Morgunblaðið - 28.04.1989, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖST|LiPAGljP; ?8, iAPRÍL; 1989
11
Lúðrasveit Stykkishólms verður meðal þeirra Qölmörgu lúðrasveita sem mæta á landsmót lúðra-
sveita á Seltjamarnesi helgina 28.—30. april.
Landsmót skólalúðrasveita
Landsmót Sambands íslenskra skólalúðrasveita, SÍSL, verður
haldið dagana 28.—30. apríl á Seltjarnarnesi. Tuttugu ár eru lið-
in firá því að fyrst var haldið vormót skólalúðrasveita og þá ein-
mitt á Seltjamaraesi. Landsmótin eins og þau heita nú em hald-
in til skiptis í kaupstöðum landsins annað hvert ár.
Seltimingar taka nú á móti 30
sveitum sem telja um 700—750
þátttakendur. Þetta mun því vera
fjölmennasta landsmót sem SÍSL
hefur haldið. Nokkrar nýjungar
hafa verið teknar upp að þessu
sinni s.s. að nú er sett upp „Lands-
lið SÍSL“, þ.e. úrvalsnemendur af
öllu landinu, samtals 68 manna
hljómsveit. I öðru lagi er nú sett
upp hljóðfæra- og nótnasýning
þar sem blásaramir og hljómsveit-
arstjórar geta kynnt sér verð og
gæði. í þriðja lagi em tónleikam-
ir, sem jafnan era hápunktur
landsmótanna, nú tvískiptir, þ.e.
fyrir yngri og eldri deildir.
Tónleikamir verða haldnir í
íþróttahúsinu á Seltjamamesi 29.
apríl, þeir fyrri kl. 13.40 og hinir
síðari kl. 17.
Tónlistarskólinn á Seltjamar-
nesi og foreldrafélag skólalúðra-
sveitar Seltjamamess hafa séð
um undirbúning fyrir mótið. Móts-
slit verða á Eiðistorgi sunnudag-
inn 30. apríl kl. 14.
(Fréttatilkynning)
Margrétar og Sigurð-
ar frá Hrísdal miniist
Borg- í Miklaholtshreppi
Við guðsþjónustu sem firam
fór í kirkjunni á Fáskrúðar-
bakka sunnudaginn fyrsta i
sumri var minnst hjónanna frá
Hrísdal, Margrétar Oddnýjar
Hjörleifsdóttur, f. 26.9.1899, og
Sigurðar Kristjánssonar, f.
5.10.1888.
Á síðasta ári voru liðin 100 ár
frá því að Sigurður fæddist, en á
þessu ári verða 90 ár frá því að
Margrét fæddist.
Þá eru ennfremur 70 ár frá
giftingardegi þeirra, sem var 3.
mars síðastliðinn.
Þau Sigurður og Margrét
bjuggu lengst af í Hrísdal í Mikla-
holtshreppi. Þeim varð tíu bama
auðið.
Eitt þeirra er dáið, Kristján
Erlendur, sem var bóndi í Hrísdal.
Átta böm þeirra vora mætt við
þessa guðsþjónustu.
Kristjana, húsfrú í Hlíðarholti í
Staðarsveit, flutti minningarorð
um foreldra sína og færði jafn-
framt kirkjunni á Fáskrúðarbakka
forkunnarfagra „stólu“ til minn-
ingar um foreldra þeirra.
Stóla þessi er ofin af Sigríði
Jóhannsdóttur veflistarkonu. Er-
lendur Halldórsson formaður
sóknamefndar þakkaði gjöfína
fyrir hönd safnaðar. Eftir kirlquat-
höfnina var öllum kirkjugestum
boðið til kaffidrykkju í félags-
heimili sveitarinnar á Breiðabliki.
Við sem höfum haft kynni af þess-
um sæmdarhjónum minnumst
þeirra með virðingu og þökk.
Páll
Fuglaverndarfélagið:
Hugað að
farfiiglum
Fuglaveradarfélagið efiiir til
fúglaskoðunarferðar sunnudag-
inn 30. apríl nk.
Áætlað er að aka um Þrengsli
og siðan um Ölfusið, en þar má
búast við gæsahópum á túnum.
Farið verður að Stokkseyri og Eyr-
arbakka, en í fjöram og á (jörnum
á svæðinu má búast við aragrúa
farfugla. Ekki er útilokað að leið-
angursmenn sjái fyrstu kríumar
koma til landsins. Að endingu verð-
ur annað hvort farið að Sogninu
og hugað að öndum á ánni, en þar
era m.a. vetrarstöður húsanda og
hvinanda, eða í Selvoginn og að
Hlíðarvatni, sem einnig er mikill
andastaður. Ræðst það af aðstæð-
um, hvor kosturinn verður valinn.
Lagt verður upp frá Umferðar-
miðstöðinni að vestanverðu kl.
10.00. Frítt er fyrir böm í fylgd
fullorðinna. Reyndir og staðkunn-
ugir fuglaskoðarar sjá um leiðsögn
og fararstjóm.
(Fréttatilkynning)
Stjórain, f.v. Guðbjörg Björgvins, Edda Scheving og Ingibjörg Björas-
dóttir.
A
Islenskir þátttakend-
ur á Degi dansins
Alþjóðlegur dagur dansins á vegum Alþjóða Leikhúsmálastofiiunannn-
ar verður haldinn á íslandi á laugardaginn, 29. apríl. Félag íslenskra
listdansara er nú þátttakandi í degi dansins í fyrsta sinn, en um 70
dansarar allt frá 5 ára aldri hafa æfit ýmis verk í vetur með þennan dag
í huga.
Islenski dansflokkurinn mun sýna
á Kjarvalsstöðum klukkan 16.00 og
nemendur í Listdansskóla Þjóðleik-
hússins verða með stutt sýnishom
úr balletttíma í Kringlunni klukkan
11.30 og 12.30. Á Eiðistorgi verður
danssýning klukkan 14.15 með þátt-
töku nemenda frá Ballettskóla Eddu
Scheving, Ballettskóla Guðbjargar
Björgvins, Ballettskóla Sigríðar Ár-
mann og Listdansskóla Þjóðleik-
hússins.
„Við erum að reyna að koma til
fólksins með því að hafa þessar sýn-
ingar í verslunarmiðstöðum, sögðu
þær Edda Scheving og Ingibjörg
Bjömsdóttir í stjórn Félags íslenskra
listdansara í samtali við Morgun-
blaðið. Þær sögðu enn fremur, að
þær vildu getað haft sýningarnar
utanhúss, en ekki væri stólandi á
veðrið um þessar mundir fremur en
endranær.
Um hlutabréf í Meleyn
Vegna mistaka við vinnslu fréttar í blaðinu í gær um hlutabréfa-
kaup í Meleyri hf. á Hvammstanga birtist hér fyrri hluti fréttarinn-
ar afitur.
„Meleyri hf. á Hvammstanga,
sem gerir út tvö frystiskip og rekur
rækju- og fiskverkun, hefur aukið
hlutafé sitt um helming.
Stjóm félagsins hefur að undan-
fömu leitað ýmissa leiða til að
bæta stöðuna, sem hefur verið mjög
erfíð. Horfur voru á að félagið yrði
að selja annan eða jafnvel báða
báta sína, en það á mb. Sigurð
Pálmason og mb. Glað, sem báðir
eru rækjuveiðiskip með frystibún-
aði.
Hin nýju hlutabréf hafa verið
seld RækjuverksmicSjunni hf. í
Hnífsdal, sem á skipin mb. Jöfur
og mb. Sigga Sveins, og Hafex hf.
í Reykjavík, sem er útflutnings-
fyrirtæki með sjávarafurðir.“
Morgunblaðið biðst velvirðingar
á mistökunum.