu hækkað verð á þjón-
ustu sinni langt umfram þá 5%
hækkun, sem heimil var á verðskrá
þeirri, er í gildi var 27. ágúst 1988.
Frekari hækkun var ekki heimil
nema með sérstöku leyfí.
Verðlagsstofnun hefur nú kann-
að að nýju hvort stofumar hafí far-
ið eftir þessari ákvörðun. í ljós kom
að flestar höfðu gert það, en nokkr-
ar þó hækkað verðið á þjónustu
sinni meira en heimilt er. „Allir eig-
endur hársnyrtistofa hafa fengið
upplýsingar um leyfílega hækkun
og það liggur beinast við að kæra
þá sem brotið hafa gegn verðlags-
löggjöfínni,“ sagði Guðmundur Sig-
urðsson. „Lögfræðingar okkar era
í verkfalli þessa dagana og ég skal
ekkert um það segja hvort fallið
verður frá kæru ef eigendur kippa
þessum málum f liðinn á næstu
dögum."
Holiday Inn:
Glitnir og Iðnaðar-
banki yfírtaka hótelið
GLITNIR hf. og Iðnaðarbankinn gerðu I gær samning við þrotabú
Holiday Inn hótelsins í Reykjavík um yfirtöku á hótelinu frá og með
1. maí nk. Fasteignin er yfirtekin á verði sem samsvarar áhvilandi
skuldum næst á undan tryggingarbréfi Glitnis eða sem næst 365
milijónum króna. Að auki eru þrotabúinu greiddar 8 miHjónir fyrir
ýmsan óveðsettan búnað og 13 mil(jónir fyrir viðskiptavild sem felst
í viðskiptasamböndum, bókunum og því að hótelið er í fúllum rekstri
með þjálfeð starfsfólk.
Ástæða þess að Glitnir og Iðnað-
arbankinn yfírtaka reksturinn nú
með fijálsum samningum við þrota-
búið er einkum sú, að fyrirsjáanlegt
var að ella hefðu þessir aðilar orðið
að kaupa fasteignina á nauðungar-
uppboði á næstunni að sögn Kristj-
áns Óskaresonar, framkvæmda-
stjóra Glitnis. Hann segir næsta
víst að þá hefði ekki verið unnt að
tryggja samfelldan rekstur hótels-
ins og veraleg verðmæti hefðu þá
farið forgörðum. Hins vegar sé
stefnt að sölu hótelsins jafnslq'ótt
og hagkvæmt reynist.
í gær var jafnframt gengið frá
ráðningu Wilhelm Wessman í starf
hótelstjóra og tekur hann við stjóm
hótelsins hinn 1. maí. Wilhelm hef-
ur starfað á Hótel Sögu samfellt í
22 ár fyret sem veitingastjóri en
lengst af sem aðstoðarhótelstjóri.
Síðastliðin 7 ár var hann fram-
kvæmdastjóri Gildis sem sá um all-
an rekstur á veitinga-, skemmti-
og ráðstefnuhaldi á Hótel Sögu.
Wilhelm er formaður Sambands
veitinga- og gistihúsa auk þess sem
hann gegnir formennsku í Norræna
hótel- og veitingasambandinu.
Hann situr fyrir hönd Norðurlanda
I framkvæmdastjóm Intemational
Hotel Association.
Morgunblaðið/Sverrir
Útför Brynjólfs Bjarnasonar
ÚtfÖr Brypjólfs Bjarnasonar fyrrverandi ráðherra var gerð frá
Fossvogskirkju i gær, að viðstöddu Qölmenni. Sr. Rögnvaldur
Finnbogason á Staðastað á Snæfellsnesi jarðsöng. Úr kirkju báru
kistuna Ragnar Stefánsson, Svavar Gestsson, Páll Skúlason, Andr-
és Haraldsson og bamaböm Bryiýólfs, Friða, Stefón, Marteinn
og Brypjólfur Vestergaard.
Slasaðist í
árekstrisex
bifreiða
KONA slasaðist í hörðum árekstri
sex bfla á Kringlumýrarbraut
klukkan 10.40 á miðvikudaginn.
Ökumaður bflsms, sem var ekið
aftan á bíl konunnar, ók á brott.
Áreksturinn varð með þeim hætti
að konan ók bíl sínum á norðurleið
á hægri ferð eftir Kringlumýrar-
braut, á móts við Hamrahlíð. Þá var
öðrum bíl ekið aftan á hennar. Þriðji
bíllinn reyndi að hemla, en fékk þann
fjórða aftan á sig og kastaðist áfram,
á bíl númer 2. Þar með er Bögunni
ekki lokið, því aftan á fjórða bíl lenti
sá fímmti, sem var vörabfll. Loks
lenti fólksbíll, sjötti bíllinn, á vöru-
bflnum.
Konan, sem ók fremsta bflnum,
slasaðist nokkuð við áreksturinn.
ökumaður bflsins, sem var ekið aftan
á hennar, ók strax af vettvangi.
Hann er beðínn um að gefa sig fram
við slysarannsóknadeild lögreglunn-
ar, sem og þau vitni, sem sáu árekst-
urinn.