Morgunblaðið - 28.04.1989, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAG'EJR' B8/ APRÍL'1989
5
Flugleiða-
bjórinn
hækkar
FLUGLEIÐAFARÞEGAR sem
fóru út í síðustu viku og komu
heim um helgina veittu því at-
hygli að bjórinn um borð í Flug-
leiðaflugvélunum hafði hækkað
á þessum tíma úr 70 krónum
dósin í 100 krónur. Jafhframt
var skammturinn aukinn.
Að sögn Einars Sigurðssonar,
blaðafulltrúa Flugleiða, er bjórinn
eini vamingurinn um borð í vélum
Flugleiða sem hefur hækkað og
ástæðan sú að hann hafi setið eftir
hjá félaginu um alllangt skeið og
verið orðinn talsvert lægri en gerist
hjá öðrum flugfélögum sem félagið
miði sig við, t.d. í Bandaríkjunum.
Einar segir jafnframt að nú sé
verið að skipta um bjórtegund um
borð í vélunum eða úr Carlsberg
yfír í Heineken. Verðhækkunin hafí
hins vegar átt sér stað sl. laugardag
en þá hafí verið dreift í flugvélunum
nýrri verðskrá yfír vaming sem á
boðstólum er í vélunum. Vegna út-
lendinganna sem fljúga með félag-
inu hafí þótt nauðsynlegt að færa
bjórverðið þá þegar til samræmis
við verðskrána, enda þótt skiptin á
bjórtegundunum hafí e.t.v. ekki
verið komin til framkvæmda í öllum
tilfellum.
„Hins vegar er þess að geta að
um leið og við skiptum um bjórteg-
und stækka dósimar úr 24 cl upp
í 33 cl. þannig að aukningin í magni
er 37,5% meðan verðhækkunin er
um 43%, svo að í reynd er verð-
hækkunin ekki eins vemleg og virð-
ast kann við fyrstu sýn, þvi að hver
sentilítri kostaði áður um 2,92 kr.
en nú kostar hver sentillítri 3,03,
svo að hækkunin er í raun ekki
nema 4,1%“ sagði Einar.
Borgarráð:
Rúmlega
41,9 millj.
til bifreiða-
geymslu
BORGARRAÐ hefiir samþykkt
tillögur stjórnar Innkaupastofh-
unar Reylgavíkurborgar, að taka
tilboði Steintaks hf., 41.962.007
milþ’ón króna í uppsteypu og frá-
gang á bifreiðageymslu við
Bergstaðastræti. Jafhframt að
taka tilboði lægstbjóðanda, Valar
hf., 32.987.293 milljón króna, í
gatnagerð, lagningu holræsa og
jarðvinnu við Borgarholt I, 2.
áfanga í Grafarvogi.
Þrettán tilboð bámst í uppsteypu
og frágang bifreiðageymslunnar við
Bergstaðastræti. Tilboð Steintaks
hf. er 73,47% af kostnaðaráætlun,
en hún er rúmlega 57,1 milljón
króna. Hæsta tilboð átti ístak, rúm-
lega 51,6 milljón sem er 90,49%
af kostnaðaráætlun.
Fjögur tilboð bámst í gatnagerð
og lagnir í Borgarholt I, 2. áfanga
og er tilboð lægstbjóðanda 87,89%
af kostnaðaráætlun, sem er rúm-
lega 37,5 milljónir króna. Hæsta
tilboð átti Gunnar og Guðmundur
sf., rúmlega 52,1 milljón króna eða
138,65% af kostnaðaráætlun.
Listahátið:
Nýr formaður
framkvæmda-
stjórnar
REYKJAVÍKURBORG hefur
skipað Valgarð Egilsson lækni,
formann framkvæmdastjórnar
næstu Listahátíðar.
Valgarður kemur í stað Ingólfs
Guðbrandssonar, sem sagði af sér
formennsku af heilsufarsástæðum.
KOLAPORTIÐ
hefur
svo
sanna
slegið I
• Líflegt og manneskjulegt markaðstorg sem allir taka þátt í.
# Sölubásar með allt milli himins og jarðar.
O Helíum-blöðrur og barnatívolí.
O Heitar og kaldar veitingar
Sdnnköllud markaðsstemmning alla laugardaga frá kl. 10-16.
Hlustið á beint útvarp frá Kolaportinu á útvarp RÓT FM 106.8
mióbaeiarins!
,
Rfxudm merkinf.d. á matseðium, skartgripum, fatnaði, skóm,
gjafavöru, búsáhöldum, metravöru o.fl. tákna að viðkomandi vöruteg-
undir eru seldar á sérkjörum aóeins á laugardögum.
Fritt i öll bílastæói um alla mióborgina.
500-600 þjónustuaðilar bíða eftir að þjóna þér, sem sagt
meiri háttar miðbæjarstemmning
Kolaportió - Mióbæiarsamtökin