Morgunblaðið - 28.04.1989, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUÐAG.UR 28. ABRÍL 1989
19
Dagheimili
Morgunblaðið/ KG
RE Y_KJ AlVJK_
"fossvogsIT \dalur
KÓPAVOGSDALUR !
UTIVISTARSVÆÐI I KOPAVOGSDAL
A\ \' \ j\\ — -J r I •• BæíísÆÍ c
. Bækistöö garöyrkju •
.■óg yinnuskóla Kópavogö
Æfingasvæði
BREIÐABUKS , ^V’kOPAVQGSVOLLIJI
^ Tennis-
blakvellir
''Minni /
æfingavelljr.
\Kyg.jn(;l.).\ð Ki,
fyri skólagörðum og smíðavelli í
grend við dagheimilislóð. í tillögu
að íþróttasvæði Breiðabliks er með-
al annars gert ráð fyrir gervigra-
svelli, tveimur stórum æfingarvöll-
um auk valla fyrir tennis, blak og
körfubolta. Þar verður einnig fé-
lagsheimili U.B.K ásamt íþróttahúsi
og skólahúsi í tengslum við fyrir-
hugaðan grunnskóla.
Vísa yfirlýsingnm borgar-
stjóra algerlega á bug
- segir Heimir Pálsson forseti bæjarstjórnar Kópavogs
„ÉG lít á það sem mistök hjá borg-
arstjóranum að setja firam svona
marklausar yfirlýsingar og vísa
þeim algerlega á bug. Ég tel þær
einungis sýna hvað hann hefur af
fáum rökum að taka í þessu efiii,
og fróðlegt væri að vita hvort það
er afstaða meirihluta borgar-
stjómar Reylqavíkur að ekki. séu
til önnur svör í þessu máli,“ segir
Heimir Pálsson forseti bæjar-
stjóraar Kópavogs um þau um-
mæli Davíðs Oddssonar borgar-
stjóra að ef Kópavogur ætli ein-
hliða að slíta samningi um lagn-
ingu Fossvogsbrautar þá verði
allir samningar sem Reykjavíkur-
borg hefiir gert við Kópavog tekn-
ir til skoðunar.
Heimir sagði að varðandi samn-
inga Reykjavíkurborgar og Kópa-
vogs um heitt og kalt vatn, rafmagn
og slökkvilið, þá væri um að ræða
þjónustu sem Kópavogur hafi greitt
fyrir fullu verði. „Það sem kátlegast
er í þessari upptalningu borgarstjór-
ans er að við eigum okkar hlut í
Hitaveitunni, og hann er því ekki að
tala um einkaeign sína. Ég lít því á
það sem mistök af hans hálfu að
leyfa sér að slengja svona framan í
fólk. Varðandi það að borgin hafi
borgað fyrir það land sem þurfi und-
ir Fossvogsbrautina þá er það ein
af þeim rangfærslum sem menn leyfa
sér í þessu sambandi, því í samningn-
um frá 1973 stendur efnislega að
þegar brautin hefur verið lögð þá
afhendi Kópavogur Reykjavík kvaða-
laust og án endurgjalds það land sem
verði Reykjavíkurmegin við brautina.
Það sem ég ímynda mér að villi um
fyrir borgarstjóranum í þessu sam-
bandi er að samhliða samningnum
um Fossvogsbrautina áttu sér stað
makaskipti á landi úr Fífuhvamms-
landi og því landi sem nú er undir
Smiðjuhverfinu í Kópavogi. Þetta er
eina landið úr Kópavogi sem
Reykjavíkurborg hefur greitt fyrir,
og það hefur alla tíð verið túlkun
Kópavogskaupstaðar að það komi
Fossvogsbraut ekkert við.
Meginatriði þessa máls er að það
samkomulag var gert á sínum tíma
um lagningu Fossvogsbrautar var
gert miðað við allt aðrar aðstæður
en nú eru til staðar, og vegna þeirra
breyttu aðstæðna og jafnframt þess
að ekkert hefur verið gert í þessu
máli svo sem til stóð í upphafi, þá
teljum við augljóst að þetta sam-
komulag er ekki í gildi lengur. Við
erum því ekki að lýsa yfir riftun á
samkomulagi sem frá okkar bæjar-
dyrum séð væri gilt, heldur lýsum
við því einungis yfir að við teljum
það ekki í gildi. Við sáum ástæðu
til þess að birta þessa yfirlýsingu
okkar til þess að enginn þurfi að
velkjast í neinum vafa um hvað við
eigum við þegar við ítrekum fyrri
samþykktir okkar um að þarna skuli
verða útivistarsvæði. Davíð Oddsson
hefur vitað það mjög lengi hver af-
staða allrar bæjarstjómar í Kópavogi
er til þessa máls, og hann hefur al-
veg neitað að ræða um Fossvogs-
dalinn sem útivistarsvæði," sagði
Heimir Pálsson.
Olíuviðskipti við Sovétmenn:
Abyrgðum Alþýðu-
bankans hafiiað
SOVÉTMENN hafa neitað að taka gildar ábyrgðir sem Alþýðubankinn
hefur veitt Olís vegna hlutdeildar fyrirtækisins í þremur olíuförmum
sem komið hafa hingað á undanförnum vikum. Sovétmenn vilja aðeins
taka gildar ábyrgðir frá Landsbanka, Útvegsbanka, Búnaðarbanka eða
Seðlabanka og hóta að öðrum kosti að lesta ekki skip með olíu hing-
að. Að sögn Jóns Ogmunds Þormóðssoriar, skrifstofustjóra í viðskipta-
ráðuneytinu, er tryggt að einn þessara banka veiti ábyrgðir vegna
næsta farms taki Sovétmenn ekki til greina umsóknir frá Alþýðubank-
anum um að öðlast viðurkenningu í viðskiptum landanna. Jón Ögmund-
ur vildi ekki upplýsa hvaða banka væri að ræða en sagði niðurstöðu
væntanlega fyrir 5. maí.
Olíuviðskiptin eru ákveðin í fimm
ára viðskiptasamningum landanna.
Núverandi samningur gildir til loka
1990 og hefst endurskoðun hans um
mitt næsta ár, að sögn Jóns Ög-
munds. Samningurinn tekur til
bensíns, gasolíu og svartoliu en
magnið, sem keypt er, ákvarðast í
árlegum viðræðum viðskiptaráðu-
neytisins og sovéska rikisolíufélags-
ins. Viðskiptaráðuneytið framselur
samninginn til olíufélaganna þriggja
sem skipta innflutningi á milli sín í
samræmi við markaðshlutdeild. Að
sögn Jóns Ögmunds hafa Olís og
Skeljungur hvort um sig 25-30% við-
skiptanna en Olíufélagið stærsta
hlutann. í samningnum er gert ráð
fyrir að tíu dögum fyrir lestun farms
hafi verið lagðar fram tryggingar
fyrir greiðslu fyrir milligöngu ein-
hvers hinna viðurkenndu banka. Jón
Ögmundur sagði að eftir að Lands-
bankinn lokaði fyrir ábyrgðir til Olís
hefðu Sovétmenn ekki hreyft mót-
mælum fyrr en eftir að tveir farmar
voru komnir hingað til lands og höfðu
verið greiddir á gjalddögum. Síðan
hefðu borist skeyti frá ríkisolíufélag-
inu þar sem þess var krafist að farið
yrði að samningi þjóðanna í einu og
öllu og því hótað að lesta ella ekki
fleiri skip.
Jón Ögmundur sagði að þegar
væri fenginn banki til að taka við
hlutverki Alþýðubankans, neituðu
Sovétmenn áfram að taka ábyrgðir
hans gildar, en vildi ekki uplýsa um
hvaða stofnun væri þar að ræða.
Fréttin, sem birtist í Aftonbladet.
„Það díoxín, sem finnst hér við land,
má sennilega helzt skrifa á reikning
Bandaríkjamanna og Evrópu-
manna, en það er erfitt að segja
hvorum má eigna það frekar,“ sagði
Daníel. Hann sagði að Hollustu-
vemd hefði samskipti við sambæri-
legar stofnanir á Norðurlöndum,
sem hefðu samband ef alvarleg at-
vik kæmu upp hvað mengun eða
eiturefnamælingar varðaði. Ekkert
hefði heyrzt frá Svíþjóð varðandi
díoxínmengun í lýsi og það benti
til að Svíar kipptu sér ekki sérstak-
lega upp við þessar fregnir. Frá
fréttaritara Morgunblaðsins í
Stokkhólmi bárust einnig þær frétt-
ir, að sænskir fjölmiðlar hefðu ekki
fjallað um málið í gær.
Ein orsök selafársins
Guðjón Atli Auðunsson, sérfræð-
ingur hjá Rannsóknastofnun fisk-
iðnaðarins, segir að díoxín sé þriðja
eitraðasta efni, sem þekkt sé í heim-
inum. Það geti valdið krabbameini,
lifrarskemmdum, húðsjúkdómum,
fósturskemmdum og haft áhrif á
miðtaugakerfið. Efnið sé fítuleysið
og safnist því einkum í fítuvefí, til
dæmis í þorsklifur og í kjöt feitra
físka, til dæmis lax og lúðu, sem
safna fítunni ekki fyrir í lifur. „Mæl-
ingar eru hins vegar ekki svo langt
komnar að menn geti almennilega
gert sér grein fyrir þessu,“ sagði
Guðjón. „Hver mæling er flókin,
þar sem díoxín er samsett úr 210
efnum, og hún kostar upp undir
100.000 íslenzkar krónur. Það er
ekki nógu mikið vitað um magn-
dreifingu á þessum efnum og alls
ekki hvað varðar dreifingu milli
ákveðinna fisktegunda. Að mæla
díoxínmagn í sjó er gersamlega
ómögulegt. Efnið safnast fyrir í
fiskafitu og er þar um 21.000-
26.000 sinnum meira en í sjónum
í kring.“ Guðjón tók fram að mæl-
ingar á díoxíni væru eina lengst
komnar við háskólann í Umeá og
stjórnandi þeirra, Kristofer Rappe,
væri einn virtasti vísindamaður á
sínu sviði í heiminum. „
Að sögn Guðjóns er díoxín talið
geta veikt ónæmiskerfið, og sé því
díoxínmengun ein orsök þess, að
fjöidi sela í Norðursjó og við Nor-
egsstrendur veiktist af vírusum
síðastliðið sumar. „Díoxín er aðeins
framleitt af manna völdum, en aldr-
ei af ásettu ráði,“ sagði Guðjón.
„Það er þriðja eitraðasta efni, sem
menn þekkja, og það hefur meðal
annars valdið mikilli hræðslu við
efnið í Svíþjóð.“
Umdeilt hvað rnikið
er hættulegt
Guðjón sagði að það væri mjög
umdeilt meðal vísindamanna hversu
mikið af efninu væri hættulaust að
innbyrða. Algengt væri að setja
markið við 25 PPT af efninu í
matvælum (25 píkógrömm í
grammi), en mælingar sýndu að í
íslenzka lýsinu væru um 6 PPT.
Tilraunir hefðu verið gerðar með
efnið á ýmsum dýrum og þau brygð-
ust afar mismunandi við. í Svíþjóð
hefðu hættumörkin verið sett lágt,
og það hefði einnig verið gert í
Danmörku, Hollandi og Kanada.
Miðað væri við að ekki væru tekin
inn meira en fimm píkógrömm á
hvert kíló líkamsþunga manns á
dag. Sem fyrr segir er efnið fitu-
leysið, og er því í ýmsum matvælum
sem innihalda fitu. Með móðurmjólk
fá ungabörn til dæmis tuttugu sinn-
um meira díoxínmagn á dag en
Svíar telja æskilegt fyrir fullorðna,
en kostir mjólkurinnar fyrir börnin
á meðan þau vaxa sem hraðast, eru
þó taldir vega upp áhrif díoxíns-
magnsins.
Hefur klórað vatn áhrif?
Guðjón sagði að það væri sér-
kennilegt, að miðað við tölurnar frá
Umeá-háskóla væri díoxínmagn hér
við land um helmingi minna en í
Eystrasalti, en 5-10 sinnum minna
væri hins vegar af eiturefnunum
PCB og DDT, sem ætla mætti að
dreifðust á svipaðan hátt og díoxín.
„Þetta virðist benda til þess, að
efnið berist ekki eingöngu utan úr
heimi. Ég hef sett fram þá tilgátu,
að hugsanleg orsök geti verið sú,
að mikið er notað í fiskiðnaði af
vatni, sem hefur verið sótthreinsað
með klór. Við notum um sex tonn
af vatni á hvert tonn af fiski. Ein
meginuppspretta díoxíns er, auk
sorpbrennslu, klórmeðhöndlun
pappírs, sem er lífrænt efni. í físk-
vinnslunni er líka verið að með-
höndla lífrænt efni með klór,“ sagði
Guðjón. „Klórið fer síðan út í hafið,
þar sem getur haft áhrif á lífræn
efni. Ég árétta þó að þetta er að-
eins tiigáta."
Ósáttir við að sérstaklega
skuli ráðizt að íslendingum
Haukur Már Stefánsson, verk-
smiðjustjóri Lýsis hf., segir að sér
þyki leitt, að þetta mál hafi komið
upp, þar sem unnið hafi verið að
því í samvinnu við ACO að losna
við eiturefnið úr lýsinu með því að
sía það í gegn um viðarkol. Tilraun-
ir í þá átt hafi borið góðan árang-
ur, og því verði hægt að selja
íslenzkt lýsi sem tandurhreina afurð
von bráðar. „Við erum ósáttir við
að sérstaklega skuli vera ráðizt á
okkur, vegna þess að díoxín er að
finna í einhveijum mæli í mjög
mörgum matvælategundum,“ sagði
Haukur. „Það er til dæmis meira í
mjólkurvörum, rauðsprettu og fleiri
feitum vörum. Svo er það auðvrtað
í til dæmis norsku lýsi, en í frétt
Aftonbladet er eingöngu fjallað um
íslenzkt lýsi.“
Haukur sagði að fjölmargir lýsis-
neytendur hefðu hringt til Lýsis hf.
vegna fregna um díoxín í lýsi. „Efn-
ið er í mjög litlum mæli í lýsinu,
og við höfum beint því til fólks að
það eigi alls ekki að stofna heils-
unni í hættu með því að hætta að
taka lýsi, því að holl áhrif þess eru
margsönnuð,“ sagði Haukur.